NT - 29.12.1984, Blaðsíða 17

NT - 29.12.1984, Blaðsíða 17
 Laugardagur 29. desember 1984 17 111 r Útvarp — Sjónvan IlI L Útvarp sunnudaginn kl. 13.30: ii Þorsteinn 0. Stephensen áttræður ■ Þorsteinn Ö. Stephensen var um langt árabil einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. Hann varð áttræður 21. des. s.l. og í tilefni af því verður flutt sérstök dagskrá um hann í útvarpinu á sunnudag kl. 13.30. ■ Á sunnudaginn kl. 30.30 verður í útvarpi flutt dagskrá í tilefni af áttræðisafmæli Þor- steins Ö. Stephensen 21. des. s.l. Þorsteinn var starfsmaður Ríkisútvarpsins í fjóra áratugi og leiklistarstjóri frá 1946- 1974. Hann hefur leikið meira í útvarp en nokkur annar ís- lenskur leikari og er almennt talinn einn fremsti útvarpsleik- ari sem við höfum eignast í dagskránni verður hrugðið upp sýnishornum af leik hans. Verða m.a. fluttir kaflar úr útvarpsleikritum Jökuls Jak- obssonar, Dúfnaveislu Hall- dórs Laxness og Marmara Guðmundar Kamban. Jón ViðarJónsson hefurum- sjón með dagskránni. Fimmtudagskvöldið 3. jan. kl. 20.30 verður svo einnig flutt í tilefni afmælis Þorsteins Ö. Stephensen leikrit Jökuls Jakobssonar Sumarið '37 í hljóðritun frá 1969. en þar er Þorsteinn í burðarhlutverki. Sjónvarp sunnudag kl. 16.10: Hjónabandserjur ■ Eftir Sunnudagshugvekju, sem Sr. Emil Björnsson flytur kemur sjöundi þátturinn af Húsinu á sléttunni. Sá heitir Hjónabandserjur, svo líklega hefur komið snurða á þráðinn í samlífinu hjá ungu hjónun- um, Lauru og Almanzo. Þetta getur komið fyrir á bestu bæjum, en vonandi rætist úr þessu öllu saman. Laura Ing- alls er leikin af Melissu Gilbert, eins og flestir vita og Almanzo Wilder, unga eigin- manninn leikur Dean Butler. Sjónvarp miðvikudag kl. 22:20 Þá var Varsjá jöfnuð við jörðu og íbúarnir fluttir ■ Þessi mynd er tekin í Varsjá 1974 og ber hún það ekki með sér að 30 árum áður hafi borgin öll verið rjúkandi rúst. ■ Upphaf síðari heimsstyrj- aldarer jafnan dagsett 1. sept- ember 1939, þegar Þjóðverjar gerðu innrás í Pólland, þó að auðvitað ætti hún sér miklu lengri aðdraganda og glöggir menn hefðu fyrir löngu séð hvert stefndi. í 5 ár urðu Pólverjar að þola yfirgang og ójöfnuð „herra þjóðarinnar", sem engu eirði. Þjóðverjar byggðu alræmdar útrýmingar- búðir í Póllandi og voru iðnir við að koma fólki þar í gasklef- ana. Alkunna er hvað þeim tókst vel við aö koma Gyðing- um fyrir kattarnef, en Pólverj- ar voru í lítið meira dálæti hjá þeim og fengu svo sannarlega að kenna á því hver valdið hafði. Smám saman fór nteira að bera á andspyrnu Pólverja gegn valdi nasista og var miö- stöð hennar í Varsjá. 19. apríl 1943 hófst uppreisn í Gyðinga- ghettóinu í Varsjá, þar seni safnað hafði verið saman 450.000 gyðingunt, sem smám saman voru flestir fluttir í ger- eyðingarbúöirnar. Sú uppreisn var brotin á bak aftur að þrem vikum liðnum og ghettóiðjafn- að við jörðu. 1. október 1944, þegar vitað var að Rauði her Sovétríkj- anna var skammt undan, hófst svo almenn uppreisn í Varsjá. Þjóðverjar börðust gegn henni af fullri hörku og rússneski herinn lét ekkert á sér kiæla á meðan sú barátta stóð, um tveggja mánaðaskeið. Pólverj- ar voru illa vopnum búnir og vanhaldnir af hungri og vesöld eftir 5 ára hersetu Þjóðverja oglágu KMI.OOOþeirraívalnum að loknum þessum hildarleik. Ekki höfðu Pólvcrjar fyrr gefist upp, 2. október, en Þjóð- verjar tóku að ganga á milli bols og höfuðs á borginni og íbúumhennar. Þeirvorumarg- ir hverjir fluttir í þrælkunar- búðir í Þýskalandi, en tekið var til við að leggja borgina í rúst. Þegar rússneskar her- sveitir loks hófu innreið sína í borgina 17. janúar 1945, var lítið annað eftir en rjúkandi rústir. Frá þessum atburöum segir í kvöld í breskri heimilda- mynd. Þýðandi og þulur er Bogi Arnar Finnbogason. 