NT - 15.02.1985, Blaðsíða 10

NT - 15.02.1985, Blaðsíða 10
______________________Föstudagur 15. febrúar 1985 10 Blað II Igin framundan Ferðahátíð í Þórscafé ■ Ferðahátíö veröur í Þórs- café á sunnudagskvöld. Kynnt- ar veröa feröir á vegum ferða- skrifstofunnar Flngferöir Vest- urgötu 17, til Tenerife og Mallorca. Umsjón meö feröa- kynningunni hefur Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Seinna um kvöldið veröur spilað bingó um ferðir til Tenerife og Mall- orea. Einnig verður farið í samkvæmisleiki og munu snjöllustu gestirnir fá vinninga. Þórskabarett vcrður á fjölun- um og boðiö er upp á listauka við innganginn. A matseðlin- um eru m.a. cldsteiktar lamba- sneiðar og triffle. Laugardagskaffi kvennahúss ■ Hugmyndafræöi kven- frelsisbaráttu er efniö, sem um verður fjallaö laugard. 16. fcbr. Helga Sigurjónsdóttir kynnir hclstu stefnur í hug- myndafræði kvennabaráttu. Kynning á lýðháskólum á Norðurlöndum ■ Laugardaginn 16. febrúar efnir Reykjavíkurdeild Nor- ræna félagsins til kynningar á lýðháskólum á Norðurlönd- um. Kynningin fer 'fram í Nor- ræna húsinu og hefst kl. 15.00. Fjallaö vcrður um náms- þrautir og námstilhögun og sagt frá námskostnaði ogstyrk- möguleikum. Scrstaklega verður rætt um námsmat og ’ tengslin við íramhaldsskóla- kerfið íslenska. Aðgangur er ókcypis og'öll- um heimill. Félagsvist og dans í Templarahöllinni ■ S.K.T. heldur félagsvist og dans í Templarahöllinni í kvöld. Félagsvistin hefst kl. 21.00 en kl. 22.30 hefjast gömlu dansarnir. Það er hljómsveitin Tíglar. sem leik- ur. Neskirkja ■ Félagsstarf aldraðra á morgun, laugardag kl. 15.00. Ingibjörg Marteinsdóttir söng- kona og Pétur Pétursson út- varpsþulur konta í heimsókn. Séra Frank M. Halldórsson Hvamms- tangakirkja ■ Hvammstangakir.kja: messa á sunnudag kl. 14.00, og barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guöni Þór Ólafsson Kvikmynd í MÍR List í Rússlandi ■ Kvikmyndasýning verður í húsakynnum MÍR að Vatns- stíg 10 nk. sunnudag, 17. febrú- ar kl. 16.00. Sýndar verða tvær stuttar ntyndir. í annarri segir frá sovésku fimleikafólki og eru skýringar meö þeirri mynd á íslensku. Hin myndin fjaliar um list og listsköpun í Rúss- landi og eru skýringar á ensku. Aögangur að kvikmyndasýn- ingum MÍR er ókeypis og öll- um heimil. Kvikmyndaklúbb- urinn Norðurljós sýnir í Norræna húsinu ■ Sunnudaginn 17. febrúar kl. 16.00 hefjast aftur sýningar á vegum kvikmyndaklúbbsins Norðurljósa í fundarsal Norðurljósa í Norræna húsinu, fundarsal. Þá vcrður sýnd danska gam- anmyndin Slá l'örst Frede með Morten Grundwald, Poul Bundegárd, Ove Sprogöe og fleiri í aöalhlutverkum. Leik- stjóri er Erik Balling. Þetta er fyrsta myndin í röðinni unt „andhetjuna" Frede Hanscn, sem fyrir tilvilj- un lendir í ýmsum ævintýrum og tekur þátt í njósnum stór- veldanna. Myndin erskopstæl- ing á 007 njósnamyndunum og danski húmorinn leynir sér ekki. Sýningar kvikmyndaklúbbs- ins Norðurljósa féllu niöur í haust vegna verkfallsins, en hefjast nú aö nýju, og sýndar verða þær dönsku gaman- myndir, scnt fyrirhugað var aö sýna sl. haust. Gamanmyndirnar verða sýndar sunnudagana 17. febr.. 10. mars, 31. mars, 21. apríl og 28. apríl kl. 16.00. Aðgangskort frá því í haust gilda á þessar sýningar, en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn. Síðasta sýningarhelgi á Kjarvalsstöðum ■ Tvær sýningar eru nú á Kjarvalsstöðum og lýkur þeim báðum um helgina. I vestursal sýnir Sveinn Björnsson 56 mál- verk sem öll cru til sölu. Sýn- ingin er sett upp í tilefni 60 ára afmælis listamannsins. í austursal er sýning á vegum Seðlabanka Islands og Reykja- víkurborgar á úrlausnum í