NT - 15.02.1985, Síða 4
Föstudagur 15. febrúar 1985 4 Blað II
«Kiííts tiiry • uw&m&Mt
fSaSfGm^ PWWAífit * ÍMf&XXi ílOMAiit ■(■
Vinsældalistinn
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
D
Chiefs (2 spólur
6) Ninja Master
3)
4.-6. spóla
Silent Partner
15) Stríðsins blóðuga helvíti
(2 spólur)
7) Educating Rita
13
12
2
8
4
5
17
10
9
14
16
20
Winter of discontent
48 hours
Angelique (5 spólur)
Maður, kona og bam
Mistrals Daughter
(3 spólur)
Flóttinn frá New York
The Thing
Celebrity (2 spólur)
Deadly Encounter
Tobeornottobe
Why would I lie?
Evilthatmando
Paris, Texas
Lies
Þeirsemdæma:
Studio, Kellavik
Myndbandaleiga kvikmyndahusanna, Hafnarfirði
Videok|allarinn Oðinsgbtu 5
Nesvideo. Melabraut 57
Video-Markaðurinn, Hamraborg 10
Grensasvideo Grensasvegi 24
Myndbandalagið, Mosfellssveit
Video Björninn, Hringbraut 119D
Videoklubburinn, Storholti 1
Tröllavideo, Eiðistorgi 17
West End video, Vesturgótu 53.
Erfið fæðing!
■ „Já, hann er kominn fyrsti
þátturinn af Benny Hill grín-
þáttunum á myndbandamark-
aðinn." Þetta sagði ég tostu-
daginn 14. desember '84 á
myndbandasíðunni þá: nú
tveim mánuðum seinna ætla ég
að gera aöra tilraun og fræða
lesendur mína á því að þessi
frábæri grínþátturernú loksins
kominn á leigurnar! Dreif-
ingaraðilinn, þ.e.a.s. Fálkinn
sér nú fram á að þeir sem texta
myndina (Texti) nái því á
þessu ári (ha.ha). Þeir hjá
Texta eru nú endanlega að
ganga frá nýjum og afkasta-
meiri fjölföldunartækjum í Hi-
Fi og mun ég fjalla um það
nánar síðar. Þess má geta að
Bergvík er komið með topp-
græjur til að íjölfalda og vænta
menn mikils af þeim í framtíð-
inni.
Á þessari Benny Hill spólu
eru mörg stutt leikatriði.
Benny Hill þykir ótrúlega fjöl-
hæfur grínisti, hann sernur
handritin, leikstýrir, leikur,
dansar og syngur við hvern
sinn fingur. Þættirnir hans hafa
notið mjög mikilla vinsælda í
Bretlandi og til marks um það
má nefna að Benny hefur haft
fasta vikulega þætti í Thames
sjónvarpinu í um 40 ár. í
Bandaríkjunum, Ástralíu og
Svíþjóð eru þættirnir hans
einnig gríðarlega vinsælir en
stutt er þó síðan Kaninn upp-
götvaði Benny Hill þættina.
Benny byggir þættina sína mik-
ið upp á orðaleikjum, lát-
bragðsleik, sexý dansstúlkum,
söngvum og revíum. Af með-
leikurum Benny ber helst að
Fawlty Towers
Leikstjóri: Douglas Argent
Aðalleikarar: John Cleese,
Connie Booth, Pruneila Scales
og Andrew Sachs
■ Fawlty Towers cr einn
hinna svonefndu skammtíma-
framhaldsþátta frá BBC. Hér
er á ferðinni grínþáttur sem
byggður er upp á spennu og
misskilningi frá upphafi til
enda. Á hverri spólu eru þrír
þættir. Efnisatriði þessara
þátta er í stórum dráttum að
Mr. & Mrs. Fawlty eiga og
reka lítið gistihús, Fawlty
Towers, í grennd við sumar-
dvalarstaðinn Torque á Eng-
landi. Eins og gefur að skilja
eru Fawlty hjónin aðalpersón-
urnar en auk þeirra bcr helst
að ncfna þjóninn Manuel, sern
er Spánverji og talar enga
ensku og varla er hægt að tala
við hann á merkjamáli! Hann
er því alltaf að lenda í útistöð-
um við gestina og auðvitað
eigandann, sem vill ekki láta
hann fara því hann er svo
ódýr. Einnig kcmur þjónustu-
stúlkan, Pollyog uppgjafa liös-
foringi mikið við sögu. Nú
hinir ýmsu furðufuglar heim-
sækja svo auðvitað þetta gisti-
hús og eru þá á ferðiiini oft á
tíðum skrautlegar manngerðir
vægast sagt. Þaö sem gerir
þessa þætti leiðinlega er að
iilátur er settur inní á vitlaus-
um augnablikum og alltof oft
einnig er erfitt að fylgjast með
því talað er of hratt. Það
borgar sig því fyrir fólk að bíða
með það að taka þessa þætti
því þeir fara að koma textaðir
á markaðinn og þá eru þeir
strax frambærilegir.
