NT - 22.05.1985, Qupperneq 2
Miðvikudagur 22. maí 1985 2
■ Hinir 19 nýútskrifuðu búfræðingar Hólaskóla á þessu vori ásamt
skólastjóra sínum Jóni Bjarnasyni.
■ Gunnar Sigurðsson, sem hæsta einkunn hlaut á búfræðiprófí
tekur við verðlaunum frá Búnaðarfélagi Islands.
■ Steinþór Eiríksson frá Egilsstöðum sýnir nú 45 olíumálverk í
félagsheimili samvinnumanna að Hamragörðum við Hávallagötu.
Þetta er 19. einkasýning Steinþórs og önnur sýning hans í
Reykjavík, en hann sýndi að Hamragörðum árið 1973 og seldust
myndir hans þá upp. Steinþór er einn af frumbyggjum Egilsstaða-
kauptúns og byggði fyrsta húsið þar, en hann rak um árabil
verkstæði á Egilsstöðum. Hann er algerlega sjálfmenntaður í list
sinni.
Loftleiðir-Flugleiðir:
Luxemborgar-
flug 30 ára
- hafa flutt 4
milljónir farþega
■ Þrjátíu ár eru liðin frá
fyrsta flugi Loftleiða/Flug-
leiða til Luxemborgar. Á
þessu 30 ára tímabili hafa
Flugleiðir sem stofnað var
upp úr Lofleiðum og
Flugfélagi íslands flutt um
fjórar milljónir farþega í
Luxemborgarflugi sínu.
Fyrsta árið sem flogið
var til Luxemborgar voru
fluttir 589 farþegar. í ár
búast Flugleiðir við því að
llytja uni 285 þúsund
manns í Luxemborgar-
flugi sínu. Þotur Flugleiða
munu lenda 19 sinnum í
viku á Findel flugvelli í
Luxemborg, en liann hef-
ur verið stækkaður og eru
aðstæður á vellinum allar
hinar ákjósanlegustu fyrir
farþega.
Norðmaðurinn Einar
Aakrann veitir forstöðu
skrifstofu Flugleiða í Lux-
emborg, og liefur gert það
allt síðan Loftleiðir opn-
uðu þar skrifstofu sína
árið 1985.
Framan af var Luxem-
borgarllugið aðeins einu
sinni á áætlun í viku
hverri, þar sem farþega-
flutningar voru litlir. Það
var ekki fyrr en með til-
komu Cloudmaster DC-
6B flugvéla, sem Luxem-
borgarflugið varð arðvæn-
legt og fjölgaði þá ferðum
félagsins fljótlega.
Mikil og
vaxandi
aðsókn að
Bænda-
sólanum á
Hólum:
■ Af þeim 19 búfræðingum
sem brautskráðust frá Bænda-
skólanum að Hólum þetta vorið
Hvar á kísilmálmverksmiðja að rísa?
Elkemmenn vilja að ríkið
borgi með Reyðarfirði!
■ Norska fyrirtækið Elkem,
sem rætt hefur veriö við urn
eignaraðild að kísilmálmverk-
smiðju hér á landi telur eðlilegt
að íslensk stjórnvöld bæti í
einhverju upp þann kostnaö-
armun sem fejst í því að reisa
verksmiðju frekar í Reyðarfirði
en á Grundartanga.
Þetta Rom fram í svari Sverris
Hermannssonar iðnaðarráð-
herra við fyrirspurn Jóns Krist-
jánssonar um viðræður við Elk-
em og sagði ráðherra að Norð-
mönnum hefði verið gerð grein
fyrir því hvaða lög giltu um
staðsetningu slíkrar verk-
smiðju. Það kom fram hjá Elk-
em að ódýrara væri að reisa
umrædda verksmiðju á Grund-
artanga þar sem mætti samnýta
ýmsar eignir íslenska járn-
blendifélagsins, nt.a. mötu-
neyti, verkstæði, skrifstofu og
fleira.