30.10 Bein utsending frá áramóta- gleði útvarpsmanna, Stuð- manna og landsmanna Stjörnur kvöldsins, Merkúr, Venus og Jörð. Kynnir: Jónas Jónasson. (01.00 Veðurfregnir). Upp úr kl. 02.00 hefst útvarp frá Rás 2 til kl. 05.00. Laugardagur 29. desember 14.00-16.00 Léttur laugardagur. Stjórnandi: Ásgeir Tómasson. 16.00-18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barðason. HLé 24:00-03:00 Næturvaktin. Stjórn- andi: Arnar Hákonarson og Gunn- laugur Helgason. Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar1. Sunnudagur 30. desember 13:30-18:00 Krydd í tilveruna. Stjórnandi. Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan. Hlustendum er gefinn kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón Gröndal. 16:00-18:00 Vinsældalisti Rásar 2 . 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórn- andi: Ásgeir Tómasson. HLÉ 20:00-24.00 í árslok. Stjórnandi: Páll Þorsteinsson. Mánudagur 31. desember Nýársnótt 02:00-05:00 Næturútvarp. Stjórn- andi: Einar Gunnar Einarsson. Laugardagur 29. desember 1984 16.00 Hildur. Niundi þáttur - Endur- sýning. Dönskunámskeið í tiu þáttum. 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Ing- ólfur Hannesson 18.30 Enska knattspyrnan. Umsjón- armaður Bjarni Felixson. 1925 Kærastan kemur í höfn. Fjórði þáttur. Danskur myndaflokkur í sjö þáttum ætlaður þörnum. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvis- ion - Danska sjónvarþið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Dave Allen lætur móðan mása um jólin Breskur skemmti- þáttur. Þýöandi Guðni Kolþeinsson 21.30 Gestrisni (Our Hospitality) Þögul þandarísk skopmynd frá 1923, s/h. Leikstjóri Buster Keat- on. Aöalhlutverk: Buster Keaton, Natalie Talmadge, Joe Keaton og Buster Keaton yngri. Á öldinni sem leið snýr ungur Suðurrikjamaöur heim til átthaganna eftir langa fjarveru. Þar verður hann leiksopp- ur í hatrömmum ættaerjum. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 22.40 Júlía. Bandarisk þíómynd frá 1977 byggð á bókinni „Pentim- ento” eftir Lillian Hellman. Leik- stjóri Fred Zinnemann. Aðalhlut- verk: Jane Fonda, Vanessa Red- grave, Jason Robards og Maximili- an Schell. Bandarisk skáldkona lýsir örlögum Júliu, æskuvinkonu sinnar. Hún leggur stund á læknis- fræði, fyrst í Oxford og siðan í Vinarborg. Jafnframt fyllist hún áhuga á stjórnmálum og mannrétt- indamálum. Þegar fundum þeirra stallna ber saman siðar kemst skáldkonan að því að Júlia tekur virkan þátt i baráttu gegn uppgangi nasismans. Myndin hlaut þrenn óskarsverölaun árið 1978. Þýöandi Kristrún Þórðardóttir. 00.40 Dagskrárlok. Sunnudagur 30. desember 1984 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Emil Björnsson flytur. 16.10 Húsið á sléttunni 7. Hjón- abandserjur Bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Þýöandi Ósk- ar Ingimarsson. 17.00 Listrænt auga og höndin hög 4. Bifast björg, gellur málmur. Kanadiskur myndaflokkur í sjö þáttum um listiðnað og handverk. Þýðandi Eirikur Haraldsson. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.00 Stundin okkar. Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Valdimar Leifsson. • 18.50 Hlé 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu viku Ára mótadagskráin Guðmundur Ingi Kristjánsson. 