NT - 25.06.1985, Side 1
f
NEWS SUMMARYIN ENGUSHl SEEP. 19UU
Eldur í Torfufelli:
illa á fótum
■ Maður brenndist illa á
fótum, þegar eldur kom upp í
íbúð hans í Torfufelli á laugar-
dagsmorgun. Slökkvilið
Reykjavíkur var kallað að
Torfufelli kl. 7.30 á laugardag.
Þegar að var komið var búið
að slökkva eldinn.
Eldsupptök urðu í sófa sem
maðurinn svaf í, og komst
eldur í föt hans með þeim
afleiðingum að hann brenndist
illa á fótum. Að sögn Harðar
Jóhannessonar hjá RLR er
ekki vitað hver eldsupptök
voru, en líklegt þykir að mað-
urinn hafi sofnað út frá sígar-
ettu. Maðurinn var enn á
spítala í gær.
Bolvíkingar samþykktu ratsjárstöð:
Ársleiga til bæjarfé-
lagsins er2650 krónur
- endurbætur á vatnsbóli og vegarlagning í kaupbæti
Týnds útlendings leitað í óbyggðum:
1 Eyc Idi t ímanu im
i 1 ía< dr< ;kka t e!
- samkvæmt skilaboðum í leitarmannaskála
■ Lögregla á Hvolsvelli
ásamt björgunarsveitum á
Hvolsvelli og Hcllu leituðu
án árangurs að belgískum
ferðamanni á laugardag og
fram á sunnudag, uppi á
afréttum og hefur hann ekki
enn komið í lcitirnar.
Klukkan 21.30 á laugar-
dagskvöldið var tilkynnt til
lögreglu á Hvolsvelli að ekk-
ert hefði spurst til belgísks
ferðamanns sem lagði upp
fótgangandi frá gistiskálan-
um í Þórsmörk, áleiðis til
Landmannalauga. Þegarfar-
ið var að svipast um eftir
manninum kom í Ijós að
hægt var að rekja för hans
inn á hálendið, og allt í
leitarmannakofa sem stend-
ur í Hvanngili.
Þar hafði maðurinn skilið
eftir sig skilaboð í gestabók-
inni sern hljóðu svo:„Ha!ló.
Ég hef verið hér einn í 24
kukkustundir. Mikið rok og
rigning hefur heft för mína,
og hef ég eytt tímanum í að
skrifa og drekka te. Matar-
birgðir eru af skornum
skammti. Ég legg héðan af
stað eftir þrjá tíma og stefni
þá að skálanum við Álftavatn
og ætla að vera þar í tuttugu
tíma. Mig langar að komast
að Mýrdalsjökli." Þessi orð-
sending sem lögregla á
Hvölsvelli þýddi, var aðeins
undirrituð Mathieu.
Slóð mannsins var rakin
frá leitarmannaskálanum, og
framhjá skála ferðafélagsins
við Álftavatn. Á þeirri leið
sinni óð maðurinn Köldu-
klofsvík sem er jökulfjót.
Slóð ntannsins var síðan rak-
in allt niður undir byggð á
Rangárvöllum, nálægt Fossi
á Rangárvöllum. Þar hvarf
slóðin og skipulegri leit var
hætt. Sveinn Isleifsson varð-
stjóri lögreglunnar á Hvols-
velli sagði í samtali við NT í
gær að lítið væri vitað um
manninn utan það að hann
hefði komið til landsins þann
17. júní og hefði dvalarleyfi
í 3 vikur. Þá bað Sveinn fyrir
þautilmæli að allirþeirsem
kynnu að verða mannsins
varir hefðu samband við lög-
reglu. Svipast hefur verið um
eftir manninum í Reykjavík.
■ Bæjarstjóm Bolungarvíkur
samþykkti með 8 atkvæðum
gegn 1 á fundi sínum á sunnudag
að leigja 7 hektara lands á Bola-
fjalli undir ratsjárstöð á vegum
bandaríska hersins á íslandi.
Samningurinn færir Bolvíking-
um 2650 kr. tekjur á ári.
Utanríkisráðuneytið féllst á
það í samningnum að leggja veg
meðfram byggðinni upp á Bola-
fjall, þannig að umferð vegna
ratsjárstöðvarinnar fari ekki
um bæinn. Þá mun ráðuneytið
einnig gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir mengun á
vatnsbóli Bolungarvíkur, en
vegaframkvæmdirnar verða á
vatnasvæði Vatnsveitunnar.
