NT - 11.06.1985, Qupperneq 2
Fyrsti veiðidagurinn í Elliðaánum:
Davíð fékk einn
í fyrsta kastinu
- en þar við sat
■ „Þetta var kurteisislax,"
sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri eftir að hafa landað fyrsta
laxinum úr Elliðaánum þetta
veiðitímabil. Laxinn sem vó 9
pund tók í fyrsta kasti og var
kominn á land eftir rúmlega
fimm mínútna viðureign. Davíð
fékk laxinn í fossinum undir
brúnni. Um níu leytið veiddist
annar lax uppi á þrepunum sem
eru neðan við félagsheimili Raf-
veitunnar. Þar var að verki
Haukur Pálmason. Þriðji veiði-
maðurinn í gærmorgun var
borgarritari Jón Tómasson.
Veiðimennirnir tóku sér hlc
um tíu leytið. Síðan hélt Davíð
til veiða í svo kölluðum Teljara-
streng þar sem lax hafði sést fyrr
um morguninn. „Það er nú ekki
þar með sagt að hann taki þó
svo að hann hafi verið að
stökkva hér í morgun,“ sagði
Davíð. Hann renndi nú samt en
virtist ganga treglega. Davíð
fékk ekki nema þennan eina
sem tók alveg í byrjun. Haukur
Pálmason hjá Rafmagnsveitum
Reykjavíkur fékk annan fisk
eftir veiðikaffið. Sá vó 7,5 pund
og fékkst á þrepunum eins og sá
fyrri sem Haukur fékk. Sem
sagt Davíð einn, Haukur tvo og
Jón borgarritari engan.
Oft hefur byrjunin verið betri
en í ár. t fyrra fékk Davíð sex
laxa og árið þar áður sjö.
■ Davíö hcldur hér á myndarlegasta laxi. Þeir urðu ekki fleiri hjá
borgarstjóranum en einn veiðifélaganna fékk tvo. NT-mynd : Ámi Bjarna
Mál Kiiians Horsts:
Rannsókn
lokið
■ Rannsókn í máii
Kilians Horsts, fálka-
ræningjans sem reyndi
á dögunum að smygla
þremur fálkaungum úr
landi í kassa undan
koníaksflösku, er nú
að mestu lokið.
Hallvarður Einvarðsson
rannsóknarlögreglustjóri
sagði í samtali við NT í
gær að stefnt yrði að því
að senda ríkissaksóknara
málið til umsagnar í dag.
„Málið er í meginatriðum
upplýst og ljóst er hvernig
hann stóð að verknaðin-
um,‘‘ sagði Hallvarður.
Hann neitaði því að nokk-
uð benti til þess að íslend-
ingar tengdust málinu á
nokkurn hátt.
Ætlar að hjóla um landið í 10 vikur
■ Hann heitir Mark Vigilante og kom til landsins í gær frá
Bandaríkjunum. „Ég er með allt mitt hafurtask á þessu hjóli,
svefnpoka, tjald og margs konar nauðsynjavörur. Ég koin til íslands
vegna þess að landið er ólíkt öðrum löndum og hér eru engir
almennilegir vegir. Ég verð hér í 10 vikur og ætla mér að kynnast
landinu ykkar á hjólinu mínut“ sagði Mark og hjólaði í áttina að
KÓpaVOgí. NT-mynd: Sverrir
Leiðsögumenn óánægð-
ir með samkomulagið
■ Almenn óánægja er meðal
leiðsögumanna incð samkomu-
Iagið, sem gert var við ferðaskrif-
stofurnar aðfaranótt .síðaslliðins
föstudags. Engu að síður sam-
þykktu þeir það með 33 atkvæðum
gegn 13 á félagsfundi á sunnudags-
kvöld.
Kristbjörg Þórhallsdóttir for-
maður samninganefndar Félags
leiðsögumanna sagði í samtali við
NT, að það hefði einungis verið
gert til að flrra glundroða í ferða-
þjónuslunni í sumar. Hún sagði,
að samkomulagið gæti haft það í
för með sér, að ekki fengist hæft
fólk til lciðsögustarfa í sumar, og
hún vissi um þónokkra, sem ekki
ætluðu að gefa kost á sér í feröir.
Samkomulag leiðsögumanna og
ferðaskrifstofanna felur í sér
25-30% launahækkun. Mánaðar-
laun leiðsögumanna verða nú
19.500-22.500 krónur. Samkomu-
lagið felur einnig í sér 5% álag,
þurfi leiðsögumaðurinn að tala 2
erlend tungumál í ferðinni. 10%
álag fyrir 3. málið hefur verið í
gildi t mörg ár. Þá verður tekið
tillit til símenhtunarnámskeiða,
sem leiðsögumenn sækja, þegar
raðað er niður í launastiga. Nýi
samningurinn gildir til áramóta og
hyggjast leiðsögumenn ná fram
meiri kjarabótum í næstu samn-
ingaviðræðum.
Maíafli bátanna um
28% meiri en í fyrra
■ Bátaaflinn í maímánuði s.l.
var um 28.620 lestir sem er nær
29% meiri afli en í sama mánuði í
fyrra. Þorskafli bátanna var nú
14.774 tonn en 10.177 tonn í maí
1984. Afli togaranna var hins veg-
ar um þúsund tonnum minni en í
maí í fyrra, eða 31.667 tonn, þar
af 6.741 tonn af þorski. Samtals
komu því 60.290 tonn af fiski á
land í maímánuði, samkvæmt upp-
lýsingum fiskifélags íslands.