J. Þór.
M Einkennandi fyrir Benny
Hill þættina, mikill hlátur og
fallegar stúlkur.
tiefna Bob Todd (sá langi
þunnhærði), Jack Wright (litli
sköllótti „ellilífeyrisþeginn")
og Henry MeGhee (t'ágaði
dökkhærði maðurinn). Þýð-
andi þáttanna er enginn annar
en Þrándur Thoroddsen sem
margir muna eflaust eftir sem
þýðanda Prúðuleikaranna og
Löðurs. Textinn ætti því ekki
að vera neinn Þrándur í Götu.
Þessir þættir fá hæstu einkunn
hjá mér, þ.e.a.s. 5 stjörnur,
allir í fjölskyldunni eiga að
geta haft gaman af þeim. Þátt-
ur tvö er svo væntanlegur á
markaðinn í byrjun marz.
J. Þór.
Killer on Board Slayground The Changeling
Leikstjóri: Philip Leacock
Aðalleikarar: Claude Akins, Sus-
an Howard, George Hamilton,
Jane Seymour og Frank Con-
verse
■ Ekki er öll vitleysan eins,
við fylgjumst með skemmti-
ferðaskipi sem er á leið frá
Filippseyjum til Honolulu með
bandaríska ferðamenn. Við sjá
um í byrjun tvo eyjaskeggja
laumast um borð. Annar
þeirra veikist og veikin breiðist
út um allt skipið. Skipslæknir-
inn sem teljast verður fúskari
álítur að hér sé á ferðinni
innflúensa, þó svo að fjórir
hafi veikst snögglega og einn
dáinn. Um borð í skipinu er
skurðlæknir sem grunar að
ekki sé allt nreð felldu og
býður fram aðstoð sína en
skipstjórinn fullyrðir að þetta
sé bara flensa. En þegar skottu-
læknirinn veikist og fjórir eru
dánir er ákveðið að þiggja
hjálp skurðlæknisins. Hann
kryfur einn hinna látnu en er
engu nær um sjúkdóminn.
Alltaf fjölgar þeim veiku og
setja verður fólkiö í sóttkví en
það stoppar ekki faraldinn og
leitað er aðstoðar hjá banda-
rískum yfirvöldum. Þau snúa
skipinu til San Fransisco og urn
borð eru farþegar óttaslegnir
og vilja komast burtu af skip-
inu. Sá eini sem getur bjargað
farþegunum er sjálfur srnit-
valdurinn. en hann flýi' frá
borði og spurningin er sú hvort
hann finnist, bla., bla., lélegur
söguþráður, lélegur leikur.
Með öðrum orðum annars
flokks mynd. J. Þór.
Leikstjóri: Terry Bedford
Aðalleikarar: Peter Coyote, Mel
Sith, og Billie Whitelaw
■ Myndin fjallar um þrjá
þjófa sem hafa vopnuð rán að
sérgrein. Þeir heita Laufman,
Sheer og Stone scm er aðal-
maðurinn. Þeir ákveða að ræna
brynvarinn peningavagn en þá
kemur í Ijós að Laufman er
ekki til staðar, Stone vill hætta
við verkið, en Sheer ekki og
fær ungan ökuþór, Lonzini. til
þess að aka þeim. Ránið
heppnast vel, en bílstjórinn er
frekar taugaóstyrkur (tauga-
hrúga) og á flóttanum ekur
hann á annan bíl og veltir hon-
um mcð þeim afleiðingum að
stúlka sem í bílnunr er deyr.
