NT - 15.02.1985, Qupperneq 7
f w Föstudagur 15. febrúar 1985 7 Blað II
1 JJ ÁBÓT Skemmtanalífið
■ Meira um nemendamót Verslunarskóia íslands, sem haldið var í
síðustu viku. Ari Ijósmyndari festi á filmu þessar tvær myndir sem
teknar eru með nokkurra sekúndna millibili, og sýna Þorvarð Elíasson
leikinn og sem áhorfanda.
■ Nemendur settu á svið
hvernig Þorvarður skólastjóri
umgengst undirmenn sína i
vinnunni.
■ Þorvarður sem áhorfandi í salnum, horfir á sjálfan sig leikinn.
Viö hlið hans situr kona hans, og efasemdarbros leikur um varir
hennar. Þorvarður er ekki ánægður ineð lífíð - eða leikhæfíleika
leikaranna.
Enn um nemendamót
Hótel Loftleiðir:
Drottningin
í uppnámi í
Blómasalnum
■ Hótel Loftleiðir verður
með sérstakan matseðil í
tengslum við afmælismót
Skáksambands íslands sem
fram fer nú á Hótel Loftleið-
um. Föstudagskvöld og laugar-
dagskvöld verður boðið upp á
sérstakan matseðil, og ber
kvöldið yfirskriftina Drottn-
ingin í uppnámi í Blómasal.
I forrétt verður boðið uppá
rækjupaté biskupsins. Aðal-
rétturinn er: Léttsteikt svart-
fuglsbringa skákmannsins/
Villigæs að hætti kóngsins/
Peking önd drottningarinnar.
Eftirréttur verður síðan ban-
anakaka Sikileyjabúa.
Sjónvarpskapall verður
leiddur inn í Blómasalinn, og
gefst matargestum kostur á að
horfa á skákmennina við tafl-
mennsku, og fá sér „örvara“
eftir matinn.
Þetta er viðleitni hjá Loft-
leiðum til þess að fá fleira fólk
til þess að fylgjast með ungu
skákmönnunum, og um leið
að bjóða uppá þægilegra at-
hvarf fyrir þá sem leggja leið
sína á Loftleiðir með það í
liuga að fylgjast með skákun-
um.
Þetta sértilboð verður að-
eins í gangi þá daga sem skák-
mótið ber uppá helgi. Hinsveg-
ar verður áhorfendum boðið
uppá drykk í blómasal, meðan
að setið er og horft á keppnina.
1 Arnarhóll:
nnermúsík og sérréttir
einni kvöldstund
Jarðar Cortes matargestum, og
erður á hverju miðvikudagskvöldi
afður á boðstólum sérrétta matseð-
l, þar sem gestum gefst kostur á
ví að bragða á einhverju sérstöku.
Að sögn Skúla Hansen yfirmat-
eiðslumanns verða miðvikudags-
völd með þessu sniði eitthvað fram
vorið ef vel gefst, og hélt Skúli að
f miða mætti við viðbrögðin síðast-
ðinn miðvikudag, væri góður
rundvöllur fyrir skemmtun á borð
ið þessa, og greinilegt að matar-
estir hefðu skemmt sér hið besta.
Okuna eftir að Garðar skemmtir
oma fram tveir ungir og óreyndir
tenórar, og gefst þeim kostur á að
koma fram opinberlega og um leið
er þetta góð skemmtun fyrir áhorf-
endur, sagði Skúli ennfremur.
í raun má segja að um tvær
skemmtanir sé að ræða, þar sem
áhorfendur geta bæði notið góðs
matar og hlýtt á Ijúfa tónlist undir
borðum, og síðan eru tónleikar eftir
matinn.
Kvartettinn sem leikur fyrir mat-
argesti nefnir sig Marakvartettinn,
og eru það einstaklingar úr Sinfón-
íuhljómsveit íslands sem skipa
kvartettinn.
