NT - 14.03.1985, Blaðsíða 1

NT - 14.03.1985, Blaðsíða 1
Sunnlenskir bændur: ____ Stofna félag kúabænda sem verður kerfinu til aðhalds og styrktar ■ Á þriðja hundrað kúabænda af öllu Suður- landi mættu á stofnfund félags kúabænda á Suðurlandi á Hvolsvelli í gærkvöld. Samtökin eru stofnuð til að þjappa kúabændum á samlagssvæði MBF saman og vinna að hags- munum þeirra, en mörg- um þykir sem sunnlensk- ir bændur hafi lítt treyst samstöðu sína þrátt fyrir versnandi kjör. Undirbúningur að fé- lagsstofnuninni hófst í nóvember sl. með fundi í Brautarholti á Skeiðum og sagði einn frummæl- enda á fundinum, Bergur Pálsson í Hólmahjáleigu, að stofnendur hefðu aðallega verið ungir bændur og skuldugir. Á fundinum kom fram gagnrýni á félagskerfi bænda um leið og fundar- menn tóku fram að félag- ið skyldi verða kerfinu til styrktar og aðhalds. Fram kom í máli þriggja frummælenda að þeim þætti bændaforyst- an svifasein, ekki síst nú er stefndi í gjaldþrot fjölda bænda. Meðal þess sem bændur gagnrýndu voru nýjar útborgunar- reglur fyrir mjólk og hækkun kjarnfóðurskatts nú eftir slæmt heyskapar- ár sunnanlands. Meðal fundargesta voru forystumenn Stétt- arsambands bænda. Pá mun og vera í bí- gerð að stofna félag sauð- fjárbænda á Suðurlandi. Framhaldsskólarnir lamaðir áfram: Kennarafundur gegn því að taka upp störf á ný ■ Sú varð niðurstaða íundar sem kennarar þeir sem gengu út um mánaðamótin héldu í gær- kvöldi, að taka ekki upp störf að nýju. Tillaga um það fékk 102 atkvæði, en önnur tillaga sem gekk út á hið gagnstæða hlaut 187atkvæði.“ Það eralveg ljóst að félagar í HÍK líta svo á að í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar frá í gær felist engar trygging- ar fyrir því, að nægilegar kjara- bætur fáist,“ sagði Gunnlaugur Ástgeirsson varaformaður HÍK eftir atkvæðagreiðsluna. Hann sagði að kennarar væru eftir sem áður reiðubúnir til samn- ingaviðræðna ef ríkisvaldið vildi tala við þá. „Um alvarlegar viðræður verður þó varla að ræða alveg næstudaga," sagði hann. „Kristján Thorlacius formað- ur HlK, sagðist vonast til þess að samningaviðræður héldu áfram þótt kjardómur hefði fengið málið til meðferðar. Hann var spurður hvort einhver viðbrögð yrðu af hálfu kennara ef stöður þeirra yrðu auglýstar næstu dagana.“ Við getum ekk- ert við því sagt, ef sú ákvörðun verður tekin að veita okkur lausn, en í því fælist þá viður- kenning á því að uppsagnir okkar hefðu verið lögmætar sagði Kristján. Ljóst er eftir fundinn í gær- kvöldi að einhverjir úr hópi kennara munu ekki hlíta niður- stöðunni, heldur hefja kennslu, en þeir verða þó að líkindum fáir og eftir að sjá hvort nem- endur mæta í tíma til þeirra. Það var stjórn HÍK sem Iagði fram báðar hinar gagnstæðu til- lögur sem voru til umfjöllunar í gærkvöldi. Önnur gekk út á að tekin skyldi upp kennsla á ný, enda lægi fyrir staðfesting for- sætisráðherra á hagstæðri túlk- un yfirlýsingar ríkisstjórnarinn- ar, kennurum í vil. En það dugði sem sagt skammt og allt bendir til að langt sé í lausn deilunnar. Shultz I heimsókn! ■ George Shultz utanrík- isráðherra Bandaríkjanna kom til íslands á öðrum tímanum í nótt og nú í morgun mun hann ræða við Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra. Shultz var í gær viðstaddur útför Chernenkos í Moskvu. Að loknum viðræðun- um mun Shultz þegar í stað halda áfram áleiðis vestur um haf. Utvarps- lögá Alþingi! - sjá bls. 3 Helgi Ólafsson vann Jóhann Hjartarson: Vantar einn vinning í stórmeistaratitil ■ HelgiÓlafssonvannJóhann Hjartarson á skákmótinu í Kaupmannahöfn og hefur 6 vinninga, þegar einni umferð er ólokið. í dag teflir hann við Plaskett og hefur svart. Vinni hann hefur hann þar með öðlast stórmeistaratitil í skák. ■ Helgi Ólafsson. Skák Larsens og Pinters fór í bið og á Larsen heldur betri stöðu, þótt óvíst sé hvort það nægi til vinnings. En vinni hann verður hann aðeins hálfum vinningi á eftir Ungverjanum fyrir síðustu umferðina. Ekki er á Danann logið með keppnis- skapið. Önnur úrslit í gær urðu þau að Lars Karlsson vann de Firmi- an, Christiansen vann Morten- sen og Höj og Hansen gerðu jafntefli. Pinter er efstur á mót- inu með 7 'h vinning og biðskák, Hansen hefur 6 'h vinning, Lar- sen er þriðji með 6 Vi vinning og biðskák og Helgi í 4. sæti með 6 vinninga. Páll Pétursson svarar Jóni B. - sjá bls. 3 Sáttafundur á laugardag ■ Boðaður hefur verið fundur með sáttasemjara á ísafirði á laugardag eftir að slitnaði upp úr viðræðum sjómanna og út- vegsmanna þar vestra. Að sögn Sigurðar R. Ólafs- sonar, forsvarsmanns sjómanna á ísafirði, eru það helst starfs- aldurshækkanir sem deilt er um, en útvegsmenn þverneita öllum samningum um slíkar hækkanir. ■ Útför Konstantin Chernenkos fór frain í gær, þá voru líkbörur hans fluttar frá Súlnasalnum í Höll verkalýðsfé- laganna, en útförin fór fram á Rauða torginu. Þúsundir Sovétborgara höfðu vottað hinunt látna virðingu sína þar sem hann lá á viðhafnarbörum í Súlnasalnum. Margir fulltrúar erlendra ríkja voru viðstaddir útförina, þar á meðal Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. Simamynd PÖLFÖTO

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.