NT - 14.03.1985, Page 20
r Fimmtudagur 14. mars 1985 20
Útl lönd
Framlög til rannsókna og
þróunarstarfsemi stóraukin
- raungildi framlaga aukist um 10% á næstu árum
■ Vísindafólk í Evrópu er
þessa dagana að uppgötva nýja
íeið til að afla fjár til rannsókna
sinna. Á sama tíma og sam-
keppni um styrki til rannsókna
og þróunarstarfsemi (R&Þ) í
einstökum löndum evkst
stöðugt, er gert ráð fyrir 10%
aukningu framlaga til R&Þ um-
fram verðbólgu í fjárlagafrum-
varpi Efnahagsbandalags Evr-
ópu (EBE). Ráðherrar EBE
munu greiða atkvæði um þessar
tillögur síðar í mánuðinum.
Framlög EBE til R&Þ eru
enn tiltölulega lítil og sam-
keppni um framlög til rann-
sókna og þróunarstarfsemi úr
sjóðum þess eru hörð. Níu af
hverjum tíu umsóknum um
rannsóknastyrki einnar rann-
sóknaráætlunar Efnahags-
bandalagsins hefur t.d. verið
hafnað.
Tilraunir í sambandi við þessa
rannsóknaáætlun hafa verið
stundaðar síðan í júlí 1983.
Rannsóknaáætlunin er nefnd
„hvatningaraðgerð" að sögn
Charles White sem hefur það
hlutverk að skipuleggja aukna
vísindastarfsemi á vegum EBE
í Evrópu.
Síðan 1983 hefur EBE varið
4,3 milljónum punda (um 200
milljónum kr.) í 76 rannsóknar-
verkefni þessarar rannsóknaá-
ætlunar en þau eru á sviðum allt
frá lyfja-líffræði og Ijósfræði til
þróunar útblásturskerfa og
tæknivæðingar.
Gert er ráð fyrir að ráðherrar
muni samþykkja áætlun í þess-
Umsjón: Ragnar Baldursson og Ivar Jónsson
um mánuði um að verja 37
milljónum (um 1700 milljónir
kr.) í þessa rannsóknaáætlun á
næstu fjórum árum.
Alþjóðlegt samstarf
Markmiðið með rannsóknaá-
ætluninni „Hvatningaraðgerð“
er að hvetja til samstarfs vís-
indafólks í vísindastofnunum
víðs vegar um Evrópu. Fénu er
varið til:
- að auðvelda flæði sérþekking-
ar milli vísindstofnana í Evr-
ópu, - að greiða vísindafólki
fyrir að starfa í mismunandi
löndum og - að koma á starfs-
áætlunum, en í þeim á vísinda-
fólk frá ólíkum löndum að starfa
saman að verkefnum sem hafa
skýrt skilgreind markmið með
hagnýtingu í huga.
Þegar tilraunastarfsemi í
tengsluni við rannsóknaáætlun-
ina verður lokið munu 70 vís-
indamenn frá 18 háskólum hafa
starfað saman að þróun Ijós-
rænnar tölvu.
Samstarf iðnfyrirtækja og
vísindafólks aukið
í annarri áætlun sem gert er
ráð fyrir að verði samþykkt
innan tíðar verður reynt að
koma á nánari tengslum milli
iðnfyrirtækja og vísindafólks. I
desember s.l. samþykkti ráð-
herranefnd Efnahagsbandalags-
ins ályktun um að 78 milljónum
punda (um 3500 milljónir kr)
verði varið næstu fjögur árin í
rannsóknaáætlunina „Grun-
rannsóknir og iðntækni fyrir
Evrópu" (BRITE).
BRITE er ætlað að stuðla að
þróun tækninýjunga á þróunur-
stigi þeirra áður en þær eru
markaðsfærðar og auka vísinda-
starf í Evrópu. Efnahags-
bandalagið veitir aðeins rann-
sókna- og þróunarstyrki til
rannsóknaverkefna sem tveir
aðilar úr tveim löndum hið
minnsta standa að og einn þeirra
verður þá að vera iðnfyrirtæki.
