NT


NT - 11.06.1985, Side 5

NT - 11.06.1985, Side 5
Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn. En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki. Taktu nótu - það borgar sig Samkvæmt lögum og reglugerðum um söluskatt og bókhald er öllum sem selja vöru og þjónustu skylt að gefa út reikninga vegna viðskiptanna. Reikningar eiga að vera tölusettir fyrirfram og kaupandi á að fá eitt eintak. Sé um söluskattsskylda vöru eða þjónustu að ræða á það að koma greinilega fram á reikningi. FJARMALARAÐUNEYTIÐ ■ Fimmtán ár eru liðin frá því að fyrirtækið P. Samúelsson hóf innflutning á Toyota-bifreiðum til íslands. í tengslum við afmælið var opnuð sýning á bílum frá Toyota. Þá var hulunni svipt af nýjum bfl frá Toyota. Bfliinn er tveggja manna sportlegur bfll og ber nafnið MR-2. Við bílinn standa vinstra megin Bogi Pálsson markaðsstjóri og Páll Samúlesson forstjóri. NT-m>nd: SvcrHr. ■ Fjárskortur stendur nú almennum rannsóknum fyrir þrifum á tilraunastöðinni á Keldum. Þörf er mikilla viðgerða á húsnæði því sem tilraunastöðin hefur til umráða. Þá er hluti tækjakostsins úr sér genginn og nýtist ekki við rannsóknir af því tagi sem nauðsynlegar eru fyrir líftækniiðnað og önnur skyld verkefni. Guðmundur Pétursson forstöðumaður tilraunastöðvarinnar sagði í samtali við NT að viðhald á húsunum hefði verið í lágmarki síðastliðin ár og væri hluti þeirra í niðurníðslu. ,,Okkur skortir til- finnanlega ýmis tæki til almennra rann- sókna, og má sem dæmi nefna að raf- eindasmásjáin sem notuð er, er með sömu tækni og Þjóðverjar notuðu á stríðsárunum.“ Guðmundur sagði að ástæðan fyrir því hve illa er komið fyrir stofnunni væri sú að fjárveitingar til tilraunarstöðvarinnar hafi verið í lág- marki undanfarin ár. „Við höfum farið fram úr framlagi ríkisstjórnarinnar síð- astliðin ár. Síðasta ár nam umframeyðsl- an 2,7 milljónum. Nú í ár var okkur úthlutað 8,6 milljónum króna. Við höfum þegar farið fram úr greiðsluáætlun 1985. “ Guðmundur hefur farið fram á að byggingardeild menntamálaráðuneytis- ins geri úttekt á kostnaði við að gera húsnæðið upp en þess er víða mikil þörf. Hann sagði fjárframlag ríkissjóðs hefði að raungildi lækkað um 55% prósent frá árinu 1973. „Á sama tíma hefur framlag til annarra rannsóknarstofnanna aukist um nokkra tugi prósenta." Sem dæmi nefndi Guðmundur raunvísindadeild Há- skólans og rannsóknarstofnun landbún- aðarins. Þá sagði Guðmundur að þrátt fyrir þá staðreynd að tilraunastöðin hefði nokkrar tekjur af sölu á bóluefni, lyfjum og tæki þjónustugjald fyrir ýmiskonar rannsóknir væri of-áætlað af fjárveiting- arvaldinu að tilraunastofnunin væri rekin með sértekjum að tveimur þriðju hlutum. „Hámark væri að ætlast til þess að stofnunin stæði undir sér að helmingi með sértekjum. Annað kemur niður á annarri starfsemi." Árni Gunnarsson skrifstofustjóri hjá menntamálaráðuneytinu sagði í samtali við NT í gær að rætt hefði verið um að fjárlaga- og hagsýslustofnun myndi gera úttekt á starfsemi tilraunarstöðvarinnar. „Það hefur alltaf verið ágreiningsefni að hve miklum hluta stofnun eigi að standa undir sér með sértekjum,“ sagði Árni þegar hann var ynntur eftir áliti á hlut sértekna til að fjármagna tilraunarstöðv- arnar. 'En þeir sögðust vera vanir...” Island tengist tölvuvæddu upplýs ingakerfi Reuters ■ Fréttastofa Reuters er um þess- ar mundir að tengja ísland við tölvuvætt fjarskiptakerfi, sem þýðir að héðan í frá geta íslensk fyrirtæki, bankar, fjölmiðlar og aðrir sem óska eftir þátttöku fengið þá upplýs- ingaþjónustu sem þeir þarfnast. Erfiðasti þröskuldurinn fyrir ís- lenska aðila á að tengjast slíku kerfi hefur verið fjárhagslegir og tækni- legir örðugleikar á símasambandi íslands við önnur lönd. Nú yfirstígur Reuter þann þröskuld í samstarfi við póst og símastofnanir á íslandi og Bretlandi og með sanlningum um viðskipti við Seðlabankann, þrjá viðskiptabanka og fimm fjöl- miðla á íslandi. Tæknilega er þessi framkvæmd fólgin í því að Reuter tekur á leigu einskonar fjölrás milli íslands og annarra landa með flutningsgetunni 9500 bitar á sekúndu. Það nægir til að koma á föstu skjásambandi í fjármála- og markaðsþjónustu og hraðari og öruggari fréttaþjónustu til fjölmiðlanna en áður hefur tíðkast. Þeir fjölmiðlar sem tengjast þessari þjónustu eru Nútíminn, Dagblaðið-Vísir, Þjóðviljinn, Út- varp og Sjónvarp. í undirbúningi er að hefja frétta- myndaþjónustu, þar sem áskrifend- ur fá sendar 40-50 ljósmyndir á dag af helstu heimsviðburðum, með tölvutækni. Þá stendur verslunar og iðnfyrirtækjum til boða fjölbreytt markaðs-fréttaþjónusta, þar sem fylgst er með markaðsþróun hráefna og gefnar upplýsingar um viðskipti og fjármál. Fulltrúi og fréttamaður Reuters á íslandi er Þorsteinn Thorarensen, en hann hefur unnið að því í hartnær áratug að koma þessu upp- lýsingakerfi hingað til lands. Þriðjudagur 11. júní 1985 5 Tilraunastöðin á Keldum: Húsnæði í niðurníðslu - og tæki úr sér gengin Orsökin í bjórlíkinu? ■ Kópavogslögreglan hafði afskipti af níu ökumönnum sem grunaðir voru um ölvun við akstur, nú um helgina. í eitt skipti hlaust af óhapp, en það var þegar ölvaður öku- maður missti stjórn á bifreið sinni og fór hún út af vegin- um við Vatnsendahæð. Lög- reglumaður sem lét NT þess- ar upplýsingar í té taldi að skýringuna á þessari aukn- ingu væri að finna í bjórlík- inu. „Það eru allir að þamba þetta bjórlíki. Viðerumjafn- vel farnir að taka menn ölv- aða um hábjartan dag.“

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.