NT - 27.04.1985, Blaðsíða 2

NT - 27.04.1985, Blaðsíða 2
Irvr-Ii Laugardagur 27. apríl 1985 Línur teknar að skýrast á alþióð- lega skák- mótinu í Borgamesr. ■ Tékkneski stórmeistar- inn Karel Mokry hefur tek- ið forystuna þegar þrjár umferðir eru að baki á al- þjóðlega skákmótinu í Borgamesi. Hann vann bið- skák sína við Magnús Sól- mundarson úr 1. umferð og síðan fylgdi góður sigur yfir heimsmeistara unglinga Curt Hansen. í þriðju um- ferð gerði hann svo stutt jafntefli við William Lomb- ardy. Eftir rólega fyrstu umferð voru skákmennirnir í meira bar- áttuskapi í næstu umferð, von- andi þó ekki vegna þess að um fá raunveruleg „uppgjör" var að ræða. Mokry sannaði styrk sinn og vann Curt Hansen þó hann stýrði svörtu mönnunum og þeir Margeir og Karl sigruðu Hauk og Magnús örugglega. Anatoly Lein sigraði Dan Hans- son áreynslulaust en Lombardy og Jansa gerðu stutt jafntefli. í>á gerðu Sævar og Guðmundur jafntefli eftir flókna baráttu. Guðmundur bauð jafntefli með peði meira en staða hana var ótraust og jafnteflistilboðið skiljanlegt. 2. umferð: Dan - Lein 0:1 Lombardy - Jansa Vr.Vi Karl - Magnús 1:0 Sævar - Guðmundur Vr.Vi Hansen - Mokry 0:1 Margeir - Haukur 1:0 í 3. umferðgerðistfáttóvænt. Guðmundur vann Dan örugg- lega og Curt sigraði Magnús. Stutt jafntefli varð t' skákum Mokry og Lombardy og Lein og Karls. Meiri barátta varð í viðureign Jansa og Margeirs en að lokum þráléku keppendur. Skák Hauks og Sævars fór tvisv- ar í bið. Mokry efstur en fjór- ir koma á hæla honum 3. umferð: Guðmundur - Dan 1:0 Lein-Karl Vr.Vi Haukur - Sævar biðskák Jansa - Margeir Vr.Vi Mokry - Lombardy Vr.Vi Magnús - Hansen 0:1 í gær fór svo fram 3. umferð og er greint frá úrslitum hennar á öörum stað í blaðinu. Eftir þrjár fyrstu umferðirnar eru lín- ur mjög farnar að skýrast og það á þann veg sem búast mátti við. Ekkert hefur komið veru- lega á óvart en þó vekur ánægju góð frammistaða hins nýbakaða Islandsmeistara Karls Þor- steins. Staðanerþessi: 1. Mokry 2 Vi v. 2.-5. Margeir,- Guð- mundur, Lein og Karl allir með 2 vinninga. 6.-8. Hansen, Lombardy og Jansa 1 Zi\. hver. 9. Sævar 1 v. + biðskák. 10. Haukur Vi v. + biðskák. 11. Dan Vi v. 12. Magnús 0 v. Tékkinn Mokry stendur vel að vígi þó ómögulegt sé að sjá fyrir hvernig málin þróast. Sig-. urskák hans við Curt Hansen er hér til umræðu. Ég þykist greina nokkur helstu einkenni tékkneska skákskólans, dálítið grugguga byrjunartaflmennsku sem þróast hægt og bítandi svörtum í hag. Þarna gægjast fram svo ekki verður um villst helstu merkisberar tékkneskra skáklistar Vlastimil Hort og Jan Smejkal: Alþjóðlega skákmótið í Borg- arnesi. 2. umferð Hvítt: Curt Hansen Svart: Karel Mokry Enskur leikur 1. c4 e5 3. g3 Be6 2. Rc3 d6 (Sjaldséður leikur en ég minnist þess þó að hafa séð Hort tefla þannig.) 4. Bg2 c6 8. 0-0 a5 5. d3 Rf6 9. f4 Ra6 6. e4 Be7 10. h3 b5 7. Rge2 0-0 (Svartur reynir strax að skapa sér mótspil á drottningarvængn- um.) 11. cxb5 Db6+ 12. d4 (Til greina kom að víkja kóngn- um undan og hefja síðan peða- sókn á kóngsvæng. Eftir texta- leikinn vill peðamiðborð hvíts verða helst til viðkvæmt og það tekst Mokry að notfæra sér.) 12. .. cxb5 14. Ra4 13. Be3 b4 (Þessi riddari kemst ekki í spilið aftur fyrr en í 30. leik og þá um seinan.) 