NT - 25.06.1985, Qupperneq 9
Þriðjudagur 25. Júni 1985 9
Textilsýning
5 nemenda MHI
Prestastefnan
1985 haldin
25.-27. júní
■ Prestastefnan 1985
verður haldin í Reykjavík
25.-27. júní. Rúmlega
hundrað prestar af öllu
landinu koma til stefnunn-
ar, sem verður haldin í
Menntaskólanum í Reykja
vík og Dómkirkjunni.
Umræðuefni Presta-
stefnunnar að þessu sinni
verður Limaskýrslan,
skírnin, máltíð Drottins
og þjónustan.
Priðjudaginn 25. júní
kl. 10.00 mæta prestar í
MR og ganga þaðan hempu-
klæddir til messu í Dóm-
kirkjunni. Prestastefnan
verður formlega sett í
Dómkirkjunni kl. 14.00
þar sem biskup flytur
ávarp og haldin verður
yfirlitsræða.
Dagskrá miðvikudags-
ins hefst með morgunbæn-
um i hátíðarsal MR, en
síðan munu umræðuhópar
fjalla um málefni Presta-
stefnunnar. Prestskonur
eru boðnar í síðdegiskaffi
í biskupsgarði og mun
dagskrá miðvikudagsins
ljúka með kvöldbænum í
hátíðarsal MR.
Á fimmtudaginn verður
fram haldið umræðum og
flutt verður greinargerð
um störf kirkjueignar-
nefndar. Altarisganga og
synodusslit verða svo í
Dómkirkjunni síðdegis,
en Prestastefnunni lýkur
með samveru í biskups-
garði kl. 21.00.
Söngvarar í Norræna
■ Á þriðjudagskvöld kl.
20.30 halda Sólrún Braga-
dóttir, sópran og Bergþór
Pálsson, bariton, tónleika
í Norræna húsinu ásamt
Jónasi Ingimundarsyni,
píanóleikara.
Þau eru nýkomin úr tón-
leikaferð um Norðurland,
en þetta eru fyrstu tónleik-
ar þeirra í Reykjavík. Á
efnisskránni verða ein-
söngslög og dúettar eftir
m.a. Vaughan Williams,
Brahms, Poulenc og
Verdi.
Þau Sólrún og Bergþór
stunduðu nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík hjá
Elísabetu Erlingsdóttur.
Sl. þrjú ár hafa þau numið
við tónlistardeild háskól-
ans í Indiana. Aðalkenn-
arar þeirra þar hafa verið
próf. Roy Samuelsen og
dr. Robert Evans.
Ósk Maríu Markan
á áttræðisafmæli
■ í tilefni af átt'ræðis-
afmæli sínu, þriðjudag-
inn 25. n.k., hefur Mar-
ía Markan óperusöng-
kona beðið um að þeirri
ósk hennar yrði komið
á framfæri við vini
hennar og velunnara og
aðra þá sem vilja sam-
gleðjast henni á þessum
tímamótum, að í stað
þess að senda henni
blóm og gjafir létu þeir
andvirðið renna til
Blindrabókasafns ís-
lands að Hamrahtíð 17.
En síðan Maríu tók að
förlast sjón, hafa hljóð-
bækur safnsins veitt
henni ómælda gleði og
ánægju. Um leið og við
óskum þessari þjóð-
frægu konu til hamingju
í tilefni afmælisins,
þökkum við henni þann
hlýhug sem liggur á bak
við þessa óvenjuiegu og
snjöllu hugmynd. Þeir
sem vildu sinna þessari
ósk söngkonunnar geta
snúið sér til Blindra-
bókasafns íslands að
Hamrahlíð 17, persónu-
lega eða bréflega.
Samkoma í Vatnaskógi
■ Síðustu helgi júní-
mánaðar verður árlegt
mót í Vatnaskógi sem
haldið er á vegum Sam-
bands ísl. kristniboðsfé-
laga. Yfirskrift mótsins er
„Treystu Drottni af öllu
hjarta“ og verða þar á
dagskrá biblíulestur,
guðsþjónusta og samkom-
ur frá föstudagskvöldi til
sunnudagseftirmiðdags
28. til 30. júní.
Þá verður sérstök kristni-
boðssamkoma kl. 14 á
sunnudag. Jónas Þ. Þóris-
son kristniboði og lngi-
björg Ingvarsdóttir, sem
eru stödd hérlendis í leyfi
í sumar ásamt dætrum
sínum, munu koma fram á
samkomunni og segja frá
störfum sínum syðra. Aðr-
ir ræðumenn mótsins eru
bæði úr hópi leikmanna
og guðfræðinga og kristni-
boðar er verið hafa við
störf í Eþíópíu og Kenýa.
Að mótinu loknu hefst
kristniboðsþing sem
stendur til hádegis
miðvikudaginn 3. júlí. Er
slíkt þing haldið á tveggja
ára fresti og fara fram á
því aðalfundarstörf S. í. K.
■ Tauþrykkslengjur,
veggmyndir, púðar og
mjúkir skúlptúrar eru á
sýningu firnm nemenda
við textildeild Myndlista
og handíðaskóla íslands
sem íslenskur húsbúnaður
efnir til.
Þær sem sýna eru Björk
Magnúsdóttir, Fjóla
Árnadóttir, Hrafnhildur
Sigurðardóttir, Ingríður
Óðinsdóttir og Kristrún
Ágústsdóttir, sem voru
allar á þriðja ári í textil-
deild MHÍ s.l. vetur.
Sýningin, sem er til húsa
að Langholtsvegi 111,
opnaði 21. júní og lýkur
12. júlí.
kemper
Heyhleðsluvagnar
Verð frá 350.734.
ARMULA 3 REYKJAVIK SIMI 38900
RO-L31 rúmmetra
Öflugur fjölhnífavagn fyrir vothey og þurrhey, með
fullkomum búnaði. Allt að 29 hnifar með öryggisbún-
aði.
Sporvídd 1,75 m.
Tvöfaldur hjólabúnaður
Verð frá kr. 259.222.-
RO-S31 rúmmetra
Fullkominn fjölhnífavagn með mötunarvölsum að
aftan og búnaði fyrir hliðarútmötun til hægri og vinstri,
fyrir vothey og þurrhey. Mötunarbúnaður með 4
sveiflukömbum. Allt að 29 hnífar með öryggisbúnaöi.
Mötunarbúnaður að aftan með 3 völsum, þvermál 40
cm.
Tvöfaldur hjólabúnaður. Sporvídd 1,75 m
Lúrír þú á frétt?
Nytt símanúmer
Hvemig væri að velja réttu stöngina?
45*
1940-1985 ‘
Hafnarstræti 5, Reyk|avik. Simi (91)-16760
Komdu við í Hafnarstræti 5 og skoðaðu frábært úrval okkar af veiðistöngum.
Allar ABU-stangirnar eru með vönduðum lykkjum, þannig að línan rennur mjúklega í gegn.
Verð og gæði við allra hæfi.