NT - 14.03.1985, Side 14
Fimmtudagur 14. mars 1985 14
ur umsjá með þáttunum og
þeir verða framvegis vikulega
á sama tíma. Þættirnir verða
bæði í leiðbeiningaformi til
aldraðra, svo og fjallað um
mál þeirra frá fleiri sjónar-
hornum.
I þættinum í dag ætlar Þórir
að ræða um niðurfellingar af-
notagjalda síma, sjónvarps og
liljóðvarps, en þar er ekki
alveg um einfalt mál að ræða,
þar sem um þær gilda tvenns
konar reglur, sínar frá hvorum
ráðherranum. Gildir ein sér-
regla um niðurfellingu á af-
notagjaldi síma og svo önnur
regla, ef menn vilja fá niður-
fellingu afnotagjalda útvarps
og sjónvarps.
Þórir segir okkur að á öllu
landinu séu 8198 manns 67 ára
og eldri, sem hafa óskerta
tekjutryggingu, en það eru rétt
tæplega 40% af öllum ellilíf-
eyrisþegum á landinu. „Þetta
er mjög stór hópur sem hefur
þá einungis til framfærslu líf-
eyri almannatrygginga, sem
segir okkur geysimikið um
fjárhag þessa fólks,“ segir
Þórir.
Það er því full ástæða fyrir
ellilífcyrisþega að fylgjast með
þeim réttindum, sem þeim þó
ber, því að ekkert berst þeim
upp í hendurnar nema þeir
beri sig eftir björginni. Þættir
Þóris eru m.a. sem áður segir
ætlaðir til að kynna öldruðum
þann rétt sem þeir hafa.
■ Ágúst Guðmundsson er leikst jóri og Guðrún Þ. Stephensen
leikur aðalhlutverkið. Hér sjást þau hæði við upptöku á
jólaleikriti sjónvarpsins Gullnahliöinu.
Nýtt leikrit Andrésar:
„Gréta Garbó fær hlutverk“
■ I kvöld kl. 20.00 verður
flutt riýtt úvarpsleikrit eftir
Andrés Indriðason: „Gréta
Garbo fær hlutverk".
Söguþráður leikritsins er á
þessa leið:
Kvikmyndaleikstjóri nokk-
ur og aðstoðarstúlka hans eru
að leita að heppilegum stað
fyrir lokaupptöku í kvikmynd.
Þau fá að skoða gamalt hús,
þar sem allar aðstæður eru
hinar ákjósanlegustu. Eigandi
hússins, sem er eldri kona, er
himinlifandi yfir tilbreyting-
unni sem hún á í vændum og
vill allt fyrir gesti sína gera.
Ekki verður ánægja hennar
minni þegar leikstjórinn fær þá
hugmynd að láta köttinn henn-
ar fá veigamikið hlutverk í
kvikmyndinni.
Leikendur eru: Guðrún Þ.
Stephensen, Edda Heiðrún
Backmann, Egill Ólafsson og
Ketill Larsen. Leikstjóri er
Ágúst Guðmundsson en tækni-
maður Runólfur Þorláksson.
Síðustu tónleikar Backhaus
■ Andrés Indriðason, rithöf-
undur hefur skrifað leikritið
sem heyrist í útvarpinu í kvöld
- „Gréta Garbo fær hlutverk“.
■ Runólfur Þorláksson,
tæknimaður hjá Útvarpinu,
sér um tæknihliðina við upp-
töku leikritsins.
- en hann fékk einmitt slag á þeim
■ Kl. 23 í kvöld hefst Músík-
vaka Odds Björnssonar í út-
varpinu. Við spurðum Odd
hvað hann hygðist hafa á boð-
stólum í þetta skipti, en mörg-
um þykir þægilegur enda-
punktur á deginum að fá hug-
ljúfa músík í fylgd með sér í
draumalandið.
„Ja, það er nú svolítið
óvenjulegt í þetta skiptið,"
sagði Oddur. „Það er síðasti
konsert Wilhelms Backhaus,
sem haldinn var í kirkju í
Austurríki, en hann fékk heila-
blæðingu á meðan á hljóm-
leikunum stóð og dó tveim
dögum síðar - 85 ára að aldri.
Píanóleikarinn Wilhelm
Backhaus fæddist 26. mars
1884 í Lcipzig. Hann varekki
nema 8 ára þegar hann kom
fyrst fram á tónleikum og 16
ára hélt hann sína fyrstu tón-
lcika erlendis, í London. Síðan
átti hann langan og heilla-
drjúgan feril við tónleikahald
og hljómplötuupptökur um all-
an heim og var sérstaklega
viðurkenndur sem túlkandi á
verkum Beethovens.
