NT - 15.02.1985, Blaðsíða 11

NT - 15.02.1985, Blaðsíða 11
Igin framundan ■ Þau taka þátt í söngferðinni. Ópera á ferðog flugi ■ íslenska óperan er að leggja af stað í hljómleikaferð til Norðurlands og verða sex óperusöngvarar. undirleikari og Ijósameistari með í ferð- inni. Flutt verður óperan Síminn eftir Menotti, atriði úrCarmen eftir Bizet og La Traviata eftir Verdi. Síminn. sem er stutt gamanópera, verður flutt í heild sinni. en sögumaður kynnir nánar óperurnar Car- men og La Traviata milli söng- atriða. Söngvararnir sem syngja í „óperu á ferð og flugi", eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Anna Júlíana Sveinsdóttir. Elín Sigurvinsdóttir, John Speight, Halldór Vilhelmsson og Garðar Cortes. Stjórnandi og undirleikari er MarcTardue og ljósameistari Sigurbjarni Þórmundsson. „Ópera á ferð og flugi" verð- ur í Skjólbrekku, Mývatnssveit 16. febrúar kl. 21.30, Sam- komuhúsinu, Akureyri 17. febrúar kl. 15.00, Miögarði, Skagafirði 17. febrúar kl. 21.30 og Félagsheimilinu Blönduósi 18. febrúar kl. 21.00. Miða- verð er kr. 450.00. Leikfélagi Akureyrar boðið til Færeyja með „Égergulloggersemi“ ■ Úr sýningu á leikritinu Dagbók Önu Frank í Iðnó. Leikfélag Reykjavíkur: Agnes, Anna Frank og Gísl ■ Boð hefur borist til Leikfé- lags Akureyrar frá Norður- landahúsinu í Færeyjum um að sýna þar nýjasta leikrit Sveins Einarssonar „Ég er gull og gersemi". Sýningar eru áætlaðar í Þórshöfn 20. og 21. mars. Leikritið ber nafn einnar fleygustu vísu listamannsins og flakkarans Sölva Helgasonar. „Ég er gull og gersemi gimsteinnelskuríkur. Ég er djásn og dýrmæti drottni sjálfum líkur Leikurinn byggist að hluta á skáldsögu Davíðs Stefánsson- ar. Sólon Islandus, sem fjallar um ævi Sölva. í leiknum eru jafnframt kvæði eftir Davíð, sem Atli Heimir Sveinsson hef- ur samið sönglög við. Leikur- inn þykir verðugur fulltrúi jafnt íslenskrar nútímaleiklist- ar sem hefðar. í leiknum er hlaupið á milli alda; hann ger- ist á víxl í jólaboði á Akureyri í dag og á tímum Sölva, sem fæddist 1820 og dó 1896. Sveinn Einarsson leikstýrir. Akureyrski myndlistarmaður- inn Örn Ingi gerði leikmynd- ina. en David Walter frá Ástralíu hannaði bæði lýsingu og myndvörpu. í leiknum er listaverkum eftir Sölva og landslagsmyndum Arnar Inga brugðið upp á ýmsa fleti leik- myndar. og því er sýningin nijög flókin tæknilega. Frey- gerður Magnúsdóttir hannaði búninga. Fjöldi leikara tekur þátt í sýningunni. auk hljóðfæra- leikara, en aðalhutverkið, Sölva, leikur Theódór Júlíus- son. Nú um helgina eru síðustu tækifæri fyrir íslendinga að berja Sölva augum á Akureyri. því fimmtudaginn 14. og laug- ardaginn 16. febrúareru allra- síðustu sýningar á leiknum. Agnes - barn Guðs ■ í kvöld (föstudagskvöld) sýnir Leikfélag Reykjavíkur bandaríska verðlaunaleikritið Agnes - barn Guðs eftir John Pielmeier. Leikkonurnar þrjár: Guðrún S. Gísladóttir. Sigríður Hagalín og Guðrún Ásmundsdóttir hafa vakið mikla athygli fyrir leik sinn í sýningunni en Þórhildur Þor- leifsdóttir er leikstjóri. Dagbók önnu Frank Á laugardagskvöldið er sýnt leikritið Dagbók Önnu Frank en það hefur verið sýnt 30 sinnum við mjög góða aðsókn. Með titilhlutverkiö fer Guðrún Kristmannsdóttir, en foreldra hennar leika Sigurður Karls- son og Valgerður Dan. Leik- stjóri er Hallmar Sigurðsson. Gíst Leikritið Gísl hefur nú verið sýnt 70 sinnum og ekkert lát er á aðsókninni. Það verður nú sýnt á sunnudagskvöld. Fimmtán leikarar leika. spila, syngja og dansa í sýningunni Jóhann Sigurðsson leikur gíslinn. Litli Kláus og Stóri Kláus í Bæjarbíói í Hafnarfirði ■ Barnaleikritið Litli Kláus og Stóri Kláus verður sýnt í Bæjarbíói í Hafnarfirði á sunnudag kl. 14.00. Miðapantanir allan sólarhringinn í síma 46600. Föstudagur 15. febrúar 1985 11 Blað II Tónleikar Martin Berkofsky til styrktar byggingu tónlistarhúss ■ Píanóleikarinn Martin Berkofsky leikur píanóverk eftir Franz Liszt í Þjóðleikhús- inu mánudaginn 18. fcbrúar kl. 20.30. Allur ágóði rennur til samtaka um byggingu tón- listarhúss. Kvenfélagskonur í Reykjaneskjördeemi með kynningarfund á Hótel Sögu íslenska bindindisfélagið: Af 35 manns á námskeiði hættu 28 að reykja ■ Það varð góður árangur af fimm daga námskeiði íslenska bindindisfélagsins. sern haldið var fyrir reykingafólk sem vildi hætta að reykja. Námskeiðið var haldið í Háskóla íslands 3.