NT


NT - 10.03.1985, Side 4

NT - 10.03.1985, Side 4
 n Sunnudagur 10. mars 1985’ 4 LlIÍ A IjLndrej j Larkovskij ■ Síöasta senan í myndinni Nostalgia eftir Tarkovskij. Eins og oftast er rigning meö í spilinu og í bakgrunni má sjá æskuheimilið. ■ Aðalpersónan Kelvin í kvikmyndinni Solaris en myndin vakti óhemju athygli þegar hún var sýnd á sínum tíma. ■ Nú um helgina hefst í Háskólabíói og Regnboganum í Reykjavík einkar merkileg kvikmyndahátíð, þar sem sýndar verða allar myndir Rússans Andrej Tarkovskij. Eins og kunnugt er stendur Tarkovskij í baráttu við yfírvöld í heimalandi sínu sem hafa ekki leyft börnum hans að yfírgefa landið. Nýlega var stofnuð hér á landi nefnd m.a. til stuðnings því að hann fái börnin sín til sín og það er einmitt sú nefnd sem fyrir sýningunum stendur. Um líkt leyti og Tarkovskij hafði lokið við síðustu kvikmynd sína Nostalgia ræddi ítalski blaðamaðurinn Cesare Biarese við listamanninn og fer viðtaliðhérá eftir. ■ Hvernig fæðist verk eins og Nostalgia og hvernig þró- astþað? Eg hef lengi viljað greina það hugarástand sem einkenn- ir rússneskan menntamann er- lendis. Nostalgia gerist á ft- alíu vegna þess að það er land sem ég þekki: Ég hef verið þar mörgum sinnum og alltaf farið þaðan undir nýjum áhrifum. Kannski líka vegna þess að það er eina erlenda iandið þar sem ég finn til nálægðar fólksins. Þegar ég hóf vinnslu myndarinnar breyttust hin klassísku ferðamannaáhrif og urðu að dýpri tilfinningum og litirnir þéttust. Kvikmyndin hefur orðið bergmál minnar eigin þjáningar vegna þess að ég er langt frá því landi sem ég yfirgaf árið 1981. Nostaigia fjallar ekki um samband mitt við Ítalíu. Hún er heldur ekki kvikmynd sem hræðir fólk frá því að ferðast. Hún er um reynslu mína af skilnaðinum við land mitt. Hún er minning, frásögn um sjúkdóm, sjúkdóm sem heitir „Nostalgia“. Hvers vegna sjúkdómur? Vegna þess að það er raun- verulega sjúkdómur. Það er ekki einungis tregi. Það er sjúkdómur vegna þess að það rænir andann krafti, hæfi- leikanum til vinnu og þar að auki sjálfri lífslönguninni. Það er eins og fötlun. vöntun á einhverju, hluta af manni sjálfum. Ég er viss um að fyrir rússneska skapgerð er þetta sjúkdómur. Pað að upplifa hlutina og lífið sjálft á þennan hátt, er mjög líkt hinni rússnesku sál- argerð. Ég man eftir því að þú sagðir einu sinni: Fyrir Rússa er „nostalgia“ fastbundin eðli hans. “ Pessvegna held ég að „nostalgia“ sé mjög ólík hinni ítölsku merkingu orðsins. Einmitt. f rauninni er erfitt fyrir mig að tala um „nostalg- iu“ á ítöisku og gera mig skiljanlegan á meðal fólks sem ekki er Rússar. Ég endurtek: Þetta er sjúkdómur, hann get- ur að auki leitt til dauða. Þetta er hin siðferðilega þjáning sál- arinnar. Sá sem ekki sigrast á henni deyr. Maður getur bara sýkst af honum erlendis. Ef ég er staddur í einhverjum öðrum hluta Rússlands get ég verið tregafullur en ég finn ekki til „ nostalgiu". Ég get tregað staðinn þar sem ég fæddist: Ég sakna hans, læt mig dreyma um hann, en það er eitthvað annað en „nostalgia". Hvererþá uppruni „nostalg- iunnar“? Því er erfitt að svara. Ég held að grunnur þessa sjúk- dóms sé vöntun á mannlegum skyldleika. Það er eins og ég sé á háu fjalli þar sem loftþrýst- ingur er lágur og þar sem ég fæ ekki nóg súrefni. Það er erfitt að útskýra þetta: „Nostalgia14 líkist því að tapa trú og von. Pú hefur gefið í skyn að eitt af temum þessarar nýju mynd- ar þinnar sé samskipti mismun- andi menningarsvæða. Sam- skipti með miklum vandamál- um. í rauninni vonlaust sam- bandefég túlka h ugsanirþínar ' rétt. í byrjun hélt ég að þetta tema yrði mjög þýðingarmikið í myndinni. Síðar skipti ég um skoðun og þessvegna er minnst aðeins á það í stuttum samræð- um, en það er aldrei tekið upp á víðfeman hátt. En samt vil ég svara spurningunni. Listaverk geta þeir einir skilið sem til- heyra því menningarsvæði þar sem verkið fæðist. Sá sem þykist skilja það þótt að hann komi annars staðar frá, blekkir sjálfan sig. Skógi sem lýst er í japanskri bók, er ekki hægt að líkja við skóg á Sikiley eða Siberíu. Ég get aldrei upplifað hann á sama hátt og Japani. Að kunna landafræði hjálpar ekki; japönsk list og bók- menntir verða alltaf eitthvað ókunnugt og fjarlægt fyrir mér. Engin þýðing bókmennta eða hvers sem er, sem lýst hefur verið með orðum, getur kallað fram litbrigðin eða hið raunverulega innihald efnisins, án þess að taka þetta inn í dæmið. Við höfum einmitt sönnun þess þegar við tölum um Nostaigia. Ég held að Rússi geti aldrei til fullnustu skilið ljóð Petrarcas jafnvel þó að hann hafi fullt vald á ítalskri tungu, og á sama hátt getur ítalraldrei skilið Púskín. Pá erþaðþýðingarlaust, eða jafnvel enn verra. fyr- ir ítala að lesa til dæmis Dost- ojevskí eða að sjá Kirsu- berjagarðinn vegna þess að þá heldur hann að hann hafi skilið þessi verk. Eins og ég lít á málið er það raunverulega skaðlegt vegna þess að það er betra að vita ekki neitt heldur en að hafa afskræmda mynd. Til að skilja er nauðsyniegt að lifa saman, deila lífinu. Það er ekki nóg að lesa bækur eða hlusta á tónlist. Ef maður bara gerir það, þá er stutt í snobbismann. Því miður er svo farið um marga, til dæmis ítalska menntamenn sem hafa búið í Moskvu, að þeir skilja ekki neitt af lifnaðar-

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.