NT - 13.03.1985, Page 19
til sölu
Glæsivagn til sölu
Þessi Datsun Cherry ’80 ertil sölu. Bíllinn er
keyrður um 55 þúsund, á nýjum vetrardekkj-
um, hækkaður upp, eins og nýr að innan,
útvarp með LM, FM og AM, sparneytinn og
lipur í akstri. Verð 160-170 þúsund, skipti á
mun ódýrari koma til greina.
Upplýsingar í síma 72947 eða 686495
(Þórmundur).
tilkynningar
Vantar Zetor
Óska eftir Zetor með drif á öllum hjólum árg.
77-80. Uppl. í síma: 95-3373 eftir klukkan
átta á kvöldin.
Ef þú ætlar að selja
eða kaupa fasteign,
þá auglýsir þú auðvitað
í Fasteignamarkaði NT.
Auglýsingasími fasteigna
er
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN
a hf.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGURt
SÍML45000
Miðvikudagur 13. mars 1985 19
Mikhail Gorbachev:
Vill auka frelsi í efnahags-
lífinu og aga í framleiðslu
Nýsköpun og hátækniiðnaður meginstef stefnu hans
Moskva-Reuter.
■ Mikhail Gorbachev, hinn ný-
kjörni leiðtogi Sovétríkjanna,
hefur verið mikill stuðnings-
maður umbóta í efnhagslífi
Sovétmanna, en vestrænir sér-
fræðingar telja hann eiga erfitt
starf fyrir höndum í nýsköpun
efnahagslífsins.
Sem efnahagsráðgjafi Yuri
Andropovs og Konstantins
Chernenkos studdi Gorbachev
áætlanir um að auka frelsi fyrir-
tækja og stjórnenda þeirra.
Sérfræðingar segja að umbæt-
urnar hafi þegar styrkt sovéskan
iðnað en leggja áherslu á að
umbæturnar hingað til hafi verið
takmarkaðar og hafi aðeins að
litlu leyti dregið úr áhrifum
miðstjórnarinnar og ráðherr-
anna í Kreml á efnahagslífið.
Sérfræðingarnir telja að völd
ráðherranna séu það mikil að
ekki komi til greina fyrir Gor-
bachev að koma á efnahags-
stefnu svipaðri þeirri stefnu sem
Vladimir Lenin kom á á þriðja
áratugnum sem gaf markaðs-
öflunum lausan tauminn í nán-
ast öllum geirum efnahagslífsins
(NEP-stefnan).
Helstu
efnahagsvandamálin
Helstu vandamálin sem Gor-
bachev mun glíma við eru
stöðug áföll í landbúnaði og
minnkandi olíuframleiðsla.
Kornframleiðslan hefur ekki
staðist áætlun síðan 1978 og
telja vestrænir landbúnaðarsér-
fræðingar í Moskvu að uppsker-
an hafi ekki verið meiri en 170
milijónir tonna á síðasta ári,
þ.e. 70 milljónum tonna minni
en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Uppskerubresturinn hefur
neytt Sovétmenn til að verja
gjaldeyri í innflutning á korni
frá Bandaríkjunum, Argentínu
og víðar að, en gjaldeyri hafa
þeir af skornum skammti.
Olíuframleiðslan, sem er
megingjaldeyristekjulind So-
vétmanna, hefur minnkað og
leiddi það til þess að olíumála-
ráðherrann sagði af sér í síðasta
mánuði.
Frami Gorbachevs er óvenju-
legur að því leyti að hann bar
ábyrgð á landbúnaðarstefnunni
1978, en þrátt fyrir að landbún-
aðurinn hafi þá orðið fyrir þung-
■ Mikhail Gorbachev.
um búsifjum hafði það ekki
áhrif á frama hans.
Talið er að Gorbachev hafi
verið leystur undan ábyrgð á
landbúnaðarstefnunni í október
s.l. og hafi þá verið falin ábyrgð
á víðtækari stefnumörkun í
efnahagsmálum.
Nýsköpun og valddreifing
Hann lagði til við miðstjórn
Kommúnistaflokksins að fjár-
festingar yrðu auknar í landbún-
aðinum og komið yrði á
takmarkaðri valddreifingu sem
myndi koma á „beinna sam-
bandi milli vinnu verkafólks og
launa þess“.
Margir efnahagsskýrendur
telja að áætlanir Gorbachevs
um meiriháttar langtímafjár-
festingar muni stangast á við
útgjöld til hermála, en stórum
hluta útgjalda fjárlaga er varið
til þeirra.
Af þessari ástæðu telja margir
að Gorbachev muni ekki taka
upp harða stefnu í vígbúnaðar-
viðræðum stórveldanna. Aðrir
telja að stefna hans verði ekki
svo djúptæk; hann leggi áherslu
á aukinn aga í framleiðslunni,
að framleiðni verði ^ukin og að
betri nýting verði á aðföngum.
Gorbachev hefur lýst sig
fylgjandi auknum viðskiptum
við Vesturlönd og hefur sýnt
mikinn áhuga á hátækniiðnaði
og vilja til að minnka tæknigap-
ið miíli Sovétríkjanna og Vest-
urlanda.
