NT


NT - 11.06.1985, Síða 20

NT - 11.06.1985, Síða 20
 ipmnnn Þórmundur Bergsson (ábm.), Gylfi Þorkelsson. ■ „Þetta sýnir að fólk á öllum aldri getur spilað keilu,“ sagði Jóhannes Sölvason, kampakát- ur eftir að hafa sigrað Alois Raschhofer í úrslitaleiknum. „Ég vonaðist til að verða meðal hinna fimm efstu í undan- keppninni, en ég átti ekki von á að vinna. En eftir fyrri dag undanúrslitanna fór ég svo að eygja vonina um að komast í úrslitin,“ sagði Jóhannes. „Yfirleitt þykir mér verst að spila fyrsta leikinn, náði t.d. aðeins 145 stigum í fyrsta undanúrslitaleiknum fyrr í morgun,“ sagði íslandsmeistar- inn. „í hinum tveimur náði ég svo mun betra skori.“ Það mátti því búast við að úrslitaleikurinn yrði erfiður hjá Jóhannesi, en hann náði tveim- ur feykjum í upphafi á meðan fyrstu tvö skotin hjá Alois geig- uðu. Forystan var því Jóhannes- ar þegar í upphafi og hann hélt henni út leikinn. Spenna komst þá í keppnina undir lokin. Jó- hannes felldi níu keilur með næst síðasta skoti sínu og var þá kominn með 160 stig. Alois^ felldi hins vegar allar keilurnar tíu og var þá kominn með 150 stig. En honum brást bogalistin í síðasta skoti sínu á meðan að Jóhannes náði að fella síðustu keiluna og ná sér í feykju. I aukaskotinu fékk hann svo fellu, þáfjórðu í úrslitaleiknum. að auki var hann með fimm feykjur. Alois náði hins vegar aðeins einni fellu, en fékk sex feykjur. Emilía Vilhjálmsdóttir, íslandsmeistari: ■ Emilía gerði betur en hún átti von á. „ Veit ekki hvað kom yf ir mig“ NT-myndir Sverrir ■ „Ég veit ekki hvað kom yfir mig í úrslitaieiknum, þetta er langbesta skor sem ég hef nokk- urn tírna fengið,“ sagði Emilía Vilhjálmsdóttir, fyrsti íslands- meistari kvenna í keilu. „Ég ákvað ekki að taka þátt í keppninni fyrr en í gær og fór þá að æfa fyrir keppnina, lék sex leiki. Nei, ég átti ekki von á að vinna keppnina, ekki einu sinni að komast í úrslitin," sagði Emilía. En í úrslitin komst hún og sýndi þá frábæran leik. Þegar í fyrsta skoti sínu gaf hún tóninn er hún felldi allar keilurnar og næst náði hún feykju. Þá komu tvær fellur í röð, önnur feykja og svo fjórða fellan. Öll spenna í leiknum var horfin út í veður og vind er hér var komið sögu. Emilía var komin með 113 stig, en Björg var með 63. Nú fylgdu í kjölfarið fjórar feykjur hjá Emilíu og í aukaskotinu felldi hún sjö keilur. Björg svaraði með jaremur feykjum og sex stigum í aukaskotinu, en mun- urinn var orðinn alltof mikill til að hún gæti unnið hann upp. Björg náði engri fellu í úrslita- leiknum, en fékk fimm feykjur. ■ Sigurvegararnir á fyrsta íslandsmótinu í keilu. Mótið var vel heppnað og þátttaka góð. Fyrsta Íslandsmótið í keilu: Jóhannes og Emilía íslandsmeistarar Stóðu uppi sem sigurvegarar eftir fjölmenna og harða keppni ■ JóhannesSölvasonogEmil- ía Vilhjálinsdóttir sigruðu á fyrsta Islandsmótinu í keilu, sem lauk á sunnudag. Jóhannes sigraði Alois Raschhofer 171- 150 í úrslitaleiknum og Emilía vann Björgu Hafsteinsdóttur 185-121 í úrslitaleik kvennanna. í úrslitakeppninni hlaut Jó- hannes því 171 stig, Alois varð annar með 150 stig, Hjálmtýr Ingason þriðji með 174 stig, Ásgeir Heiðar fjórði með 129 stig og Bjarni Sveinbjörnsson varð fimmti með 162 stig. Önnur í keppni kvenna varð Björg Hafsteinsdóttir með 121 stig, Sólveig Guðmundsdóttir varð í 3. sæti með 122 stig, þá kom Hrafnhildur Ólafsdóttir með 114 stig og Guðrún Kristj- ánsdóttir varð í 5. sæti með 91 stig. Fyrir seinni þrjá leikina í undanúrslitum karlanna var staðan sú að Bjarni yar efstur með 538 stig, þá kom Jóhannes með 535 stig, Hjálmtýr var þriðji með 531 stig. Þessir voru svo áfram efstir eftir síðari leikinn, þótt röðin hefði nokkuð breyst. Jóhannes var þá kominn í efsta sætið með 1060 stig samanlagt, fékk 525 í seinni leikjunum þremur. Alois var orðinn annar með 1053 stig, Ásgeir var með 1047 stig og Halldór hafði stigi minna. Bjarni hafði fallið niður í 5. sætið með 1043 stig og Hjálmtýr var orðinn sjötti rneð 1005 stig. Halldór gat svo ekki tekið þátt í úrslitakeppninni, þurfti að fara á sjóinn, svo Hjálmtýr tók hans sess. Úrslitakcppnin fór svo þannig fram að fyrst léku þeir sem urðu í 4. og 5. sæti. Þar bar Hjálmtýr sigurorð af Bjarna 208-162 og lék þá næst við Ásgeir. Þá viðureign vann hann einnig, 152-129. En Alois reyndist honum sterkari í næsta leik og sigraði 192-174. I keppni kvenna voru 12 skráðar til leiks og léku þær fyrst þrjá leiki. Eftir þá var staðan sú að Björg var efst með 506 stig, þá kom Sólveig með 409, Emilía hafði 399 stig og Hrafnhildur og Guðrún voru jafnar í 4.-5. sæti með 374 stig. Þær síðastnefndu Iéku því sam- an í fyrsta leiknum og sigraði þá Hrafnhildur 128-91. Emilíasigr- aði svo Hrafnhildi í næsta leik 118-114 og iagði svo Sólveigu 125-122 í tvísýnum leik. þar sem síðustu skotin réðu úrslit- um. 1 úrslitunum sigraði svo Emilía Björgu 185-121. Björg náði besta skori kvenna í keppninni, fékk 191 stig í einum leik og Ásgeir Heiðar náði 224 stigum í leik í undan- úrslitunum. ■ Jóhanncs hampar hér sigurlaununum. Jóhannes Sölvason, íslandsmeistari: „Fyrirfólká öllum aldri“ - sagði Jóhannes eftir keppnina

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.