Og Beethoven var einmitt á
efnisskrá hans á þessum síð-
ustu tónleikum, síðasta sónata
hans nánar tiltekið, sem ekki
þykir barnaleikur að fást við.
En eftir slagið treysti Backhaus
sér ekki til að eiga við hana, þó
að hann léki tónleikana til
enda. Hann valdi í staðinn
auðveldari verk eftir Schubert
og Schumann.
„Það er alveg furðulegt hvað
hann spilar vel á þessari plötu
sem gerð er eftir beinni upp-
töku á tónleikunum, en hefur
ekki fengist á almennum mark-
aði. Jafnvel eftir slagið," sagði
Oddur.
■ Oddur Björnsson er með óvenjulegt efni í Múskíkvöku í
kvöld.
Utvarp kl. 21.40:
Þjódsagnapersónan
María Maack
■ Minnisstætt fólk nefnist
þáttur, sem verður á dagskrá
útvarps kl. 21.40 í kvöld.
Undirtitill er „Guðhrædd bæði
og mikilmenni," og það er
Emil Björnsson sem segir þar
frá kynnum sínum af Maríu
Maack.
„María Maack var ekki smá
í neinu, hún var stór í öllu,“
segir Emil Björnsson þegar við
biðjum hann að segja okkur
örlítið frá höfðingskonunni
Maríu Maack, sem varð þjóð-
sagnapersóna í lifanda lífi, en
hún dó 9. mars 1975.
María fæddist 1889 að Stað
í Grunnavík, en þar var faðir
hennar prestur. Hún stundaði
nám í hjúkrun og starfaði um
áratuga skeið sem hjúkrunar-
kona, byrjaði feril sinn á holds-
veikraspítalanum í Laugar-
nesi, vann síðan við Franska
spítalann við Frakkastíg um
tíma, en lengstan feril átti hún
við Farsóttarhúsið í Reykja-
.vík, yfir fjóra áratugi. Þangað
kom fólk hvaðanæfa af land-
inu, sem fékk farsótt og þurfti
að setja í sóttkví. „Það þýddi
að hún hafði sjúklinga af öllu
landinu og margir þeirra þótt-
ust eiga henni líf að launá.
Hún var ákaflega nærfærin við
sjúka, en hún var ekkert lamb
að leika við fyrir þá sem vildu
skera við nögl framlög til þeirr-
ar starfsemi sem þurfti til að
hjálpa sjúkum og standa straum
af mannúðarmálum," segir
Emil Björnsson, sem þekkti
Maríu vel og lengi, og bætir
við að hún hafi verið mjög
hörð fyrir hönd sinna skjól-
stæðinga.
En María lét ekki við það
eitt sitja að sinna sjúkum og
hrjáðum. Hún var mjög fram-
arlega í Sjálfstæðisilokknum
og var lengi formaður Hvatar.
Hins vegar segir Emil hana
hafa verið hafna yfir alla flokka-
drætti, þar sem hún hafi sett
manngildi ofar flokksgildinu.
Og þá má ekki gleyma ferða-
lögunum, en María var urn
árabil „ókrýnd drottning
óbyggðanna," segir Emil.
Hann segir hana líklega hafa
wm
■ María Maack er öllum
minnisstæð sem henni kynnt-
ust.
átt ferðamet allra kvenna,
a.m.k. á sinni tíð. Hún ferðað-
ist með miklum glæsibrag, tók
með sér margt fólk og sá til
þess að ekkert skorti í viður-
gerningi öllum. Hún heimsótti
æskubyggð sína á Stað í
Grunnavík oft og iðulega, sá
til þess að kirkjunni þar væri
sýnd full virðing, lét mála liana
og halda henni við, þó að
engin séu sóknarbörnin þar
lengur. Og auðvitað var mess-
að í kirkjunni að hennar undir-
lagi. „Hún var smákóngur eða
stórdrottning hvar sem hún
fór,“ segir Emil Björnsson.
Alls verða þættirnir 5-6, sem
Ernil Björnsson flytur um
minnistætt fólk. Nk. fimmtu-
dag ætlar hann að segja frá
Hendrik Ottóssyni.
■ Sjónvarp og útvarp styttir mörgum öldruðum stundirnar.
Fyrir nokkrum árum söfnuðu vistmenn í þjónustuíbúðum aldr-
aðra við Dalbraut fyrir vídeótæki með kaffisölu og hér er verið
að tengja það við sjónvarpskerfiö. Ekki eiga þó allir aðgang að
vídeói, en flestir reyna að veita sér sjónvarp. Hvernig er hægt að
fá afnotagjöldin niðurfelld?
