NT - 15.01.1985, Blaðsíða 4
Þriðjudagur 15. janúar 1985 4
J LlL Fréttir
Starfsfólk
veitingahúsa
lakast laun-
að af öllum
■ Fátt eða ékkert vinnandi
folk í Keykjavík virðist lægra
launað en það sem starl'ar við að
elda o|> |>jóna gestuni til borðs á
hinuin síljölgandi veitingahús-
um höfuðhorgarinnar. Af 20
veitingaliúsum á höfuðborgar-
svæðinu sem talin eru upp í
fyrirtækjaskrá Frjálsar verslun-
ar, hafa 12 greitt starfsfölki sínu
laun undir20(l þús. krónum árið
316 þús.,á Hótel Sögu 268 þús.
og í Hollywood 227 þús. krónur.
Athygli vekur, aö þau tvö veit-
ingahús á landsbyggðinni sem á
listanum eru virðast borga mun
bctur en á höfuðborgarsvæðinu:
Bautinn á Akurcyri 263 þús. og
Hótcl Reynihlíð 225 þús.
Húsakynni Mjólkursamsölunnar, Laugavegi 162.
1983.
Önnur atvinnugrein scm hef-
ur álíka lág meðallaun er fata-
iðnaður. En þar á er hins vcgar
sá stóri mismunur, að í vcrk-
smiðjum er lang algengast að
aðeins sc unnin dagvinna, en í
veitingahúsunum er um helm-
ingi vinnunnar skilað á kvöldin
og um helgar, scm ætla mætti að
ætti að skila sér að einhverju í
hærri launagreiðslum.
Lægstu meðallaunin, sam-
kvæmt lista F.V. voru í Gaflin-
um í Hafnarfirði 143 þús. að
meðaltali. Pottinum og pönn-
unni 156 þús., Félagsstofnun
stúdenta 163.þús, Hótel Borg
.166 þús. og hjá Lúdinent h.f. í
Glæsibæ. Starfsmannafjöldi
þcssara veitingahúsa að meðal-
tali er á bilinu 25-45 manns.
Langsamlega hæstu meöallaun
hjá veitingahúsastarfsfólki í
Reykjavík voru á Broadway
5.830flug-
farþegar
til Siglu-
fjarðar
Frá fréttaritaru NT í Skaj>afírði Ö.Þ.
■ Alis flaug 5.831 far-
þegi í áætlunar- og leigu-
flugi til og frá Siglufirði á
nýliðnu ári. Einnig voru í
flugi flutt tæp 50 tonn af
vörum. Flugtök og lend-
ingar á Siglufjarðarflug-
velli voru 588 á s.l. ári og
er þetta svipuð umferð
flugvéla og farþega og árið
1983, að sögn Rafns
Svcinssonar flugvallar-
varðar.
Flug til Siglufjarðar er
oft fremur ótryggt, því
fram kom hjá Rafni að
samtals hafi það fallið nið-
ur í 80 daga á síðasta ári
vegna veðurs, eða meira
en 5. hvern dag ársins að
meðaltali. Þegar veður
hamlar flugi er hins vegar
stundum gripið til þess
ráðs að aka flugfarþegunt
til Sauðárkróks, því þar er
oft hægt að lenda þótt
ólendandi sé á Siglufirði.
Frá Siglufirði verður t.d.
allt flug að fara fram í
björtu því engin lending-
arljós eru við Siglufjarð-
arflugvöll.
Áætlunarflug til Siglu-
fjarðar er á vegum tveggja
flugfélaga: Flugfélag
Norðurlands flýgur dag-
lega, nema á sunnudög-
um, milli Siglufjarðar og
Akureyrar og Arnarflug 5
ferðir í viku milli Reykja-
víkur og Siglufjarðar.
Hálfrar aldar afmæli
kepptu um markaðinn á höfuð-
borgarsvæðinu. Mjólkurvcrð
var breytilegt og dreifingar-
kostnaður óeðlilega hár, auk
þess sem hreinlæti var í mörgu
ábótavant.
