NT - 05.05.1985, Síða 18
Sunnudagur 5. maí 1985 18
Ul'
Tilraun til hagnýtrar tón-
listarfræðslu fyrir byrjendur
Oddur Björnsson
■ Mcnn hafa komið að máli
við mig og rætt mikla nauðsyn
þess að einfalda
tónlistarfræðsluna, þannig að
allir - ungir sem gamlir - megi
botna í kontrapunkti og fúgu,
enda sé slíkt lágmarks
mannréttindi. Hinirsömu aðilar
hafa kvartað undan því að
tónskáldin og tónlistarstjórar
(þ.á.m. skólastjórar
tónlistarskólanna) séu svo
sprenglærðir í þcssu að þeim sé
algerlega um megn að útskýra
þetta fyrir venjulegu fólki, svo
ekki sé talað um chaconnu og
passakagliu, enda óvíst hvort
þeir í raun og veru skilji þetta
sjálfir.
Ég kvað ekki minnsta vafa á
því. Hitt væri svo annað mál að
etv. mætti gera þetta tiltölulega
einíalt fyrir venjulegt óbrjálað
fólk - og datt mér því í hug að
gera dálitla tilraun til hagnýtrar
fræðslu í þcssum efnum - án
ábyrgðar, einsog þeir segja,
enda er ég ekki „átóríséraður"
músikus.
Tilraunir til samninga í
verkföllum byrja iöulega sem
frumstæðar fúgur, mcð
tilbreytingarlítilli klifandi og
þrástagi á því sama-sem getur
iðulega farið út í hreinan
kontrapunkt, þegar tilboð og
kröfur og gagntilboð og
gagnkröfur (sem er þó yfirleitt
sama tilboðið og sama krafan)
eru í sjálfu sér komin í svo mikið
hár saman að virðist algjör
sjálfhelda en leysist svo eins og
af sjálfu sér eða fyrir mjög þróað
afbrigði af hundalógik sem
minnir einna helst á guðlegan
þankagang í áreynslulausri
rökhyggju sinni, það má kallast
dæmigerður kontrapunktur og
verður að játast að tónskáldin
skilja hann sjaldnast sjálf.
Chaconna (upprunanlega
gamall spánskur dans) og
passacaglía (sem er líka gamall
dans í hægum þrítakti) eru í
sjálfu sér einskonar fúgur með
tilbrigðum, og eru fáir á þingi
sem hafa slíkt á valdi sínu -
frekar væri það þá kanónan,
sem er nánast einhliða þus eða
romsa er þykistverafúga. Nefni
ég engin nöfn í því sambandi,
enda er þetta tónfræði en ekki
kennslustund í mælskulist
(retórík).
Til er og aðferð sem heitir
toccata og minnir einna helst á
kött sem töltir á heitu
bárujárnsþaki. Er það
viðurkennd aðferð, bæði innan
alþingis og utan.
Ekki veit ég hvort vert er að
hafa þessa tónlistarfræðslu öllu
ýtarlegri, enda gætu menn þá
ruglast í ríminu. Þeir sem hafa
áhuga á framhaldsmenntun í
kontrapunkti og fúgu etc. ættu
að fylgjast með
tónlistargagnrýni dagblaðanna
eða láta bara hreinlega innrita
sig í tónlistarskóla. Einnig er
ágætt að hitta Atla Heimi í
Bankastræti, eða Jón
Ásgeirsson í heita pottinum.
Eða Leif Þórarinsson í einhverri
matvöruversluninni.
Þess má þó geta í lokin að það
var dobbelfúga eftir Bach sem
sprengdi örtölvu háskólans
síðastliðið haust. Skyldu menn
því vara sig á fúgum og
kontrapunktum, og kannski er
maður best settur með það -
þegar öllu er á botninn hvolft -
að botna sem minnst í þessu.
•gfr- VJHWS?
Mér líður mjög illa Nýttu hugrekki þitt
K Mig langar til að biðja
þig um að hjálpa mér að
losna við eitt vandamál sem
háir mér mjög. Þetta vanda-
mál er feimni. Þessi feimni
hefur fylgt mér síðan égman
eftir mér og þessu fylgir svo
minnimáttarkennd ogþung-
lyndi. Þessi feimni er að þvi
er ég held á frekar háu stigi,
mér lídur mjög illa innan um
ókunnugt fólk og mér líður
jafnvel illa innan um fólk
sem ég þekki, skólafélaga,
ættingja og viniaukþess sem
ég kann ekki að tala við fólk,
þ.e. ég veit ekki hvað égá að
segja heldur sit bara og læt
mér liða illa. Þetta leiðir til
þess að ég einangra mig
frekar en að vera innan um
fólk. Stundum kemur það þó
fyrir að feimnin hreinlega
rennur af og ég get verið
óþvingaður smástund en
feimnin kemur alltaf aftur.
