NT - 25.06.1985, Page 10
p Þriðjudagur 25. júní 1985 10
■ Bob Geldorf er önnum kafinn
maður þessa dagana. Fyrir rúmum
fímm árum var hann forsöngvari
Boomtown Rats, írskættaðrar
pönkhljómsveitar sem naut
nokkurra vinsælda. Boomtown Rats
starfa enn, en stjarna
hljómsveitarinnar hefur óneitanlega
hnigið; stjarn Bob Geldorf hefur hins
vegar risið og það óðfluga. Hann er
orðinn þekktur kvikmyndaleikari -
úr myndunum The Wall og The Only
One - og það sem meira er; hann er
heilinn og driffjöðurin á bak við
viðburð, sem líkast til verður öllum
viðburðum í sögu rokktónlistarinnar,
og jafnvel alls
skemmtanaiðnaðarins, stærri og
meiri. Markmiðið er að gefa
sveltandi fólki í Afríku að éta.
- til styrktar bágstöddu fólki I Eþíópíu og
l’etla höfst allt þegtir breskir
stórpoppa'rar sameinuðust aö
frumkvæði Bob Geldorfs og
sungu inná plötu undir nafninu
Band Aid. Það var lagið Do
They Know it's Christmas?, sem
selt var tíl styrktar bágstöddum
í Eþíópíu. Afraksturinn varð
betri en nokkur þorði að vona-
um 8 milljónir punda. Geldorf
hafði líka hönd í bagga þegar
amerískar poppstjörnur fylgdu
í kjöjfarið og sungu saman met-
sölulagið We are thc World,
líka til styrktar bágstöddum á
hungursvæðum í Eþíópíu og
Súdan.
,,A global
juke-box“
Nýjasta fyrirtæki Bob Geld-
orf gengur iindir nafninu Live
Aid. Hugmyndin fæddist fyrir
hálfu ári síðan og var að áliti
Geldorf eðlilegt framhald af
Band Aid-plötunni. Þetta eru
tónleikar sem fara samtímis
fram beggja vegna Atlantshafs-
ins hinn 13da júlí næstkomandi
og verður sjónvarpað beint um
allan heim til að nrinnsta kosti
eins milljarðs áhorfenda.
Hljómsveitirnar og skemmti-
kraftarnir sem fram koma eru
um 45 talsins og nöfnin ekki af
lakari taginu: Wham, Bob
Dylan, Sade, Eric Clapton, Elt-
on John, Phil Collins, Paul
McCartney, Duran Duran,
Bruce Springsteen, Queen,
Paul Simon, David Bowie - og
þá eru aðeins fáeinir taldir. Bob
Geldorf segir sjálfur að tón-
leikarnir séu „a global juke-
box“, eða í lauslegri þýðingu
„alheims-glymskratti“.
En það hefur ekki verið neinn
hægðarleikur að koma þessu
öllu í kring. Síðustu mánuðina
hefur Geldorf setið við símann
í allt að tuttugu klukkustundir á
dag og svo sannarlega þurft á
allri sinni fortölukúnst og per-
sónutöfrum aö halda. Lengst af
hefur liann heldur ekki haft
aðra skrifstofu eða bækistöðvar
en litla svarta minnisbók, fulla
af símanúmerum, heimilisföng-
um og stefnumótum. Hann er
nefnilega nijög eíins um það að
svifaseint og bólgið skrifstofu-
bákn geti framkvæmt hlutina
jafn hratt og örugglega og hann
vill.
The Who
endurreistir
Bob Geldorf ræöst ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur. Hann er búinn að telja
yfirvöld á að leggja til ókeypis
löggæslu á tónleikana á Wem-
bley. Hann hringdi í Paul
McCartney og taldi hann á að
koma fram. Og hann hefurekki
skirrst við að munnhöggvast við
sjálfan forsætisráðherrann til að
ná markmiði sínu. „Það er
nauðsynlegt að hafa þetta stórt
í sniðum, svo að ríkisstjórnir
heimsins taki eftir. Og við vild-
um óska þess að ríkisstjórnirnar
væru ekki smásálarlegri en við
sem höldum tónleikana - og þá
er ég að tala um upphæðir sem
skipta milljónum punda,“ segir
Geldorf.
Boðskapurinn er einfaldur og
hann þreytist ekki á að endur-
taka hapn: „Við höfurn haldið
lífinu í nrilljónum manna. Nú
þurfum við að gefa þeim
mannsæmandi líf. Til þess þarf
peninga í þróunarhjálp sem tek-
ur mið af framtíðinni. Ég er
raunsæismaður - maður verður
einfaldlega að ráðast á vandann
til þess að leysa hann."
Hingað til hefur heppnin ver-
ið með Bob Geldorf og stór-
hljómleikunum hans og veitir
víst ekki af. Nokkrum mínútum
áður en fréttin um tónleikana
barst út kom til dæmis á daginn
að hljómsveitin fræga The Who
ætlaði að koma saman aftur í
tilefni þeirra. Það verður
ábyggilega einn af hápunktum
tónleikanna. „Henry Kissinger
hafði ekkert að segja í þetta,“
sagði Bob Geldorf af þessu
tilefni.
