NT - 14.03.1985, Blaðsíða 22
Fimmtudagur 14. mars 1985 22
■ Brynjar Sigurðsson hampar
siguriaununum sem hann og
bekkjarfélagar hans í 5. EB í
Seljaskóla fengu fyrir sigur í
Landsbankamótinu. Á bak við
hann má sjá Sigvalda Ingimund-
arson íþróttakennara og minni-
boltaþjálfara hjá ÍR sem kom
mótinu af stað í upphafi og
hefur séð um framkvæmd þess
síðan.
Flestir strákarnir í sigurliðinu
eru í minniboltaliði ÍR.
(Til vinstri).
■ Þátttakendur í „Lands-
bankamótinu“ sem ÍR heldur
fyrir minniboltakrakka í Breið-
holti og Langholtsskóla, fyrir
utan útibúið í Mjóddinni.
,(Til hægri).
Landsbankamót í körfu:
Búndeslígan:
Lalli skoraði
- gegn Werder Bremen
■ Lárus Guðmundsson
knattspyrnumaður sem
spilar með Úrdingen í
V-Þýskalandi skoraði sig-
urmark liðsins gegn
Werder Bremen í 16-liða
úrslitum þýsku bikar-
keppninnar í fyrrakvöld.
Úrdingen er þar með
komið í 8-liða úrslit.
Markið kom á 57. mín-
útu af stuttu færi og
tryggði 2-1 sigur.
Feykilegt fjör
Pétur Guðmundsson körfuknattleiksmaður:
Á ferð og flugi
■ Pétur Guðmundsson, hæsti
körfuknattleiksmaður Islands
og sá eini sem komist hefur í lið
■ Pétur Guðmundsson á fullri
ferð með ÍR-ingum. Hann spil-
aði á þessu keppnistímabili í
Englandi en hyggst breyta til.
í bandarísku atvinnumanna-
deildinni NBA, er á íslandi
þessa dagana, en mun staldra
stutt við. Pétur lék eins og
kunnugt er í Englandi í vetur
við góðan orðstír með fyrstu-
deildarliðinu Sunderland.
„Þessu er lokið hjá Sunder-
land á þessu keppnistímabili,"
sagði Pétur í samtali við NT.
„Liðið varð í níunda sæti í
deildinni, og það komast átta
efstu í úrslitakeppnina um Eng-
landsmeistaratitilinn, það mun-
aði nú ekki nema tveimur
stigum. Annars varSunderland-
liðið engu lakara en hin sem
fóru í úrslitakeppnina hvað leik-
menn varðaði og liðið sjálft. En
stjórn mála var í molum hjá
félaginu, bæði léleg fjárhagsleg
og framkvæmdalega,“ sagði
Pétur.
Pétur er nú á leið til Spánar
með hópi leikmanna sem vilja
gjarnan komast að hjá stærri
liðum í Evropu. Hópurinn ferð-
ast sem lið, og tekur þátt í
mótum víða um Evrópu, síðan
í Mónakó og væntanlega á ítal-
íu. „Við ferðumst á vegum um-
boðsmanns, sem hefur þessa
aðferð við að koma leikmönn-
um á framfæri. Hvað svo tekur
við veit ég ekki, en ætli ég fari
ekki aftur til Bandaríkjanna og
reyni fyrir mér.“
■ Landsbankamótið var hald-
ið með pompi og prakt um
mánaðamótin síðustu í íþrótta-
húsi Fellaskóla í Breiðholti.
Landsbankamótið er bekkja-
keppni 5. bekkinga úr skólum í
Breiðholti og Langholtsskóla og
er haldið á vegum ÍR. Lands-
bankinn styrkir fyrirtækið með
því að gefa verðlaun.
Sigvaldi Ingimundarson
íþróttakennari í Fellaskóla og
þjalfari minnibolta hjá ÍR hefur
haft veg og vanda að skipulagn-
ingu og framkvæmd mótsins
sem fór fram í annað sinn nú í
staðinn fyrir í haust, vegna verk-
fallanna þá.
Það er stefnan að halda mótið
ár hvert, í upphafi skólaárs á
haustin.
Að þessu sinni tóku 29 lið
þátt í mótinu, sem er 9 liðum
fleira en síaðst og alls voru
krakkarnir um 270.
Leikirnir urðu 59 talsins og
Pýskaland:
BommertilUrdingen
■ Bayer Úrdingen, lið Lárus-
ar Guðmundssonar í v-þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu, hefur
mikinn hug á að kaupa lands-
liðsmanninn þýska, Rudi
Bommer, frá Fortuna Dússel-
dorf, félagi Atla Eðvaldssonar.