Faðir stúlkunnar er auðmaður
einn og hann verður alveg
brjálaður þegar hann fréttir af
því að 9 ára gömul dóttir hans
hafi látist. Hún var augasteinn-
inn hans og hann er ákveðinn
í því að hefna dauða dóttur
sinnar. í því skyni ræður hann
frægasta og alræmdasta leigu-
morðingja sem völ er á, enda
vantar ekki peningana, til þess
að elta uppi morðingjana og
drepa þá. Lonzini er sá fyrsti
sem fellur, síðan Sheer en
Stone tekst að sleppa til Eng-
lands en hvar sem hann fer er
dauðinn á hælum hans og að
lokum kemur til uppgjörs...
Þetta er þolanleg afþreyingar-
mynd fyrir vídeóglápara.
J.Þór
Leikstjóri: Peter Medak
Aðalleikarar: George C. Scott,
Trish Van Devere, Melvyn Doug-
las, Jean Marsh og Peter Medak
■ George C. Scott ættu flest-
ir Islendingar að kannast við.
hann fór með aðalhlutverkið í
Patton, góður gæi. í þessari
hryllingsmynd leikur hann
tónlistarkennarann John Russel
en við sjáum hann ásamt konu
sinni og dóttur, í upphafi
myndarinnar vera að ýta bíl
sínum í ófærðinni. Russei
bregður sér frá til að hringja á
aðstoð en verður á leiðinni
vitni að því er stór trukkur
keyrir niður konu hans og
barn. Til þess að gleyma þessu
hörmulega slysi flyst Russel til
Seattle. Dularfull kona hjálp-
ar honum að finna „þægilegt"
hús í rólegu hverfi en henni
láðist bara að segja honum
hina ógnvekjandi sögu sem
húsið á. Russel er ekki búinn
að búa lengi í þessu hrörlega
húsi er hann fer að verða var
við það að hann er þar ekki
einn. Miðilsfundir og opnar
grafir opinbera honum hina
raunverulegu húsbændur
hússins! Semsagt hryllings-
mynd án þess að blóði sé
úthellt. Eg hef ekki gaman af að
horfa á hryllingsmyndir en
þessi er góð og ég kalla svona
myndir spennuhryllingsmynd-
ir.
J.Þór.
Myndform sf:
Fjölföldun myndbanda í steríó
■ Nýtt fyrirtæki, Myndform
sf.. hefur hafið starfsemi við
Jdólshraun í Hafnarfirði, en
fyrirtækið sérhæfir sig í fjöl-
földun og textun myndbanda.
Fyrirtækið hefur komið sér
upp „Panasonic Hi-Fi" tækjum
sem gerir þcim kleift að fjöl-
falda myndbönd í „steríó" og
með betri myndgæðum en áður
hafa tíðkast.
Eigendur Myndforms sf. eru
Snorri Hallgrímsson. Gunnar
Gunnarsson, Magnús Gunn-
arsson og Óli Sven Styff.
Þeir Snorri. Magnús og Gunn-
ar voru önnunr kafnir við verk-
cfni er NT bar að garði, en þeir
gáfu sér samt smá tíma til að
ræða við umsjónarmann
myndbandasiðunnar. Starf-
semin hjá þeim fer þannig
fram að fyrirtækið fær svokall-
aðar „master-spólur" (nei.
ekki Master of the Univers)
frá rétthöfum myndbanda og
fjölfaldar síðan spólurnar eftir
óskurn viðkomandi og er þeim
síðan dreift í myndbandaleig-
ur. Þessir „masterar" eru settir
í sérstakt tæki af gerðinni
„Sony-Umatic" og af því er
svo fjölfaldað í einu inn á
upptökutækin, sem verða um
40 talsins þegar allt verður
komiö í gang. Ekki má gleyma
að nefna nýja textunartölvu af
gerðinni „Screen Electronics"
sem textaðar eru með nýju og
skemmtilegu letri.
Stofnkostnaður við uppsetn-
ingu þessara tækja er um 5
litlar milljónir króna. en þeir
félagar eru bjartsýnir á að
fyrirtækið muni borga sig þar
sem hér væru á ferðinni full-
komin tæki, sem skiluðu bæði
betri mynd- og hljómgæðum.
J.Þór.
■ Þrír af fjórum eigendum Myndforins sf. í bakgrunni má sjá
hluta af Panasonic græjunum.