NT


NT - 25.06.1985, Síða 20

NT - 25.06.1985, Síða 20
Þriðjudagur 25. júní 1985 20 Grand-Prix mótin í frjálsíþróttum: Einar er óstöðvandi - sigraði í spjótinu í Prag og er efstur í karla- keppninni - Oddur náði 6. sætinu 2. sæti. David Kitur frá Kenya varð þriðji á 46,18 sek. og þá kom annar Kúbumaður, Leandro Penalver á 46,40 sek. Tékkinn Jindich Roun varð í 5. sæti á 46,68 sek. Árangur á mótinu þótti ann- ars yfirleitt frekar slakur. Flest besta frjálsíþróttafólk Sovét- manna og A-Þjóðverja tók þátt í landskeppni þessara þjóða í Erfurt um helgina. Bandaríkja- menn tóku heldur ekki þátt í þessu móti, voru flestir við keppni í Kaliforníu eða Eng- landi. Sovésku Bubka bræðurnir fengu þó bæjarleyfi frá lands- keppninni í Erfurt og tóku þátt í stangarstökkinu ásamt landa sínum Alexander Krupsky. Þessir þrír röðuðu sér svo í efstu sætin í keppninni. Heimsmet- hafinn Sergei Bubka sigraði, stökk, 5,80 og bróðir hans Vass- ili stökk einnig þá hæð og varð í öðru sæti. Þeir bræður reyndu svo báðir við nýtt heimsmet, 5,95 metra, en felldu naumlega í öll skiptin. Enn hefur því ekki verið sett heimsmet á Grand Prix rnóti. Krupsky stökk 5,70 metra. í kringlukasti sigraði heims- meistarinn Imrich Bugar frá Tékkóslóvakíu með 67,74 metra kasti. Þetta var annar sigur Bugar á Grand Prix móti, hann sigraði einnig í Oregon , fyrr í mánuðinum og varð í öðru sæti á mótinu í Moskvu Luis Delis frá Kúbu varð annar með 67,48 metra og þótti einvígi þeirra Bugars ein skemmtileg- asta keppnin á mótinu. í keppni kvenna voru „gömlu“ konurnar mest áber- andi. Jarmila Kratochvilova hljóp 800 metrana á einni mín- útu og 56,57 sek., sem er innan við sekúndu frá hennar besta tíma í ár. Ella Kovacs frá Rúm- eníu varð önnur á 1,56,92 mín. Tékkneski heimsmeistarinn Helena Fibingerova, sem er 35 ára, sigraði í kúluvarpinu. Hún kastaði 21,03 metra. Svetla Mitkova, Búlgaríu, varð önnur með 18,65 metra. Loks sigraði rúmenski olymp- íumeistarinn Maricia Puica í 3000 metra hlaupi á átta mínút- um og 50,62 sek. Puica varð meira en sjö sekúndum á undan Angelu Tooby frá Bretlandi, sem hljóp á 8,58,23 mín. í hástökkinu sigraði Steska Kostadinova frá Búlgaríu, er hún fór yfir 1,98 metra. Kostadi- nova hefur hlotið flest stig kvenna á Grand Prix mótinu til þessa. Önnur varð landa hennar Ludmila Andonova, stökk 1,95 metra. Andonova er núverandi heimsmethafi. Bubka-bræðurnir Sergey og Vasily urðu í tveimur efstu sætunum í stangarstökki í Prag. 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu: Bliícar lögðu KA - og halda efsta sætinu ■ Breiðablik heldur foryst- unni í 2. deild eftir að hafa sigrað KA 1-0 á Kópavogsvelli á sunnu- dagskvöldið. Blikarnir hafa nú 12 stig, einu stigi meira en IBV, sem sigraði Fylki 1-2 á laugar- dag. Leikur Breiðabliks og KA var frekar dapur og fátt um marktækifæri. Sérstaklega ollu Akureyringar vonbrigðum, því samkvæmt minnisblöðunum áttu þeir aöeins eitt marktæki- færi allan leikinn. Það kom snemma