20.55 „Þitt orð á lifandi tungu“ Sjónvarpið hefur látið gera þennan heimildaþátt um GuðPrand Þor- láksson biskup og verk hans í tilefni af þvi að 400 ár eru nú liðin síðan GuðbrandsbiPlía var fyrst prentuð að Hólum i Hjaltadal. i þættinum er gerð grein fyrir útgáfu Guðbrands á biblíunni og fleiri bókum ásamt siðari útgáfum Guð- brandsbibliu. Rætt er við nokkra sérfróða menn um þau miklu trúar- og menningaráhrif sem biblian hefur haft á liönum öldum. Brugðið er upp myndum af sýningu i Boga- sal Þjóðminjasafnsins, sem Einar Gunnar Pétursson setti upp, frá Hólahátíð á síöastliðnu sumri og fylgst er með Ijósprentun Guð- brandsbiblíu. Umsjónarmenn: Karl Jeppesen og Sigurður Pálsson. 21,30 Dýrasta djásnið. Sjöundi þáttur. Breskur framhaldsmynda- flokkur i fjórtán þáttum, gerður eftir sögum Pauls Scotts frá síðustu valdaárum Breta á Indlandi. Þýö- andi Veturliði Guðnason. 22.20 Laurence Olivier lítur vfir farinn veg - fyrri hluti. Bresk heimildamynd i tveimur hlutum um einn mesta leikara sem Bretland hefur alið. i myndinni ræðir Laur- ence Olivier opinskátt um lif sitt og starfsferil við Melvyn Bragg, um- sjónarmann. Þá segjaýmsirfrægir samferðamenn frá kynnum sínum af Olivier, þ.á.m. Peggy Ashcroft, Douglas Fairbanks yngri, John Gi- elgud, rithöfundurinn John Os- borne og eiginkona Oliviers, leikkonan Joan Plowright. í fyrri hluta myndarinnar lýsir Laurence Olivier æskuárum sinum og leik- ferli til 1944. Siðari hlutinn er á dagskrá Sjónvarpsins sunnudagi- inn 6. janúar 1985. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 23.45 Dagskrárlok. Mánudagur 31. desember 1984 13.50 Fréttaágrip á táknmáli 14.00 Fréttir og veður 14.15 Gamlársdagssyrpa Innlendar og erlendar barnamyndir. Tommi og Jenni, bandarísk teiknimynd. Sögurnar hennar Siggu og Bósi, þýskar teiknimyndir. Sigga og skessan, brúðuleikrit eftir Herdisi Egilsdóttur. 14.35 Kroppinbakur litli Sovésk teiknimynd sem gerö er eftir sam- nefndri þjóðsögu og þulu eftir Pjotr Érshof. ívan litli er yngstur þriggja bræðra og álitinn erkiflónið á bænum. Hann er náttúrubarn og hefur mikið saman við ýmsar góðar vættir að sælda. Hjá þeim fær hann þrjá hesta, tvo gæðinga og furðugripinn Kroppinbak litla. Þeir ivan verða óaðskiljanlegir og rata saman i margvisleg ævintýri. Þýð- andi Hallveig Thorlacius. 15.50 Hlé 20.00 Ávarp forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar. 20.15 Innlendar og erlendar svip- myndir frá liðnu ári. Umsjón: Einar Sigurðsson, Helgi E. Helga- son, Sigrún Stefánsdóttir og ðg- mundur Jónasson. 21.35 í fjölleikahúsi Þýskur sjón- varpsþáttur. Þrautþjálfuðdýr, lodd- arar, trúðar og fjöllistamenn leika listir sínar á hringsviðinu. Þýðandi Jón Gunnarsson. 22.35 Rás 84 - frjáls og óháð - Áramótaskaup 1984. Höfundar: Edda Björgvinsdóttir, Guðný Hall- dórsdóttir, Hlin Agnarsdóttir og Kristin Pálsdóttir. Leikendur: Edda Björgvinsdóttir, Gisli Rúnar Jónsson, Kjartan Bjargmundsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Þórhallur Sigurðsson. Einnig koma fram Sigurveig Hjaltested, Þjóð- lagatríóið „Þrjú lítið í hvoru á palli” og fjöldi fólks á förnum vegi. Sér- legur heiðursgestur: Fúll Guð- mundsson á móti. Leikstjóri Guðný Halldórsdóttir. Stjórn upptöku: Kristín Pálsdóttir. 23.40 Ávarp útvarpsstjóra, Andrés- ar Björnssonar 00.05 Miðnætursýning - Handa- gangur í öskjunni. (High Anxiety) bandarísk grinmynd frá 1977. Leikstjóri Mel Brooks. Aðalhlut- verk: Mel Brooks, Madeline Kahn, Cloris Leachman, Harveg Korman og Ron Careg. Sálgreinir nokkur tekur að sér forstöðu geðsjúkra- húss þar sem ekki er allt með felldu og æsilegir atburðir fara að gerast. Þýðandi Jón Gunnarsson. 01.45 Dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.