14.. . Db5 17. Rxf4 d5! 15. b3 Had8 18. e5 Re4 16. g4 exf4 (Svörtum hefur tekist að ná örlítið betri stöðu þó án þess að hægt sé að benda.á svo óyggj- andi sé hvað fór úrskeiðis.) 19. Rxe6 (Þessi uppskipti máttu bíða. Ofan á aðra erfiðleika þarf hvít- ur nú að mæta margvíslegum hótunum svarts eftir f - línunni.) 19. .. fxe6 22. Hxc8 Hxc8 20. Hcl Rg3 23. Bf4 Re4 21. Hel Hac8 24. Bxd4 (Hvítur afræður að hirða peðið en við það myndast ýmsir veik- leikar eftir skálínunni 85 - hl.) 24. .. dxe4 27. Hel Hf8 25. Hxe4 Dc6 28. Hcl Db7 26. Dd3 Rc7 29. Bd2?! (Traustara var 29. Hfl og þó svartur hafi greinilega góð færi' fyrir peðið er ekki öll nótt úti. Én hvítur er ekki alveg búinn að missa af lestinni.) 29.. . Bh4 ■ Tékkneski stórmeistarinn Karel Mokry hefur tekið forystuna eftir þrjár umferðir, hefur hlotið 2 Vi' vinning. Með 2 vinninga eru Guðmundur Sigurjónsson, Margeir Pétursson, Karl Þorsteins og Anatoly Lein. Ilfl éi A IA11 IA A 30. Rc5? (Riddarinn kemur nú til skjal- anna enda lengi búinn að vera úti í kuldanum. En eftir þennan leik verður hvítu stöðunni ekki bjargað. Með því að leika 30. Hfl gat hvítur enn barist. Hann hefur e.t.v. óttast 30. - Hxfl + 31. Dxfl De4 en með 32. Dc4! heldur hann enn í horfinu. Þá strandar 32. - Rd5 á 33. Dc8+ Kf7 34. Dxe6+! Kxe6 35. Rc5+ og hvítur vinnur. í stað 32. - Rd5 má reyna 32. - Df3. Ridd- arinn á c7 er friðhelgur vegna máts í nokkrum leikjum en með 33. Dfl! getur hvítur varist.) 30. .. Bf2+ 31. Kh2 Dd5! (d4 - peðið riðar tilfalls og um leið hvíta staðanj 32. Hc4 Rb5 33. Be3 (Eða 33. De4 Bxd4 og svartur vinnur létt.) 33... DO! - Hvítur er varnarlaus enda kaus Hansen aðgefast upp. í’þessari umferð lagði Margeir Pétursson Hauk Angantýsson að velli í laglegri skák sem hér fer á eftir: Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Haukur Angantýsson Kóngsindversk vörn 1. d4 d6 2. c3 e5 3. Rc3 Rd7 4. Rf3 g6 5. e4 Bg7 6. Be2 Rgf6 7. 0-0 0-0 8. Hel c6 9. Bfl a6 10. Hbl b5 11. b4 exd4 12. Rxd4 Bb7 13. Bg5 Dc7 14. Hcl bxc4 15. Bxc4 Db6 16. Ra4 Dc7 17. Bd5 c5 18. Rb3 Bxd5 19. exd5 c4 20. Ra5 Re5 21. Hxe5 dxe5 22. d6 Db8 23. a3 h6 24. Be3 Db5 25. Rc5 Iffd8 26. Hxc4 Bf8 27. a4 De8 28. Rab7 Hdb8 29. d7 De7 30. Ra5 Hd8 31. Rc6 Dd6 32. Dxd6 Bxd6 33. Rxd8 Hxd8 34. Re4 Rxe4 35. Hc8 Bc7 36. Hxc7 Kf8 37. Bc5+ Rxc5 38. bxc5 Ke739. c6 Hb8 - svartur féll, en eftir 40. Hc8 er staða hans vitaskuld gertöpuð. Helgi Olafsson skrifar um skák Ævintýraheimur íslenskra hraunhelia ■ Hraunhellar á Islandi heitir erindi sem flutt verður á mánudaginn á vegum Hins íslenska nátt- úrufræðifélags í stofu 201 í Árnagarði og hefst kl. 20.30. Arni B. Stefánsson augnlæknir ræðir um hella og sýnir litskyggnur. Þetta er síðasti fyrirlest- urinn á þessum vetri en nú taka við leiðbeininganám- skeið og sumarferðir á vegum félagsins. Tvö leið- beininganámskeið verða í maí, annað um þörunga í fjörum og hitt um stein- gervinga og för eftir löngu liðnar lífverur. Auk þess verður farið í fuglaskoð- unarferðir