NT


NT - 10.02.1985, Side 12

NT - 10.02.1985, Side 12
 Sunnudagur 10. febrúar 1985 12; j \ir Sunnudagur 10. febrúar 1985 13 liL lyiyndlisf: [ ll Myndlist K „Gagnrýnendur“ nefnist þessi mynd sem máluð er með olíu á gegnsæjan pappír 1979. Stærð 182x320 sm. ' -Íár # : km3\? að gabba sjálfan þig. Þú ert að mála hvítt millistéttarfólk í bandarísku úthverfi.“ Og Fischl varð Ijóst að hann var upptekinn í myndum sínum af neysluloforðum Ameríska Draumsins og því hve raunveruleikinn stangaðist á við þennan draum. Þetta var árið 1978 og síðan þá hefur Fischl málað martröðina á fullu með hefðbundinni tækni. Samklippuleg myndhugsun Það er einkenni á myndum Fischls að hann byggir þær á samsetningum. í nýjustu málverkunum notar hann mikið þá aðferð að mála tvær myndir á sama léreftið. Ekki eins og Schnabel eða Salle að mála hverja ofan í aðra, heldur skiptir hann léreftinu í tvo eða þrjá hluta og málar á þá tvær eða þrjár myndir. Efnislega og tæknilega tengjast þær, en eru samt tvær myndir. Ef eldri myndir eftir Fischl eru skoðaðar, eins og sú frá 1979 sem nefnist „Gagnrýnendur“, þá er sama myndhugsunin þar. Myndin samanstendur af fimm gegnsæjum blöðum og hefur manneskja eða hlutur verið máluð á hvert þeirra. Þessum fimm myndeiningum má raða saman á marga mismunandi háttu. Sömu aðferð notaði Fischl í nýlegri grafíkmynd sem vakið hefur mikla athygli. Hún nefnist „Ár hundsins sem drukknaði". Mætti halda að Fischl lifði eftir kínversku tímatali. Reyndar býr hann rétt hjá Kínahverfinu á Manhattan! En þessi mynd er samsett úr sex einingum. Grunneiningin er eyðileg strönd, en hinar fimm einingarnar eru minni myndir af fólki sem raða má á ströndina. Tæknilega er þetta akvatinta, mjúkgrunnur og þurrnál, prentað í lit. Á yfirborðinu fjallar myndin auðsæilega um fund hunds sem hefur drukknað, en fleiri merkingar liggja í loftinu. Andrúmsloftið á ströndinni er breytilegt: morgunstemmning til vinstri, hádegisstemmning í mið og síðdegisstemmning til hægri. Fjallar myndin þá um tíma? Um einn dag? Um eitt ár? Eða það sem gerist í tímanum? Eða fjallar myndin um tilviljunarkennt atvik í lífi ótengds fólks? Tákna manneskjurnar ákveðna samfélagshópa? Eins og í lífinu sjálfu eru hér fleiri spurningar en svör. Að alast upp karlkyns og hvítur Málarar eins og David Salle hafa á undanförnum árum málað myndir sem eru svívirðing við konur. Þótt myndir Fischls geti aldrei flokkast sem feminista-myndir þá eru myndir hans málaðar frá sjónarhorni karl- húmanista. Hann á það sameiginlegt með kvenfrelsiskonum að hann er að spyrja sig svipaðra spurninga um fjölskyldumunstur, kynhegðun, hlutverkaskiptingu og svo framvegis. Konurnar í myndum Fischls eru flestar uppteknar af sjálfum sér, liggjandi í steríótýperuðum millistéttarsvefnherbergjum eða baðströndum. En það eru flestir karlanna líka. Lífsmunstur er inntak verka Fischls. Á myndinni „Heimsókn til og heimsókn frá eyjunum" eru tvær myndir, tveir heimar. Til vinstri er hvítt fólk í sólbaði og að leik á fallegri baðströnd. Til hægri er svart fólk krjúpandi yfir drukknuðu svörtu fólki í flæðarmáli er óviðri hefur slotað. I hnotskurn er þetta lýsing á velferðarsamfélagi og vanþróuðum löndum. Á að mála heiminn eins og hann er eða eins og við viljum að hann sé? Ef ég mætti ráða mundi ég hafa „að alast upp karlkyns og hvítur“ sem yfirskrift á yfirlitssýningu á verkum Fischls. Svala Sigurleifsdóttir ■ „Ár drukknaða hundsins“, sex etsingar sem raðað er saman. 