hugmyndasamkeppni um hlut- verk og mótun Arnarhóls og umhverfis hans. 31 tillaga barst. Dómnefnd veitti 6 tillög- um verðlaun, og keypti tvær til ■ Sýningu Svcins Björnsson- ar á Kjarvalsstööum lýkur uin helgina. viðbótar, og veitti ennfremur tveim til viðbótar viðurkenn- ingu. Á sýningunni liggur framrni spurningalisti þar sem gestum gefst kostur á að tjá sig urn framtíðarskipulag Arnar- hóls. Sýningarnar eru opnar dag- lega kl. 14.00-22.00 frani til sunnudagskvölds 17. þ.m. Ath. Sýningar Alþýðuleik- hússins á „Bciskum tárum Petru von Kant" á laugardag- inn 16. og sunnudaginn 17. feb. kl. 16 báða dagana. ■ Úr sýningu leiklistarnema og tónlistarnema á Aljóna og ívan Síðustu sýningar á Aljónu og Ivan Síðustu sýningar á barna- leikritinu AÍjóna og ívan, sem nemendur í 3. bekk Leiklistar- skóla íslands og Tónlistarskól- ans í Reykjavík sýna, verða í dag, föstudag, á morgun og sunnudag kl. 17 í Lindarbæ. Miðapantanir eru allan sólar- hringinn í símsvara 2 19 71. Þjóðleikhúsið um helgina: 60. sýning á „Gæjum og píum“ Uppselt á allar sýningarnar ■ Söngleikurinn Gæjar og píur verður sýndur tvisvar sinnum nú um helgina, á föstu- dags- og laugardagskvöld, og er þegar uppselt á báðar þessar sýningar eins og á fyrri sýning- ar verksins. Sýningin á laugar- dagskvöld er 60. sýning. 25. sýning á „Kardemommubænum“ Barnaleikrit Thorbjörns Egners, Kardemommubærinn, verður sýnt á laugardag og á sunnudag kl. 14.00 báða dagana og er þegar uppselt á þessar sýningar eins og á allar sýningar verksins til þessa. Sýningin á sunnudag er 25. sýning. Rashomon 2. sýning á sunnudagskvöld Alþýðuleikhúsið: Klassapíur Frumsýning í Nýlistasafninu ■ Alþýðuleikhúsið frumsýn- ir á mánudagskvöld kl. 20.30 leikritið Klassapíur í Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Leikrit- ið er eftir Caryl Churchhill, en leikrit hennar hafa vakið verð- skuldaða athygli jafnt austan hafs sem vestan undanfarin ár. Klassapíur fjallar um mann- leg örlög. í leikritinu leiða saman hesta sína fulltrúar allra stétta frá 9. öld og til vorra daga. 8 leikkonur koma fram í Klassapíum, en þær eru: Mar- grét Ákadóttir. Anna S. Ein- arsdóttir. Sólveig Halldórs- dóttir, Ása Svavarsdóttir, Sig- rún Edda Björnsdóttir, Sigur- jóna Sverrisdóttir, Kristín Bjarnadóttir og Guðný J. Helgasóttir. Leikstjóri er inga Bjarnason, en aðstoðarleik- stjóri er Elva Gísladóttir. Tónlist samdi Leifur Þórarins- son, en leikmynd og búningar eru eftir Guðrúnu Erlu Geirs- dóttur. Lýsingu hannaði Árni Baldvinsson. Hákon Leifsson þýddi leikritið úr frummálinu. Miða- sala er í síma 14350 milli kl. 17.00-20.00. Önnur sýning verður fimmtud. 21. febr. 3. sýning sunnudag 24. febrúar. Beisk tár Petru von Kant 40. sýning á leikritinu Beisk tár Petru von Kant verður laugard. 16. febr. að Kjarvals- stöðum kl. 16,00 og 41. sýning verður sunnudag kl. 16.00 og 42. sýning á mánudag kl. 20.30. Þetta verk hefur verið sýnt fyrir fullu húsi frá því í nóv- emberbyrjun. Nýja leikritið Rashomon, eftir Fay og Michael Kanin í leikstjórn Hauks J. Gunnars- sonar, verður sýnt í 2. sinn á sunnudagskvöld. Leikmynd er eftir Norðmanninn Svein Lund-Roland. Með helstu hlutverkin fara Arnór Benón- ýsson, Tinna Ciunnlaugsdóttir, Guðjón P. Pedersen, Gunnar Eyjólfsson, Bessi Bjarnason og Hákon Waage. Gertrude Stein Gertrude Stein Gertrude Stein Þetta athyglisverða leikrit hefur fengið góða dóma og verið uppselt á sýningarnar til þessa. Helga Bachman leikur eina hlutverkið í leiknum. 5. sýningin verður á Litla sviðinu á sunnudagskvöld. ■ Úr leikritinu Klassapíur. ■ Úr leikritinu Rashomon

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.