NT - 11.06.1985, Qupperneq 23
■ Haukar sækja hér að marki Árvakurs. Liðið svarta er þó fjölmennt í vörn en Haukarinn einmana. NT-mynd Sverrir
4. deild íslandsmótsins I knattspyrnu:
Stokkseyringar með
_______________________
heil þrettán mörk
er þeir lögðu Mýrdæli - „Liverpool-vítaspyrna“ hjá Hrafnkeli og Neista - Valur
Ingimundarson, körfukarl, skoraði sigurmarkið hjá Höfnum - Ragnar með þrjú fyrir Árvak
■ Pað .gekk á ýmsu í leikjum
4. deildar um helgina. Stokks-
eyringar voru manna atkvæða-
mestir í markaskorun. Þeir
gerðu 13 mörk á móti Mýrdælingi
og að sögn eins leikmanna
Stokkseyringa þá varð leikurinn
bara leiðinlegur vegna yfirburða
þeirra. ÍR-ingar sluppu með
skrekkinn gegn Leikni. Leiknir
var án margra fastamanna.
Magnús Bogason var þó með á
nótunum í þessum leik. Hann
kom Leikni í 3-1 er 12 mínútur
voru eftir. ÍR-ingar lögðu allt í
sölurnar studdir af línuvörðum
úr sínum hóp eftir því sem NT
kemst næst og skoruðu þrívegis
á lokamínútunum.
Bogabræðurnir hjá Neista
máttu bíta í það súra epli að
tapa leiknum á „Liverpool-víta-
spyrnu" sem dæmd var á síð-
ustu mínútum leiksins. Þá gerði
ÍBV áfram
■ Sigbjörn Óskarsson
sýndi það og sannaði í
leik ÍBV og ÍBÍ í 2.
umferð bikarkeppninnar,
að hann er ekki aðeins
liðtækur t handknattleik,
knattspyrnan á ekki síður
við hann. Sigbjörn gerði
öll þrjú mörkin í 3-0 sigri
Eyjamanna, en það
merkilega er að Sigbjörn
byrjaði ekki að æfa knatt-
spyrnu fyrr en í vor.
Fyrsta markið kom á 34.
mín. og í síðari hálfleik
bætti Sigbjörn syo við
tveimur mörkum. Örugg-
r Eyjasigur.
Ragnar Hermannsson þrennu
fyrir Árvak er liðið lagði
Hauka að velli á „mottunni" í
Laugardalnum.
A-riðill:
Grótta-Víkverji............3-1
Erling „KR-ingur“ Aðal-
steinsson skoraði tvívegis fyrir
Gróttuna og þjálfarinn Sverrir
Herbertsson bætti við marki.
Víkverjar voru í óheppnara lagi
en þeirra mark gerði Óskar
Óskarsson.
Grundarfj.-Léttir..........1-0
Gunnar Þór Haraldsson sá til
þess að öll þrjú stigin héldust á
heimaslóðum.
ÍR-Leiknir.................4-3
Sögulegur leikur. Leiknis-
menn fóru fram á frestun á
leiknum vegna meiðsla og fjar-
veru fjölda leikmanna en ÍR-
ingar neituðu. Leiknismenn
komust þó í 3-1 og skoraði
Magnús Bogason öll mörk
þeirra. Eyjólfur Sigurðsson og
Halldór Halldórsson jöfnuðu
metin. Eyjólfur gerði 2. Það var
svo þjálfarinn Gústaf Björnsson
sem tryggði sigurinn með marki
beint úr aukaspyrnu rétt fyrir
leikslok.
B-riðill:
Hafnir-Afturelding.......3-2
Körfuknattleikssnillingurinn
Valur Ingimundarson tryggði
Höfnum sigur með marki rétt
fyrir leikslok. Áður höfðu Hilm-
ar Hjálmarsson og Guðmundur
Jónasson skorað fyrir heima-
menn en Bjarni Sigurðsson og
Freysteinn Stefánsson gerðu
mörk Mosfellinga.
Stokkseyri-Mýrd.......... 13-0
Úff, hrikalegir yfirburðir og
meira að segja Stokkseyringum
fannst leikurinn leiðinlegur
vegna yfirburða sinna. Sól-
mundur Kristjánsson skoraði 5
mörk. Páll Jónsson og einhver
Karl gerðu 3 en Marteinn
Árelíusson og Steinar Valdi-
marsson urðu að láta sér nægja
eitt mark hvor.
C-riðilI:
Árvakur-Haukar............3-1
Ragnar Hermannsson skor-
aði öll þrjú mörk Árvakurs en
Páll Poulsen skoraði fyrir
Hauka.
Bolungarvík-Augnablik . . 2-5
Reynir Hn-Augnablik ... 0-2
Áugnablik fór ferð út á lands-
byggðina og kom heim með 6
stig. Birgir Teitsson, Ingvar
Teitsson, Kristján Halldórsson,
Alexander Þórisson og Jón Orri
Jónsson skoruðu fyrir Blikið á
móti Bólvíkingum en heima-
menn svöruðu með mörkum
Jóhanns Kristjánssonar og Run-
ólfs Péturssonar. Á Hnífsdal
voru það Helgi Helgason og
Albert Klemensson sem gerðu
mörkin.
