NT - 14.03.1985, Blaðsíða 3

NT - 14.03.1985, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 14. mars 1985 3 ■ Páll Pétursson forseti Norðurlandaráðs svaraði sím- skeyti Jóns Hannibalssonar í gær. NT-mynd: Sverrir Framsóknarmenn á þingi um útvarpslögin: Ekkibundnirstuðn- ingi við frumvarpið Páll svarar Jóni Baldvini: verði breytingartillögur Friðriks samþykktar inga og þar er fjölbreytni en ekki fjölmiðlarisar sem mylja allt undir sig. Ólafur Þórðarson sagði að hann teldi að ríkisútvarpið þyrfti að hafa forgang því það hefði miklar skyldur. „Það út- varp sem ég er hræddastur við er það útvarp sem fær stuðnings- greiðslur, það er útvarp sem er á mála hjá t.d. SÍS, eða Loft- leiðum." Búist er við að atkvæða- greiðsla unt frumvarpið fari fram á mánudag. Lífeyrisréttindi til heimavinnandi kvenna - frumvarp fimm karlþingmanna ■ í gær var lagt fram á Al- þingi frumvarp til laga um að konur, sem yfirgefa vinnu- markaðinn vegna barnsburð- ar, hafi áfram rétt til að greiða í lífeyrissjóð sinn í allt að sjö ár. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að viðkomandi kona muni einnig greiða þann hluta iðgjaldsins sem atvinnu- rekandinn greiddi áður. í greinargerð með frum- varpinu segir að frumvarpið sé fyrsti áfanginn í þá átt að tryggja húsmæðrum full rétt- indi til greiðslu í lífeyrissjóði. Heimavinnandi húsmæður eru nú eina stétt landsins sem engra lífeyrisréttinda nýtur, segir í greinargerðinni, en margar tillögur hafa verið fluttar á þingi um slík réttindi, m.a. ein á þessu þingi af Páli Péturssyni. Frumvarpið er lagt fram af Páli Péturssyni, Sighvati Björgvinssyni, Ólafi G. Ein- arssyni, Guðmundi J. Guð- mundssyni og Guðmundi Ein- arssyni. því fram að ríkisútvarpið sé ófrjálst. Það sent vakir fyrir íhald- inu sagði Hjörleifur er að fjölmiðlarisinn Isfilnt knésetji Ríkisútvarpið a.m.k. hér í þétt- býlinu. Hann lýsti furðu sinni á því að framsóknarþingmenn skyldu ætla að standa að þessu máli. Hér væri um það að ræða að menn ætluðu að reka útvarp í gróðaskyni. Hjörleifur rakti það sem er að gerast á Norður- löndunum, en þarfástaðbundn- ar stöðvar ekki leyfi til auglýs- Framsóknarfélag Reykja- víkur um vaxtamálin: Mótmælir stefnu Seðlabankans og ríkisstjórnar Þá segir í ályktuninni að stjórnin lýsi furðu sinni á því að núverandi vaxtastefna hafi verið frantkvæmd í and- stöðu við meirihluta þing- flokks Framsóknarflokksins. Stjórnin telur með öllu óverj- andi að lán séu verðtryggð meðan laun eru það ekki. Einnig segir í ályktun stjórn- arinnar að verði vaxtastefn- unni fylgt áfram, þá leiði það líklega til gengisfellingar, sem bitni ekki síst á sparifjár- eigendum sem upphaflega átti að vernda með núverandi vaxtastefnu. Ályktunin er undirrituð af Alfreð Þorsteinssyni, ný- kjörnum formanni félagsins. ■ „Stjórn Framsóknar- félags Reykjavíkur telur sérstaka ástæðu til að mót- mæla stefnu Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar, sem fylgt hefur verið í vaxtamál- um.“ Svo hefst ályktun stjórnar Framsóknarfélags Reykja- víkur sem samþykkt var á fundi 13. mars. 1 ályktuninni segir að stefna stjórnarinnar og Seðlabankans hafi leitt til mikilla greiðsluerfiðleika hjá einstaklingum og fyrirtækj- um, og ekki síst hjá hús- byggjendum, og að víða blasi gjaldþrot við. „Egfagna því að þú skulir líta stórt á þig“ ■ „Ég hef veitt viðtöku hátíðlegu símskeyti frá þér. Svo vel vill til að við vinnum á sama vinnustað, þannig að þú getur þar auðveldlega átt orðastað við mig, ef þú átt eitthvað vantalað. Þú kvart- ar undan árásum af minni hendi sem þú hafir ekki haft tækifæri til að svara í áheyrn alþjóðar. Það er ósatt. Þér var boðið að