NT - 15.02.1985, Page 9
Sjónvarp sunnu-
eSEEZEM
Nóbels-
skáldið
Jaroslav
Seifert
■ Tékkneska skáldiö Jarosl-
av Seifert hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels 1984ogverð-
ur sýnd mynd í sjónvarpinu
um hann á sunnudagskvöld kl.
22.45. Myndin kemur frá
sænska sjónvarpinu.
Jaroslav Seifert er orðinn 83
ára gamall. Hann er einn af
þeim sem undirrituðu ntann-
réttindaskrána Charta 77 og er
ekki meðlimur tékkneska
kommúnistaflokksins. Hann
hefur verið ódeigur að mót-
ntæla hvers kyns óréttlæti og
tekið upp hanskann fyrir þá,
sem stjórnvöld hafa ofsótt. Af
þessari upptalningu er ljóst að
Seifert hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá yfirvöldunum.
Pó yrkir hann ekki um
stjórnmál, heldur sækir yrkis-
efnin í lífið sjálft, dauðann og
þó fyrst og fremst ástina.
Fyrstu árin eftir innrásina í
Tékkóslóvakíu 1968varðhann
að gefa út verk sín á laun og
þeim var smyglað úr landi, en
á áttræðisafmæli hans var aftur
gefinn út hluti af verkum hans
opinberlega og honum var
leyft að taka á móti alls kyns
heiðursviðurkenningum eftir
að honum voru veitt Nóbels-
verðlaunin.
Lengi vel var óljóst hvort
sænsku sjónvarpsmennirnir
fengju leyfi til að heimsækja
Seifert, en að lokum fékkst
það. Viðstaddur viðtalið var
útsendari stjórnvalda, en það
fór mjög friðsamlega fram. í
viðtalinu verður lesið upp úr
verkum skáldsins auk þess sent
hann segir ástarsögu sína frá
unga aldri, en því ævintýri
lauk ekki fyrr en ntörgum ára-
tugum síðar. Pá segja vinir
hans tveir, sem eru í útlegð á
Vesturlöndum. þeir Pavel Ko-
hout og Eduard Goldstucker,
frá kynnum sínum af Jaroslav
Seifert.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
Föstudagur 15. febrúar 1985 9 Blaðll
■ Það má eiga von á góðri gamanmynd, þar sem Art Carney
fer með aðalhlutverk. Tontó virðist vera ofur venjulegur
bröndóttur köttur, en þeir félagar eru óaðskiljanlegir.
Sjónvarp laugardag kl. 21.30:
Harrý og kötturinn
hans fara á flakk
■ Laugardagsmynd sjón-
varpsins er bara ein að þessu
sinni. Hún heitir Harrý og
Tontó'. bandarísk biómvnd.
gerð I974.
Þar segir frá Harrý, ekkli á
áttræðisaldri, sem í upphafi
myndarinnar býr á Manhattan.
og kettinum lians. Tontó. Þeir
álíta sig tilneydda til að yfir-
gefa Manhattan af tveim ást-
æðum. Önnur þeirra er sú. að
Harrý hefur orðið fyrir svo
mörgunt árásunt, að hann hef-
ur fengið nóg af. Hin er sú. að
það á að fara að rífa húsið. þar
sent þeir félagar Itafa búið.
Harrý flytur til sonar síns í
úthverfi, en ekki líður á löngu
þar til þeir Tontó hafa fengið
nóg af sambýinu við soninn,
sem er einum of virðulegur og
leiðinlegur fyrir þeirra smekk.
og yfirgangssama eiginkonu
hans. Og þá er illa upp alinn
sonarsonúr ekki til að bæta úr
skák. Það verður því úr að þcir
Harrý ogTontó leggjast í flakk
og ferðast vítt og breitt um
Bandaríkin, fríir og frjálsir.
Aðalleikarinn. sem fer með
hlutverk Harrýs. er vinsæll
gamanleikari, Art Carney, en
meö önnur aðalhlutverk fara
Ellen Burstvn, Melanie Mayr-
on, Geraldine Fitzgerald og
■ Haraldur Ingi Haraldsson
á Akureyri hefur undanfarið
veriö með þætti um Galdra og
galdramenn á kvölddagskrá út-
varpsins annan hvorn sunnu-
dag.
Almennt séð fjalla þættirn-
ir um galdur á Islandi og í þeint
hefur Haraldur tckið dæmi af
galdramönnum eins og þeir
koma fyrir í þjóðsögum og
sögnum. Sjálfur segir höfund-
ur, að hér sé ekki um háfræði-
legt efni að ræöa, heldur sé
ýntsum fróðleik um, galdur og
galdratól blandaö saman við
Joshua Mostel. Ekki er þess
getið í hlutverkaskrá hver fer
með hlutverk Tontós. Leik-
stjóri er Paul Mazursky.
