NT - 15.01.1985, Blaðsíða 11
Petta eru vel heppnaðir tappar, það fer ekki á milli mála og þræða listilega meðalveginn gullna á milli Bubba Morthens og Hauks frænda.
Hver er galdurinn? Töfra-
formúlan? Orkulindin? Af
hvcrju eru mennirnir aö þessu?
Eru þeir kannski orönir sökk-
ríkir á þessu basli?
Helsti Stuðmannasérfræð-
ingurinn okkar og höfundur
Draumsins leitar svars. Illugi
Jökulsson:
„Stuðmenn eru, sýnist mér,
að verða hið næsta sem komist
verður ejlífðarvél. Þeir ganga
orðið af sjálfu sér. Og hvað
með það? Reyna ekki flestir að
halda sér í því sent gengur vel
og þeim þykir skemmtilegt?
Því held ég líka að Stuðmönn-
um þyki gaman að vera
Stuðmenn. Fyrir allmörgum
árum hittu þessir strákar á
gullæð og auðvitað eru þeir
enn á höttunum eftir gullmol-
um. Þá meina ég ekki endilega
Kóngar
hinnar
íslensku
vitundar
að það veröur að klæðskera-
sauma hér um hil allt á hann.
Maður verður að höfða til
fólks í allar áttir. Gleymum
því heldur ekki að Bítlarnir til
dæmis. þeir voru óhernju
kommersíal án þess þó að vera
nokkurn tíma billegir."
Og peningarnir, ríkidæmið,
milljónirnar?
Jakob Mangússon scgir læ-
víslega að ýntis fyrirtæki þeirra
félaganna hafi verið fjárhags-
lega fullnægjandi. Þeim sé í
lófa lagið að þéna ntikla pcn-
inga á skömmum tíma, en
hingað til hafi mestu því fjár-
magni verið varið í ný ævintýri.
til að munda bókina góðu sent
hlaut enga sérstaka náð fyrir
augum bókabéusa. „Það er
örugglcga ekki gróðavonin
sem heldur okkur gangandi."
segir Jakob.
„Við erunt eins og lítiö sam-
vinnufélag," scgir Valgeir
Guðjónsson og heldur tryggð
við miðjuna. Sitt í hvoru lagi
eru þeir allir ágæta vel lukkaðir
Aflavík austur er eins kon-
verksmiðju
að Stuðmenn séu fjárplógsfyrir-
tæki, heldureru þeir tjáningar-
máti sem virðist höfða til fólks.
Þetta heppnaðist vel og Stuð-
menn eru líka helvlti vel heppn-
aðir tappar. Jafnvel um of,
þykir manni stundum."
„Metnaður okkar er að vera
eins konar sameiningartákn,
ekki hrokafullir ellibelgir og
því síður uppreisnargjarnir
ungpönkarar," segir Jakob
Magnússon.
„Viðerum miðjumoðararog
höfum sérstakar taugar til
Framsóknarflokksins," segir
Valgeir Guðjónsson.
Kannski má líta á einn text-
ann á nýjustu hljómplötunni
sem eins konar stefnuyfirlýs-
ingu Stuðmanna:
Það sem Bubba Morthens
þykir gott og gilt,
þykir Hauki frænda vera
helst til villt.
Allt er best í hófi,
það er okkar trú
og með bros á vör við leikunt
Búkalú."
Ennfremur:
Að vera up to date
er okkar innsta þrá....
Eru þeir þá ekki „kommer-
síal,” strákarnir, nokkuð sem
- samvinnu-
félagið
Stuðmenn
og
ieikföngin
þeirra
þótti hið alljótasta skammar-
yrði á öndverðum Bítlatíman-
um? Eru þeir orðnir ófor-
skammaðir markaðshyggju-
menn. Valgeir:
„Við mælum velgengni okk-
ar fyrst og fremst með því
hvernig okkur tekst að höfða
til fólks. Ef það tekst, þá held
ég að það sé allt í lagi að vera
kommersíal. Markaðurinn
hérna er einu sinni svo þröngur
og listrænir, saman eru þeir
þetta stórveldi - ómissandi
allir, þótt mest bcri á þeim
Valgeiri, Jakobi og Agli.