London og
Fíladelfía
Hljómleikarnir verða haldnir
á Wembley leikvanginum í
London og á John F. Kennedy
leikvanginum í Fíladelfíu. Milli
þeirra eru rúmlega 5000 kíló-
metrar, en allan tímann nninu
leikvellirnir vera tengdir með
gervihnetti. Tónleikarnir á
Wembley hefjast á hádegi og þá
mun hver hljómsveit leika í
tuttugu mínútur. Hljómleikarn-
ir í Fíladelfíu hefjast svo klukk-
an fimm að enskum tíma. Tveir
risavaxnir sjónvarpsskermar
verða settir upp á Wembley og
þar munu bandarísku skemmti-
kraftarnir birtast þegar ensku
hljómsveitirnar taka sér hlé.
Hið sama verður uppi á teningn-
um í Fíladelfíu. Éinn stærsti
höfuðverkurinn er sá í hvaða
röö hljómsveitirnar eiga að
korna fram. í síðustu viku var
búið að gera fjórtán tillögur um
niðurröðun skemmtiatriðanna
sem allar höfðu reynst haldlitl-
ar.
T æknisnillingar
frá Ólympíu-
leikunum
Það voru ekki bara tónlistar-
mennirnir sem komu ókeypis
fram á Band Aid plötunni, held-
ur tókst Geldorf líka að fá
Súdan
hljónrplötuframleiðendur til að
leggja fram efniviðinn í plötuna
endurgjaldslaust. Hljómplötu-
verslanir seldu hana líka án þess
að fá nokkuð fyrir sinn snúð.
þótt ríkisstjórn Thatchers neit-
aði að fella niður af henni
opinber gjöld. Mestöll vinna í
kringunt tónleikana miklu er
líka unnin án nokkurrar vonar
um ábata. Það er fyrirtæki sem
heitir Worldwide Sports, sem
sér um að markaðssetja tónleik-
ana útum víða veröld. Forstjóri
þess, Mike Mitchell, hefur
mikla og góða reynslu af slíku
starfi, því hann var fjármála- og
skipulagsstjóri Ólympíuleik-
anna í Los Angeles. Worldwide
Sports mun leggja fram vinnu
sína á kostnaðarverði. Fyrirtæk-
ið mun sjá um að sjónvarpa
tónleikununr til allra landa
nema Bandaríkjanna og Bret-
lands og fær í því skyni not af
gervihnöttum - langt undir
venjulegu verði. Worldwide
Sports hefur þegar haft uppí
kostnaðinn með því að selja
bandarísku sjónvarpsstöðinni
ABC sýningarréttinn á tón-
leikunum. Allur annar ágóði af
sjónvarpssendingunni, auk sex
milljóna dala frá sex alþjóðleg-
um styrktaraðilum, mun renna
beint til hjálparstarfsins í Eþí-
ópíu og Súdan.
Forsvarsmenn tónleikanna
vilja þó að sjónvarpsstöðvarnar
geri meira en það eitt að sýna
tónleikana. Þeir hvetja til þess
að hvert land sem tekur þátt í
útsendingunni leggi fram örstutt
ávarp, sem flutt yrði af einhverj-
unt sem getið hefur sér alþjóð-
lega frægð. „Við viljunt ekki að
þeir lesi yfir hausamótunum á
fólki, bara að þeir segi að við
getum sigrast á hungrinu ef við
vinnum saman," segja tónleika-
haldararnir.
Lítil og þrótt-
mikil samtök
Eins og áður kom fram hefur
Geldorf kostað kapps um að
sneiða hjá skriffinnsku. „Þegar
Band Aid safnaði milljónum
vissi ég að við yrðum að sjá
árangur og það strax,“ segir
hann. „Viðþurfumlítilogþrótt-
mikil sarntök." í samræmi við
þetta hefur Geldorf lagt áherslu
á það að hver eyrir sem safnast
fari til Afríku. en ekkert í laun
og annan stjórnsýslukostnað.
Yfirstjórn hjálparstarfsins er í
höndum níu sjálfboðaliða undir
stjórn Kevin Jenden, arkitekts
sem áður starfaði fyrir Rauða
krossinn í Eþíópíu. Þeir hafa
bækistöðvar í vöruhúsi sém
bæjarstjórn Lundúna lagði
fram, en allur kostnaður þar er
greiddur af malasískum mill-
jónamæringi.
Nú þegar hefur Band Aid
sent til Afríku 1335 tonn af
mjólkurdufti, 150 tonn af sér-
stöku næringarkexi, 560 tonn af
olíu, 470 tonn af sykri, 40 þús-
und töflur af A-vítamíni (það
kemur í veg fyrir að sveltandi
börn verði blind) og þúsund
tonn af korni. Reynslan hefur
kennt Band Aidað það er ekki
nóg að koma matvælunum í
skip til Afríku. Fyrr á þessu ári
komust þeir að því að mikið
magn af mjólkurdufti lá undir
skemmdum á hafnarbakka f
Súdan meðan fólk svalt þar
skammt frá. Síðan þá hafa sam-
tökin keypt 22 Landrover-
jeppa, fjóra torfærubíla, 18
vatnsflutningabíla og 25 vöru-
bíla. Aukinheldur hefur Band
Aid gefið 50 sjúkratjöld, 50
tonn af lyfjum og læknisútbún-
aði, 10 dráttarvélar, og útsæði
og jarðyrkjutól að verðmæti
500 þúsund pund.
Markmiðið
— að bjarga
mannslífum
Ágóðinn af „alheims-glym-
skrattanum" verður mestanpart
lagður í langtímahjálparstarf;
áveituframkvæmdir, vatnsbor-
anir, fræðslu um heilbrigðismál
og landbúnað. Það hlýtur að
vera aðalmarkmiðið að gera
■ Fyrir fáeinum árum lék Bob Geldorf aðalhlutverkið í Pink
Floyd-myndinni The Wall.