Japönsk hátækni send
til Sovétríkjanna?
Washington-Reufer
■ Háttsettur embættismaður í
bandaríska varnarmálaráðu-
neytinu, Richard Perle, hefur
ásakað Japani fyrir að veita
Sovétmönnum aðgang að há-
tækni sem flest Nato-ríki hafa
bannað að flutt sé út til Sovét-
ríkjanna.
Perle, sem er aðstoðarvarnar-
málaráðherra, sagði á fundi
með blaðamönnum í Washing-
ton nú á mánudaginn að það
væri tími til kominn að Japanir
stöðvuðu útflutning á hátækni
til Sovétríkjanna. Japanska
ríkisstjórnin hefði í reynd ekki
komið upp neinu kerfi sem gæti
komið í veg fyrir að japönsk
fyrirtæki flyttu hátækni til Sov-
étríkjanna.
■ Nú virðist vera að koma
upp ný „tattoveringarbylgja" í
Bandaríkjunum og í minna
mæli í Evrópu. Unglingar og
börn ganga um skrautlega tatt-
óveruð og ilmandi af ávöxtum.
Sem betur fer þurfa börnin
ekki að vera tattóveruð alla æfi
heldur geta þau losað sig tiltölu-
lega auðveldlega við hörunds-
flúrið. Það er nefnilega nuddað
á hörundið af örþunnri plast-
filmu þannig að myndin límist á
skinnið. Hörundsflúrið er meira
að segja vellyktandi. Pað er
hægt að velja sér tattóveringu
með lykt af banana, jarðaberj-
um og appelsínum og jafnvel
bjór, martíni og nýslengum pen-
ingum.
Fyrirtækið sem framleiðir
hörundsflúrið, er í Minnesota í
Bandaríkjunum og heitir 3M.
Mannskæð
jarðarför
Peking-Reuter.
■ Kínadagblaðið skýrði frá
því í gær að þrettán manns
hefðu iátist í líkfylgd og fjórir
slasast í Mið-Kína þegar tvær
járnbrautarlestir óku í gegn-
um líkfylgdina.
Líkfylgdin var á leið yfir
tvöfalda járnbrautarteina og
jarðarfarargestirnir skeyttu
því engu að tvær lestir nálg-
uðust óðum úr sitt hvorri
áttinni. Pað var ekki hægt að
stöðva lestirnar þannig að
þær óku í gegnum líkfylgd-
ina.
■ Það nýjasta í Bandaríkjunum. Hörundsflúr fyrir börn með
ávaxtailmi.
Tattóveruð börn
með ávaxtailmi
Aftökum fjölgar í Bandaríkjunum
Washington-Reuter.
■ Aftökum hefur fjölgað mik-
ið í Bandaríkjunum að undan-
förnu. Frá því að dauðarefsing
var aftur tekin upp árið 1976
hafa 39 menn verið líflátnir, þar
af 21 á seinasta ári.
Nú bíða um 1.500 menn, sem
dæmdir hafa verið til dauða á
síðustu árum, eftir aftöku og
árlega bætast um 250 manns í
hópinn.
Henry Schwarzchild, tals-
maður Ameríska lýðfrelsis-
sambandsins, segir að Banda-
ríkin séu að verða heimsins
mesta böðlaríki ásamt Sovét-
ríkjunum, Kína, Suður-Afríku
og íran. Andstæðingar dauða-
refsinga standa samt höllum fæti
í Bandaríkjunum þar sem skoð-
anakannanir sýna að meirihluti
almennings styður dauðarefs-
ingar.
Dauðarefsing er í gildi í 37 af
50 ríkjum Bandaríkjanna.
Hæstiréttur bannaði dauðarefs-
ingu árið 1972 á þeirri forsendu
að henni væri beitt svo mismun-
andi milli ríkja að hún teldist
„miskunnarlaus og óvenjuleg
refsing“. En hæstiréttur gaf aft-
ur leyfi til dauðarefsinga eftir að
ríkin lögðu fram nýjar reglur
sem sagt var að gerðu beitingu
dauðarefsingar réttlátari og
samræmdari.
Andstæðingar dauðarefsinga
telja að kynþáttamisrétti endur-
speglist í beitingu þeirra. Pótt
blökkumenn séu aðeins 12% af
Bandaríkjamönnum eru 42%
af hinum dauðadæmdu svartir.
Stjórn Reagans hefur lýst því
yfir að hún stefni að því að
herða refsingar og láta dauða-
refsingu ná til fleiri glæpa. Sem
stendur er aðeins dauðarefsing
við flugvélaránum samkvæmt
bandarískum alríkislögum. En
nýr dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, Edwin Meese segist
munu leggja mikla áherslu á að
láta dauðarefsingu ná til fleiri
glæpa eins og njósna, landráða,
morða á erlendum embættis-
mönnum, og tilrauna til að
myrða forsetann.
í flestum ríkjunum, þar sem
dauðarefsing er í gildi, er raf-
magnsstóllinn notaður eða eitr-
aðar sprautur og gasherbergi,
en í sex ríkjum geta fangar valið
á milli þess að láta skjóta sig eða
hengja.