Ég veit ekki af hverju þessi
feimni stafar en ég var lagð-
uríeinelti fyrsta árið sem ég
var í skóla og það hefur
örugglega ekki bætt hana.
Ég vona að þú getir hjálpað
vegna þessaðþetta erömur-
legt líf, ég er unglingur ennþá
og það þýðir ekkert að segja
að þetta hverfi með árunum.
Mér gengur illa að kynnast
nýju fólki nema ég sé með
víni og sérstaklega er þetta
erfitt í sambandi við hitt
kynið. Ég fæ oft þunglynd-
isköst og þá langar mig oft
til að binda enda á þetta allt
saman. Með von um svar.
Einn feiminn.
■ Kæri „feiminn‘'
Þakka þér gott bréf.
Reyndar hef ég lengi verið
að bíða eftir bréfi sem þínu
þar sem feimni er kannski
algengasta vandamálið sem
unglingar telja sig eiga við
að etja. Flestir reyna kannski
að dylja sína feimni og sitt
uppburðarleysi á unglings-
árum oft með misjöfnum ár-
angri. Reyna menn þá oft að
temja sér ýmiskonar takta
og svaranir til þess að sleppa
fyrir horn tilfinningalega.
Getur maður oft seinna litið
í eigin barm og brosað góð-
látlega að sjálfum sér, en
ekki eru það allir sem komast
að öllu leyti yfir sína feimni.
Unglingsárin eru flestum
erfið. Upp í okkur koma alls
konar tilfinningar, sem við
þekktum ekki áður. Við för-
um hægt og rólega að færa
okkur út á okkur áður ótroðn-
ar slóðir. Afstaða okkar
gagnvart foreldrum breytist
og við reynum að rífa okkur
undan þeirra áhrifum og
stundum verður bægsla-
gangurinn mikill. Við erum
mjög mismunandi vel undir
'Unglingsárin búin og um-
hverfið skiptir okkur miklu
máli í okkar óöryggi. Ung-
lingurinn leitar oft inn í hóp
jafnaldra í leit sinni að sjálf-
um sér, en börn og unglingar
eru oft óvægin hvort við ann-
að og særandi. Gengur því
mismunandi vel að aðlagast
hópnum og því miður eru
augu fullorðinna oft lítið opin
fyrir því sem er að gerast í
börnunum og unglingunum
í kring um þau. Mikilvægi
fyrstu skóladaganna má ekki
gleymast, barnið kemur þá
oftast úr öruggu umhverfi,
allavega umhverfi sem það
þekkir og kann að bregðast
við gagnvart og skyndilega
ér barnið komið út í hinn
stóra heim þar sem flest er
nýtt, framandi og jafnvel
ógnvekjandi. Skiptir svo
miklu að þeir sem óöryggir
eru séu studdir í fyrstu skref-
unum til þess að tryggja
að þeir verði ekki fótum
troðnir á þessum fyrstu dög-
um hinnar þyrnum stráðu
brautar menntunar.
Er hlutverk kennara og
foreldra mikið á þessum
tímamótum í lífi barnsins.
Greinilegt er af bréfi þínu að
þér hefur ekki liðið vel í
byrjun skólagöngu þinnar og
er leitt til þess að heyra.
Vera má að þar hafi skapast
óöryggi í sjálfum þér í sam-
skiptum við annað fólk sem
þú hefur ekki ennþá náð
fullu valdi yfir. Þú segir í
bréfi þínu að þér líði mjög illa
innan um ókunnugt fólk og
jafnvel innan um fólk sem þú
þekkir. Þar að auki segirðu
að þú kunnir ekki að tala við
fólk, þ.e. þú vitir ekki hvað
þú átt að segja en þú sitjir
bara og látir þér líða illa.
