NT - 14.03.1985, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 14. mars 1985 4
Ný símstöð tekin í notkun á Keflavíkurflugvelli:
Kanarnir varöir fyrir
íslensku kvenþjóðinni?
■ IMeð nýrri sjálf'virkri sím-
slöð sem nýlega hefur verið
tckin í notkun á Keflavíkurflug-
velli hafa öll símasamskipti fólks
utan vallar við hermenn og
starfsmenn vamarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli mjög verið tor-
velduð. Öllum almennum sím-
um í íbúðarskálum hermanna á
Vellinum, svo og síma útvarps-
stöövarinnar og mörgum vinnu-
staðasímum hefur nú algerlega
verið lokaö fyrir öllum samtöl-
um bæði inn á völlinn og út af
honum. Sömulciðis hefur nú
verið lokað öllum beinum síma-
númerum milli Keflavíkurvallar
og Reykjavíkur (höfuðborgar-
svæðisins) cn um áratugi hefur
verið hægt að hringja í þau frá
Rcykjavík til Keflavíkur eins og
um innanbæjarsímtöl væri að
ræða. Nýja símstöðin hefur
svæðisnúmer 92 eins og aðrar
símstöðvar á Suðurnesjum.
Samkvæmt upplýsingum er
NT hefur frá starfsmanni á
Keflavíkurvelli hefur t.d. verið
mjög algengt að íslendingar
fengju á nóttunni leikin óskalög
í útvarpsstöðinni á Keflavíkur-
velli - sérstaklega áður en Rás
2 kom til sögunnar-en nú hefur
algerlega verið lokað fyrir þá
þjónustu.
Að sögn Friðþórs Eydals,
blaðafulltrúa varnarliðsins, er
merkasta breytingin á símamál-
um, með tilkomu hinnar nýju
símstöðvar sú, að nú fyrst verð-
ur hægt að fullnægja þeim regi-
um og kvöðuni sem settar eru á
notkun á símum bandaríska
hersins í öllum öðrum herstöðv-
um þeirra víðs vegar um heim.
„Það eru allsstaðar mjög strang-
ar reglur um þessa síma - sam-
svarandi reglum fyrirtækja og
stofnana þar sem haft er eftirlit
með því að starfsmenn séu ekki
að nota síma fyrirtækisins í
einkaþágu. Menn hringjahvergi
út af þessum herstöðvum nema
fyrir eigin reikning og þá úr
símasjálfsölum. í náinni framtíð
er líka gert ráð fyrir að slíkir
símaklefar verði settir upp hér
á Vellinum bæði á vinnustöðum
og víðar, þannig að menn geti
hringt út af Vellinum, ef þeir
þurfa á að halda. En þau símtöl
verða öll á þeirra eigin kostnað
en ekki hersins," sagði Friðþór.
Hann tók fram að einhverjir
símar verði að vísu opnir áfram
á vinnustöðum, en það verði þá
á skrifstofum yfirmanna. Að
sjálfsögðu gefist mönnum einn-
ig - hermönnum sem öðrum -
kostur á að fá sér síma í íbúðir
sínar sem þeir borga þá fyrir
sjálfir eins og hverjir aðrir síma-
notendur hér á landi.
Nýja símstöðin á Keflavíkur-
flugvelli hefur númer 52000 og
verða samtöl enn að fara í gegn
um skiptiborð. Hins vegar er
búist við að innan tveggja mán-
aða verði hægt að hringja beint
úr og í alla opna síma á Kefla-
víkurvelli án þess að fara í gegn
um skiptiborð, eins og er'með
önnur símanúmer hér á landi.
Mun þessi breyting á Keflavík-
urvelli upphaf þess að breyta
öllum símanúmerum á Suður-
nesjum í 5 stafa númer, sem
áætlað er að verði innan tveggja
ára.
Tvíbura-
afmæli
■ Á morgun, 15. mars,
eiga sextugsafmæli tvíbura-
systurnar Guðbjörg og
Margrét Ámundadætur,
Minna-Núpi í Gnúpverja-
hreppi í Árnessýslu.
Tónlistarsjóður
Ármanns
Reynissonar:
Úthlutun
r u w v
i jum
Landssamband
bakarameistara
á móti virðis-
aukaskatti:
Óhagræði
bæði fyrir
fyrirtæki
og neyt*
endur
■ „Upptöku virðisauka-
skatts virðist fyrst og
fremst ætlað aö auka tekj-
ur ríkissjóðs, þótt yfirlýst
markmiö sé allt annað. Sá
fjárhagslegi ávinningur
ríkissjóðs mun þó skjótt
eyðast, þar sem fram-
kvæmd virðisaukaskatts-
ins verður ríkissjóði marg-
falt dýrari cn núgildandi
söluskattskerfisegir í
samþykkt aðalfundar
Landssambands bakara-
meistara, sem lýsir ein-
dreginni andstöðu við
framkomið frumvarp um
virðisaukaskatt. „Verði
frumvarpið að Iögum hef-
ur það í för með sér marg-
víslegt óhagræði bæði fyrir
fyrirtæki og hina almennu
neytendur", segir í sam-
þykktinni.