1983. Stærð 55x87 sm. f-sts: M i. T Xarkaður og gagnrým gera New York borg í bili að miðstöð vestrænnar myndlistar. Löngum voru Evrópumenn aðalstjörnurnar í myndlist Vesturlanda, en eftir síðari heimsstyrjöldina urðu bandarískir myndlistamenn helstu himintunglin. Menn eins og De. Kooning, Pollock, Warhol, Johns og Rauschenberg áttu staðinn. Fyrir nokkrum árum verður sú breyting á að evrópskir myndlistarmenn verða aftur mikilsmetnir í New York og þeir fara þangað í hrönnum til að „meika" það. Auðvitað eru samt stórgóðir ungir Bandaríkjamenn að gera góða hluti heima hjá sér, þótt minna fréttist afþeim. Hérerætlunin að segja aðeins frá því sem mér, prívat og persónulega, finnst best í bandarískri samtímalist. Nýir Ödipusar Ungir listdansarar eru oft táningar, ungir tónlistarmenn um tvítugt, ungir rithöfundar hálf þrítugir en ungir myndlistamenn eru yfirleitt miðaldra. Ástæðan er önnur en sú að myndlistamenn taki ■ „Slæmur strákur“, olía á léreft. 1981. Stærð 168x244 sm. seinna út þroska sinn en aðrir listamenn. Einn af bestu ungu myndlistamönnunum í Bandaríkjunum er Eric Fischl, 37 ára gamall. Myndir hans þykja nýstárlegar að efni, en þó er grunnur þeirra þessar klassísku sálarflækjur, sem virðast hafa fylgt mannkyninu frá ómunatíð. Vandamál Ödipusar er ekki splunkunýtt fyrirbæri! Þegar myndir Fischl eru skoðaðar vaknar alltaf sama spurningin hjá áhorfandanum: „Hvað gengur eiginlega á í þessari mynd?“ „Slæmur strákur" er gott dæmi. í rúmi liggur kona. Unglingsstrákur horfir á hana en stelur unt leið úr veskinu hennar. Hvertersambandiðá milli veskisins og vagínu konunnar? Eiga eplin og bananarnir í skálinni að tákna freistingar og phallusa? Gera Ijósrendurnar á konunni og rúminu hana ekki tígrisdýralega? Er áhorfandinn samsekur stráknum? Alla vega kemur upp sú tilfinning að áhorfandinn er kominn á stað þar sem hann á alls ekki að vera og farinn að horfa á forboðnar athafnir. Slík eru viðfangsefni Eric Fischls. Misheppnaður hippi Hvers vegna velur myndlistamaður sér svona efni: Fischl segir að það megi rekja efnið til fortíðar sinnar. Myndefnið sé þó ekki sjálfsæfisögulegt, heldur séu myndirnar byggðar á andrúmsloftinu sem ríkti heima hjá honum í æsku. Mamma hans var alkohólisti og fjölskyldulífið gekk út á að bjarga þvt sem bjargað varð. Fischl ólst upp í úthverfi á Long Island á austurströnd Bandaríkjanna. 1966 féll hann á fyrsta ári í college og ákvað að gerast hippi í San Francisco, eins og svo margir aðrir. Á hippaprófinu féll hann líka: „Eg man að eitt sinn bjó ég með þrjátíu öðrum í íitlu húsnæði og uppgötvaði að mér féll hreinlega við engan þar. Það hlýtur að vera eitthvað að mér, hugsaði ég. Kannski ætti ég að nota meira dóp? Fljótlega var ég þó kominn, leiður og þreyttur, heim til pabba og mömmu. Þá voru þau flutt í sólina í Phoenix.“ Hann byrjaði í myndlistanámi í Arizona State University og líkaði vel. Að loknu námi þar hóf hann áframhaldandi myndlistanám í þá nýjum listaskóla í Kaliforníu, CalArts, 1970. Þessi skóli var reistur og er rekinn sem lifandi minnismerki um Walt Disney og er með betri myndlistaskólum í U.S.A. En í CalArts fannst Fischl margt að: „Þar vissu nú allir að málverkið væri dautt! Ég man eftir hópkrítík þar sem allt var sallað niður út úr tómurn leiðindum.“ Þó lauk hann M.F.A. prófi frá CalArts. Að námi loknu fór Fischl á flakk, til Chicago og síðan til Nova Scotia. Þar reyndi hann að nálgast hið upprunalega og óspillta í lífi fiskimanna og málaði mystískar myndir af þeim. Vinur hans einn skoðaði myndimar og sagði: „Hættu samtimans

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.