■ Unnið að uppsetningu sjónvarps við barinn. ísleifur Jónsson
veitingastjóri fylgist með að allt fari vel fram. M-rmnd: Ari
„Fullt hús“, eftir
Hafstein Egilsson
— Þurftiaðtakameðsér
sinalco til Júgóslavíu
■ Þriðji íslenski verðlauna-
drykkurinn sem birtur er ber
nafnið „Fullt hús“, og er
höfundur drykkjarins
Hafsteinn Egilsson sem er
starfandi þjónn á Hótel Sögu.
Drykkurinn var fyrst hristur í
keppni árið 1977, og hlaut
fyrstu verðlaun. Þetta þótti
frábær árangur hjá Hafsteini,
þar sem hann tók í fyrsta skipti
þátt í kokkteilkeppni með
drykk sinn „Fullt hús“.
Hafsteinnfórsíðan til keppni í
Júgóslavíu, þar sem
verðlaunakokkteilar frá
ýmsum löndum voru hristir, og
hafnaði drykkur Hafsteins um
miðbik keppninnar, og verður
það að teljast enn ein
skrautfjöður i hatt hans þar
sem þetta voru hans fyrstu
kynni af kokkteilkeppnum. Alls
voru þrjátíu keppendur frá
mörgum löndum sem tóku þátt
í keppni þeirri sem fram fór í
Júgóslavíu.
Hafsteinn haföi nokkra
sérstöðu meðal keppenda, þar
sem drykkur hans er fylltur
með „íslensku" sínalco.
Júgóslavar treystu sér ekki til
þess aö útvega Hafsteini
þennan sérstaka drykk, og var
Hafsteinn því nokkurskonar
brautryðjandi í útflutningi á
sinalco.
„Fullt hús“
3 cl rom Bacardi
3 cl Royal mint
1 cl banana Bols
skvetta af sítrónusafa
(1-3 dropar)
Drykkurinn er hristur með
klaka, og hellt í glas. Síðan er
fyllt upp með sinalco.
Skreytt er með sítrónusneið,
rauðu kirsuberi og sogröri.
Það sem helst hefur staðið
þessum drykk fyrir þrifum, og
aftrað hinum frá því að ná þeim
vinsældum sem eðíilegt hefði
mátt telja, er að veitingahús á
íslandi virðast vera lítt gefin
fyrir sinalco. Það er erfitt að
verða sér úti um sinalco á
börum og þar með er útilokað
að fá drykkinn „Fullt hús“ með
réttri uppskrift.
Það er mikið afrek fyrir
íslending að keppa í fyrsta
sinn í alþjóðlegri keppni að ná
svo langt, sem Hafsteinn
gerði. Þaðertalsverðurmunur
að keppa hér heima á fslandi
eða í alþjóðlegri keppni innan
um þrælvana hristara.
Hafsteinn sagði líka sjálfur að
hann hefði kynnst hversu
harður skóli keppnir á borð við
þessa eru, og eflaust hefur
það verið nokkuð erfitt að fara
út ungur og óreyndur og
spreyta sig við erlenda
snillinga með hristarann.
Nú hefur Hanastélið birt þrjá
íslenska verðlaunadrykki, og
næst ætlum við að breyía
örlítið til, og verður þá lýst
tveim drykkjum, kaffidrykk og
óáfengum drykk. Síðarmeirer
ætlunin að halda áfram rneð
innlendu verðlaunadrykkina,
því af nógu er að taka. ísland
á marga efnilega og góða
barþjóna, og eru þeir
barþjónar sem lúra á
skemmtilegum uppskriftum,
t.d. að bollum eð öðrum
góðum drykkjum hvattir til
þess að hafa samband við
okkur á blaðinu, og munum við
koma uppskriftunum áleiðis til
lesenda.
i,og hvað viltu gera?
hæðum, og síðan geta gestir
slappað af í kjallara. Á föstu-
dagskvöld verður Aristókrata-
flokkurinn með fata- og hár-
snyrtisýningu. Klúbburinn er til
húsa að Borgartúni 32 og síminn
er35355.
