NT - 25.06.1985, Blaðsíða 5

NT - 25.06.1985, Blaðsíða 5
Jarðgöng á Vestfjörðum? Tæknilega og jarðfræðilega mögulegt MYNDBANDASÝNINGAR Á SÖLUHROSSUM Búvörudeild Sambandsins hefur í samvinnu við Félag hrossa- bænda látið gera myndbönd með upplýsingum um nokkur hundruð söluhross, gæði þeirra, verðflokka o.fl. Myndböndin verða sýnd innlendum og erlendum viðskiptavinum á þriðjudögum og fimmtudögum. Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að hafa samband við Búvörudeild Sambandsins í síma 28200. ■ Tæknilega og jarð- fræðilega er ekkert því til fyrirstöðu að gera jarð- göng milli Skutulsfjarðar, Súgandafjarðar og Önunda- fjarðar, að sögn Hreins Haraldssonar, jarðfræð- ings, sem hefur nýlokið við rannsóknir á jarðlög- um þarfyrir Vegagerðina. Ekkert hefur verið ákveðið um gerð jarð- gangna þar, en skýrsla byggð á athugunum hefur verið send til þingmanna sem ákveða hvað verður. Hreinn sagði að göngin tvö myndu vera um 9 km löng, hvor um sig á fimmta km. Kostnaður við gerð slíkra ganga, miðað við kostnaðaráætlanir sem hafa verið gerðar fyrir göngin fyrirhugðu í gegn- um Ólafsfjarðarmúla, myndi vera um 100 millj- ónir á kílómetra, að sögn Hreins. Hann sagði að jarðlögin sem hefðu verið athuguð væru lagskipt grágrýti, með „lélegri" lögum eins og sandsteini á milli. „Þetta er eins og terta með sultu milli laganna. Maður verður að sneiða hjá sultunni og halda sig við sterkari lögin," sagði Hreinn. Jarðgöng þarna myndu þjóna þeim tilgangi að leysa vanda byggðarlag- anna í samgöngumálum, sagði Hreinn. Það gilti því annað þar en í Ólafsfjarð- armúlanum. Þau göng, sem munu verða 3,2 km löng og á að byrja á eftir tvö eða þrjú ár, koma til vegna þess hve vegurinn við múlann er mikill slysa- vegur og erfiður vetrar- vegur. Þrír nýir sendiherrar ■ Þrír nýskipaöir sendiherrar erlendra ríkja afhentu forseta íslands trúnaöar- bréf sín þann 11. júní síðastliðinn. Þeir eru Franciszek Stachowiak frá Póllandi, Muzammel Hussain frá Bangladesh og Abdelaziz Kara frá Alsír. Hinn fyrst nefndi hefur aðsetur í Osló, en hinir tveir í Stokkhólmi. Matthías Á Mathiesen viðskiptaráðherra var viðstaddur afhendingu trúnað- arliréfanna. Skipulag síldveiða 1985: Síldarafli á árinu áætlaður 50.0001 tekinn upp kvóti hjá reknetaskipum ■ Sjávarútvegsráðu- neytið hefur sent frá sér yfirlýsingu um skipulag síldveiða á komandi hausti. I meginatriðum er skipulagið það sama og á undanfömum árum, utan þess að í ár verður í fyrsta sinn ákveðinn kvóti fyrir hvern einstakan rekneta- bát. Þá verða lagnetaveið- ar ekki háðar sérstökum veiðileyfum eins og undanfarin ár. Gert er ráð fyrir að heildaraflinn verði allt að 50.000 lestir af síld. Veiði- tímabil verður frá klukkan 18 þann 29. september og stendur fram til 15. des- ember. Þetta á við um nótaveiðar og rekneta- veiðar. Lagnetaveiðar má stunda frá 10. ágúst og fram til 15. desember. Hverju nótaskipi verð- ur heimilt að veiða 330 lestir af síld. Heimilt er að færa heila eða hálfa kvóta milli skipa. Þó er engu skipi heimilt að veiða meira en kvóta tveggja. Þegar síldarverð hefur verið ákveðið tekur ráðu- neytið afstöðu til þess hvort settur verður verð- mætakvóti eins og undan- farin ár. Ákveðinn hefur verið kvóti á hvert einstakt reknetaskip. Skipting er gerð á grundvelli síldar- afla skipanna árin 1982- 1984 og er tekið mið af tveimur aflahæstu árum hvers skips. Sama gildir um færslurá kvótum miili reknetaskipa, nema hvað reknetaskip má ekki veiða meira en kvóta tveggja hringnótaskipa. Samanlagður afli lag- netabáta, 50 lestir og minni, má ekki fara yfir 1.500 lestir, og verða veið- ar stöðvaðar þegar því magni er náð. Lagneta- veiðar eru aðeins heimilar bátum minni en 50 brúttó- lestir. Starfsfólk Hafnarbúða skorar á borgarfulltrúa ■ „Við undirrituð, starfsfólk Hafnarbúða, höfum hvorki séð né heyrt frambærileg rök fyrir því að Reykjavíkurborg láti af hendi eina af deildum Borgarspítalans, fullbúna og fullsetna bæði af sjúkl- ingum og starfsfólki. Hafnarbúðir eru að flestra dómi þörf og vel rekin stofnun og nauðsyn henn- ar í þágu borgarbúa þarf ekki að ræða,“ segir áskorun sem allir star menn Hafnarbúða, h; undirritað og beint er borgarstjórnar og borg; ráðs Reykjavíkur. í áskoruninni er þ( farið á leit við fulltrú; borgarráði og borg; stjórn að afstýra því sl' að höggvið verði st( skarð í þjónustu borg; innar við sjúka og aldrað Samband islenzkra samvinnufelaga @Búvörudeild Sambandshusmu Rvik simi 28200 -það borgar sig að taka nótu Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn. En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki. Taktu nótu - það borgar sig Samkvæmt lögum og reglugerðum um söluskatt og bókhald er öllum sem selja vöru og þjónustu skylt að gefa út reikninga vegna viðskiptanna. Reikningar eiga að vera tölusettir fyrirfram og kaupandi á að fá eitt eintak. Sé um söluskattsskylda vöru eða þjónustu að ræða á það að koma greinilega fram á reikningi. FJARMALARAÐUNEYTIÐ

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.