NT - 27.04.1985, Blaðsíða 9

NT - 27.04.1985, Blaðsíða 9
■ Miðvikudaginn 1. maí verð- ur síðasta verk Jóhanns Sebasti- ans Bach, Die Kunst der Fuge, flutt í Bústaðakirkju á vegum Kammermúsíkkiúbbsins. Með þessum flutningi vill Kammer- músíkklúbburinn heiðra minn- ingu tónsnillingsins á 300 ára afmæli hans, en rannsóknir tón- listarsagnfræðinga klúbbsins benda til þess, að þetta verk hafi ekki fyrr verið flutt á ís- landi. Flytjendur verða Sinn- hoffer-strengjakvartettinn frá Múnchen og Ragnar Björnsson organleikari. Die Kunst der Fuge - háttatal fúgunnar - er síðasta stórverkið sem Bach samdi. Hann var þá á sjötugsaldri, í listum var upp komin ný stefna, og ströng form barokktímabilsins voru ekki metin sem fyrr. Bach ákvað að sýna í einu tónverki það full- komnasta, sem gáfa hans- og lærdómur megnuðu á sviði hins strangasta tónlistarforms, fúg- unnar, eftirkomendum til um- hugsunar. Eða, eins og segir í ritgerð Reynis Axelssonar stærðfræðings aftan á kápu nýj- ustu sembalplötu Helgu Ingólfs- dóttur, þá virðist svo sem á efri árum hafi Bach ákveðið að taka ekki lengur mið af samtíð sinni, „hann var farinn að treysta á framtíðina. Síðustu árin sem hann lifði notaði hann að mestu til að ganga frá ýmsum eldri verkum, lagfæra þau og búa í hendur seinni kynslóða; þetta var á tímum þegar sjaldgæft var að tónlist lifði höfunda sína, og mikið af þessum handritum Bachs er glatað. Hann samdi minna en áður, og síðustu verk hans búa yfir háleitri stærð- fræðilegri fegurð sem er óháð og ósnortin af stefnum og tískum; þau eru skrifuð fyrir eilífðina sjálfa." Bach entist ekki aldur til að fullljúka Die Kunst der Fuge, handriti hans eru hljóðfæri ekki tilgreind. 1 flutningi Kammer- músíkklúbbsins verða fúgurnar fimm leiknar af strengjakvartett en kanónarnir fjórir á orgel. Tónleikarnir í Bústaðakirkju hefjast kl. 20.30 hinn 1. maí. Öllum er heimill aðgangur, jafnt félögum Kammermúsík- klúbbsins sem öðrum. S.St. VOR - 1985 Ýmsar búvélar á mjög góðu verði: 4 ~s ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900 Bændur! Athugið hið fjölbreytta úrval búvéla sem við eigum á lager - eða pöntum með stuttum fyrirvara. Hafið samband við sölumenn okkar, eða kaupfélögin um land allt. Ávinnsluherfi Vinnubreidd 3,05 m Verð kr. 9.240.- Flagjafnarar Vinnubreidd 2,2 m Verð kr. 16.980.- Áburðardreifarar Rúmtak 210 1 - 1000 1 Verð frá kr. 9.350.- Plógar 1 skera brotplógur Verð kr. 19.800.- Bronson berst við fasistana Hið illa er menn gjöra (The Evil That Men Do). Bandaríkin 1984. Handrit: David Lee Henry og John Crowther, eftir sögu R. Lance Hill, sem byggir á sannsögulegum at- burðum. Leikendur: Charles Bronson, Theresa Saldana, Joseph Maher, Raymond St. Jacques, Jose Ferrer, Rene Enriquez, John Glover, Nicole Thomas. Leikstjóri: J. Lee Thompson. ■ EnnánýtekurCharlesBronson að sér að fullnægja réttlætinu í heimi hér, á þann hátt, sem honum einum er lagið. Að þessu sinni bregður Bronson aðeins út af vana sínum. Hann ætlar sér ekki að hefna eigin harma (kona hans og dóttir í mörgum öðrum myndum hans voru teknar illilega til bæna af glæpamönn- um), heldur harma ekkju vinar hans. Og til þess að afmá fasista- stimpilinn, sem óhjákvæmilega var kominn á kappann, var ákveðið að láta hann fara til Suður-Ameríku, einmitt til að berjast við fasista- stjórnvöld í Guatemala, eða réttara sagt leiguþý stjórnvalda, og líka leiguþý Bandaríkjastjórnar, eftir því sem fram kemur í myndinni. Bronson er sem sé orðinn að heims- lausnara. í stuttu máli: 1 Suður-Ameríku starfar læknir nokkur, einhvers kon- ar Mengele okkar tíma, og pyntar andófsmenn eftir pöntun vítt og breitt um álfuna. Mikill fjöldi sjúkl- inga hans hefur drepist undir með- ferðinni, enn fleiri hafa orðið ör- kumla vesalingar. Mælirinn fyllist, þegar blaðamaðurinn George Hi- dalgo fær rafstuð í skrokkinn, þegar hann ætlar að fletta ofan af lækninum. Þá kemur til kasta Bronsons, sem að vísu hefur dregið sig í hlé á einhverri Paradísareyju þar sem hann nýtur góða veðursins. Við þurfum ekki að spyrja að leiks- lokum. Nær væri að spyrja hversu margir lítrar af blóði hafi flætt um tjaldið áður en yfir lýkur. Ef minnið svíkur mig ekki, þá hefur leikstjórinn gert nokkrar ágætar hasarmyndir, eins og Byss- urnar frá Navarone. Eitthvað hefur honum þó förlast hin síðari ár, ef marka má nýjustu afurðina. Charles Bronson hefur ekki breyst, hvað þá að hann hafi lært að leika. Hið illa er menn gjöra er eitt af því illa er menn gjöra, ekkert nema ofbeldisuppúrvelta, þó svo að reynt sé að dylja þennan öfuguggahátt á bak við pólitíska silkislæðu. Og það versta er, að stundum tekst mönnunum að gera myndina ofur- lítið spennandi. Og má maður þá skammast sín. Algjör vibbi. Guðlaugur Bermgundsson. Diskaherfi Vinnubreidd 2,4 m Verð kr. 40.600.- Hnífaherfi ■ Bronson með efitrlætisleikfangið, byssu, sem gerir stórt gat á skrokk óvinarins. Vinnubreidd 3,4 m Verð kr. 33.500.- Hankmo 66 Vinnubreidd 2,1 m Verð kr. 48.000.- Fjaðraherfi

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.