Iðnfyrirtækjunum sjálfum er
ætlað að fjármagna helming
kostnaðarins.
Um síðustu áramót höfðu
3000 aðilar sýnt áhuga á
BRITE-styrkjunum.
Eitt markmiða BRITE er að
vekja áhuga smárra fyrirtækja á
evrópskum vísindum. En Silver
segir að „það hafi ekki tekist
sem skyldi hingað til“.
New Scientist.
■ EBE vill koma á nánari tengslum milli iðnfyrirtækja og
vísindafólks. Efnahagsbandalagið vill einnig auka áhuga smárra
fyrirtækja á evrópskum vísindum.
Reagan vill fund með Gorbachev
■ George Bush varaforseti Bandaríkjanna heilsar Mikhail Gorbachev hinum nýja leiðtoga
Sovétmanna í Kreml í gær er útför Chernenkos fór fram í Moskvu. Bush mun hafa sagt
Gorbachev í gær að Reagan forseti Bandaríkjanna bjóði honum á viðræðufund en ekki er vitað
hvenær sá fundur verður eða hvar hann verður haldinn. Smumvnd Poifoto.
Bretland:
Heath á móti
stjörnustríði
London-Reuter
■ Edward Heath, fyrrverandi
forsætisráðherra Breta og einn
helsti leiðtogi breska íhalds-
flokksins, hefur lýst yfir ein-
dreginni andstöðu við hug-
myndir Bandaríkjamanna um
„stjörnustríðs" varnarkerfi út í
geimnum.
í ávarpi, sem Heath hélt fyrr
í þessari viku hjá hinni konung-
legu stofnun í alþjóðamálefn-
um, sagði hann m.a. að geim-
varnarkerfið myndi gefa Banda-
ríkjamönnum falska öryggistil-
finningu. Slíkt gæti ýtt undir
nýeinangrunarstefnu í Banda-
ríkjunum.
Heath sagðist þeirrar skoðun-
ar að þessi varnaráætlun Banda-
ríkjanna raskaði valdajafnvægi
og sóaði auðlindum. Evrópu-
menn yrðu að auka sjálfstæði
sitt í varnarmálum. Allar
endurbætur á vörnum í Evrópu
væru á ábyrgð Evrópuþjóðanna.
Hann sagði að ef svo ólíklega
vildi til að geimvamarkerfi Reag-
ans næði tilætluðum árángrfog
Sovétmenn kæmu á svipuðu
kerfi fyrir sjálfa sig, þá væri ekki
lengur hægt að treysta á kjarn-
orkuvopn til að koma í staðinn
fyrir vanmátt á sviði hetðbundms
herbúnaðar.
EBE:
Aðalfundir
deilda
KRON
verða sem hér segir:
3. og 4. deild
Aðalfundur mánudag 18. mars kl. 20.30 í Afurðasölu
SÍS, Kirkjusandi.
Félagssvæði: Laugarneshverfi, Kleppsholt, Heima- og
Vogahverfi. Hlíðarnar, Holtin,Túninog Háaleitishverfi.
1. og 2. deild
Aðalfundur þriðjudag 19. mars kl. 20.30 í Hamragörð-
um, Hávallagötu 24.
Félagssvæði: Seltjarnarnes, Vesturbær og Miðbær að
og með Rauðarárstíg og Flugvallarbraut.
5. deild
Aðalfundur mánudag 25. mars kl. 20.30 í fundarstofu
KRON í Stórmarkaðnum.
Félagssvæði: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur,
Breiðholt, Árbær og staðir utan Reykjavíkur.
6. deild
Aðalfundur þriðjudag 26. mars kl. 20.30 í fundarstofu
KRON í Stórmarkaðnum.
Félagssvæði: Kópavogur.
Dagskrá skv. félagslögum.
Kaffiveitingar.
Sjá einnig auglýsingar í verslunum KRON.
KAUPFELAG REYKJAVIKUR 0G NAGRENNIS
I.ondon-Reuter
■ í könnun sem breskt
verkalýðsfélag gerði meðal
fólks, sem vinnur mikið við
tölvuskjá, kom í ljós að
meirihluti þess kvartar yfir
slæmu heilsufari og augn-
þreytu.