Stúlkur helmingur braut-
skráðra búf ræðinga í vor
voru 9 stúlkur og 10 piltar. Er
þetta hæsta hlutfall kvenbú-
fræðinga í sögu skólans til þessa
að sögn skólastjórans Jóns
Bjarnasonar. Hæstu einkunn á
búfræðiprófí hlaut Gunnar Sig-
urðsson, Stóru-Ökrum í Skaga-
fírði 1. ág. einkunn 9,3 og næst
kom Jóhanna Fjóla Kristjáns-
dóttir, Stóra-Sandfelli í
Skriðdal, 1. ág. einkunn 9,2.
Fjölmennt var við skólaslitin í
Hóladómkirkju þann 14. maí
s.l., enda veður eins og það
getur best orðið.
Alls stunduðu 38 nám við
Hólaskóla s.l. vetur í tveim
bekkjardeildum. Á s.l. hausti
voru nemendur teknir inn í
brautaskipt búnaðarnám, þ.e.
auk almenna búnaðarnámsins
var boðið upp á fiskeldis- og
fiskiræktarbraut, sem er hlið-
stæð fiskeldisnámi á sama skóla-
stigi áNorðurlöndum. Þáleggur
skólinn aukna áherslu á
loðdýrarækt, hrossarækt og
tamningar og beitir sér fyrir
námskeiðum einkum á sviði ný-
búgreina. Mikil og vaxandi að-
'sókn er að skólanum, en hús-
næðisskortur sagður há eðlilegu
starfi.
Jóhanna Fjóla Kristj ánsdóttir
hlaut viðurkenningar fyrir best-
an árangur á bústjómarsviði, bú-
fjárræktarsviði, jarðræktarsviði
og verknámi. Gunnar Sigurðs-
son hlaut viðurkenningar fyrir
bestan árangur í fiskirækt og
loðdýrarækt. Bestan árangur í
fiskeldi hafði Guðmundur Karl
Arnarson frá Reykjavík, í
hrossarækt Benedikt Bene-
diktsson úr Skagafirði og tamn-
ingaverðlaunin hreppti Guðjón
Heiðar Sigurgeirsson úr
Strandasýslu. Viðurkenningu
fyrir góða umgengni hlutu; Mar-
sibil Sigurðardóttir, Bima Júl-
íusdóttir og Sólrún Ingvadóttir.
í sumar verða starfræktar
sumarbúðir fyrir börn á Hólum.
Boðið er upp á fjölskyldudvöl
og reiðnámskeið í júlí. Mikill
fjöldi ferðamanna og gesta
sækja staðinn heim á sumrin.
Sundlaugin er og mjög vinsæl.
Hressing er seld í mötuneyti
skólans.
Matsnefnd í deilu
BHM og ríkisins:
Enginn sem
vill verða
oddamaður
■ Erfiðlega mun ganga
að skipa nefnd þá sem
fjalla á um launaágreining
BHM og ríkisins. Upplýsti
forsætisráðherra í fyrir-
spurnartíma á Alþingi í
gær að talað hefði verið
við marga menn um að
taka að sér að vera odda-
maður í þriggja manna
matsnefnd en þeir allir
hafnað því.
Samkvæmt upplýsing-
um NT mun hafa verið
leitað til Klemensar
Tryggvasonar fyrrv. hag-
stofustjóra, Jóns Sigurðs-
sonar forstjóra Járn-
blendisins og Brynjólfs
Sigurðssonar fyrrv. hag-
sýslustjóra, en þeir allir
neitað þeirri málalei',an.
BHM hefur þegar skipað
Stefán Ólafsson lektor í
umrædda nefnd fyrir sitt
leyti og fulltrúi ríkisins
verður Indriði Þorláksson
ráðuneytisstjóri.
Forsætisráðherra sagð-
ist leggja alla áherslu á að
nefnd þessi kæmist sem
fyrst á laggirnar og myndi
hann fyrir sitt leyti fallast
á þær niðurstöður sem hún
skilaði um launamál opin-
berra starfsmanna.
Steingrímur og Þorsteinn
telja samráð koma til greina
- en lorsætisradherra er öanægður med hvad litid er gert ur
þeim adgerðum sem þegar eru hafnar
Hvað eigum við að gera við þessa umbótasinna Svavar?