Úrdingen vill borga 900 þúsund
mörk (11,3 millj. ísl. kr.) fyrir
Bommer, en Fortuna vill fá.1,1
milljón marka (13,8 milljónir
Þýskir punktar...þýskir punktar...þýskir punktar...
Frá Guðmundi Karlssyni frétlamanni NT í
V-Þýskalandi
■ ...BAYERN MÚNCHEN
vann sinn fyrsta útileik um helg-
ina síðan 1. desember sl. í bæði
Frakkland:
Bordeaux
úr leik
■ Scinni leikirnir í 1.
umferð frönsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu
fóru fram í fyrrakvöld.
Athygli vekur stórt tap
Bordeaux fyrir Lille, 5-1.
Bordeaux er þar með úr
leik í keppninni. Úrslit:
(Lið sem komast áfram
eru aðgreind með feitu-
letri.)
Sochaux-Nantes........... 8-1
Rouen-Rennes ............ 2-0
Sedan-Maubeuge........... 2-0
París SG-Le Havre........ 2-1
Brest-Mulhouse .......... 2-0
Nancy-Pau................ 3-0
Bastia-Metz.............. 2-0
St-Etienne-Nice ......... 4-1
Cannes-Nimes ............ 1-0
Marseilles-Valence....... 2-1
Sete-Nantes ............. 1-2
Monaco-Besancon ......... 5-0
Toulouse-Clermont........ 3-1
Lille-Bordeaux .......... 5-1
Stade Francais-Lens...... 0-0
skiptin vann Bayern lið sem
heitir 1. FC K, nú gegn Köln, en
gegn Kaiserslautern í desem-
ber. Lothar Mattheus skoraði
mark f bæði skiptin...
...HAMBURGER SV skor-
aði ekki á heimavelli um helg-
ina, í fyrsta sinn síðan 19. maí
1984. Þá kom Frankfurt í heim-
sókn, en nú Karlsruher...
...STUTTGART gengur vel
þessa dagana, liðið hefur nú
unnið fjóra leiki í röð og hefur
í þeim leikjum skorað 17 mörk
gegn 2. Síðasta leikjaröð sam-
bærileg þessari var hjá liðinu í
nóvember 1983...
...EINTRACHT FRANK-
FURT hélt marki sínu á heima-
velli hreinu í fyrsta sinn nú um
helgina síðan 28. september sl.
haust. Þá lék Frankfurt gegn
Bielefeld. en nú gegn Brauns-
chweig. I bæði skiptin skoraði
Kremer fyrir Frankfurt...
... 1 FC KÖLN lék um helgina
í fyrsta sinn í þrjú ár á heima-
velli án þess að skora mark!
Hinn 30. mars 1982 töpuðu
Kölnarmenn 0-1 fyrir Bielefeld,
en nú töpuðu þeir 0-2 gegn
Bayern Munchen...
...BAYER ÚRDINGEN
fékk í fyrsta sinn, síðan 12. maí
1984 fleiri en þrjú mörk á sig í
útileik. Þá tapaði liðið 0-7 í
Mönchengladbach, en nú 5-2 í
Stuttgart...
Handknattleikur:
Úrslitakeppnin að hefjast
■ Úrslitakeppnifjögurraefstu
liða í fyrstu deild karla í hand-
knattleik um íslandsmeistara-
titilinn hefst að líkindum á
sunnudag. í upphaflegum drög-
um HSÍ stóð til að hefja keppn-
ina í kvöld, en enduruppröðun
á vegum liðanna sjálfra gerir
ráð fyrir, samkvæmt heimildum
NT, að fyrsta umferðin hefjist á
sunnudagskvöld.
Fyrsta umferðin verður þá á
sunnudags-, mánudags- og
þriðjudagskvöld í Laugardals-
höll. Næsta umferð verður
væntanlega 10., 11. og 12. apríl
í Hafnarfirði, þriðja umferðin
17., 18. og 19. apríl í Laugar-
dalshöll og síðasta umferðin
loks 26., 27. og 28. apríl í
Laugardalshöll.
Það að keppnin dreifist svo
sem hér á undan er talið gerir
það sennilega að verkum að
úrslitaleikur bikarkeppni HSÍ
verður ekki fyrr en í maí. Þá
getur það sett verulegt strik í
reikninginn í þessari uppstill-
ingu, ef íslensku liðin, Víkingur
og FH, komast áfram í Evr-
ópukeppnunum í handknatt-
leik.
keppt var í tveimur riðlum
fyrstu tvö kvöldin. Þau lið sem
unnu tvo leiki komust beint í
úrslit, þau sem unnu einn og
töpuðu einum komust í undan-
úrslit sem voru leikin f 2 riðlum.
