NT - 14.03.1985, Qupperneq 2
Fimmtudagur 14. mars 1985 2
Grunnskólakennarar:
Rúm12%ákveðn
ir í að hætta!
- og um 40% óákveðnir
■ Samkvæmt könnun sem
stjórn Kennarasambands ís-.
lands lét gera fyrir nokkrum
dögum, eru rúm 40%
kennara í grunnskólum ogfram-
haldsskólum landsins óákveðnir
hvort þeir hyggjast halda áfram
kennslu að þessu skólaári
loknu. Þá hafa 12,6% ákveðið
Þjóðviljinn
andsovéskur
- í fyrsta sinn
segir Reuter
■ Þjóðviljinn gagnrýndi So-
vétríkin í fyrsta sinn í gær, segir
í fréttaskeyti Reuter sem sent
var frá íslandi í gær og fjallaði
um leiðara blaðsins og grein,
þar sem bæði innanríkismál og
utanríkismál Sovétríkjanna
voru gagnrýnd.
„Þetta er alveg fullkomið
minnisleysi fréttaritara Reut-
er,“ sagði Árni Bergmann, ann-
ar ritstjóra Þjóðviljans, NT í
gær.
Árni sagði að til að nefna
fáein dæmi mætti benda á fjöl-
margar greinar um mannrétt-
indamál í Sovétríkjunum, inn-
rásina í Tékkóslavíu og innrás-
ina í Afganistan.
að hætta kennslu í lok skólaárs-
ins og 3,7% hafa sótt um leyfi ^
án Iauna, næsta skólaár. Tæpur
helmingur kennaranna hefur
_ekki í hyggju að hætta kennslu.
Á blaðamannafundi sem KÍ
gekkst fyrir í gærdag, kom fram
að mjög örðugt hefur reynst að
fá kennara til afleysinga eða
forfallakennslu að undanförnu,
og benti það til þess að kennara-
starfið þætti ekki eftirsóknar-
vert um þessar mundir. Þess
munu dæmi að heilu námsgrein-
arnar hafi verið felldar niður
vegna þess að ekki hafa fengist
forfallakennarar til lengri eða
skemmri tíma.
Kl hótar
■■
uppsognum
- vill endurskoðun samninganna strax
■ „í sérkjarasamningum
HÍK mun ráðast hvort
stjórnvöld ætla að standa
við gefin fyrirheit... á næst-
unni mun því ráðast hvort
viðunandi lausn fæst á
kjara- og réttindamálunum
eða hvort búast megi við
enn víðtækari uppsögnum
kennara."
Þannig liljóðar niðurlag
ályktunar sem stjórn Kenn-
arasambands íslands hefur
sent menntamálaráðherra
og fjármálaráðherra en
stjórn KÍ hefur jafnframt
óskað eftir endurskoðun
sérkjarasamninga fyrir
grunnskóla og framhalds-
skóla í kjölfar hins nýút-
komna nefndarálits um
endurmat á störfum
kennara.
■ F.h. Joachim Fischer, starfsmaður Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, Árni Þorsteinsson, tengiiiður fjölbrautarskólans í Breiðholti,
Jacquelina VVilliams og Kristinn Einarsson.
Aðskilnaðar-
stefna S-Afríku
kynnt í skólum
■ Ung suður-afrísk stúlka,
Jacquelina Williams, ferðast um
þessar mundir á milli framhalds-
skóla á íslandi til að kynna
málstað og aðstöðu þeldökkra í
Suður-Afríku.
Það eru samtök framhalds-
skólanema sem standa fyrir
þessari kynningu í samvinnu við
Hjálparstofnun kirkjunnar og
er hún liður í samnorrænu verk-
efni framhaldsskólanema í ti-
lefni af alþjóðaári æskunnar.
Verkefnið nefnist NOD ’85,
Norræn samstaða, og er tilgang-
ur þess að styrkja og kynna
málefni meirihluta æsku Suður-
Herinn safnar fyrir bágstadda í Chile
■ Á morgun mun Reykjavík-
urdeild Hjálpræðishersins gang-
ast fyrir fjársöfnun vegna jarð-
skjálftanna í Chile. Deildirnar á
Akureyri og ísafirði munu einn-
ig safna fé í sama skyni.
I jarðskjálftunum jöfnuðust
fjórar stofnanir Hjálpræðishers-
ins í Chile við jörðu, en það
voru elliheimili, drykkjumanna-
hæli, dagheimili og vistheimili.
Tekið verður á móti framlög-
um á póstgíróreikning nr.
17900-0, og í söfnunarbauk við
pósthúsið í Austurstræti milli
kl. 10.00 og 18.00 á morgun.
Afríku sem líður fyrir apartheid
(aðskilnaðar) stefnu stjórnvalda
í S-Afríku, en það er nú eina
landið þar sem kynþáttaað-
skilnaður er bundinn stjórnar-
skrá.
Jacquelina var ásamt fulltrú-
um nemendasamtakanna á
fundi í Iðnskólanum í Reykja-
vík í gær, og verður á Eiðum í
dag, og síðan í Neskaupstað,
Egilsstöðum og áfram vestur
Norðurland. Hún verður hér í
tvær vikur, en fer í millitíðinni í
fimm daga ferð til Færeyja í
sama tilgangi.
