NT - 13.04.1985, Síða 3
Bílafríðindi:
Laugardagur 13. apríl 1985 3
Bankastjórar fá 450.000
en 400 öryrkjar ekki neitt
Leiðrétting
■ Þau mistök uröu í frétt
NT í gær af umræðum á
Alþingi að ságt var að eng-
inn þingmaður sem ætti sæti
í bankaráði hefði farið í
ræðustóf. Það er ekki rctt.
Stefán Valgeirsson, sem á
sæti í bankaráði Búnaðar-
bankans, lýsti því yfir að
bílafríðindi bankastjóranna
hefðu verið rædd á mörgum
fundum hjá þeim áöur en
formleg tillaga var
samþykkt,
Það kom fram hjá Stefáni
að bankaráðsmenn Búnað-
arbankans hefðu hins vegar
verið sammála um það að
þeir gætu ekki boðið sínum
bankastjórum upp á lakari
kjör en bankastjórar í hlið-
stæðum bönkum hefðu, þess
vegna hefði annar valkostur
verið tilgreindur í banka-
ráðssamþykktinni en sá að
bankinn legði bankastjórun-
um bifreiðar til nota.
■ „Er einhver bankastjórinn
til í aö lána dóttur minni bílinn
sinn þangað til að liún hefur efni
á að fá sér sína eigin bifreið,"
spyr Guðrún H. Guðmunds-
dóttir.
Dóttir Guðrúnar, Ragna G.
Magnúsdóttir er 65% öryrki og
er ein þeirra 400 einstaklinga
sem synjað var um leyfi til
niðurfellingar aðflutningsgjalda
á bifreið.
400 öryrkjum var synjað um
eftirgjöf af aðflutningsgjöldum
bifreiða á þessu ári. Alls sóttu
950 öryrkjar um niðurfellingu
aðflutningsgjalda til bifreiða-
kaupa en 550 leyfi eru veitt
árlega, að sögn Ásgerðar Ingi-
marsdóttur hjá Öryrkjabanda-
laginu.
Mikill urgur er í þeim ein-
staklingum sem synjað var um
leyfin sérstaklega eftir að upp
komst um ríkuleg bílafríðindi
ýmissa háttsettra manna hjá rík-
inu.
Allir sem eiga erfitt með að
komast leiðar sinnar vegna
fötlunar eða sjúkdóma eiga rétt
á því að sækja um leyfi til
niðurfellingar á aðflutnings-
gjöldum.
Forgang við úthlutun eiga
þeir að hafa sem eru 67 ára og
yngri, sömuleiðis þeir sem þurfa
að nota bíl vegna atvinnu sinnar
og þeir sem búa við erfiðan
fjárhag.
Hægt er að sækja um niður-
fellingu aðflutningsgjalda á
fjögurra ára fresti, en þeir sem
eru í efri flokki, eins og það er
kallað, t.d. fólk í hjólastólum
getur sótt um á þriggja ára
fresti. Efri flokkurinn fær út-
hlutað 40 leyfum árlega.
Hægt er að sækja um allt að
84 þúsund króna niðurfellingu
af aðflutningsgjöldum, en
niðurfellingin fer eftir verði bif-
reiðarinnar.
„Bíllinn er algerlega ómiss-
andi hjálpartæki fyrir fatlað
fólk,“ sagði Ingi H. Jónsson,
starfsmaður Ferðaþjónustu fatl-
aðra. í samtali við NT í gær.
„Ferðaþjónusta fatlaðra sér
að vísu um að aka blindu fólki
og fólki sem er mjög hreyfi-
hamlað á áfangastað, en fjöld-
inn allur af örvrkjum sem ekki
njóta þjónustu okkar kemst
ekki leiðar sinnar nema í bíl.
Fyrir fólk í hjólastól kemur
bíllinn að miklu leyti í staðinn
fyrir fætur og opnar margar dyr.
Fyrir okkur sem erum fötluð er
bíllinn ekki einungis farartæki í
venjulegum skilningi, heldur
beinlínis hjálpartæki sem gerir
okkur kleift að lifa eðlilegu lífi.
Það getur verið nær útilokað
fyrir öryrkja sem ekki hefur bíl
til umráða að stunda vinnu og
félagslíf og því er hætta á því að
félagsleg einangrun þeirra auk-
ist enn meira en hún er fyrir.
Menn mega ekki gleyma því
að fatlaðir hafa yfirleitt mjög
skerta möguleika til tekjuöflun-
ar, því er þeim ómetanlegt að
felld séu niður aðflutningsgjöld
af bifreiðum þeirra,“ sagði Ingi
H. Jónsson að lokum.
Reykjavik, y j/ 198 -5*
Varðandi umsokn þína um eftirgjöf af aðflutn-
ingsgjöldum bifreiðar á árinu 1985^ tilkynnist
þér, að við höfum því miður ekki getað orðið
við beiðninni nú, en umsókn þín verður endur
skoðuð í haust, ef einhver leyfi verða þá
til ráðstöfunar.
F. h. úthlutunarnefndar
■ Synjunarbréf það er Ragna G. Magnúsdóttir, 65%
öryrki fékk þann 1. apríl síðastliðinn.
■ „Bíllinnerleið okkartil sjálfsbjargar,“ segir IngiH. Jónsson, en bíllhanser
sérstaklega útbúinn og gerir honum kleift að komast allra sinna feröa. N t-mynd: \ri
&HOWARD
Keðjudreifari
fyrir tað og seigfljótandi mykju.
Aratuga reynsla á Islandi.
Tvær stærðir
Spr 3,0m3 verð kr. 82.500.-
Til afgreiðslu strax
Spr 4,2m3 verð kr. 103.600.-
Til afgreiðslu nú þegar.
Hafið samband við sölumenn okkar,
sem veita allar nánari upplýsingar
G/obust
LAGMÚLI 5, SlMI 81555
Flugleiðavél:
Hætti við
lendingu
á ísafirði
■ Flugleiðavél í áætlun-
arflugi sneri í fyrrakvöld
við á leið sinni til ísafjarð-
ar. Verið var að undirbúa
lendingu þegar ákvörðun
var tekin um að snúa aftur
til Reykjavíkur.
Guðmann Aðalsteins-
son, flugmaður vélarinnai;
sagði í gær í viðtali við NT
að veður hafi verið ágætt í
Djúpinu og í Skutulsfirði,
en svo hefðu þeir lent í
misvindum og hryðjum í
aðfluginu og ákveðið að
lenda ekki. Guðmann
sagði að allt hafi verið
eðlilegt að öðru leyti.
Samkvæmt heimildum
NT brá sjónarvottum á
ísafirði í brún þegar flug-
vélin kom inn til lendingar
þar sem þeim sýndist vélin
skjótast fyrirvaralaust
beint upp í loft með vara-
sömum hætti.
og litríkur
vetur
Vertu hlýlega klædd í vetur í
fallegum og hlýjum hnésokkum
eða sokkabuxum frá
Fjölmargir klæðilegir litir
Þér líður vel í
Hei.dsö'ubir9ðir:l0mI3£]
^
mmm
nterióka?
sími 82700