Unglingsárunum fylgir oft
óöryggi gagnvart því hvað
aðrir halda um mann og
flestir finna fyrir því ein-
hverntímann að þeir viti ekki
hvað þeir eigi að segja og
vita ekki hvernig þeir eigi að
bregðast við þegar aðrir eru
að tala við þá. Af bréfi þínu
má allavegana ráða að þú
getur vel komið hugsunum
þínum skriflega til skila og
það kæmi mér ekki á óvart
að umhverfið þitt liti kannski
jákvæðari augum á hvernig
þú tjáir þig í töluðu máli en
þú sjálfur. Okkur er öllum
nauðsynlegt að finna að öðr-
um þykir vænt um okkur, að
við njótum virðingar annarra
og trausts. Óöryggi unglings-
áranna fylgir oft vanmat á
eigin getu og vilja menn þá
oft gleyma að sjá hið já-
kvæða í því sem aðrir segja
um mann og við mann en
einblína frekar á hið nei-
kæða í eigin fari. Þú segir
sjálfur í bréfinu ekkert um
þína eigin kosti eða um það
sem þú getur gert vel, en
enginn er svo ómögulegur
að hann geti ekki gert eitthv-
að vel. Þú getur allavegana
skrifað ágætisbréf og ef þú
reynir að vera hlutlaus gagn-
vart sjálfum þér og jafnvel
fengið hjálp frá vinuiri sem
þú treystir getur þú vafa-
i laust fundið fleira jákvætt í
þínu eigin fari og séð betur
hvaða hæfileikum þú býrð
yfir. íþróttir og ýmis önnur
áhugamál hafa mörgum
reynst notadrjúg í barátt-
unni við feimnina. Margur
unglingurinn hefur öðlast
aukið sjálfstraust við.að sjá
eigin getu aukast t.d. í
íþróttum og hefur það orðið
mörgum hollt veganesti út í
lífið. Sjálfur þekki ég feimni
af eigin raun og þykist því
geta sett mig nokkuð sæmi-
lega inn í þín spor.
Man ég vel hversu hræði-
lega mér leið stundum þegar
ég lenti í kringumstæðum
sem ég kunni ekkert á og
vissi ekki hvernig ég átti að
bregðast við. Eitthvað það
alversta sem ég gat þá hugs-
að mér var þá ef einhver
hefði séð hversu feiminn ég
var og óöruggur. Reyndi ég
því, meðvitað og ómeðvitað,
að temja mér fas og hátterni,
sem „ruglað gætu andstæð-
inginn." Gegnum félagsskap
við jafnaldra í íþróttum og
öðrum áhugamálum tókst
mér að ná nokkurri færni við
að beisla feimnina en þegar
áhuginn á hinu kyninu fór að
koma ruglaðist allt kerfið.
Eftir mikið og erfitt stríð sá
ég fram á að málshátturinn
„Sveltur sitjandi kráka, en
fljúgandi fær‘‘ hafði við viss
góð rök að styðjast. Sá ég því
fram á að ef ég ætlaði að ná
einhverju sambandi við hitt
kynið varð ég að leggja
eitthvað á mig til þess að
standa ekki eins og auli í
hvert skipti sem þurfti að
standa augliti til auglitis við
einhverja stelpuna t.d. á
dansæfingum. Gleymi ég
aldrei þeirri holskeflu óör-
yggis sem steyptist yfir mig
þegar mér var boðið upp í
dans í fyrsta skipti. Ein-
hvernveginn lifði ég nú samt
dansinn af því ekki þorði ég
að segja nei.
Varð þetta til þess að ég
ákvað að reyna að læra að
dansa og tókst það nokkurn
veginn með tímanum eftir
nákvæmar athuganir á at-
ferli þeirra á dansgólfi sem
mér fannst kunna til verks.
Oft píndi ég mig út í erfiðar
aðstæður og stundum reyndi
ég þá aðferð að lofa sjálfum
mér verðlaunum ef ég gerði
þetta og hitt. Með tímanum
og æfingunni tókst þetta
nokkurn veginn skammlaust
að lokum, þótt þú kæri „ feim-
inn“ eigir kannski erfitt með
að trúa þessu sem ég nú hef
verið að segja þér. í bréfi
þínu sagðirðu að stundum
rynni feimnin af þér í smá
stund en segir ekkert við
hvaða aðstæður eða hvað
valdið gæti þessum góðu
stundum þínum án feimni.
Kannski getur þú fundið þar
einhvern lykil sem hjálpað
gæti þér við baráttuna gegn
feimninni, en flestir hafa
sennilega sömu söguna að
segja að það kosti æfingu og
aftur æfingu til þess að ná
færni í mannlegum sam-
skiptum og þar með auknu
sjálfsöryggi.
Kæri feiminn, reyndu að
draga svörtu rúllugardínurn-
ar upp frá augunum ef þú
lítur á sjálfan þig og reyndu
að nota það sem er jákvætt í
þínu eigin fari og ræktaðu
það. Ef þú átt einhverja að
sem þú treystir í umhverf-
inu, foreldra eða góða vini,
þá reyndu að tala við þá og
fá hjálp þeirra til þess að fá
raunhæfara mat á sjálfum
þér. Þú hefur allavega hug-
rekki til þess að setjst niður
og skrifa mér um þínar til-
finningar. Vona ég að þú
nýtir þetta hugrekki til þess
að taka tilfinningalega
áhættu og æfa þig til betri
samskipta við annað fólk.
Mundu bara að enginn verð-
ur óbarinn biskup.
Með bestu kveðjum og
óskum um góðan árangur,
þinn Páll Eiríksson-
Páll Eiríksson geðlæknir
svarar spurningum lesenda