LABAK telur ekki þörf
á að taka upp virðisauka-
skatt til að koma í veg
fyrir þau óæskilegu upp-
söfnunaráhrif núverandi
söluskatts á samkeppnis-
stöðu íslenskra atvinnu-
vega, sem hörðustu bar-
áttumenn fyrir virðisauka-
skatti hafi lagt hvað mesta
áherslu á að hverfi með
tilkomu hans. Þau upp-
söfnunaráhrif sé hægt að
koma í veg fyrir með lag-
færingum á núverandi
söluskattskerfi. Skorar
aðalfundurinn á Alþingi
að snúa sér að því verki og
hverfa frá hugmyndum um
það bákn sem virðisauka-
skatturinn sé.
■ Félagar í björgunarsvcitinni Ingólfur við nýja beltabílinn sem aka má jafnt á malbiki sem snjó.
■ Næsta úthlutun úr
Tónlistarsjóði Ármanns
Reynissonar verður í byrj-
un júní n.k. og þurfa um-
sóknir að hafa borist fyrir
1. maí. Úthlutunarfé
sjóðsins nemur 100 þús-
und krónum. Óskað er
eftir að umsækjendur hafi
tónlist að aðalstarfi og
hafi hug á að semja eða
flytja tónverk, innan lands
eða utan, eins og segir í
frétt frá sjóðnum.
Stjórn sjóðsins skipa frú
Ólöf Pálsdóttir mynd-
höggvari, Baldvin
Tryggvason sparisjóðs-
stjóri, Knútur R. Magnús-
son tónlistarfulltrúi og
Ármann Reynisson fram-
kvæmdastjóri. Umsóknir
skulu stílaðar á Tónlistar-
sjóð Ármanns Reynisson-
ar, Laugavegi 97, Reykja-
vík.
Einu sinni hefur verið
úthlutað úr sjóðnum. Það
var til Áskels Mássonar
tónskálds, sem síðar skil-
aði styrkfénu aftur.
■ Slysavarnadeildin Ingólfur
hefur nýverið fest kaup á nýrri
beltabifreið sem aka má jafnt á
malbiki sem snjó og kemur því
væntanlega að miklum notum
við björgunar- og hjálparstörf á
höfuðborgarsvæðinu, en
undanfarna vetur hefur það sýnt
sig að full þörf er á slíkri bifreið
innan borgarmarkanna.
Bifreiðin er 5 tonn að þyngd
og búin 160 ha. vél með túrbínu
og kostar fullbúin um tvær mill-
jónir.
Einnig hefur deildin pantað
frá Bretlandi 25 feta björgunar-
bát úr harðplasti og gúmmíi.
Hann er að hluta yfirbyggður og
gengur allt að 28 mílur. Ætlunin
er að nota hann til björgunar-
starfa á hafnarsvæði Reykjavík-
ur og Faxaflóa þar sem um 1000
opnir fiskibátar, skemmtibátar,
skútur og óskráðir opnir bátar
Hár við
Pals-
hraun
■ Hái, hársnyrtistofa í Hafn-
arfirði, llutti nýlega í nýtt
húsnæði á horni Hjallabrautar
og Dalshrauns, eftir að hafa
starfað í liðlega 4 ár við Strand-
götuna.
Eigandi stofunnar er Hall-
berg Guðmundsson, hárskcra-
mcistari, en þar starfa cinnig
Þóra Eiríksdóttir, Hildur
Hauksdóttir og Kristín Há-
konardóttir.
Á myndinni er Hallberg og
starfsfólk stofunnar í hinu nýja
húsnæði hennar.
Mvnd: M. Hjörlcifsson.
eru gerðir út. Þessi bátakaup
eru hluti af átaki í endurnýjun
björgunarbáta víða um land og
eru þrír aðrir væntanlegir, til
Grindavíkur, Sandgerðis, og
Hafnar í Hornafirði, á tímabil-
inu frá apríl til maí. Kaupverð
bátanna verður um tvær og hálf
milljón. Þess má geta að bátarn-
ir, sem koma til Reykjavíkur og
Grindavíkur, verða með belg
ofan á stýrishúsinu sem blása
má út með einu handtaki ef
bátnum hvolfir og réttir hann
sig þá við.
Þá er fyrirhugað að byggja
við húsnæði björgunarsveitar-
innar, Gróubúð á Grandagarði,
til að skapa betri aðstöðu til að
geyma tæki sveitarinnar og
halda þeim við, stækka stjórn-
stöð hennar, björgunarskóla og
fundaraðstöðu, en starfsemi
björgunarsveitarinnar Ingólfs
hefur vaxið mjög síðustu árin.
Allt starfið er unnið í sjálfboða-
liðavinnu og fjár til tækjakaupa
hefur verið aflað með sölu
merkja og jólatrjáa, en vegna
hins mikla átaks sem nú er
framundan hefur sveitin ráðist í
sérstakt fyrirtækjahappdrætti,
þ.e.a.s. miðarnir verða fyrst og
fremst boðnir fyrirtækjum í
Reykjavík. Vinningarnir eru
hinir vinsælu bílsímar.