Utvarp kl. 10.45:
Málefni aldraðra:
Niðurfelling afnota-
gjalda síma, útvarps
og sjónvarps
■ í dag kl. 10.45 hefst þátta- málefnum aldraðra. Það er
röð í útvarpi, sem hclguð er Þórir S. Guðbergsson sem hcf-
Fimmtudagur
14. mars
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Málræktarþáttur. Endurt. þáttur
Baldurs Jónssonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Sigunreig
Guðmundsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Agnarögn“ eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur Páll H.
Jónsson, Heimir Pálsson og Hildur
Heimisdóttir (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. ■
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraðra Þáttur I umsjá
Þóris S. Guðbergssonar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Sagt hetur það verið“ Hjálm-
ar Arnason og Magnús Gíslason
sjá um þátt af Suðurnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Guð-
laug María Bjarnadóttir. (RÚVAK).
13.30 Tónleikar
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot Bryndís Viglunds-
dóttir les þýöingu sína (26).
14.30 Á frívaktinni Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar a. Nætur-
Ijóö I H-dúrop. 40 og b. Slavneskur
dans i e-moll op. 46 eftir Antonin
Dvorák. Josef Suk og Alfreö Hole-
cek leika á fiðlu og pianó. c.
Strengjakvarfett nr. 3 í es-moll op.
30 eftir Pjotr Tsjaíkovský: Vlach-
kvartettinn leikur.
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Leikrit: „Greta Garbo fær
hlutverk" eftir Andrés Indriða-
son Leikstjóri: Ágúst Guðmunds-
son. Leikendur: Guðrún Þ. Step-
hensen, Edda Heiðrún Bachmann,
Egill Úlafsson, Ketill Larsen. Píanó
leikur: Ester Andrésdóttir 12 ára.
21.05 Samleikur í útvarpssal Einar
Jóhannesson og Philipp Jenkins
leika á klarinettu og píanó. a.
„Rek" eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
b. Sónatina eftir Arthur Honegger.
c. Fantasía eftir Carl Nielsen. d.
Sónata i Es-dúr op. 167 eftir
Camille Saint-Saéns.
21.40 Minnisstætt fólk „Guðhrædd
bæði og mikilmenni" Emil Björns-
son segir frá kynnum sinum af
Maríu Maack.
22.00 Lestur Passíusálma (34)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Að lengja nóttina helst ekki
minna" UmSjón: Anna Ólafsdóttir
Björnsson. Lesari með henni: Örn-
ólfur Thorsson.
23.00 Músikvaka Umsjón: Oddur
Björnsson
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
átw
Fimmtudagur
14. mars
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
endur: Kristján Sigurjónsson og
Sigurður Sverrisson.
14:00-15:00 Dægurflugur. Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leópold
Sveinsson.
15:00-16:00 Ótroðnar slóðir Kristi-
leg Popptónlist. Stjórnendur: Andri
Már Ingólfsson og Halldór Lárus-
son.
16:00-17:00 Jazzþáttur Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
17:00-18:00 Gullöldln Lög frá 7.ára-
tugnum. Stjórnandi: Þorgeir Ást-
valdsson.
Hlé
20:00-21:00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21:00-22:00 Nú má ég Gestir i stúdíói
velja lögin ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiður Davíðs-
dóttir.
22:00-23:00 Rökkurtónar Stjórn-
andi: Svavar Gests.
23:00-24:00 Ástandið Stjórnandi:
Margrét Blöndal.
Föstudagur
15. mars
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður:
Karl Sigtryggsson. Kynnir: Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Ærslabelgirnir Sovésk teikni-
mynd um nokkra óþekka apa og
mædda móður þeirra.
19.35 Sögur frá Kirjálalandi Finnsk
teiknimynd. Þýðandi: Kristin Mán-
tylá. Sögumaður: Sigrún Edda
Björnsdóttir. (Nordvision - Finnska
sjónvarpið)
19.40 Sæti grauturinn Sovésk teikni-
mynd gerð eftir einu ævintýra
Grimmsbræðra. Þýðandi: Hallveig
Thorlacius.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
19.40 Kastljós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir.
21.15 San Francisco Þýsk heimilda-
mynd. Yfir borginni San Francisco
á vesturströnd Bandaríkjanna hvíl-
ir ævintýraljómi í hugum margra.
Fagurt umhverfi en þó einkum
fjölbreytt mannlif borgarinnar
stuðla að þessu að dómi höfunda
þessarar myndar sem lýsir lifinu
þar. Þýðandi: Eiríkur Haraldsson.
22.45 Vassa Sovésk bíómynd frá
.1982, gerö eftir leikriti Maxim
Gorki. Leikstjóri: Gleb Panfílof.
00.55 Fréttir í dagskrárlok.