NT


NT - 25.06.1985, Síða 8

NT - 25.06.1985, Síða 8
Þriðjudagur 25. júní 1985 8 laordið _____________J Stangveiðar eru þrælskemmtilegar ■ Stangveiðidagur fjölskyld- unnar var haldinn síðastliðinn sunnudag. Allir þeir sem að honum stóðu eiga þakkir skildar fyrir verðugt framlag. Ég er fjölskyldufaðir í Vestur- bænum og í tilefni dagsins dreif ég mig á silungsveiðar, í fyrsta skipti, við Úlfljótsvatn. Synir mínir eru tveir, átta ára og tíu ára. Þeir eru báðir miklir veiðimenn og fara til veiða við hvert tækifæri. í þetta skipti lét ég verða af því að fara með þeim og eyða einni dagstund við veiðar. Til að byrja með var spenn- an ekki mikil, en þegar á leið og drengirnir fóru að draga fisk sitt hvoru megin við mig fór brúnin að þyngjast. Ég hugsaði um að hætta við allt saman og verja tímanum í að „hjálpa" þeim við að beita, og annað þess háttar. Ég ákvað þó að halda áfram stundarkorn í viðbót. Það var þess virði. Það var rifið ofsalega í maðkinn. Flotholtiðfóráhúrr- andi kaf. Ég byrjaði að draga ferlíkið inn. Vertur rólegur pabbi kölluð báðir drengirnir í einu. Þú missir hann ef þú lætur svona. Ég var víst orðinn nokkuð fölur í átökunum. Á land fór fiskurinn. Þetta er fallegasti smá-silungur sem ég hef séð. Alls veiddum við 10 fallegar bleikjur og fórum allir ánægðir heim. Það er alveg öruggt mál að ég fer aftur að veiða með strákunum, og hver veit nema við förum í lax. Þetta reyndist eftir allt vera þræl-skemmtilegt. Einn sem fékk delluna ■ ...Og hver veit nema við förum í lax. Samþykktu fyrst og felldu svo Reykjavík 20. júní ■ Ágæta lesendasíða. Alþingismenn eru furðulegt fólk svo ekki sé meira sagt. Neðri deild samþykkti bjór- frumvarp, efri deild breytti frumvarpinu í þjóðaratkvæða- greiðslu og svo felldi neðri deild það frumvarp sem hún hafði áður samþykkt. Halda mennirnir að þjóðin sé eitt allsherjar Fífl með stóru effi? Reyndar mætti kannski halda það þegar tekið er tillit til þess að þingmenn eiga að vera einhvers konar úrval af þjóðinni ogþávæntanlegaekki af verri endanum. Þjóðin sam- einast um það í almennum kosningum að velja hæfustu syni sína - og dætur - til setu í þessari æðstu valdastofnun. Þegar það kemur síðan í Ijós að viska blessaðra þingmann- anna er með þeim hætti að þeir samþykkja eitt í dag og annað á morgun í sama máli, þá má kannski fara að draga einhverj- ar slíkar ályktanir um þjóðina í heild. Nema þjóðin hafi kannski verið að gera að gamni sínu þegar hún kaus síðast!?! Skilningssljór ■ Við þingslit á föstudaginn. Var þjóðin kannski að gera að gamni sínu? Áfengisbölið er nóg fyrir Kuna hringdi ■ Enn um sinn hefur Al- þingi borið gæfu til að bægja hættunni frá dyrum þjóðar- innar. Þjóðin getur því dreg- ið andann léttar enn um hríð í trausti þess að bjórinn, þessi vágestur, muni ekki sækja hana heim a.m.k. næsta árið. Vonandi láta þeir fáráðu menn sem hvað eftir annað hafa viljað troða bjórnum upp á þjóðina, þetta sér að kenningu verða og láta sér ekki detta í hug að bera fram slík ógæfufrumvörp, sem bjórfrumvarpið var. Það eru þegar of margir alkóhólistar hér á landi þó að ekki sé verið að byrja á því að hella bjór ofan í börn og unglinga í skólunum og áfengisbölið á vínveitinga- húsunum um helgar er víst alveg nóg fyrir þó að það sé ekki verið að flytja það líka inn á vinnustaðina. ■ Frábærir tónlistarmenn, segir bréfritari, en Mezzoforte í Höllinni Röng hljómsveit á röngum stað ■ Þá er 17. júní liðinn og að þessu sinni fóru hátíðahöldin hér í Reykjavík fram með miklum sóma. Unglingarnir fylltu Laugardalshöllina og var þar mikið fjör, en heldur fannst mér það skringilegt hjá ráðamönnum að biðja Mezzo- forte að spila þar. Mezzoforte verður aldrei kölluð stuð- hljómsveit, því þótt svo strák- arnir séu allir alveg frábærir tónlistarmenn, þá virka þeir ósköp ráðleysislegir á sviðinu og kunna lítt að skapa stemmn- ingu. Það var ólíkt skemmti- legra að horfa á þá í Grafík æsa lýðinn upp og fá hann til að hrópa og kallast á við sig. Þetta tókst þeim með miklum glæsibrag en svo þegar Mezzoforte byrjaði að spila datt stemmn- ingin alveg niður. Hún batnaði að vísu seinna um kvöldið, en það var alveg óþarfi að láta þetta slys koma fyrir. Mezzo- forte er hljómsveit sem flytur ekki tónlist sem bera á á borð við tækifæri sem þetta. Hún á heimaá litlum notalegum jazz- stöðum, og einnig nýtur tdhlist þeirra sér ákaflega vel heima í stofu. „Mezzoforte-aðdáandi“

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.