NT - 15.01.1985, Blaðsíða 5

NT - 15.01.1985, Blaðsíða 5
J, l\\'\ Þriðjudagur 15. janúar 1985 5 _ LlL| Ff ‘éttir Loftsteinn féll til jarðaráSnæfellsnesi - gígurinn 2 metrar í þvermál og 1.5 á dýpt Tíu langar í sveitar- stjórastöðu ■ Alls sóttu 10 um stöðu sveitarstjóra í Borgarnesi, en unisóknarfrestur um stöðuna er nýlega runninn út. Meira en helmingur umsækjenda óskaði nafn- leyndar. ■ Jarðfræðingur sem skoðaði ummerkin telur að þarna hafi loftsteinn fallið til jarðar , sagði Gunnlaugur Hallgrímsson á Okrum á Hellnum um nýjan gíg sem fannst nú í haust á sléttum hraunfláka skammt vestan Dag- verðarár á Snæfellsnesi, ekki langt frá þjóðveginum. Gunniaugur sagði að svo virt- ist sem loftsteinn hafi þeyst þarna niður í hraunið sem þarna er frekar laust í sér. Við það hafi smásteinar kastast upp úr gígnum og hitnað, því greini- lega mætti sjá að þeir hefðu brennsl niður í mosann um- hverfis gíginn jafnframt því sem mosinn væri sviðinn í gígbörm- ununt. Gíginn sagði Gunnlaug- ur um 2 metra í þverntál og um 1.5 metra djúpan á að giska. Jarðfræðingur sent NT ræddi við taldi mjög merkilegt ef þarna hafi verið um loftstein að ræða, sem hann gæti ekki fullyrt nema að sjá verksumerki. En ntjög sjaldgæft sé að loftsteinar nái að falla til jarðar-venjuleg- ast eyðist þeir upp í andrúms- loftinu. Verktakar efna til ráðstefnu: Tilboðin of lág - segir framkvæmdastjóri sambandsins ■ Nýi gígurinn í hrauninu vestan við Dagverðará á Snæfellsnesi þar sem talið er að loftsteinn hafi fallið til jarðar s.l. haust. NT-mynd Gunnlaugur ■ „l’að er cngin launung á því, að þaö hefur vcrið ofar- lega í hugum manna í Verk- takasambandinu að menn séu að bjóöa allt of lágt. Menn verða að fara afskaplega var- lcga í að finna að slíkum hlutum, en það getur þó komið til vcgna þess, að þetta eru samkeppnisboð. Þaðsem helst gæti komið til umræðu er hvort vanhæfir menn, sem vita ekki hvað þeir eru að gera, séu að bjóða í verk, án þess, að ég sé að halda því fram," sagði Oth- ar Örn Petcrsen framkvæmda- stjóri Vcrktakasambands Islands, þegar hann var spurð- ur um ráðstefnu, sem Verk- takasámbandið boöar til á þriðjudag í næstu viku undir yfirskriftinni „Val verktaka - lág tiíboð". Fluttar verða nokkrar fram- söguræður, þar sem m.a. verð- ur varpaö fram spurningum um þaö hvort ástandið sé eðli- legt, hvort tækjaeign sé of mikil, livort þörf sé aðgerða, hvort heimamenn eigi að ganga fyrir, o.s.frv. Síöan veröa cinstök atriði könnuð í hópúm og loks verða almennar umræður um niðurstöður hóp- anna. Grunnskólar Reykjavíkur: Flúorskolun hjá skóla- börnum hefst í febrúar ■ Ákveðið hefur verið að faka upp flúorskolun hjá sknlubörn- unum í Reykjavík í hvrjun febr- úar á þessu ári. í nágrannalönd- um okkar þar sem fyrirbyggj- andi aðgerðir hafa verið í gangi með flúormeðhöndlun eru tann- skemmdir a.m.k. helmingi minni en hér á landi meðal 12 ára barna. Ef vel tekst til um framkvæmd má ætla að tannskemdir með- al skólabarna hafi minnkað um helming eftir u.þ.b. 8 ár. Leiðir það jafnframt til gífurlegs sparnaðar við tannviðgerðir skólabarna. Tillögur Heilbrigðisráðs Reykjavíkur um flúorskolun fela m.a. í sér að tannskolun fari fram tvisvar í mánuði allt skólaárið en jafnframt mun flú- orburstun verða hætt. Áætlaður efniskostnaður vegna flúor- skolunar er 50 kr. á barn og gerir það samtals 650 þúsund kr. á ári. Sérstakur tannvernd- ardagur er 29. janúar og verður þá dreift upplýsingum um tannvernd, svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt er stefnt að því að auka fræðslu um tannvernd meðal verðandi mæðra og í ungbarnaeftirliti og reynt verð- ur að koma á sem almennastri flúortöflunotkun meðal barna undir grunnskólaaldri. ■ Kókakóla hefur löngum verið talinn óvinur tannanna númer eitt og hver hefur ekki prófað að láta tönn í kókglas að kvöldi og sjá, hún er að engu orðin að morgni. NT-mynd: Anna. BLAÐBERA VANTAR ÆGISSIÐA KVISTHAGI FORNHAGI HOFSVALLAGATA HJARÐARHAGI EINNIG VANTAR BLAÐBERA A BIÐLISTA í ÖLL HVERFI SídumulM 5. Sími 686300

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.