Könnunin náði til gjald-
kera og afgreiðslufólks hjá
tveim breskum flugfélögum.
76% þeirra sem þátt tóku í
könnuninni kvörtuðu yfir
höfuðverk, 85% sögðust oft
hafa augnverki og kvörtuðu
yfir augnþreytu og 50%
sögðu að sjón þeirra hefði
versnað frá því að þau hefðu
byrjað að vinna við skjá.
Svipaðar kannanir á veg-
um „APEX“, sem eru sam-
tök skrifstofufólks, athafna-
manna og tölvustarfsmanna,
árið 1981 og 1983-4 leiddu í
ljós. 'að líkamleg þreyta,
vaiilíðan og streita voru
vandamál hjá mörgum sem
vinna við töívuskjá.
í skýrslu breska verkalýðs-
félagsins, sem gerði nýjustu
könnunina, segir m.a. að
niðurstöðurnar sýni að lítið
sem ekkert hefur verið gert
til að bæta vinnuaðstöðu
skjástarfsfólks þótt stöðugt
fleiri kvartanir berist um skjá-
þreytu og vanlíðan vegna
skjávinnu. Rannsóknir hafi
þó sýnt að hægt sé að draga
úr skjáþreytunni með góðu
skjávali. réttri lýsingu og
bættri vinnuaðstöðu.
Albanir
versla við
Kínverja
Vín-Rculer
■ Albanska fréttastofan
ATA hefur skýrt frá því að
albönsk yfirvöld hafi undir-
ritað verslunarsamning við
Kínverja fyrir árið 1985.
Albanir og Kínverjar voru
um tírna mjög nánir banda-
menn en upp úr vináttunni
slitnaði í lok seinasta áratug-
ar og öll verslunarsamskipti
stöðvuðust um tíma. Það var
ekki fyrr en á seinasta ári að
Albanir tóku aftur upp versl-
unarsamskipti við Kínverja.
Albanir hafa Stalín í miklum
hávegum og ásaka bæði Sov-
étmenn og Kínverja um að.
hafa yfirgefið kommúníska
stefnu.
Breskir myndbanda
bófar á undanhaldi
■ Fyrir tveim árum voru
sex af hverjum tíu upp-
teknum myndböndum á
almennum markaði í
Bretlandi ólögleg þar sem
þau höfðu verið tekin upp
án leyfis handhafa höf-
undarréttar viðkomandi
kvikmynda. Nú er þetta
hlutfall komið niður í tvær
af hverjum tíu vegna
skipulagðra aðgerða Sam-
taka gegn höfundarréttar-
þjófnaði, FACT.
Að sögn talsmanna
FACT var það óheiðarlegt
starfsfólk nokkurra kvik-
myndahúsa sem mesta
ábyrgð bar á ólöglegri
upptöku nýrra kvikmynda
upp á myndbönd. Til þess
að rekja slóð nryndband-
anna var ákveðið að
merkja nokkra mynda-
ramma í hverju kvik-
myndaeintaki þannig að
hægt yrði að sjá hvaða
kvikmyndahús hafði feng-
ið kvikmyndaeintakið sem
ólöglega upptakan var
gerð eftir.
Árangurinn lét ekki
standa á sér. Á stuttum
tíma tókst að afmarka
fimm kvikmyndahús þar
sem starfsfólkið hafði not-
fært sér aðstöðu sína til að
taka kvikmyndir upp á
myndbönd til sölu og út-
leigu.
Það er nánast ómögu-
legt fyrir myndbandabóf-
ana að sjá við merkingun-
um. Það eru um 200.000
rammar í venjulegri kvik-
mynd og þeir hafa ekki tíma
til að skoða þá alla enda birt-
ast 24 rammar á kvikmynda-
tjaldinu á hverri sekúndu.
Þótt kvikmyndabófarnir
finni nokkra merkta
ramma geta þeir heldur
aldrei verið vissir um að
þeir hafi fundið þá alla því
misjafnlega margir ramnt-
ar eru merktir á hverju
eintaki.