D-riðill:
Höfðstr.-Reynir Á........0-4
Engin spurning um þessi
úrslit. Mikið um færi en fjögur
nýttust. Björn Friðþjófsson,
Kristján Ásmundsson, Örn Við-
ar Arnarsson og Guðmundur
Hermannsson skoruðu mörkin.
Þá var eitt mark dæmt af Reyni.
Skytturnar-Hvöt...........0-2
Eitthvað voru Skytturnar
ómarkvissar í aðgerðum sínum
og því fóru Hvatarmenn með
stigin með sér. Garðar Jónsson
og Hermann Arason skoruðu
mörkin í ágætum leik.
E-riðill:
Vaskur-Bjarmi.............4-0
Vaskleg framganga. Valdi-
mar Júlíusson og Gunnar Bergs-
son skoruðu sín tvö mörkin
hvor og slökktu þar með
Bjarma(nn)
Árroðinn-Tjörnes ..........4-2
Fyrrum Tjörnesingur, Friðrik
Jónasson, skoraði fyrsta markið
fyrir Árroðann. Egill Örlygs-
son, Björn Björnsson og Örn
Tryggvason bættu við mörkum
en Aðalsteinn Baldursson sá
um bæði mörk Tjörness.
F-riðill:
Hrafnkell-Neisti ..........3-2
Það voru bara fimm mínútur
eftir er dómarinn dæmdi
„Liverpool-víti“ áNeista. Hann
neitaði að ráðfæra sig við línu-
vörð sem þó gaf til kynna að um
mistök væri að ræða. Sverrir
Gunnarsson, Vignir Garðars-
son og Þorvaldur Hreinsson
skoruðu mörk heimamanna en
Gunnlaugur Bogason og Þor-
björn Björnsson skoruðu fyrir
Neista.
Höttur-Egill...............3-2
„Það var fyrir mestu að fá
stigin“ sagði einn af Hötturun-
um eftir leikinn. Þrátt fyrir lát-
lausa sókn og mörg tækifæri þá
varð sigurinn ekki stór hjá
Hetti. Árni Ólason, Magnús
Steinþórsson og eitt sjálfsmark
tryggði stigin 3 en Sigþór
Hjartarson og Daði Hansson
sáu um mörk þess rauða.
Sindri-Súlan...............3-1
Engin spurning um úrslit.
Þrándur Sigurðsson og Elvar
Grétarsson (2) sáu um að gera
mörk Sindra en Jónas Ólafsson
skoraði fyrir Súluna sem ekki
átti sér viðreisnar von.
Þriðjudagur 11. Júní 1985 23
3. deild í knattspyrnu:
Markaregn á
mörgum stöðum
- Einherji og Reynir gerðu sjö mörk - Þróttur
Nes. með sex - Ari Haukur með þrennu svo og
strákurinn efnilegi í Neskaupstað Ólafur
Viggósson
■ Fjórða umferð í 3.deildar-
keppninni fór fram um helgina.
Staðan í A-riðli breyttist lítil-
lega en þó halda strákarnir frá
Selfossi forystu. Staðan í B-riðli
er enn dálítið óliós.
A-riðill.
Sandgerðingar voru á skot-
skónum á heimavelli sínum er
þeir fengu Ólafsvíkur Víkinga í
heimsókn. Sjö sinnunt sendu
þeir knöttinn í netið án svars frá
Víkingunum. Ari Haukur var á
sínum skotskóm. Hann skoraði
þrennu. Þórður Þorkelsson
gerði tvö og miðvallarspilarinn
stóri og sterki Jón B. G. Jónsson
skoraði eitt mark svo og Grétar
Sigurbjörnsson. Leikurinn var
nokkuð jafn framan af og héldu
Víkingar í við Reynismenn.
Staðan í hléi var 1-0. Þegar svo
heimamenn gerðu annað og
þriðja markið gáfust Víkingarn-
ir upp og allar flóðgáttir opnuð-
ust.
Ármann-Stjarnan ..........4-0
Á grasmottunni í Laugardal
réðu Stjörnumenn ekkert við
Ármenninga. Telja má víst að
grasið hafði sitt að segja. Ár-
menningar vanir því en Stjörnu-
menn þekkja það varla. Ár-
menningar komust í 2-0 fyrir
leikhlé með mörkum frá Ágli
Steinþórssyni og Jens Jóhann-
essyni. Stjörnumenn hresstust
rnjög í upphafi síðari hálfleiks
og voru mjög nálægt því að
skora en tókst ekki. Rúnar Sig-
urjónsson skoraði síðan þriðja
markið með fallegum skalla og
þar með var leikurinn úti.
Bryngeir Torfason innsiglaði
síðan stórsigurinn með góðu
marki. Hann fékk knöttinn við
miðju og einlék alla leið inní
vítateig Stjörnunnar þar sem
hann lét tuðruna vaða í netið.
Fallega gert.
HV-Grindavík .............1-1
Á Skaganum lauk leiknum
með jafntefli og verða það að
teljast nokkuð sanngjörn úrslit.