„Jakob Magnússon er ís-
landsbersi sinnar kynslóðar,"
segir lllugi Jökulsson. „Hann
er einhvers konar náttúrúafl,
held ég. Jakob fær í sífellu
hugmyndir sem flestum öðrum
- meira að segja hinum Stuö-
mönnunum sem kalla ekki allt
ömntu sína - þykja fáránlegar
og óframkvæmanlegar. En
hann hleypur af staö til að
framkvæma þær. Ótrúlega
sjaldan rennur hann á rassinn,
og er þá jafnharðan staðinn
upp aftur, glaðbeittari en
nokkru sinni fyrr. Eftir að ég
fór að skrifa um þá Drauminn
kom fólk til mín og sagði: „Já,
Jakob hann stjórnar þessu öllu
saman, er það ekki? Ég þykist
vita að Egill hafi þarna öll
völd, ekki satt? Valgeir, Itann
er stjórnandinn? “ Sannleikur-
inn er sá að það er enginn
stjórnandi. Þessir þrír hafa sig
mest í framnti og það er í
einhvers konar neistaflugi
þeirra í milli sem Stuðmanna-
galdurinn verður til. Stuðmenn
lukkast yfirleitt best þegar allir
leggja nokkurn veginn jafnt
saman í púkk. Valgeir og Egill
eru ekki síðri hugmynda-
fræðingar hljómsveitarinnar
en Kobbi. Egill er kannski
helsta ímynd hennar og Val-
geir er áreiðanlega mestur
matmaður hljómsveitarinnar.
Það er verðugt rannsóknarefni
hversu oft matur og melting
skjóta upp kollinum í textum
eða töluðu máli sem Valgeir
hefur samið. Og reynið svo að
ímynda ykkur Stuðmenn án
Toinma? Eða Þórðar? Annars
er ómögulegt að skipta þessu
bandi í frumparta sína. Þetta
er ekki venjuleg hljómsveit,
hcldur einhvers konar fyrir-
bæri."
Stuðmenn eru kannski svo-
lítið eins og pottormar sem
hafa komist inn í skemmu fulla
af dýrlegum leikföngum.
Hljóðfærin, upptökutækin,
myndavélarnar, Ringó - allt
þetta og fleira eru eins konar
leikföng í höndum þeirra, og
kannski ekki síður áhorfend-
urnir, hinn þakkláti fjöldi. Þeir
bera akkúrat rétt. mátulega
viröingu fyrir áhorfendum til
að geta leyft sér að nostra við
ímynd sína á alla kanta.
„Púkalegt en töff." var eitt
sinn slagorð Stuðmanna - hef-
ur nokkur heyrt annað eins!
Og þeir bera nákvæmlega
enga viröingu fyrir þeim ntark-
ntiðum sem þeir setja sér, fyrir
viðfangsefnunum - ólíkt flest-
um íslenskum listamönnum
sem eru samkvæmt hefð ör-
lagakvabbarar og gruflarar.
Það cr hringt í Ringó eða
Roy Rogers, og þess vegna
Tarsan sjálfan, það er ætt aust-
ur á land með viljann til að
gera bíómynd að vopni, en
kannski minni sérfræðiþekk-
ingu, þjóðminjaverði er gerð
skömm til og sett upp eins og
eitt gagnmerkt poppminjasafn
í aflóga danshúsi í bænum
með skóm af Pétri poppara og
gæruúlpum af Hljómum. Og
svo má lengi telja.
Það er ærið verkefni að
skrúfa Stuðmenn í sundur til
aö skoða gangverkið. Kannski
myndi heldur enginn verða
bættari á því. „Það hefur alltaf
allt reddast í þessu bandi," var
fleyg setning í kvikmyndinni
Með allt á hreinu. Sjálfir segja
þeir að þeir séu ekki miklir
teoríumenn, „ekki svo kænir
og ekki svo miklir pælarar...
„Við leggjum til atlögu við
hlutina," segir Valgeir Guð-
jónsson.
Og við það situr. Nýja bíó-
myndin verður frumsýnd í lok
febrúar.
Egill Helgason
„Að vera
up to date
er okkar
innsta þrá“
„Hvers kyns
fanatík
er okkur
framandi“
„Allt er
best í hófi
það er
okkar trú“
„Það hefur
alltaf allt
reddast í
þessu bandi“