Afli allra fiskiskipa fyrstu fimm
mánuði ársins er að loðnu undan-
skilinni - næstum sá sami og í fyrra
- rúm 288 þús. tonn en var 284
þús. tonn í fyrra. Þar af er þorsk-
afli nú 153.558 tonn, sem er rúm-
lega 26 þús. tonnum meira en 1984
og er sú aukning að langmestu
leyti hjá bátaflotanum. Afli togar-
anna jan-maí er samtals 125.639
tonn og er það rúmlega 12 þús.
tonnum minna en á sama tíma
1984. Botnfiskafli bátaflotans er á
sama tíma 149.514 tonn sem er
nær 17 þús. tonnum meira en í
fyrra.
Refsing mannanna sem skutu fálkana
Þrjár milljónir króna
- hámarkssekt fuglafriðunarlaganna
■ Sektarhámark fuglafriðun- milljónum króna, sagði lljalti dómsmálaráðuneytinu, er NT
arlaganna nemur um þrem Zóphóníasson, deildarstjóri í spurðist fyrir um hugsanlega
Ágæt auglýsing
■ Það verður að segjast
eins og er að auglýsingar þær
sem fluttar eru á Rás tvö eru
mun líflegri og skemmtilegri
en hinar hefðbundnu út-
■ varpsauglýsingar. Sem dæmi
má nefna auglýsingu sem
mikið hefur borið á undan-
farna fegrunarviku, þar sem
kona ein gengur hart fram í
því að snyrta limgerðið sitt
og sést ekki fyrir með þeim
afleiðingum að lokkarnir
fjúka af borgarstjóranum,
þar sem hann stendur hinum
megin limgerðisins.
■ Eins og þessi auglýsing var
bráðskemmtileg á Rás tvö
verður því þó ekki neitað að
skemmtilegra hefði verið að
sjá hana í sjónvarpinu.
Útvarpsóeirðir
á Akureyri?
■ Stefnir í fjölmiðlastríð í
skólabænum Akureyri? Svo
virðist vera, ef marka má
fréttir af „vinskap“ Dags-
manna og Rúvak liðsins. Ut
varpsmennirnir urðu hálffúi
ir vegna afskiptaleysis Dags
af útvarpinu og Dagsmenn
eru í mikilli fýlu vegna þess
að þeir mega ekki reka út-
varpsstöð á Akureyri. Dagur
reyndi það í verkfallinu í
haust en var stöðvaður
Á dögunum skammaði einn
útvarpsmaðurinn Dag í
beinni útvarpsútsendingu og
Dagsmenn hafa kært til út-
varpsráðs. Það er mál þeirra
sem til málsins þekkja að
þetta kærumál sem nú er
komið upp sé lokapunktur-
inn á persónulegu stríði Her-
manns Sveinbjörnssonar rit-
stjóra og Jónasar Jónassonar
„útvarpsstjóra".
refsingu mannanna fjögurra
sem hafa játað að hafa skotið
sex fálka á þriggja ára tímabili,
en fjórir fálkanna fundust í
frystihúsi á Húsavík s.l. fimmtu-
dag.
Ekki tókst að fá upplýsingar
hjá dómsmálaráðuneytinu eða
Sakadómi um hver refsingin
gæti orðið, enda um nokkurs-
konar prófmál að ræða. í fugla-
friðunarlögunum sem voru
hert árið 1982, stendur: „Virða
skal það refsingu til þyngingar,
ef fágætar fuglategundir eru
veiddar, svo sem örn, snæugla,
fálki eða haftyrðill..
Sigurður Gizurarson, sýslu-
maður í Suður-Þingeyjarsýslu,
sagði að málið yrði tekið fyrir í
Sakadómi Húsavíkur nú strax
og yrði síðan sent til ríkissak-
sóknara í næstu viku. Sagði
hann að fimmti maðurinn
tengdist málinu, en sá mun vera
háseti á skipi sem er að sigla
utan.
Sigurður benti á að fyrir
nokkrum árum hefði fálki verið
skotinn þar norður frá. „Þá
fékk þetta lítið rúm hjá fjölmiðl-
um. En nú ríkja breytt viðhorf
og er það eðlilegt í beinu fram-
haldi af eggja^ og ungastuldun-
um," sagði hann.
Upphaf málsins var það að
Björn Guðbrandsson, formaður
Fuglafriðunarfélags Islands,
sendi bréf til dómsmálaráðu-
neytisins þar sem hann greindi
frá upplýsingum um að í al-
menningsfrystihólfi frystihúss á
Húsavík væru þrír fálkar sem
hefðu veriðskotnir. Ráðuneytið
lét sýslumanninum á Húsavík
upplýsingarnar í té og lögreglan
leitaði í frystihúsinu og fann
fjögur fálkahræ.
Leigjandi hólfsins þar sem
hræin voru, sjómaður á þrítugs-
aldri, var handtekinn og yfir-
heyrður. í framhaldi þess voru
þrír aðrir menn handteknir, en
eftir vfirheyrslur var öllum
sleppt, þar sem gæsluvarðhalds
var ekki talið þörf.
Við rannsókn máisins, sem
nú er lokið, kom í ijós að alls
voru sex fálkar skotnir, en hin
tvö hræin höfðu eyðilagst. Voru
fálkarnir skotnir á þriggja ára
tímabili, sá fyrsti haustið 1982.
Ekki cr vitað hvað mennirnir
hugðust gera við hræin eða
hvort þeir höfðu eitthvert sam-
starf við erlenda aðila.