NT - 15.01.1985, Blaðsíða 21

NT - 15.01.1985, Blaðsíða 21
m* ia: Þriðjudagur 15. janúar 1985 21 Utlönd Hollendingar deila um kjarnorkuver ■ Grafenrheinfeld kjarnorkuverið í Vestnr-Þýskalandi. Sú ákvörðun hollensku stjórnarinnar að feta í fótspor nágranna sinna og reisa stór kjarnorkuver hefur vakið mikla andstöðu umhverfisverndarmanna í Hollandi. Amstcrdam-Keutcr ■ Sú ákvörðun hollensku stjórnarinnar að fjölga kjarn- orkuverum þvert ofan í ráðlegg- ingar ríkisskipaðrar nefndar hefur leitt til mikilla deilna í Hollandi. Sem stendur er aðeins eitt meöalstórt kjarnorkuver í Hol- landi, Sem framleiðir rafmagn, auk eins nrinna kjarnorkuvers sem er fyrst og fremst notað til tilrauna. Samsteypustjórn mið- og hægriflokka vill láta reisa tvö ný kjarnorkuver fyrir aldamót til þess að mæta aukinni raf- orkuþörf iðnaðarins. Stjórnin skýrði frá þessari ákvörðun sinni í lok seinustu viku. Strax og áform stjórnar- innar um kjarnorkuvæöingu raf- magnsframleiðslunnar urðu Ijós, lýsti Verkamannaflokkur- inn því yfir að hann myndi gera haráttuna gegn kjarnorkuver- unum að höfuömáli í komandi kosningum árið 1986. Bandaríkin: Sólarorku breytt beint í raforku ■ Bandarískir vísinda- menn vinna nú að því í Florida að finna leiðir til að breyta sólarljósi beint í rafmagn á svo ódýran hátt að almenningur geti nýtt sér það. Bandarísk stjórnvöld og einkaaðilar hafa lagt fram 3,8 milljónir dollara til fimm ára rannsóknaráætlunar á vegum Sólarorkumið- stöðvarinnar í Florida. Vonast er til þess að rann- sóknirnar leiði til þess að bandarísk iðnfyrirtæki geti hafið fjöldafram- leiðslu á ódýrum sólarraf- hlöðum sem fólk geti sett á þak húsa sinna til að framleiða rafmagn. Þessi fimnt ára rann- sóknaráætlun í Florida er þriðja og seinasta stigið í langtíma undirbúningi sól- arrafhlöðuframleiðslu þar. En svipaðar rann- sóknir fara nú einnig fram í Massachusetts og New Mexico. Vísindamennirnir segja að þeir stefni að því að plötur með sólarrafhlöð- um, sem settar séu á þak húsa, geti framleitt nægj- anlegt rafmagn til að full- nægja þörfum venjulegrar fjögurra manna fjöl- skyldu. (Byggt á grein eftir Mar Weintz í The Christian Science Monitor) ■ Starfsmenn Sólarorkumiðstöðvarinnar í Fiorida í Banda- ríkjunum koma fyrir sólarrafhlöðuplötum á húsþaki þar sem þær eru notaðar til að framleiða rafmagn til heimilisnota. Gagnnjósnari eða gagngagnnjósnari? Náttúruverndarmenn segja að fleiri kjarnorkuver auki lík- urnar á kj arnorkuslysi og erfið- leikana við að finna geymslu fyrir kjarnorkuúrganginn. í sameiginlegri yfirlýsingu átján náttúruverndarsamtaka og ann- arra hópa segir meðal annars aö stefna stjórnarinnar sé stórt á- fall fyrir þróun annarrar orku- tækni sem nýti sólskin, vind- og vatnsafl til orkuframleiðslu. í eins árs gamalli skýrslu hol- lensku orkuumræðunefndarinn- ar er lagst gegn byggingu fleiri kjarnorkuvera og tekið fram að almenningur í landinu sé andsní inn byggingu kjarnorkuvera. Álit nefndarinnar var byggt á tveggja ára umræðum og rann- sóknum. En stjórnin dró niður- stöður nefndarinnar í efa, sér- staklega hvað varðaði kostnað- arútreikninga. Hollendingar treysta nú að miklu leyti á gaslindir til orku- framleiðslu. En gasið fer óðum þverrandi og iðnrekendur hafa áhyggjur af því að við lok næsta áratugar verði ekki nægjanlega mikið til af ódýrri orku í landinu til að sinna þörfum iðnaðarins. Kjarnorkuverin tvö, sem stjórnin segist stefna að því að byggja, verða 2.500 megawött samtals auk þess sem þau má stækka enn frekar síðar. Los Angclcs-Kculcr ■ Fyrrverandi starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBl, neitar því að hann hafi njósnað fyrir Sovétmenn á með- an hannstarfaði fyrir FBI. Hann segist þvert á móti hafa njósnað um sovésku leyniþjónustuna, KGB, með því að látast starfa fyrir hana. Richard Miller, sem er 48 ára gamall, er fyrsti starfsmaður FBI sem hefur verið ákærður fyrir njósnir í þágu Sovétríkj- anna. Hann var handtekinn í október á seinasta ári ásamt sovéskunr Itjónum sem sagt er að hafi verið tengiliður hans við KGB. Miller heldur því fram að hann