Sæmundur Víglundsson skoraði
fyrir HV en Ragnar Eðvaldsson
fyrir Grindvíkinga.
Selfoss-ÍK ............... 1-1
Þessi leikur var leikinn á
föstudagskvöldið og sagði NT
frá honum á laugardag. Selfoss
átti að vera búið að gera út um
þennan leik í fyrri hálfleik. ÍK
jafnaði síðan þegar 10 mín.
voru eftir af leiknum.
B-riðill:
Drengjalandsliðsefnið Ólafur
Viggósson var með skóna rétt
reimaða en Þróttur Nes. tók á
móti HSÞB í Neskaupstað um
helgina. Ólafur skoraði þrívegis
í 6-1 sigri Þróttar. Guðbjartur
Magnússon, Þorsteinn Hall-
dórsson og Guðmundur Inga-
son skoruðu hin mörk Þróttar.
Hörður Benónýsson gerði eina
mark HSÞ. Þróttarar óðu í fær-
um í leiknum og áttu m.a. ein
tvö skot í tréverk murksins. Þá
klikkaði Guðmundur Ingason á
víti og svo mætti lengi telja.
Einherji-Huginn ...........7-1
Ekkert stöðvaði Einherja-
ntenn í þessum leik. Lið Hugins
var dálítið vængbrotið en niörk-
in hefðu getað orðið 14 að sögn
heimamanna. Kristján Davíðs-
son var á sínum skotskóm og
gerði'4 mörk. Þar af tvö úr víti.
Baldur Kjartansson, Stefán
Guðmundsson og Steindór
Sveinsson gerðu hin.
Austri-Valur............3-3
Markasúpa um helgina á
Eskifirði. Reyðfirðingar kom-
ust í 3-1 með mörkum Gústafs
Ómarsson úr víti, Lúðvíks Vign-
issonar og Jóns Sveinssonar.
Auðbjörn bakvörður Guð-
björnsson hafði jafnað fyrir
Austra með glæsilegri hjól-
hestaspyrnu. Grétar Ævarsson
sá svo um að jafna með víta-
spyrnu og fallegu marki, 3-3.
Áð sögn heimamanna þá voru
þeir heldur betri en þökkuðu þó
fyrir að missa ekki öll stigin til
Reyðarfjarðar.
Leiknir-lindastóll.......1-1
Tindstælingar fengu víti er
um fimm mínútur voru eftir og
Eiríkur Sverrisson skoraði af
öryggi. Heimamenn höfðu náð
forystu nteð marki Einars
Áskelssonar. „Þetta var ekki
okkar besti leikur og við mátt-
um þakka fyrir jafnteflið úr því
sem komið var,“ sagði Árni
Stefánsson markvörður og
■þjálfari Tindastóls.
Staðan í 3 deild':
A-riðill:
Selfoss ....4 3 1 0 9-4 10
Reynir S .. .. 4 3 0 1 13-4 9
Ármann ....4 3 0 1 9-4 9
Stjarnan ....42113-4 7
HV ....41124-5 4
Grindavík ....41124-6 4
ÍK ....40223-5 2
Víkingur Ó1.... .... 4 0 0 4 2-15 0
B-riðill:
Leiknir F 4 2 116-57
Austri 4 1 3 0 9-5 6
Þróttur N 4 12 19-55
ValurR 3 1 2 0 6-5 5
Tindastóll 3 1 2 0 3-2 5
Einherji 2 10 17-43
Huginn 30213-92
Magni 10010-10
HSÞB 20021-80
KA lagði Fylki
Frá Gylfa Krisljánssyni, fréttamanni NT á
Akureyri:
■ „Þetta var hálfdapurt hjá
okkur og ég er alls ekki ánægður
með leikinn þó við höfum
unnið. Við verðum að gera
betur þrátt fyrir að hafa skorað
sex mörk í síðustu tveimur leikj-
um,“ sagði Njáll Eiðsson eftir
að lið hans, KA hafði unnið
Fylki í annarri deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á laugar-
daginn.
Leikurinn fór fram á Akur-
eyri og KA var alltaf betri
aðilinn.
Strax á 15. mínútu komst KA
í 1-0. Njáll Eiðsson skallaði
laglega á Steingrím Birgisson
sem vippaði á Stefán Ólafsson.
Stefán skoraði af stuttu færi og
það var vel að þessu marki
staðið. Annað markið var einn-
ig eign KA. Njáll lék upp hægri
kantinn og gaf vel fyrir á Stefán
sem skaut viðstöðulaust í mark
Fylkis. Þegar um 10 mínútur
voru eftir af leiknum fékk Fylkir
hornspyrnu og Kristján Guð-
mundsson stökk hæst og skall-
aði fallega í markið, 2-1. Á
síðustu mínútunni kom löng
sending á Tryggva Gunnarsson
sem hljóp varnarmenn Fylkis af
sér og skoraði örugglega, loka-
staðan varð því 3-1 fyrir KA.
Það má segja að mörkin hafi
verið það eina sem gladdi augað
í leiknum.