NT - 13.03.1985, Page 21
Miðvikudagur 13. mars 1985 21
Utlönd
Glistrup sker upp her-
ör gegn flóttamönnum
■ Stuðningsmenn Glistrups í Framfaraflokknum tóku á móti
honum með fánum og fagnaði þegar hann losnaði úr prísundinni
eftir eins og hálfs árs vist í fangelsi nú á mánudaginn.
Símamynd-POLFOTÖ
Genf:
Risaveldin í
vopnaviðræðum
Genf-Reuter
■ Bandaríkjamenn hófu að
nýju vopnaviðræður við Sov-
étmenn ígæreftir 15 mánaða
hlé. Bandarísku fulltrúarnir
sögðu að það hefði ríkt al-
vara í viðræðunum.
En forsvarsmaður Banda-
ríkjamanna í viðræðunum,
Max Kampelman, sagði að
hann og formaður sendi-
nefndar Sovétmanna, Viktor
Karpov, hafi komist að sam-
komulagi um algera leynd sem
kæmi í veg fyrir að sagt yrði
frá því sem á fundunum fer
fram í smáatriðum.
Leiðtogaskiptin í Sovét-
ríkjunum hafa gert Vestur-
landabúa lítið bjartsýnni um
árangur af viðræðunum sem
eru þríþættar og snúast um
geimvopn og langdrægar og
meðaldrægar kjarnorkueld-
flaugar.
Kampelman sagði ekkert
um hversu djúptækar við-
ræðurnar voru í gær á nær
þriggja tíma fundi viðræðu-
nefndanna. Embættismenn
gáfu í skyn að þær hafi snúist
um dagskrá fundaraðarinnar
sem tekur margar vikur og
að viðræðurnar hefjist ekki
fyrir alvöru fyrr en á fimmtu-
dag.
Guðrún Ögmundsdóllir, frcttaritari NT í
Danmörku skrifar
■ Leiðtogi Framfaraflokksins
í Danmörku, Mogens Glistrup.
var ekki fyrr kominn út úr
fangelsi nú eftir helgina en hann
hóf aftur stjórnmálaafskipti.
Hann lýsti því yfir að dönsk
menning væri í hættu vegna
straums múhameðstrúarmanna
inn í landið og sagði að Fram-
faraflokkurinn myndi bjarga
Dönum.
Glistrup hafði afplánað eitt
og hálft ár af þremur sem hann
var dæmdur til að sitja í fangelsi
vegna skattsvika og annars mis-
ferlis. Blaðamenn og ljósmynd-
arar umkringdu Glistrup þegar
hann kom úr fangelsinu.
Samdægurs tók hann líka við
sérstakri ráðgjafarstöðu þing-
flokks Framfaraflokksins en
það embætti var stofnað sér-
staklega fyrir hann þar sem
hann hefur ekki leyfi til að sitja
á þingi.
Glistrup sagði að þetta væri
stórkostlegur dagur þegar hann
fékk loksins frelsi sitt. Hann
steig aftur inn á svið stjórnmál-
anna með því að lýsa því yfir að
hann væri tilbúinn að nýju til að
reisa Danmörku upp úr
ósómanum og berjast af endur-
nýjuðum krafti gegn óréttlátri
skattalöggjöf.
Hann var sérstaklega stóryrt-
ur í garð múhameðskra flótta-
manna sem hann sagði að
myndu eyðileggja danska
menningu. Glistrup sagði það
ábyrgðarleysi hjá stjórninni að
opna landið fyrir múhameðstrú-
armönnunum og sagðist myndu
berjast gegn því að þeim væri
hleypt inn í landið. Þingmenn
Framfaraflokksins leggja fram í
dag frumvarp í þinginu um
breytingar á útlendingalöggjöf-
Sigurvegarinn í Saarfylki:
Vill ekki að
NATO stjórni
Bonn-Reuter
■ Óskar Lafontaine, forystu-
maður þýskra sósíaldemokrata
í Saarfylki, þar sem sósíal-
demokratar fengu í fyrsta skipti
hreinan meirihluta í kosningum
um seinustu helgi, sagði í gær á
blaðamannafundi að hann teldi
að Vestur-Þjóðverjar ættu að
draga sig út úr samræmdri her-
stjórn NATO.