Sigurvegarinn úr þeirri keppni
fór svo í úrslitakeppnina.
Þriðjudaginn 5. mars var leik-
ið til úrslita, 10 lið í tveimur
riðlum, og léku allir gegn öllum.
Sigurvegararnir í riðlunum,
5. EB í Seljaskóla og 5. KJ í
Langholtsskóla, léku svo hrein-
an úrslitaleik sem Seljaskóla-
strákarnir unnu 26-14.
Á laugardaginn var, voru
verðlaun afhent í útibúi Lands-
bankans í Mjóddinni. Allir þátt-
takendur fengu viðurkenningu
en 1. og2. lið verðlaunapeninga
og sigurliðið fékk bikar.
Knattspyrna:
„Sterkt lið án
útlendinganna"
- segir Evarista Macedo þjálfari Brassana
annað borð. „Ég er sannfærður
kr.).
Bommer hefur gengið alger-
lega frá sínum málum við Úrd-
ingen, og fer svo fremi sem liðin
komast að samkomulagi. „Það
er mikið áfall fyrir Dusseldorf.
Aðalfundur S.I.
■ Aðalfundur Samtaka
íþróttafréttamanna 1985
var haldinn í gær í Litlu-
brekku við Lækjartorg í
Reykjavík. Samúel Öm
Erlingsson, var þar
endurkjörinn formaður
samtakanna, en aðrir í
stjórn voru kjörnir Skapti
Hallgrímsson og Þór-
mundur Bergsson.
Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa var eitt meg-
inviðfangsefni fundarins
norræn ráðstefna íþrótta-
fréttamanna sem fram
fer í Reykjavík í júní á
þessu ári, en þá koma 20
fulltrúar samtaka íþrótta-
fréttamanna í Finnlandi,
Svíþjóð, Noregi og Dan-
mörku hingað til lands til
skrafs og ráðagerða.
■ „Við erum með full fram-
bærilegt lið hér á heimaslóðum
og ég er ekki viss um að þeir
leikmenn sem spila á Ítalíu séu
í nokkuð betra formi. Þeir verða
a.m.k. að sanna það fyrir
mér,“ sagði Evaristo Macedo
landsliðsþjálfari Brasilíu í við-
tali við blað eitt í Ríó í fyrradag.
„Ég er ánægður með hópinn
sem ég hef nú og þó þessir
leikmenn á Ítalíu séu frábærir
þá þarf ég að skoða þá miklu
betur í leikjum til að geta staðið
á því að velja þá,“ bætti Macedo
við.
Brasilíumenn eiga að leika
við Bólivíu og Paraguay í
undankeppni HM í Mexíkó.
Leikir þessara liða verða í júní.
Macedo verður að tilkynna lið
sitt þann 14. apríl og leikmenn
verða að koma til æfinga daginn
eftir. Óvíst er hvort þeir leik-
menn sem spila á Ítalíu fái sig
lausa, ef þeir verða valdir á
um að við getum búið til mjöe
sterkt lið með þeim leikmönnum
sem hér eru í Brasilíu og kvíði
því engu,“ sagði Evaristo Mac-
edo.
■ Zico er ekki öruggur í lið
Brassanna.
Körfuknattleikssambandid:
Fjórir piltar
til Júgóslavíu
- í boði „Converse“*umboðsins
■ Bandaríska íþróttavöru-
fyrirtækið „Converse“ mun í
sumar standa fyrir æfingabúð-
um í körfuknattleik fyrir ung-
linga á aldrinum 14-18 ára. Búð-
ir þessar verða haldnar í Júgósl-
avíu og unglingum víðsvegar að
úr Evrópu er gefinn kostur á að
vera með. Coverse-fyrirtækið
greiðir allan kostnað við þátt-
töku, uppihald, ferðir til og frá
Júgóslavíu og annan kostnað.
Fjórúm íslendingum stendur
til boða að fara og æfa með
efniiegustu körfuknattleiks-
mönnum Evrópu.
Flug frá íslandi verður tengt
sólarflugi til Rimini.
Umboðsmaður Converse á
íslandi, Torfi Tómasson og ung-
linganefnd KKÍ mun velja þá
sem til greina koma.
Umsóknarfrestur er til 22.
mars og tekur skrifstofa KKf
við umsóknum. Allar nánari
upplýsingar er hægt að fá hjá
Birni Leóssyni í síma 46039.
Getraunir
■ í 28. leikviku Getrauna
kom enginn seðill fram með
12 rétta leiki, en 6 seðlar
reyndust vera með 11 rétta
og vinningur fyrir hverja röð
kr. 71.960,- Þá reyndust 129
raðir vera með 10 réttum og
vinningur fyrir hverja röð
kr. 1.434.00.