-7. febrúarsl. Fyrsta kvöldið voru 37 mættir, en flestir mættu 41. Samanlagður reyk- ingatími þeirra var 738'/: ár. Dagiegur reykingakostnaður hópsins var kr. 2.747,50. Eftir einn sólarhring var þessi upp- hæð komin niður l'yrir 100 krónur. ■ Stjórn Kvenfclagasam- bands Gullbringu- og Kjósar- sýslu býðuröllum félagskonum til kynningarfundar á Hótel Sögu á sunnudaginn 17. febrú- ar kl. 2-5. Þar verður kaffi af betri gcröinni en fjögur aðildarfélög annast fjölbreytta dagskrá - Kvenfélagið Seltjörn, Kvenfé- lag Lágafellssóknar. Kvcnfc- lagið Esja og Kvenlclag Kjós- arhrepps. Stjórnin mun kynna starf- semi sambandsins cn megin- áhersla vcrður lögð á innbyrðis kynningu félagskvenna. Félagskonur af sambands- svæðinu eru hvattar til þess að sækja kynningarfundinn og efla samstöðu sína í skemmti- legum félagsskap. Aðgangur cr ókeypis, en liver borgar sinn kaffisopa. Sýning Helga Gíslasonar i Listmunahúsinu Lækjar- götu ■ í Listmunahúsinu Lækj- argötu 2 stendur yfir sýning myndhöggvarans Hclga Gísla- sonar. Á sýningunni eru 26 myndverk úr bronsi og kopar. gerð á árunum 1984 og '85. Sýningin, sem ersölusýning, er opin virka daga frá kl. 10.00-18.00, en laugardaga og sunnudaga kl. 14.00-18.00, en lokað er á mánudögum. Sýn- ingunni lýkur 24. fcbrúar. Á sýningunni cr sýnt nýgert myndband, scm heitir „í deigl- unni" og lýsir aöfcrö lista- mannsins við gerð myndverka sinna, og cr myndin tekin bæði á vinnustofu lians og málm- steypunni, þar sem steypan fer fram. Gallerí Langbrók ■ Laugardaginn 16. febrúar kl. 14.00 verður opnuö í Gall- erí Langbrók sýning á skart- gripum úr áli og stáli eftir Rúrí og Grím Marinó Steindórsson. Opið kl. 12.00-18.00 virka daga og 14.00-18.00 um helgar. Sýningin stendur til 3. mars. Síðasta - eöa fimmta - kvöld- ið útskrifuðust 35 munns. Af þeim voru 28 alveg hætt aö reykja, og flcst höfðu ekkert reykt frá því fyrsta kvöldið. Hin 7 voru svo til hætt. Þá var kostnaðurinn á dag fvrir hóp- inn kr. 54.00. Þessar tölur tala og sýna livað hægl er að gcra ef heilbrigð dómgreind fær að ráða. Það var fagnandi hópur, sem hélt frá Háskóla íslands þetta kvöld. Forráðamenn nám- skciðsins vonast til að þessu fólki gangi áfram vel við tó- baksbindindið. Þátttakendur í námskeiðinu hafa ákveöið cndurfund fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20.30 í Hugvís- indastofnun Háskólans. Helgarferð F.í. í Brekkuskóg ■ Ferðafélag íslands gengst fyrir hclgarfcrð 15.-17. fcbr. í Haukadal í Biskupstungum. Gist verður í sumarhúsum í Brckkuskógi. Farið vcrður í gönguferðir og skíðagöngu- ferðir. Komið að Gullfossi. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.í. Óldugötu 3. Sunnudagsferð F.í. Jósepsdalur - Ólafsskarð ■ Klukkan 13.00 sunnudag- inn 17. febrúar verður farið í dagsferö á vegum Feröafélags íslands. Gcngið verður um Sauðadali vestan Sauðadala- hnúka í Jósepsdal, um Ólafs- skarð, austur fyrir Blákoll á Þrengslaveg. Þetta er auðveld gönguleið og fjölbreytni mikil í landslagi. Brottför verður frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar seldir við bíl. en frítt er fyrir börn í fylgd fullorð- inna. Skíðagöngu frestað þar til færi batnar. Ath.: Ferð í Þórsmörk ' 8.-10. mars.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.