Þann 28. mars verður síðan
hápunktur verkefnisins en þá
verður fyrirtækjum, vinnuveit-
endum og almenningi boðinn
vinnukraftur námsfólks gegn
greiðslu lágmarkslauna. Fénu
sem safnast verður síðan veitt
til Æskulýðsdeildar Sam-
kirkjuráðs S-Afríku og verður
einnig efnt til almennrar söfnun-
ar sama dag.
Rangt, Rangt
■ „Þetta er rangt, þetta er
rangt,“ sagði Davíð borgar-
stjóri alloft í fyrrakvöld er
orkuverð í Reykjavík var
rætt. Sjálfur sagði hann að
orkuverð Rafmagnsveitu
ríkisins hefði hækkað um
22% á sama tíma og það
hefði hækkað um 12-14% í
Reykjavík.
„Þetta var rangt Davíð,“
sögðu sjónvarpsfréttir í gær.
Orkuverð hjá ríkinu hækk-
aði um 16-18% á sama tíma
og það hækkaði uin 16% hjá
Reykjavíkurborg.
Blaðamenn
eftirsóttir
■ Blaðamenn eru eftirsótt
makaefni meðal stúlkna í
framhaldsskólum. í tölvu-
væddri hjónabandsmiðlun
sem starfrækt var í einum af
menntaskólum höfuöborgar-
innar, kom í Ijós að blaða-
menn eru sérlega vinsælir,
og virðast áhugamál þeirra
ekki skipta máli.
Ég segi það enn og aftur læknir, er þetta örugglega mitt!
Þetta er reynsla þeirra
blaðamanna NT sem sendu
inn upplýsingar um störf,
aldur, áhugamál og vaxtarlag
til tölvubankans sem vinnur
úr upplýsingunum.
Við útkeyrslu á listum í
hjónabandsmiðluninni, var
eins og rauður þráður í gegn-
um alla lista, nöfn blaða-
mannanna sem sendu inn
útfyllt eyðublöð.
Ástæða fyrir þessari vel-
gengni í hjúskaparmiðlun-
inni, getur veriðannað hvort
einstaklingsbundin við blaða-
manninn eða bundin við stéttina í
heild. En eitt er víst, að þrátt
fyrir færri kvenmenn en karla
í landinu, þurfa blaðamenn
ekki að örvænta.
Ræða
vanda
Þörunga-
vinnsl-
unnar
■ Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðherra, og Al-
bert Guðmundsson,
fjármálaráðherra, munu í
hádeginu í dag ræða mál-
efni Þörungavinnslunnar,
en verksmiðjan ásamt öll-
um tækjum hennar hefur
verið auglýst til sölu á
nauðungaruppboði.
„Það er mjög brýnt að
þetta verði leyst þar sem
núna er loksins komið vit
í þurrkunina og salan er
í bullandi gangi,“ sagði
Kristján Þórir Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri
Þörungavinnslunnar.
Kristján sagði NT að
verksmiðjan hefði selt 4000
tonn af þangi í fyrra, og að
verðið hefði mjakast upp
að undanförnu.
„Ég er búinn að vera
hér í 2 ár, og það er mikill
munur á ástandinu núna
eða hvað það var fyrir 2
árum,“ sagði Kristján.
1 dag á ríkissjóður 97%
hlutafjár verksmiójunnar
og hafa fjárhagsvandræði
fyrirtækisins verið leyst á
undanförnum árum með
auknu hlutafé ríkisins.
Nú er verksmiðjan á
uppboði vegna fjárkröfu
Iðnþróunarsjóðs, vegna
51.118.95 dollara skuldar.
SæluvikaSkagfird-
inga 15.-24.mars:
■ Sæluvika Skagfirðinga mun
að þessu sinni standa yfir dag-
ana 15. til 24. mars, og verður
mikið um að vera að venju.
Byrjað verður með forsælu-
dansleik áföstudagskvöldið 15.
mars. Á laugardaginn 16. mars
mun Haraldur Ólafsson, lektor
flytja erindi er hann nefnir
„Landnám á íslandi í ljósi
mannfræðinnar,11 í boði Safna-
hússins á Sauðárkróki. Þar opn-
ar og sama dag Hringur Jóhann-
esson, listmálari málverkasýn-
ingu í boði Listasafns Skagfirð-
inga. Hringur sýnir þarna 42
myndir og er þetta sölusýning
sem stendur Sæluvikudagana.
Þá verða tvö leikrit sýnd í
vikunni. Leikfélag Skagfirðinga
sýnir „Húrra krakka“ og Leikfé-
lag Siglufjarðar „Fjölskyld-
una“. Á sæluviku munu og tveir
kórar úr héraðinu - Karlakórinn
Heimir og Rökkurkórinn,
syngja fyrir Skagfirðinga. Ekki
má gleyma dansleikjunum sem
verða tveir í upphafi vikunnar-
föstudag og laugardag - og þrír
síðari helgina, fimmtudag,
föstudag og laugardag.