Þýðandi er Guðni Kolbeins-
son.
skyldar sögur af galdrakind-
um.
Þátturinn kl. 22.-35 á sunnu-
dagskvöldið fjallar um tilbera,
en tilbcrar voru notaðir ef
menn ætluðu sér að vcra ríkir
af mjólk og smjöri, en tilberar
veltust um hagana og sugu ær
og kýr ogskiluðu svo mjólkinni
heirn til húsbónda síns. Einnig
voru tilbcrar notaöir viö að
vekja upp drauga, og voru þcir
þá notaöir ýniist til að senda
óvinum sínum eða létta undir
heima fyir.
Utvarp frá RUVAK kl. 22.35 sunnudag:
„Galdrar og galdramenn"
Sjónvarp sunnudag k. 17.
Maðurinn sem fann sína eigin „rödd“
■ í leit að rödd nefnist þáttur,
sem verður sýndur í sjónvarpinu
á sunnudag kl. I7. Þar segir frá
mikið fötluðum manni. Dick Bo-
ydell, sem hcfur að vissu marki
sigrast á fötlun sinni með aðstoð
hjálpartækja, en hann er svo
mikið lamaður, að hann getur
einungis hreyft bæði augun og
hægri fótinn. Þettaerbresk heim-
ildarmynd.
I meira en 30 ár varð Dick
Boydell að sætta sig við fötlun
sína, cn þá komst hann í kynni
við nýja breska uppgövun, Poss-
um-ritvélina, sem gerir honum
kleift að hagnýta sér heilbrigða
fótinn til skrifta. Þar fann hann
„rödd" sína, en hann erófær um
að tala ennþá og telur sjálfur það
vera sína verstu fötlun.
Það kom fljótt í Ijós, þegar
Dick gat farið að tjá sig, að liann
var góðum gáfum gæddur og sú
menntun, sem forcldrar háns
höfðu miðlað honunt af stakri
cljusemi, hafði skilað árangri.
Ekki lcið á löngu, eftir að hann
komst í kynni við Possum-ritvél-
ina, þar til hann var farinn að
vinna sem forritari á tölvur hjá
Ford-bílaverksmiðjunum, og nú
vinnur hann fullt starf við að
hanna og þróa rafcindatæki, sem
geta orðið þeim lil aðstoðar, sem
haldnir eru svipaðri fötlun og
hann sjálfur.
■ Diek Boydell hcfur unnið
mikið og gott starf, |)ó að hann
sé allur lainaður utan augun og
annar fóturinn.
18.20 Tónleikar. Tilkynníngar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn Umsjón:
Halldór Halldórsson.
20.00 Um okkur Jón GÚstafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir ung-
linga.
20.50 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.30 Útvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna“ ettir Kurt
Vonnegut. Þýðinguna gerði Birgir
Svan Símonarson. Gísli Rúnar
Jónsson flytur (15).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá
• morgundagins. Orð kvöldsins.
22.35 Galdrar og galdramenn
Umsjón: Haraldur I. Haraldsson.
(Rúvak).
23.05 Djassþáttur - Tómas Einars-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
árr
Föstudagur
15.febrúar
10:00-12:00 Morgunþáttur
Stjómendur: Páll Þorsteinsson og
Sigurður Sverrisson.
14:00-16:00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
16:00-18:00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson.
HLÉ
23:15-03:00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1.
Laugardagur
16. febrúar
14:00-16:00 Léttur laugardagur
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16:00-18:00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
HLE
24:00-24:45 Listapopp Endurtek-
inn þáttur frá rás 1. Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar aö lokinni
dagskrá rásar 1.
Sunnudagur
17. febrúar
13:20-16:00 Krydd í tilveruna
Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
16:00-18:00 Vinsældarlisti hlust-
enda 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Föstudagur
15. febrúar
19.15 Ádöfinni Umsjónarmaöur Karl
Sigtryggsson, Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
19.25 Krakkarnir í hverf inu 9. Feðg-
arnir Kanadískur myndaflokkur í
þrettán þáttum, um atvik i lífi
nokkurra borgarbarna. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 60 ára afmælismót Skák-
sambands íslands Skákskýr-
ingaþáttur.
20.55 Kastljós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður: Sigrún
Stefánsdóttir.
21.25 Skonrokk Umsjónarmenn:
Haraldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.55 Njósnahnettir Bresk heimilda-
mynd sem sýnir hvernig unnt er að
fylgjast með atburðum og mann-
virkjum á jörðinni frá gervihnöttum
stórveldanna i himingeimnum.
Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason.
22.30 Þrjár konur fá bréf (A letter to
Three Wives) Bandarísk gaman-
mynd frá 1949 s/h. Leikstjóri Jos-
eph L. Mankiewicz. Aðalhlutverk:
Jeanne Crain, Ann Southern,
Linda Darnell og Kirk Douglas.
Þrjár konur í sama smábæ fá
dulariullt bréf frá þokkadis staðar-
ins sem segist vera farin úr bænum
fyrir fullt og allt ásamt eiginmanni
einnar þeirra. Konurnar finna allar
við nánari athugun einhverja brota-
löm á hjónabandinu og verða á
nálum um eiginmenn sína. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
00.10 Fréttir i dagskrárlok
Laugardagur
16. febrúar
14.45 Enska knattspyrnan York
City og Liverpool leika í 5. umferð
ensku bikarkeppninnar. Bein út-
sending frá 14.55-16.45.
17.20 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
19 25 Ævintýri H.C. Andersens 2.
Litla stúlkan með eldspýturnar
og Prinsessan á bauninni.
Danskur brúðumyndaflokkur í
þremur þáttum Jóhanna Jóhanns-
dóttir þýddi með hliðsjón af þýð-
ingu Steingríms Thorsteinssonar.
Sögumaður Viðar Eggertsson.
(Nordvision - Danska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin Fimmti þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i
þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Kollgátan Spurningakeppni
Sjónvarpsins, annar þáttur. Gestir:
Aðalsteinn Ingólfsson og Egill
Helgason. Umsjónarmaður lllugi
Jökulsson. Stjórn upptöku: Viðar
Víkingsson.
21.30 Harrý og Tontó Bandarísk
biómynd frá 1974. Leikstjóri: Paul
Mazursky. Aðalhlutverk: Art Car-
ney ásamt Ellen Burstyn, Chief
Dan George, Geraldine Fitzgerald
og Larry Hagman. Harrý, sem er
ekkill á áttræðisaldri, er ekki lengur
vært í New York. Hann leggur þvi
land undir fót ásamt Tontó, kettin-
umsínum í leit aðviðkunnanlegum
samastað. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
23.30 Dagskrárlok
Sunnudagur
17. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja Séra
Hjalti Þorkelsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni 12. Hvers á
barnið að gjalda? Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
17.00 í leit að rödd Bresk heimilda-
mynd. Margl fjölfatlað fólk getur
hvorki tjáð hugsanir sinar í mæltu
máli né rituðu. Hér segir frá einum
slíkum, Dick Boydell að nafni, og
frá nýjum upþfinningum sem hafa
gert honum kleift að rjúfa áratuga
einangrun og jafnvel semja texta
þessarar myndar. Þýðandi Jón O.
Edwald.
18.00 Sundin okkar Umsjónarmenn:
Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn
Marelsson. Stjórn upptöku: Þránd-
ur Thoroddsen.
19.20 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20 25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku. Um-
sjónarmaður Magnús Bjarnfreðs-
son.
20.55 Tökum lagið Lokaþáttur. Kór
Langholtskirkju, syngur undir
stjórn Jóns Stefánssonar i Gamla
biói. Meðal gesta er Lögreglukór-
inn, Álafosskórinn og Skólakór Ár-
bæjarskóla. Á efnisskránni eru
m.a. nokkur lög eftir Jón Múla
Árnason. Umsjónatmaöur og
kynnir: Jón Stefánsson. Stjórn
upptöku: Tage Ammendrup.
21.55 Dýrasta djásnið Lokaþáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokkur i
fjórtán þáttum, gerður eftir sögum
Pauls Scotts frá síðustu valdaár-
um Breta á Indlandi. Aðalhlutverk:
Tim Pigott-Smith, Geraldine
James, Charles Dance, Wendy
Morgan, Eric Porter og Rosemary
Leach. Þýðandi Veturliði Guðna-
son.
22.45 Nóbelsskáldið Jaroslav Seif-
ert Bókmenntaverðlaun Nóbels
árið 1984 hlaut Jaroslav Seifert,
83 ára tékkneskt Ijóðskáld. í
þættinum er fjallað um skáldið,
farið með Ijóð og sænskir sjón-
varpsmenn ræða við Seifert i Prag.
Leyfi til þess var ekki auðfengið
þar sem skáldið hefur löngum
verið yfirvöldum i Tékkóslóvakíu
óleiðitamur. Umsjónarmaður Lars
Helander. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir. (Nordvision - Sænska
sjónvarpið)
23.30 Dagskrárlok