Lafontaine tilheyrir hinum
róttæka hluta sósíaldemokrata.
Lögreglan brýst inn í
Seðlabanka Bolivíu
I.a Paz-Reuter
■ Sérsveitir lögreglunnar í
Bólivíu brutust inn í Seðlabank-
ann í La Paz og tóku hann á sitt
vald til að koma í veg fyrir að
Genf:
LePen
bannaður
Genf-Reuter:
■ Yfirvöld Genf-borgar
bönnuðu ræðuhöld
franska hægri-öfgamanns-
ins Le Pen í Genf í gær-
kvöld til að stýra hjá því
að almenningi verði stefnt
í hættu.
Gúy Fontanet, ráðu-
neytisstjóri lögreglu- og
dómsmálaráðuneytisins
sagði að borgarráð Genf
hefði einnig dregið til baka
leyfi franska blaðamanns-
ins Alain Rollat til að
ávarpa fund andstæðinga
heimsóknar Le Pens.
„Það er ekki æskilegt að
gera Genf að orustuvelli
fyrir erlend stjórnmála-
átök sem stofna öryggi
borgaranna í hættu," sagði
hann fréttamönnum.
Lögreglan hefur engan
tíma aflögu fyrir slíkt
vegna fundar Sovétmanna
og Bandaríkjamanna um
vígbúnaðarmál.
bankastarfsmenn greiddu laun
til verkamanna sem nú eru í
allsherjarverkfalli.
Allsherjarverkfallið hófst fyr-
ir sex dögum. Verkamenn krefj-
ast hærri launa, verðstöðvunar
og meira framboðs á matvælum.
Að sögn hefur Verkamanna-
samband Bólivíu einnig sett
fram kröfur um að stjórnvöld
greiði ekki afborganir af erlend-
um lánum á til skildum tíma þar
sem ríkið hafi ekki efni á slíku.
Það mun líka krefjast þess að
einkabankar og flutningafyrir-
tæki verði þjóðnýtt.
Verkalýðssambandið vildi að
bankar yrðu nú opnaðir í einn
dag til aðgreiða laun. En stjórn-
in fyrirskipaði lögreglunni að
halda bönkum lokuðum þar til
annað yrði ákveðið.
Þegar úrslitin í Saar-fylki voru
orðin ljós lýs'ti leiðtogi vestur-
þýskra sósíaldemokrata, Willy
Brandt, því yfir að hann teldi að
kosningaúrslitin myndu óhjá-
kvæmilega leiða til vinstrisveiflu
í flokknum og auka áhrif Laf-
ontaine.
Lafontaine hefur hafr.að til-
lögu æskulýðssamtaka sósíal-
demokrata um að hann eigi að
verða formaður alls flokksins.
Hann segist munu einbeita sér
að málefnum Saarfylkis þar sem
hann vann kosningasigurinn.
Hann fór samt ekki dult með
róttækar skoðanir á sviði varn-
armála. Lafontaine sagði á
blaðamannafundinum í gær að
hann teldi að Vestur-Þjóðverjar
ættu að fylgja fordæmi Frakka í
varnarmálum og draga sig út úr
hernaðarskipulagi NATO. Hann
sagðist álíta að sérhvert ríki ætti
sjálft að stjórna her sínurn.
Hann sagðist einnig óska þess
að fá öllum kjarnorkubúnaði
Bandaríkjamanna vísað úr
landi.
Chernenko
bætti sam-
skiptin við
Kínverja
Pekine-Reuter
■ I frásögn Dagblaðs al-
þýðunnar í Kína af fráfalli
Chernenkos, sagði m.a.
að tengsl Kínverja og
Sovétmanna hefðu batnað
á valdatíma hans.