hafi talið vináttu sína við Rússana mikilvægasta sam- bandið sem hann hefði komist í á ferli sínum hjá FBI en nú væru Argentína: Skæruverkföll og öngþveiti Bucnos Aires-London-Reutcr ■ Sérstakar efnahagsráðstaf- anir Raul Alfonsins forseta Ar- gentínu eru farnar að koma hart niður á opinberri þjónustu. Efnahagsráðstafanirnar, sem runnar eru undan rifjum Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins hafa leitt til verkfallsöldu, gífurlegra ríkisskulda og samdráttar í lána- starfsemi. Markmið ríkisstjórnar Al- fonsins er að koma til móts við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, fá aðstoð hans og koma hagstæð- ara skipulagi á erlend lán. Ar- gentína skuldar nú um 45 mill- jarða Bandaríkjadala í erlend- um lánum og hefur ríkisstjórnin hrint í framkvæmd fimm ára áætlun í efnahagsmálum sem á að auka útflutning, minnka verðbólgu og draga úr útgjöld- um hins opinbera hvar sem mögulegt er. Efnahagsráðstafanirnar tóku gildi í nóvember á síðasta ári og hafa verkföll opinberra starfs- manna verið nær daglegur við- burður síðan. Jafnframt hafa opinber fyrirtæki og stofnanir hlaðið upp skuldum á þessum tíma. Öngþveiti að undanförnu hef- ur einnig komið niður á hernum. Herinn fékk engin matvæli keypt frá föstum við- skiptamönnum sínum í hálfan mánuð í desember. Það var ekki fyrr en viðskiptamönnum hafði verið lofuð greiðsla á skuldum sem námu um 30 mill- jónum dollara, að birgðir tóku að berast að nýju. Um miðjan janúar hafði hernum ekki enn verið greidd desemberlaun 1.5 milljónirog það sama gilti um starfsmenn ríkis og bæja. Talsmenn erlendra banka í Buenos Aires spá miklum sam- drætti í efnahagslífinu fyrri hluta ársins. Það getur því enn dregið til tíðinda á næstu vikum. Hagfræðingar Time Magazine: Spá auknum hagvexti Ncw York-Rculcr ■ Hagfræðingar hjá Time Magazine spá auknum útflutn- ingi Evrópuríkja á iðnaðarvör- um á þessu ári og að framleiðni muni aukast um 3.5%. Hagfræðingarnir spá enn fremur að verðbólga í Evrópu verði lítil á árinu og vextir lágir. í spá sinni gera hagfræðingarnir ráð fyrir að hagvöxtur verði um 2.8% í Evrópu á þessu ári. 2.8% hagvöxtur er mesti hag- vöxtur í Evrópu í fimm ár. Hans Mast, einn af fimm meðlimum hagfræðinefndar Time Maga- zine um Evrópu sagði að „þrátt fyrir 11% atvinnuleysi í Evrópu væri efnahagslífið þar ekki sjúkt. “ þessi tengsl notuð gegn honum. Hann er ásakaður fyrir að hafa afhent 34 ára gamalli rússneskri konu, Svetlönu Ogorodnikov, leynileg gagnnjósnaskjöl. Kona þessi er jafnframt sögð hafa verið ástmey hans. Éiginmaður konunnar, Niko- lay Ogorodnikov, er sagöur hafa boðið Miller 65.000 dollara í gulli og reiðufé fyrir upplýsing- arnar. Miller segist liins vegar hafa byggt upp sambönd við gagn- njósnaþjónustu Sovétmanna til þess að njósna um Sovétmenn en ekki öfugt. Við yfirheyrslur í réttarsal nú um helgina sagðist Miller hafa haldið að með því að komast inn í gagnleyniþjón- ustu Sovétmanna hefði honum tekist nokkuð sem engum öör- unr FBI-manni heföi tekist áður. Lögfræðingar Millers sögðu við yfirheyrslurnar nú unt helg- ina að yfirmaður hans hjá FBI- skrifstofunni í Los Angeles væri _ mormónabiskup og hefði hann notað trúarlega stöðu sína til að hafa áhrif á Miller. Fyrst hefði hann verndað hann en síðar hefði hann sagt honuni að ef hann játaði ekki syndir sínar kærnist hann ekki til himna. Milljón punda handtösku stolið I.ondon-Kcutcr ■ Kona nokkur frá Mið- Austurlöndum tapaði skartgripum, sem eru metnir á um milljón pund (tæpl. 50 millj. ísl. kr.) þegar þjófar nöppuðu krókodílahandtöskunni hennar. Konan taldi öruggara að hafa skartgripina nteð sér frekar en geynta þá heima hjá sér. Hún hafði þess vegna demantahálsfestina sína, safír hring, demanta- hring og eyrnalokka og fleiri skartgripi með sér í handtösku. Töskunni var stolið frá konunni þegar hún fékk sér snarl í Harrods versl- uninni í London. Grindavík - Hveragerði Umboðsmenn vantar fyrir NT í Grindavík og Hveragerði. Upplýsingar gefur dreifingarstjóri (Kjartan Ásmundsson) í síma 686300.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.