í dag nær samsölusvæðið frá
Skeiðarársandi vestur í
Þorskafjörð. Á þessu svæði eru
fjögur mjolkurbú, Mjólkurstöð-
in í Reykjavík, Mjólkurbú
Flóamanna, Mjókursamlag
Borgfirðinga, og Mjólkursam-
lagið í Búðardal. Framleiðend-
ur munu vera um 1100 talsins.
l)m Mjólkurstöðina í Reykja-
vík fara 30 milljónir lítra af
mjólk árlega og 6 millj. lítra af
aukaafurðum s.s. skyr, jogurt og
G-vörur. Vegna stóraukinnar
mjólkurneyslu á síðustu árum
er starfsemin búin að sprengja
utan af sér húsnæðið við Lauga-
veg. Nýja stöðin æ Bitruhálsi
er u.þ.b. 75% stækkun miðað
við núverandi húsnæði. Enn-
fremur flyst viss starfsemi sem
nú er undir berum himni undir
þak.
Gert er ráð fyrir að mjólkur-
stöðin verði alls 10.600 m'.
Heildarkostnaður er áætlaður
vera 420 milljónir.
Ráðgert er að flytja í nýja
húsið fyrir mitt ári 1986, en
byggingarframkvæmdir hófust
snemrna árs 1982. í framtíðinni
verður síðan allri starfsemi
fyrirtækisins komið fyrir á þess-
ari lóð smátt og smátt.
■ Mjólkursamsalan í Reykja- dag. Hún varstofnuð 15. janúar Markmiðið með stofnun ólcstri sem ríkti í mjólkursölu-
vík á hálfrar aldar afmæli í 1935. hennar var að bæta úr þeim málum, þcgarsjö lítil mjólkurbú
■ Pétur Sigurðsson, formaður byggingarnefndar, í vinnslusal nýju stöðvarinnar á Bitruhálsi.
Innflutningur 12% meiri
en útflutningurinn 1984.
■ Geysilegur kippur hefur
komið í utanríkisverslunina í
nóvember eftir þá stöðvun sem
varð í verkfallinu í október.
Segja má að bæði inn- og út-
flutningur hafi í þessum mánuði
verið nær tvöfaldur á við meðal-
mánuð árið 1984. Innflutningur
nam 3.768 milljónum og útflutn-
ingur 3.679 milljónum króna í
þessum cina mánuði.
I nóvemberlok s.l. vantaði
orðið 2.531 milljón króna upp á
að útflutningur landsmanna frá
áramótum nægði til að borga
það sem við höfðum flutt inn til
landsins á sama tírna, þ.e. að
vöruskiptajöfnuður var orðinn
neikvæður um fyrrnefnda
upphæð. Innflutningur til lands-
ins þessa 11 mánuði nam 23.466
milljónum króna (um 98 þús. á
hvern íslending), sem er um
28% hærri upphæð en á sama
tímabili 1983. Hækkun meðal-
gengis erlends gjaldeyris er á
sama tíma talin 19%, að sögn
Hagstofunnar.
Útflutningur á þessu 11 mán-
aða tímabili nam hins vegar
20.935 milljónum, sem var 26%
aukning frá fyrra ári, þannig að
hallinn á vöruskiptajöfnuðinum
er nú hlutfallslega meiri en á
árinu 1983. Hlutur áls og kísil-
járns var nú 4.153 milljónir, eða
tæp 20% af heildarútflutningn-
um, en var rúmlega 21% 1983.
Borgnesing-
ar skiivís-
ustur menn
■ Sveitarsjóðurinn í Borg-
arnesi hafði um áramótin
innheimt rétt tæplega 96%
af álögðum gjöldumsveitar-
sjóðs. Er þá bæði átt við
álögð gjöld ársins, eftir-
stöðvar fyrri ára og dráttar-
vexti samkvæmt upplýsing-
um Húnboga Þorsteinsson-
ar. sveitarstjóra. sem sagði
þetta svipað innheimtuhlut-
fall og árið áður. Tæpast er
talinn vafi á að Borgnesingar
hafa þar með sett íslandsmet
í skilvísi á síðasta ár.
Mjólkursamsölunnar