NT - 04.01.1985, Síða 22
Föstudagur 4. janúar 1985 22
Hver verður fyrir valinu?
Íþróttamaður ársins 1984
- verður útnefndur á Hótel Loftleiðum í dag í
hófi sem íþróttafréttamenn og Veltir h/f halda
■ í dag kl. 15.00 hefst hóf á
Hótel LoftleiAum þar sem
íþróttamaður ársins 1984 verð-
ur útnefndur af íþróttafrétta-
mönnum 6 fjölmiðla, NT,
Þjóðviljans, útvarpsins, sjón-
varpsins, DV og Morgunblaðs-
ins.
Er þetta í 29. sinn sem þessi
útnefning fer fram en fyrsti
íþróttamaður ársins var Vil-
hjálmur Einarsson árið 1956.
Sá íþróttamaður sem fyrir
valinu verður mun verða full-
trúi íslands í keppni um Volvo-
■ Hreinn Halldórsson tekur hér við hinum glæsilega bikar sem íþróttamaður ársins hlýtur ár hvert.
Hreinn hlaut bikar þennan alls þrisvar sinnum á ferli sínum. Aðeins Vilhjálmur Einarsson hefur
hlotið hann oftar eða 5 sinnum.
bikarinn sem veittur er
„íþróttamanni Norðurlanda“.
Kjörið í ár mun að öllum
líkindum verða óvenju jafnt og
spennandi því mjög margir
íþróttamenn hafa staðið sig vel
bæði hér heima og eins á er-
lendum vettvangi á þessu ári.
Enginn hefur hlotið titilinn
oftar en Vilhjálmur Einarsson
en hann var 5 sinnum kjörinn
íþróttamður ársins á árunum
1956-1961. Þrír hafa hreppt
hnossið tvisvar, eða þeir Val-
björn Þorláksson, Guðmundur
Gíslason og Skúli Óskarsson
en Hreinn Halldórsson hefur 3
sinnum orðið fyrir valinu.
Allir þessir eru nú hættir
keppni svo nokkur ár þurfum
við að bíða enn eftir að met
Vilhjálms verði slegið, ef það
verður þá nokkurn tíma.
Þessir hafa hlotið titilinn
„íþróttamaður ársins":
1956 Vilhjámur Einarsson ÍR
frjálsar íþróttir
1957 Vilhjálmur Einarsson ÍR
frjálsar íþróttir
1958 Vilhjálmur Einarsson ÍR
frjálsar iþróttir
1959 Valbjörn Þorláksson ÍR
frjálsar íþróttir
1960 Vilhjálmur Einarsson fR
frjálsar íþróttir
1961 Vilhjálmur Einarsson ÍR
frjálsar iþróttir
1962 Guðmundur Gíslason ÍR
sund
1963 Jón Þ. Ólafsson ÍR
frjálsar íþróttir
1964 Sigriður Sigurðardóttir Val
handknattleikur
1965 Valbjörn Þorláksson ÍR
frjálsar íþróttir
1966 Kolbeinn Pálsson KR
körfuknattleikur
1967 Guðm. Hermannsson KR
frjálsar íþróttir
1968 Geir Hallsteinsson FH
handknattleikur
1969 Guðmundur Gíslason ÍR
sund
1970 Erlendur Valdimarsson ÍR
frjálsar íþróttir
1971 Hjalti Einarsson FH
handknattleikur
1972 Guðjón Guðmundsson ÍA
sund
1973 Guðni Kjartansson ÍBK
knattspyrna
1974 Ásgeir Sigurvinss. St. Liege
knattspyrna
1975 Jóhannes Eðvaldsson Celtic
knattspyrna
1976 Hreinn Halldórsson KR
frjálsar iþróttir
1977 Hreinn Halldórsson KR
frjálsar íþróttir
1978 Skúli Óskarsson ÚÍA
lyftingar
1979 Hreinn Halldórsson KR
frjálsar íþróttir
1980 Skúli Óskarsson ÚÍA
lyftingar
1981 Jón Páll Sigmarsson KR
lyftingar
1982 Óskar Jakobsson ÍR
frjálsar íþróttir
1983 Einar Vilhjálmsson UMSB
frjáisar íþróttir.
Urslit í NBA
um áramótin
■ Hér koma úrslit úr leikjum
í NBA-deildinni á föstudag 29.
og laugardag 30. des.
Frægustu liðin. Boston
Celtics, núverandi meistarar,
LA Lakers sem lék til úrslita
síðast gegn Boston og Phila-
delphia 76'ers, unnu öll sína
leiki. Lakers og 76’ers léku tvo
leiki og unnu báða.
Það verður gaman að sjá
hvort þessi lið verða enn á
ferðinni í úrslitaleikjunum í
vor eins og undanfarin ár.