í síðari hálfleik er Erlingur Kristjánsson skallaði yfir mark UBK. Eina markið kom á 12. mín- útu leiksins. Erlingur og Gunn- ar Gylfason börðust um knött- inn rétt utan við vítateig KA og lauk þeim viðskiptum þannig að Erlingur féll við, datt eða var hrint, Gunnar sendi hins vegar kröttinn á Jón Þóri Jónsson, sem skoraði með föstu skoti. Blikarnir fengu nokkur tæki- færi til að bæta við mörkum, en það tókst þeim þó ekki. Næst komust þeir því á 61. mínútu er Hákon Gunnarsson skaut í þverslá KA-marksins, eftir að knötturinn hafði hrokkið til hans af varnarvegg KA eftir auka- spyrnu Jóhanns Grétarssonar. Hjá KA var Erlingur lang- bestur. en Jón Þórir og Guð- mundur Guðmundsson voru bestir Blikanna. A Húsavík gerðu heimamenn og Skallagrímur janftefli 1-1. Völsungar urðu fyrri til að skora, Birgir Skúlason á 84. mínútu eftir þvögu í vítateig Borgnesinga. Lokamínúturnar slöppuðu Völsungar einum of vel af og það kostaði þá tvö stig. Gunnar Jónsson jafnaði metin á 88. mínútu, eftir að hafa hlaupið vörnina af sér. I Njarðvík gerðu heimamenn markalaust jafntefli við KS og jafntefli varð einnigá Ólafsfirði. Þar tók Leiftur á móti ísfirðing- um og gerði hvort lið tvö mörk. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Sigurbjörns Jakobs- sonar (víti) og Sölva Ingólfsson- ar, en ísfirðingar gáfust ekki upp. Jón Oddsson minnkaði muninn fyrir leikhlé og Rúnar Steingrímsson jafnaði metin í síðari hálfleik. Loks sigraði IBV Fylki á teppinu í Laugardalnum. Tóm- as Pálsson og Sigbjörn Óskars- son gerðu mörk Eyjamanna. Staðan í 2. deild er þá þessi: Breiðablik........ 5 4 0 1 12- 5 12 ÍBV............... 5 3 2 0 10- 5 11 KS................ 5 2 2 1 7- 3 8 ÍBÍ .............. 5 2 2 1 8- 5 8 KA ............... 52 1 2 9- 67 Völsungur......... 52 1 2 7- 87 Njarðvík ......... 5131 2-36 Skallagrímur ..... 5 0 3 2 4-10 3 Fylkir............ 5023 4- 82 Leiftur...........5 0 2 3 3-12-2 I ■ Einar Vilhjálmsson er svo sannarlega óstöðvandi í spjót- kastinu þessa dagana. Á laugar- dag sigraði hann á Grand Prix mótinu í Prag, Tékkóslóvakíu, kastaði 85,36 metra og var það hans fjórði sigur á erlendu stór- móti á aðeins átta dögum. Aldeilis frábært hjá Einari. Þá varð Oddur Sigurðsson í 6. sæti í 400 metra hlaupi á 46,98 sek. Einar hefur nú sigrað á þremur af fjórum Grand Prix mótum sumarsins og er stigahæsti frjáls- íþróttamaðurinn á mótinu. Sá sem flest stig fær út úr öllum mótunum fær 25.000 dollara í verðlaun (rúmlega eina milljón króna). Þá keppa þeir sex bestu í hverri grein á móti í Róm í haust. Einar kastaði nær tveimur metrum lengra en næsti maður á spjótkastkepppninni, Stanis- law Gorak frá Póllandi. Gorak átti lengst 83,68 metra. í þriðja sæti varð Uwe Trink frá A-Þýska- landi með 81,52 metra og Kúbu- maðurinn Ramon Gonzalez kastaði 81,14 metra. Þá kom Gerald Weiss frá A-Þýskalandi með 79,72 metra og næst komu þrír Tékkar. Jan Kolar kastaði 79,32 metra. Jan Oboril 79,16 og Paval Retan 76,78 metra. Kúbumaðurinn