Leilrfiúslíjallarinn:
M í leikhúskjallaranum verður
diskótek bæði föstudag og laug-
ardag. Opið verður til klukkan
þrjú eftir miðnætti og barinn
opinn að venju. Leikhúskjallar-
inn er við Hverfisgötu og síminn
er 19636.
Mst:
M Nú fer þorrasælan að stytt-
ast hjá Naustinu, þar sem
þorrinn er senn úti. Hljómsveit
Guðmundar Ingólfssonar leikur
fyrir dansi bæði kvöldin. Sunnu-
dagur er einnig þorradagur og
opið til klukkan eitt eftir mið-
nætti. Naustið er við Vesturgötu
6-8 og síminn er: 17759.
Ókl:
M Diskótekið verður opið frá
klukkan tíu bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Þáopnargrill-
ið einnig klukkan tíu og geta
hungraðir gestir glatt innri
mann með matföngum. Óðal er
við Austurvöll og síminn er:
11630.
M Er nýi staðurinn þar sem
Best var áður. Á föstudag frá
klukkan 21 til 2 eftir miðnætti
leikur hljómsveit Jóns Sigurðs-
sonar gömlu dansana. Laugar-
dagskvöld verður lokað vegna
einkasamkvæmis. Sunnudags-
kvöld verður að venju helgað
samkvæmisdönsum, og er dans-
skólafólk sérstaklega hvatt til
þess að mæta. Ríó er við
Smiðjuveg 1, Kópavogi, ogsím-
inn er: 46500.
Safarí:
M Það verður diskótek föstu-
dags- og laugardagskvöld að
venju í Safarí. Safarí er við
Skúlagötu 30 og síminn er
11555.
Sigtún:
M Opið báða aðaldaga helgar-
innar, föstudags- og laugardags-
kvöld frá klukkan 10-3. Grillið
verður opið frá klukkan tíu.
Sigtún er við Suðurlandsbraut,
og síminn er 685733.
M Föstudag, laugardag og
sunnudag skemmtir Þórs-
kabarett gestum Þórscafé, og
Kabarett hlfómsveitin leikur
fyrir dansi. Ánna Vilhjálms og
Einar, úr Pónik og Einar, syngja
lög úr þekktum söngleikjum öll
kvöldin. Sunnudagurinn hefur
þó sérstöðu, þar sem verður
ferðakynning hjá Sólarferðum
og Flugferðum, og hefst gaman-
ið klukkan sjö. Þórscafé er til
húsa að Brautarholti 20 og sím-
inn er 23334.
Tralíík:
M Dansað föstudags- og laug-
ardagskvöld. Aldurstakmark er
16 ár. Traffík er til húsa að
Laugavegi 116 og síminn er
10312.
Ypsilon:
M Diskótekið verður á fullu
alla helgina undir stjórn þeirra
Krissa Fredd og Móses. Kráin
verður opin alla helgina með
lifandi músík. Opið verður til
klukkan 3 eftir miðnætti föstu-
dag og laugardag, en kráin verð-
ur opin til eitt eftir miðnætti á
sunnudag. Ypsilon er til húsa
við Smiðjuveg 4 og síminn er
72177.
Kópurinn:
M Hljómsveit Birgis Gunnars-
sonar Ieikur fyrir dansi um helg-
ina. Kópakráin verður á fullu,
einnig sunnudag til klukkan eitt
eftir miðnætti. Kópurinn er við
Auðbrekku 12, og síminn er
46244.
Ártún:
M Gömlu dansarnir föstudags-
kvöld. Hljómsveitin Drekar
leika fyrir dansi, ásamt söng-
konunni Mattý Jóhanns. Ártún
er til húsa að Vagnshöfða 11 og
síminn er: 685090.