Dagblað alþýðunnar
birti mynd af Chernenko á
forsíðu í gær í svörtum
sorgarramma og í samúð-
arskeyti frá leiðtogum kín-
verska kommúnista-
flokksins sagði meðal ann-
ars að Chernenko hefði
„starfáð með árangri á
mörgurn sviðum í þágu
hagsmuna sovéska ríkisins
og almennings. Fráfall
hans er mikill missir fyrir
sovéska alþýðu."
Kínverjar létu í ljós þá
ósk að samskiptin við Sov-
étmenn héldu áfram að
batna í framtíðinni. Vara-
forsætisráðherra Kín-
verja, Li Peng, verður við-
staddur jarðarför Chern-
enkos í Moskvu í dag.
íran-írak:
Árásum á borgir og
bæi linnir ekki
- þrátt fyrir samkomulag við SÞ
Teheran-Reuter
■ íranir sögðu í gær að írakar
hafi rofið samkomulag sem
Sameinuðu þjóðirnar stóðu að
um að öllum árásum á borgir og
bæi yrði hætt á miðnætti á mánu-
dagskvöld.
Aðstoðar utanríkisráðherra
írana, Hussein KazemPour
Ardebili sagði fréttastofu írans
að írakar hafi ráðist á írönsk
þorp í Marivan og Piranshahar
í landamærahéruðunum og
einnig á þorpið Bostan innar í
landinu í V-lran.
Aðstoðarráðherrann nefndi
engar tölur um mannfall en á
síðustu átta dögum hafa tiundr-
uð særst vegna árása á bæi og
borgir í stríði írana og Íraka.
íranir hafa sagt að fimm manns
hafi fallið í loftárás íraka á
Teheran á mánudagskvöldið.
„Úr því að alþjóðleg samtök
geta ekki stöðvað íraka, mun
hið íranska lýðveldi múhameðs-
trúarmanna ekki láta árás íraka
í dag ósvarað," sagði aðstoðar-
utanríkisráðherrann í gær.
BLAÐBERA VANTAR
FYRIR EFTIRTALDAR
GÖTURí GARÐABÆ:
FAXATÚN, ARATÚN,
MÝRAR, LYNGMÓA,
KJARRMÓA OG
BREKKUBYGGÐ.
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á naestunní
sem hér segir:
Hull/Goole:
Dísarfell ............25/3
Dísarfell ....:........8/4
Dísarfell ............22/4
Rotterdam:
Dísarfell ............26/3
Dísarfell .............9/4
Dísarfell ............23/4
Antwerpen:
Dísarfell ............27/3
Dísarfell .......... 10/4'
Dísarfell ............24/4
Hamborg:
Dísarfell ........... 15/3
Dísarfell ............29/3
Dísarfell ............12/4
Dísarfell ............26/4
Helsinki/Turku:-
Hvassafell............29/3
Falkenberg:
Mælifell............. 18/3
Larvik:
Jan ..................22/3
Jan .................. 1/4
Jan ..................15/4
Gautaborg:
Jan ..................21/3
Jan ...................2/4
Jan ...:............. 16/4
Kaupmannahöfn:
Jan...................20/3
Jan....................3/4
Jan ..................17/4
Svendborg:
Jan ..................19/3
Jan ...................4/4
Jan ................. 18/4
Aarhus:
Jan ................. 18/3
Jan ...................4/4
Jan ................ 18/4
Gloucester, Mass.:
Halifax, Canada:
Jökulfell............ 14/3
m
SKIPADEILÐ
SAMBANDSINS
Sambandsrfusinu
Pósth 180 121 Reykjavik
Simi 28200 Telex 2101
Síðumúli 15. Sími 686300
Á AKREINA-
SKIPTUM
VEGUM
nn
□
□
□
□
□
□
á jafnan að aka
á hægri akrein
yujn.áR