svara ummæl- um mínum í fréttatíma út- varps sl. mánudagskvöld en það þáðir þú ekki. Eg hef ekki ennþá heyrt þig draga ummæli þín til baka eða biðja aðra afsökun- ar en Kalevi Sorsa forsætis- ráðherra Finna. Strax og þú hefur gert yfirbót mun ég fús að ræða við þig í útvarpi ef útvarpsstjóri óskar. Fram að þeim tíma skulum við ein- beita okkur að þingstörfum. Ég fagna því að þú skulir líta stórt á þig og vera svo vandur að virðingu þinni“ Þannig hljóðar svarskeyti Páls Péturssonar, þingmanns og forseta Norðurlandaráðs, til Jóns Baldvins Hannibals- sonar alþingismanns, en sá sendi frá sér eftirfarandi skeyti í fyrradag. „Þú hefur í tvígang í frétta- tíma ríkisútvarpsins og í embættisnafni sem forseti Norðurlandaráðs borið mig fjarstaddan þungum sökum m.a. að ég hafi orðið þjóð minni til skaða og skammar, unnið íslenskum málstað tjón og haft uppi ummæli, sem enginn fótur sé fyrir. Þegar maður er borinn svo alvarlegum sökum er til siðs að sakborningur fái að bera hönd fyrir höfuð sér og að ákærandinn reyni að standa fyrir máli sínu. Þetta er ekki einkamál okkar heldur varð- ar það alla þjóðina og emb- ætti þitt sem forseta Norður- landaráðs. Þess vegna ítreka ég hér með þá áskorun mína að þú reynir að standa fyrir máli þínu í áheyrn alþjóðar. Útvarpsstjóri hefur nú gefið Helga Péturssyni frétta- manni fyrirmæli um að bjóða ákæranda og sakborningi að ræða þessi mál í ríkisútvarpi. Skilyrði þín um að ákæruatr- iði verði dæmd réttmæt fyrir- fram fá augljóslega ekki staðist. Nú er spurningin: þorir þú, eða þorir þú ekki, Húnvetningur, að standa fyr- ir máli þínu? Ef þú þorir það ekki skalt þú minni maður heita og öll þín ákæruatriði falla sjálfkrafa dauð og ómerk. Svar óskast um hæl. Með tilhlýðilegri virðingu“ Upphaf þessarar rekistefnu er, eins og menn rekur minni til, að í viðtali eftir Norður- landaráðsþing lét Páll Pét- ursson þau orð falla að Jón Baldvin skuldaði ekki bara forystumönnum jafnaðar- manna á Norðurlöndum heldur einnig þjóð sinni af- sökunarbeiðni vegna ýmissa ummæla sem hann lét falla í garð frændþjóða okkar með- an á Norðurlandaráðsþingi stóð. ■ Páll Pétursson formaður þingflokks Framsóknarflokks- ins lýsti því yfir í umræðum um útvarpslagafrumvarpið í gær- kvöldi að hann teldi sig óbund- inn af stuðningi við frumvarpið ef breytingartillaga Friðriks Sóphussonar, sem felur í sér að aflétta auglýsingahömlum á kapalútvarpi, yrði samþykkt, eða yflrhöfuð nokkrar breyting- artillögur við frumvarpið eins og það væri nú, en samkomulag hefði orðið um málið í mennta- málanefnd neðri deildar. Páll sagðist telja að fleiri þingmenn Framsóknar hefðu sömu af- stöðu. Stefán Valgeirsson hefur lýst sig andsnúinn frumvarpinu. Hjörleifur Guttormsson gagnrýndi það að jafnvel frétta- menn útvarps og sjónvarps tækju sér í munn hugtakið frjálst útvarp sem væri áróð- ursklisja þeirra sem vildu klæða gróðafíkn sína í fallegan búning. Nefndi Hjörleifur sér- staklega sjónvarpsþátt frá 15. febrúar. Eða vilja menn halda ■ Fulltrúar áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum gengu í gær á fund Steingríms Hermannssonar forsætisráð- herra og afhentu honum áskorun um úrbætur. Að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar, sem hafði orð fyrir hópnum, tók forsætisráðherra vel á móti komumönnum og kvað ríkis- stjórnina hafa til athugunar hvernig mætti bæta hag húsbyggjenda og húskaupenda. Sigurgeir sagði að orð yrðu hins vegar ekki látin nægja og myndi hópurinn halda áfram og myndi ekki láta staðar numið fyrr en raunverulegar útbætur yrðu komnar fram í dagsljósið. NT-mynd Ámi Bjarna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.