um Reykjanes og veitir Náttúrufræði- stofnun íslands allar frek- ari upplýsingar. Héraðsvakan: Bör Börsson í eiginpersónu - en ekki leikritið ■ Leikritið um Bör Börsson verður ekki sýnt á Héraðsvöku á Egilsstöð- unr í kvöld, eins og misrit- aðist í NT á miðvikudag, heldur mætir Bör sjalfur á staðinn, ásamt fylgdarliði sínu úr heimabyggðinni, til að skemmta Austfirð- ingum. Fimm ár eru nú liðin frá því að Bör var síðast á fjölunum í Valaskjálf, og ætlar hann að minnast þeirra tímamóta með há- tíðarhaldi. Bóksala stúdenta: Tölvubókasýning í Félagsstofnun ■ Bóksala stúdenta gengst fyrir sýningu á nýj- um bókum um tölvur og tölvufræði frá bandaríska bókaforlaginu Prentice Hall, dagana 29. apríl til 3. maí. Sýningin fer fram í húsakynnum Félags- stofnunar stúdenta og verður fulltrúi forlagsins á staðnum og veitir upplýs- ingar. Jónasi líkt ■ Löngum hefur staðið styr um Jónas frá Hriflu. I lifanda lífi átti hann sér marga einlæga aðdáendur og trygga fylgismenn gegnum þunnt og þykkt og jafnframt hat- rama andstæðinga. Þótt nokkuð sé um liðið síðan Jónas burtkallaðist úr veraldarvafstrinu og hafði um mörg ár setið á friðarstóli áður en hann lést eru enn mjög skiptar skoðanir um skörunginn og athafnasemi hans alla í lifanda lífi. Nú á aðreisa Jónasi minnismerki og er verið að ganga frá undirstöðum þess gegnt Arnarhvoli, sem Jónas lét byggja á sínum tíma. Þar í nágrenni eru fleiri opin- 'berar byggingar sem óhjákvæmilega tengj- ast nafni hans, svo sem hús Hæstaréttar og Þjóðleikhúsið. Sumum þykir nóg um að reisa minnis- merki á þessum stað og eru því mjög mótfallnir, þótt lítið beri á í opinberri umræðu. Mál þetta var til umræðu í hópi kaffiþambara sem fátt láta sér óviðkomandi og sýndist sitt hverjum. Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur sló botninn í umræðuna með þessari athugasemd: „Þetta væri ekki Jónas ef hann væri ekki fyrir neinum.“ Bara að hann Halldór setji ekki á okkur kvóta Eining á Akureyri: 20 milljónir í at- vinnuleysisbætur ■ Atvinnuleysisbætur til félaga verkalýðsfé- lagsins Einingar á Akur- eyri námu nálægt 20 milljónum á síðasta ári og dagpeningar og styrk- ir úr sjúkrasjóði féiagsins voru 3.1 milljón króna. Þetta kom m.a. fram í máli Jóns Helgasonar for- manns Einingar á aðalfundi félagsins, sem haldinn var sunnudaginn 21. apríl síð- astliðinn. Það kom einnig fram í máli Jóns Helgasonar, að aðalfélögum í Einingu fækkaði um liðlega 100 frá aðalfundi 1984, og eru þeir nú 3200. Aukafélögum fækkaði um meira en 200 og eru þeir nú 646. Starf Einingar var mei hefðbundnum hætti á síð asta ári, en auk þess hefu mikil vinna verið bundii framkvæmdum við bygg ingu nýja verkalýðshússin að Skipagötu 14. Um síð ustu áramót hafði Eininj lagt 15 xh milljón króna ti byggingar hússins. Fram kvæmdir við húsið eru lang komnar og er búist við, ai Eining flytji þangað inn un næstu mánaðamót. Aðeins einn listi var bor inn fram til stjórnarkjörs ; aðalfundinum og var ham sjálfkjörinn. Formaður fé lagsins er sem fyrr Jói Helgason og varaformaðu er Sævar Frímannsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.