NT - 15.02.1985, Síða 5
Föstudagur 15. febrúar 1985 5 Blaðll
Hvað er
vinsælast
Framhaldsþættirnir Ðyn-
asty og Falcon Crcst eru rnjög
vinsælir hjá landanum. Eftir
aö Joan Collins birtist í 14.
þætti og tveir þættir komu á
hverri Dynasty spólu jukust
vinsældir Dynasty svo um
munaði. Af vínræktarbónd-
anum Case er það að frétta
að mjög mikil spenna er kom-
in í Falconinn, margir hafa
hrofið á braut (flestir myrtir)
og nýir komið í staðinn. Það
er eins gott að kvarta ekki
undan íaunum í þessum
þáttum, þeirsem skrifa hand-
ritin væru fljótir að kippa því
í liðinn. með t.d. sorglegu
slysi, o.s.frv.
Af barnaefni er það helst
að frétta að HE - MAN
teiknimyndaserían er enn
langvinsæíasta barnaefnið á
markaðnum, það eru komnar
út a.m.k. þrjár spólur.
Teiknimyndasería þessi hefur
allstaðar fengið hrós fyrir að
í þeim er enginn drepinn,
ekkert blóð en samt mikil
spenna og fullt af ævintýrum.
Nú Tommi og Jenni erú einn-
ig ,mjög vinsælir og þeir eiga
sinn fasta aðdáunarhóp. hjá
ungum sem gömlum.
Eins og allir taka strax eftir
er Chiefs auðvitað í fyrsta
sæti en síðast urðu setning-
armistök þannig að í stað
Chiefs kom Mistrals Daught-
er, en Mistrals Daughter gat
ekki bæði verið í 1. sæti og 5.
sæti (ekki nema þá, textuð og
ótextuð, ha.ha). I öðru sæti
eru slagsmálamyndirnar
Ninja, en þær hafa fært sig
upp hægt og sígandi mcð
hverri vikunni. í 4. sæti er
mynd sem tekið hefur risa-
stökk, enda er hér á ferðinni
góð stríðsmynd sem ég mun
reyna að fjalia um nánar í
næstu viku (segir sá lati!). I
12. sæti er toppmynd sem
sýnd hefur verið í Austur-
bæjarbíói, spennumynd með
öðrum orðum. Rúsínan í
pylsuendaandum er svo
myndin sem er í 16. sæti. þar
er á ferðinni góð grínmynd
með Mel Brooks, þar sem
reynt er að gera grín að
prúðmenninu og gyðingavin-
inum eina sanna, HITLER
sjálfum ::
Ég vil þakka lesendum síð-
unnar öll bréfin sem síðan
hefur fengið og hvet ykkur
eindregið til að skrifa síðunni
scm mest, að lokum kæru
vinir, góða helgi og gleymið
ekki að kaupa helgarblað NT.
Hittumst að viku liðinni.
J.Þór
*Myndir sem voru nálægt
því að fara inn á listann
núna voru: Með allt á
hreinu, Húsið, 1922, Mr.
Patman, Venon, Augu Láru
Mats, Cujo, Mommie dear-
est, Only one winner,
Hearts of the west, Two of
a kind o.fl. frambærilegar
myndir.
Ný videóleiga
Er það virkilega satt?
■ Myndbandasíðan frétti af
því að videóleigan Nes vídeó
Melabraut 57 væri búin að
opna nýja vídeóleigu, sem sagt
útibú í Steindórshúsinu, Hafn-
arstræti 2. Ég brá mér því á
staðinn og spjallaði við eigand-
ann. Jón V. Smárason.
Hvernig hétur videóleigan
gengið á Melabrautinni?
Hún hefur gengið mjög vel,
við höfum reynt að bjóða upp
á mikið úrval af barnaefni.
grínmyndum. fjölskyldumynd-
um og sérstaklega hefur það
mælst vel íyrir að við bjóðum
upp á mikið úrval af ballet-
myndum og ópe'rumyndum.
Hcfur fólk komið langt að til
að leigja t.d. óperumyndir?
Já. fólk hefur t.d. kornið frá
Akranesi, surnir sem búa
lengra i burtu hafa beðið um
að fá sent í póstkröfu, þannig
að það hefur sýnt sig að áhugi
er fyrir svona myndurn hér.
En af hverju leigu hér?
Við höfum hugsað okkur að
ná til alls fólksins sern vinnur
hérna í kring, við munum hafa
opið frá kl. II á morgnana til
11 á kvöldin. Fólk getur því
komið hingað í matartímanum
og tekið spólur eða skilað
spólum. Nú einnig bjóöum við
auðvitaó upp á það að þeir sem
taka spólu á Melabrautinni
geti skilað henni hér og öfugt.
Hvernig er með bílastæði
fyrir viðskiptamenn.
Þegar eftir kl. 6 losna fjöl-
margir staðir þar sem hægt er
að leggja, t.d. Hallærisplanið,
þannig að það ætti ekki aö vera
■ Þetta hús ættu flestir að kannast viít!
neitt vandamál.
Það má segja að þú hafir
ekki mikið pláss!
Það er rétt enda reynum við að
bjóða aðeins upp á það nýjasta
sem er á markaðnum fyrir utan
klassískar myndir sem leigjast
alltaf, þó hraðinn á þeim sé
ekki eins mikill eins og á t.d.
Cíiiefs. Viö munum bjóða upp
á mun meira barnaefni nú á
næstunni. það er ætlunin að.
dreifa því jafnt niður á milli
leiganna.
Talsmaður myndbandasíðu
leit gaumgæfilega yfir mynda-
úrvalið á leigunni og sá fáar,
svo til enga mynd sem liægt er
að kalla rusl mynd. Þetta voru
allt þokkalegar myndir, þannig
að fólkið sem vinnur þarna í
nágrenninu ætti áð drífa sig á
staðinn. Ég þori að fullyrða að
engin önnur videoleiga á land-
inu býður upp á jafn mikið
úrval af óperum og ballet-
■ Eigandinn Jón Valur við
afgreiðslu.
rnyndum eins og Nes vídeó.
Það spillir ekki fvrir að stutt er
í helstu menningarstaði okkar
frá Steindórsplaninu, eða
þannig sko!
Myndbandasíðan óskar cig-
anda staðarins til hamingju og
alls góðs í framtíðinni. Ég vil
þó taka það fram aö ég er
þeirrar skoðunnar að nú þegar
séu komnar alltof margar leig-
ur og þegar sumarið nálgast er
hætta á því að einhverjar fari
að leggja upp laupana þegar
það fer að harðna á dalnum.
J. Þór.
Nýkomnir 80 nýirtitlarafvöldu úrvalsefni,
bæði kvikmyndir og sjónvarpsefni.
Nú kosta 2 þættir af Dynasty aðeins 110 kr.
og þættir nr. 1 -15 leigjast þrír í pakka
fyrir sama verð - aðeins 110 kr.
HAGKAUP
Skeifunni 15