Samningurinn er gerður til
óákveðins tíma, en hann er
uppsegjanlegur af hálfu ráðu-
neytisins með eins árs fyrirvara.
Bolvíkingar geta ekki sagt hon-
um upp. Byggingar og önnur
mannvirki á svæðinu verða alls
2500 fermetrar og greiðast 52
aurar fyrir hvern fermetra á ári.
Þá eru eftir 6,75 hektarar og
greiðast 200 krónur fyrir hvern
á ári.
Guðmundur Kristjánsson
bæjarstjóri í Bolungarvík sagði
í samtali við NT, að bæjar-
stjórnin hefði að sjálfsögðu vilj-
að fá hærri leigu fyrir landið, en
það hefði ekki verið talið fært,
og vísaði m.a. til þess, að land
undir atvinnustarfsemi utan við
bæinn væri leigt á sömu kjörum.
Og aðspurður sagði hann, að
Bolvíkingar hefðu einhvern
tíma þurft að ráðast í fram-
kvæmdirnar, sem fyrirhugaðar
ertt við vatnsbólið, þó svo, að
þær hafi ekki verið komnar á
dagskrá. Hann giskaði á, að þær
kostuðu 7-8 milljónir króna.
Jón Egill Egilsson á varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins sagði í samtali, að
fljótlega yrði hafist handa um
lagningu vegarins, og bygging
ratsjárstöðvarinnar sjálfrar yrði
hafin í sumar.
Tölvustýrðurfræs-
ari seldur úr landi
■ Fyrirtækið Óðinn í Vest-
mannaeyjum hefur orðið að
selja framlciðsluleyfí á tölvu-
stýrðum fræsara til Noregs, þar
sem treglega hefur gengið að fá
fyrirgreiðslu hjá innlendum lána-
stofnunum til að koma fram-
leiðslunni af stað. Norska fyrir-
tækið, sem kaupir leyfíð, heitir
Line Lite, og er það m.a. í eigu
nokkurra íslendinga.
Halldór Axelsson fram-
kvæmdastjóri Óðins er nýkom-
inn frá Noregi, þar sem hann
var að setja upp fyrsta fræsarann
af þessari tegund, sem fyrirtæk-
ið hefur framleitt. Hann sagði í
samtali við NT, að hann hefði
lagt inn óformlega umsókn til
iðnlánasjóðs og iðnrekstrar-
sjóðs, og sér skildist að hann
gæti fengjð doljaralán _í hausf.
Hann yrði þá að veðsetja íbúðar-
hús sitt. í Noregi væri aftur á
móti hægt að fá lánað áhættu-
fjármagn, og væri veð aðeins
tekið í verkefninu, sem féð færi
í.
„Það er ekkert annað en
slæmt að segja um það,“ sagði
Halldór, þegar hann var spurð-
ur um þau málalok að þurfa að
. selja .framleiðílypa . ýr. .landi,
„Þetta eru hálfgerðir nauðungar-
samningar, en ég hef ekki efni á
að bíða fram á haust eftir því
hvort ég fæ kannski lán.“
Fræsarinn, sem hér um ræðir,
verður fyrst urn sinn a.m.k.
notaður við hönnun á auglýs-
ingaskiltum úr svokölluðum
línuljósum. Halldór sagði, að
þegar hefðu borist óformlegar
.BaníanÍLál(lslykkj.umksn[ Uv.er.
fræsari er seldur á um þrjár
milljónir króna. Halldór sagði,
að efnið í auglýsingaskiltin væri
selt til um 70 landa og því ætti
að vera töluverður markaður ‘
fyrir fræsarann. Hann sagði, að
líka hefðu farið fram athuganir
á notkun hans í öðrum iðngrein-
um, og nefndi hann tréiðnað og
fataiðnað........
Vinsælasti
maður íslands
■ „Ég er búinn aö sjá
svo margt að þaö er eins
og ég sé í paradís,“ sagði
Reynir Pétur Ingvarsson
þegar 12-14 þúsund manns
fögnuðu honum á Lækjar-
torgi í gær. Og þessi mynd
ber það með sér að gleði
Rcynis Péturs hafí verið
smitandi ef marka má
svipinn á fólkinu við
sviðið.
NT*mynd: Ari
Sjá nánar bls.2