NT - 13.03.1985, Side 5

NT - 13.03.1985, Side 5
 Miðvikudagur 13. mars 1985 Námskeið um Könnun á heilsufari og aðbúnaði í fata og vefjariðnaði: I silungsrækt „Ástandið verra en ég hafði búist við“ - segir Guðmundur Þ. Jónsson ■ „Það var ekkert, sem kom mér sérstak- lega á óvart í þessari könnun. Heildarmynd- in er þó verri en ég hafði búist við, því að vinnustaðir hafa verið að breytast til batnað- ar á undanförnum árum. Samt sem áðiir er vinnuumhverfi fólks viða ábótavant og það þarf að Iaga.“ Þetta sagði Guðmundur Þ. Jónsson for- maður Landssambands iðnverkafólks um könnun á heilsufari, vinnutilhögun og fé- lagslegum aðstæðum starfsfólks í fata- og vefjariðnaði, sem nýlega kom út. Könnun var gerð snemma vetrar 1982 og var hún þáttur í samnorrænu verkefni um ákvæðis- vinnu og jafnrétti. Könnunin leiðir það í Ijós, að heilsufar starfsfólks í þessum starfsgreinum er ekki upp á það besta. Þannig leituðu rúmlega 60% kvennanna lækninga á næstu 12 mán- uðum áður en könnunin var gerð, og 46% karlanna. Vöðvabólga var algengasti sjúk- dómur hjá konunum, en tæplega fjórða hver kona í fata- og vefjariðnaði leitaði lækninga við vöðvabólgu. Bakverkurreynd- ist hins vegar vera algengasti sjúkdómurinn meðal karla. Sjúkdómar þessir falla undir slitsjúkdóma í stoð- og hreyfikerfi, ásamt slitgigt, brjósklosi og liðagigt, og kom í ljós, að rúmlega 30% kvenna og 19% karla höfðu leitað lækninga við einum eða fleir- um þeirra á áðurnefndu 12 mánaða tímabili. Þá kom í ljós, að 12% kvenna og 11% karla höfðu fengið staðfestingu læknis á, að þau þjáðust af vöðvabógu vegna vinnunnar, og var það meira en með aðra sjúkdóma. Þegar spurt var um vinnuslys, kom í ljós, að á 12 mánaða tímabili höfðu 6% kvenna í fatasaumi og 12% kvenna og 22% karla í vefjariðnaði orðið fyrri einu slysi eða fleir- um, og telst það mjög hátt. Könnunin sýnir fram á, að streita er mikil meðal starfsfólks í atvinnugreinum þessum. Ails höfðu 34% kvenna í fatasaumi og 23% kvenna í vefjariðnaði einkenni vinnustreitu, en 35% karla. Vinnuálag var helsta orsök streitunnar hjá körlum, en vinnuálag, launa- kerfi og persónulegaf ástæður voru helst nefnd af konum. Hávaði er það, sem helst einkennir vinnu- umhverfi fólks í þessum starfsgreinum, en um helmingur ailra kvenna kvartar undan hávaða og þrír af hverjum fjórum körlum. Konur nefndu einnig oft lélega loftræstingu, hitasveiflur, ryk og þurrt loft, og yfir 40% karla nefndu hita-og hitasveiflur. Einnig komu ryk og raki oft við sögu hjá þeim. Öryggi á vinnustöðum er víða ábótavant, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Þannig er það skoðun 8% kvenna í fata- saumi, 14% kvenna og 30% karla í vefjar- iðnaði. Um 10% kvennanna og tæplega 20% karlanna höfðu kvartað við trúnaðar- mann á vinnustað, og úrbætur fengustí tveimur af hverjum þremur tilfellum. Hér hefur aðeins verið stiklað á mjög Vinna að hagsmun- um háskólakvenna ■ „Breytingaskeið kvenna“ verður um- ræðuefni á næsta hádegisverðarfundi Kven- stúdentafélags íslands og Félags íslenskra háskólakvenna, í Hallargarðinum í Húsi verslunarinnar. Þuríður Pálsdóttir verður gestur fundar- ins og svarar fyrirspurnum. Aðalfundur félagsins var haldinn 9. febrú- ar sl. og var þar samþykkt að breyta nafni félagsins í „Kvenstúdentafélag íslands og Félag íslenskra háskólakvenna, en Félag íslenskra háskólakvenna hefur starfað innan vébanda Kvenstúdcntafélagsins hingað til. Tilgangur félagsins er að efla kynningu og samvinnu háskólakvenna, vinna að hags- munum þeirra, taka þátt í alþjóðasamstarfi háskólakvenna og styðja konur til náms og vísindaiðkana. Félagið er aðili að Alþjóða- sambandi háskólakvenna, International Fe- deration of University Women. Þórey Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður félagsins og Guðlaug Konráðs- dóttir varaformaður. stóru í könnuninni, sem framkvæmd var meðal starfsfólks í þessum atvinnugreinum út um allt land. Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks var spurður hvort sambandið væri með einhver áform uppi um aðgerðir í framhaldi af þeim niðurstöðum, sem nú liggja fyrir. „Það verður að sjálfsögðu krafa okkar, að þessu verði kippt í lag, og ég veit að til þess fáum við stuðning vinnueftirlitsins. Þá verða heilbrigðisyfirvöld einnig að láta til sín taka í þessu máli,“ sagði Guðmundur Þ. Jónsson. Námskeið um nýtingu og ræktun silungastofna verður haldið að Hólum í Hjaltadal dagana 31. mars til 3. apríl. Megináhersla verður lögð á verklega þjálfun en einnig verða flutt erindi og umræð- ur. Fjöldi þátttakenda er tak- markaður við 21 og er þátt- tökugjaid kr. 9000 og er innifalið í því rnatur, gisting ferðni meðan á námskeiðinu stendur, hnífar, net og ýmis gögn. Unnið verður í þremur hópum og fær hver þeirra að vinna m.a. við eftirtalin verk- efni: Lagningu nets (undir ís ef aðstæður leyfa), vitja um og taka upp net, verkun og meðferð silungs, að fella net, veiðni neta og aðrar veiðiað- ferðir, æfiferill íslenskra lax- fiska og eldi seiða. Hvert verkefni tekur hálfan dag. Á kvöldin verða stutt erindi og umræður. Leiðbeinendur verða þeir Tumi Tómasson Veiðimála- stofnun Norðurlandi, Pétur Bjarnason Bændaskólanum Hólum, Héðinn Sverrisson Geiteyjarströnd Mývatns- sveit og Jón Kristjánsson Veiðimálastofnun. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 95-5961 og 95-5962. þegar spurt er hvort þú viljir nótu - það er öruggara Það er freistandi að segja nei, þegar þér stendur til boða ríflegur afsláttur. En nótulaus viðskipti geta komið þér í koll. Sá sem býður slíkt er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki. Samkvæmt lögum og reglugerðum um söluskatt og bókhald er öllum þeim sem selja vöru og þjónustu skylt að gefa út reikninga vegna viðskiptanna. Reikningar eiga að vera tölusettir fyrirfram og kaupandi á að fá eitt eintak. Sé um söluskattsskylda vöru eða þjónustu að ræða á það að koma greinilega fram á reikningi. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.