En hér koma sem sagt úrslit-
in:
Detroit Pistons-lndiana Pacers 116-110
Washington Bullets-Atlanta Hawks 125-111
Ncw Jersey Nets-Ncw York Knicks 100-97
Dallas Mavericks-Phocnix Suns 125-111
L.A. Lakers-Denver Nuggets 135-123
Philadclphia 76’ers-Utah Jazz H4-111
Ncw Jersey Nets-Detroit Pistons 110-108
Wasington Bullets-N.Y. Knicks 116-108
Milw. Bucks-Clcveland Cavaliers 115-102
Atlanta Hawks-Chicago Bulls 104-101
Utah Jazz-Dallas Mavericks 99-97
Houst.-Rockets-Portl. Trail Blazers 108-92
Indiana Pacers-Kansas City Kings 123-115
Boston Celtics-San Antonio Spurs 120-112
L.A. Lakers-Los Angeles Clippers 113-107
Denver Nuggets-Scat. Supersonics 115-108
Philad. 76*ers-Gold. State Warriors 109-95
J------------------------------
Garðabær -
Grindavík
Umboðsmenn vantar
fyrir NT í Garðabæ
og Grindavík.
Upplýsingar gefur
dreifingarstjóri
(Kjartan Ásmundsson)
í síma 686300.
PelespáirfyrirHM
■ „Svarta perlan" svokall-
aða, knattspyrnuhetjan frá
Brasilíu, og af mörgum talinn
besti knattspyrnumaður allra
tíma, Pele, sagði í blaðaviðtali í
fyrradag að hann byggist við að
Frakkar, Argentínumenn og
Brasilíumenn yrðu líklegir
keppinautar um heimsmeist-
aratitilinn í knattspyrnu í Mexí-
kó árið 1986.
Pele nefndi einnig gestgjaf-
ana og ítali, núverandi heims-
meistara, sem sterka andstæð-
inga. En hann taldi Evrópu-
þjóðir ekki eiga mikla mögu-
leika á rómönsku Ameríku.
Aðspurður hvort hann teldi
ítali vera betri í Mexíkó heldur
en þeir voru á Spáni 1982 sagði
hann:
„ítalir voru ekki sérlega góð-
ir 1982. Eftir að þeir unnu
Brasilíumenn, fengu þeir byr
undir báða vængi og komust
alla leið í úrslitin. Nú eru
geysimargir erlendir knatt-
spyrnumenn á Ítalíu og raunar
flestir þeir bestu í heiminum.
Þetta getur orðið til þess að
ítalska landsliðið taki tæknileg-
urn framförum.
En á það ber að líta að í
heimsmeistarakeppninni er
það ekki alltaf tæknin sem
fleytir liðum lengst."
Pele sagðist hafa áhyggjur af
brasilíska landsliðinu.
„Prátt fyrir að það séu aðeins
6 mánuðir þar til liðið á að leika
gegn Bólivíu og Paraguay í
undankeppninni, hefur undir-
búningur liðsins ekki verið
skipulagður og aðalþjálfari hef-
ur ekki einu sinni verið ráðinn,"
sagði Pele.
Eins og NThefur skýrt frá
reyna Brasilíumenn allt sem í
þeirra valdi stendur til að ná í
Téle Santana, fyrrum landsliðs-
þjálfara. En hann ersamnings-
bundinn í Saudi-Arabíu og
ekki á lausu fyrr en í lok mars
nema eitthvað sórkostlegt komi
til.
BuddtilEnglands
■ Zola Budd, hlaupa-
konan snjalla sneri aftur til
Englands í fyrradag eftir 5
mánaða fjarveru. Hún hélt
beint til heimalands síns
Suður-Afríku eftir Ólym-
píuleikana í sumar og
áhöld voru um hvort hún
myndi nokkurn tímann
koma aftur til Bretlands.
En nú er hún sem sagt
komin til London eftir að
hafa sigrað í götuhlaupi í
Zurich á sunnudaginn var.
Budd sagði við komuna
til London að hún vildi
vera um kyrrt þar. „Það er
gott að vera kominn til
baka. Ég hlakka til að byrja
að hlaupa hér aftur," sagði
hún.
Hin 18 ára hlaupadrottn-
ing mun hitta breska
íþróttafrömuði til að ræða
framtíð hennar sem bresks
ríkisborgara í dag.
Einar kom
áóvart
í Toyota
göngunni
■ Sunnudaginn 30. des.
síðastliðinn var haldin
Toyota-skíðagangan á
Miklatúni. Keppt var í 4
flokkum.
í 10 kílómetra göngu
karla sigraði Halldór
Matthíasson á 23,23 mín-
útum, annar varð Ingólf-
ur Jónsson SR á 25,29
mínútum og þriðji Einar
Kristjánsson á 26,53 mín.
Athygli vakti árangur
Einars en hann er aðeins
15 ára gamall og fékk
undanþágu til að keppa í
karlaflokki.
Í 5 knr göngu kvenna
sigraði Lilja Þorleifsdótt-
ir SR á 19,34 mín., önnur
varð Svanhildur Árna-
dóttir á 21,04 mín. og
þriðja Ásdís Sveinsdóttir
SR á 24,57 mín.
Í 5 kílómetra göngu
unglinga komu tveir
keppendur í mark, Sig-
urjón Ólafsson SR á
17,13 mín. og Sveinn
Andrésson á 18,32 rnín.
í 5 km göngu öldunga
sigraði Páll Guðbjörns-
son Fram á 12,39 mín.
annar varð Tryggvi Hall-
dórsson SR á 15,25 mín.
og þriðji Sveinn Kristins-
son SR á 16,14 mínútum.
Að móti loknu hélt
Toyota-umboðið kepp-
endum kaffisamsæti á
Kjarvalsstöðum. Þarsleit
Ásgeir Úlfarsson mót-
stjóri mótinu og afhenti
verðlaun.