Roberto Hernandez sigraði í 400 metra hlaupinu á 45,75 sek. og Arnold Martel frá Sviss varð annar á 45,87 sek. Martel sigraði á Vest- urleikunum í Zug í Sviss á dögunum, en þar varð Oddur í NT-mynd: Ari Belgar áf rýja ekki halda leiki í Evrópukeppnum í knattspyrnu næstu 10 árin. UEFA sagði í dómnum að léleg öryggisgæsla á leik Juventus og Liverpool í Brússel hefði verið ein af ástæðunum fyrir því að svo fór sem fór. Italirnir ætla hinsvegar að áfrýja þeim dómi að Juventus verði að leika næstu tvo Evrópu- leiki sína fyrir luktum dyrum. Morini, framkvæmdastjóri Juventus, sagði það fáránlegt að ætla að halda stuðnings- mönnum liðsins fyrir utan völlinn. „Það skapar tóm vand- ræði og mun meiri en ætlað er að koma í veg fyrir,“ sagði hann. StefanoTacconileikmað- ur með Juventus, sagði að áhorf- endur gæfu leikmönnum 40% af orku sinni og því væri þetta ekki skynsamlegt. „Það er mar- tröð að leika fyrir luktum dyrum." ■ Hákon Gunnarsson skallar út í loftið í leik Blikanna gegn KA Kona dæmd í leikbann ■ UEFA, knattspyrnu- samband Evrópu, hefur sektað austurríska knatt- spyrnuliðið Rapid frá Vínarborg um um það bil 800.000 íslenskar krónur vegna þess að stuðnings- menn liðsins kveiktu í rakettum og reyksprengj- um á úrslitaleiknum í Evrópukeppni bikarhafa milli Rapid og Everton frá Englandi þann 15. maí síðastliðinn... ...Aganefnd UEFA dæmdi Bordeaux frá Frakklandi til að greiða 480.000 íslenskar krónur í sekt fyrir leik áhorfenda að eldi á undanúrslitaleik Juventus og Bordeaux í Evrópukeppni meistara- liða 24. apríl. Þá fékk Bordeaux 400.000 króna sekt fyrir að mæta seint í leik gegn Dnepropetr- ovsk þann 20. mars í Sovétríkjunum svo engu munaði að fresta þyrfti leiknum... Þá tilkynnti UEFA að í fyrsta sinn þyrfti aga- nefndin að dæma sektir vegna kvennaknatt- spyrnu. Gillian Totton, leikmaður með norður- írska kvennalandsliðinu, var dæmd í fjögurra leikja bann í UEFA- keppnum landsliða fyrir ofbeldi í leik gegn írska lýðveldinu 5. maí síðast- liðinn. Hateley ekki með ■ Enski landsliðsmið- herjinn Mark Hateley mun missa af fyrri leik AC Milanó og Inter Mil- anó í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Hann hlaut ántinningu í síðari leik Milanó og Juventus í átta liða úrslitunum og er þar með kominn með of mörg refsistig. í hinum undanúrslita- leiknum leika Sampdoria og Fiorentina. ■ Belgar ætla ekki að áfrýja þeim dómi UEFA að þeim sé bannað að skipuleggja eða Liverpool áfrýjar ■ Stjórn enska knatt- spymuliðsins Liverpool ákvað fyrir helgi að áfrýja þriggja ára banni Knattspyrnusam- bands Evrópu (UEFA) á þátttöku liðsins í Evrópu- keppnunum þremur. Bannið tekur gildi eftir að banni UEFA við þátttöku enskra liða í keppnunum lýkur. „Okkur var ekki leyft að leggja fram nein gögn okkur til málsbóta fyrir þennan úrskurð og þetta er eina leiðin fyrir okkur til þess að gera það," sagði John Smith, stjórnarforseti Liverpool.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.