NT - 12.01.1985, Side 3
Fæðingum
fækkaði
Frekari fækkun spáð
■ Um 200 færri börn fæddust á síðasta ári
miðað við undanfarin ár. Nemur fækkunin
4-5%.
Þetta kom fram í samtali NT við Gunn-
laug Snædal, lækni á Fæðingadeild Land-
spítalans, en nákvæmar tölur liggja ekki
fyrir ennþá. Árið 1984 fæddust 2.009 börn
þar í stað 2.089 árið 1983.
Árin 1981-83 voru fæðingatölur stöðug-
ar, frá 4.377-4.370. Meðaltöl hverra 5 ára frá
1966-1980 eru einnig á bilinu 4.300-4.400 á
ári. Stærstu árgangar íslandssögunnar fædd-
ust árin 1960-63.
Gunnlaugur spáði því að fæðingum ætti
eftir að fækka enn frekar á næstu árum,
meira en spáð hefur verið, því konur úr
minni árgöngum, eftir 1964, komi inn í
mæðrahópinn.
Útflutningsmál
í endurskoðun
■ Ólafur Davíðsson, framkvstj. Félags
ísl. iðnrekenda hefur verið skipaður formað-
ur nefndar á vegum viðskiptaráðuneytisins
sem á að athuga og gera tillögur um fyrir-
komulag útflutningsmála.
Meðal annars á að kanna hvort rétt sé að
ein stofnun, útflutningsmiðstöð, annist að-
stoð við útflytjendur, þar sem allar greinar
útflutnings ættu fulltrúa, ásamt fuíitrúum
ríkisins í sérstöku útflutningsráði.
40% afslátt-
ur í innan-
landsflugi
■ Flugleiðir bjóða 40% aflsátt
á fargjöldum innanlands frá og
með laugardeginum 12. janúar.
Þetta eru hin svokölluðu
APEX-fargjöld. Bóka þarf far
fram og til baka og kaupa far-
seðil minnst sjö dögum fyrir
brottför. Farseðillinn gildir í 21
dag frá upphafi ferðar, en lág-
marksdvöl er fimm dagar. Mæti
farþegi ekki til flugs er heimilt
að endurgreiða 50% af andvirði
farseðils. Hamli veður flugi má
nota hann í næsta flug eða fá
hann endurgreiddan. Hamli
veður heimflugi má nota næstu
ferð eða fá 50% endurgreidd.
Sætafjöldi er takmarkaður.
Sem dæmi um APEX-far-
gjöldin má nefna að hægt verður
að fljúga til Egilsstaða fyrir
2.773 krónur, til Hornafjarðar
fyrir 2.445 krónur og til Húsa-
víkur fyrir 2.352 krónur.
APEX-fargjöldin gilda ekki
til Akureyrar enda verða Hopp-
Góð blanda af hagsýni og skemmtun.
NISSAN CHERRY fer ekki bara vel með þá sem sitja í framsætunum. í CHERRY eru öryggisbelti
fyrir fimm og farþegarnir í aftursætinu sitja líka þægilega og hafa gott rými.
Auðvitað er CHERRY með framhjóladrifi og hæð undir lægsta punkt er 17,5 cm. Bensíneyðslan er
aðeins 4,7 I á hundraðið á 90 km/klst. og þó eru hestöfl þessarar stórskemmtilegu vélar 84.
Engum bíl í verðflokki NISSAN CHERRY fylgja jafnmargir aukahlutir.
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að NISSAN er mest seldi japanski bíllinn í Evrópu.
Verð frá kr. 327.000.
20.000 kr. staðgreiðsluafsláttur sé billinn greiddur upp innan mánaðar.
Tökum flesta notaða blla upp I nýja.
Munið bílasýningar okkar allar helgar kl. 14—17.
IMISSAN CHERRY
Lyfjamál NT á lokastigi
■ Rannsókn vegna kæru
landlæknis á hendur blaða-
mönnum Helgarblaðs NT,
vegna meintra brota á
hegningarlöggjöf og fyrir
að hafa tekið sér opinbert
vald sem þeir ekki hafa í
svokölluðu lyfjamáli, er
komin á lokastig.
Að sögn Hallvarðs Einvarðs-
sonar, rannsóknarlögreglu-
stjóra, verður málið sent ríkis-
saksóknara strax og rannsókn
lýkur. Er það hans að ákveða
hvort frekari rannsókna sé þörf.
eða hvort eigi að sækja blaða-
mennina til saka.
Hallvarður vildi ekki tjá sig
um niðurstöður rannsóknarinn-
ar á þessu stigi málsins, en
landlæknir kærði blaðamennina
eftir að þeir höfðu sýnt fram á
að hver sem er getur þóst vera
læknir, hringt inn svokallaða
símalyfseðla og náð út sterkum
lyfjum.
Gerðu blaðamennirnir þetta
til að sýna fram á gloppur í
kerfinu en töluvert mun hafa
verið um að eiturlyfjaneytendur
kæmust yfir lyf á þennan hátt.
|H INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalunnn/Rauðagerði, simi 33560
OPIÐ í DAG
til kl:
Munið jia -hornið ÍJIS-portinu
Jli
Ol og gosdrykhir á kassaverði
Flöskumóttaka
JL- GRILLIЗ
GRILLRÉTTIR ALLAN DAGINN
Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála
Jón Loftsson hf.
deildum
Liacíaq^
□ uuoa,
Hringbraut 121 Sími 10600