NT - 25.06.1985, Blaðsíða 13

NT - 25.06.1985, Blaðsíða 13
EUBOS er sannkölluð heilsulind fyrir húðina. EUBOS-balsam tryggir að hæfilegur raki og fita séu í húðinni. í því eru nauðsynleg næringarefni sem viðhalda teygjanleika húðarinnar og koma í veg fyrir bakteríu- og sveppasýkingar. EUBOS-kremið verndar húðina gegn veðri og vindum og sér til þess að hún sé mjúk og sveigjanleg. EUBOS er hreint út sagt mannbætandi. q ÓlðíSSOH hf Grensásvegi 8, Reykjavík. Þriðjudagur 25. júní 1985 12 Utlönd Sovétríkin: Himnesk land Stríðshriáður Beirútflug-! búnaðarskoðun mU ■ " UU M W" W ^ m Tveir sovéskir geimfarar um Sovétmenn segja þes ___ _ _ _ _ i,«rA í em/ácb.. 7 naim. himiiesku landbiinaðarrai völlur man sinn fífil fegri - engin öryggisvarsla og fjarskiptatækin í megnasta ólagi Beirút-Reuter ■ Flug til og frá Evrópu og Miðausturlanda fara enn fram í gegnum stríðshrjáðan Beirút- flugvöll, þrátt fyrir gíslamálið sem staðið hefur í 12 daga. Starfsemi flugvallarins var þó langt frá því að vera eðlileg áður en shítarnir rændu bandarísku farþegaþotunni á leið frá Grikklandi og flugu henni á endanum til Beirút. Bandaríska Boing 727 far- þegaþotan stendur fyrir framan flugstöðvarbygginguna með vopnaða menn og 3 úr áhöfninni innanborðs en bandarísku farþegarnir 37 eru í haldi utan Beirútborgar. Flugumferðarstjórarnir taka við skipunumfrá flugræningjun: um í gegnum fjarskiptakerfið. í gær báðu flugræningjarnir um Ítalía: Cossiga kjörinn forseti Róm-Reutcr ■ Kristilegi demókrat- inn Francesco Cossiga var í gær kjörinn forseti Ítalíu til næstu 7 ára og tekur liann því við af sósíalistanum Sandro Pertini. Cossiga sem var kjör- inn af þingiiiu hlaut tvo þriðju hluta atkvæða og naut stuðnings allra stærstu stjórnmálaflokk- anna þar á meðal komm- únista. Hann er 56 ára gamall og er fyrsti forsetafram- bjóðandinn sem nær k kjöri í leynilegri at- 1 kvæðagreiðslu frá því að Enrico de Nicola var kjörinn forseti árið 1946. lækni til að meðhöndla maga- veikan áhafnarmann og þegar læknirinn yfirgaf flugvélina komu skipanir á arabísku á ný í gegnum fjarskiptakerfið. Mohammed sem átti vakt í flugturninum lét allt annað eiga sig og svaraði flugræningjunum. „Þeir segja að vond lykt sé í flugvélinni og að klósettið sé orðið mjög skítugt. Þeir vilja að ég útvegi hreingerningarmann,“ sagði Mohammed. Síðar heyrðist aftur í tækjun- um: „Komið með fullt af ana- nassafa, nýjan safa, ekki ruslið sem þið komuð með áður,“ sagði röddin. „L.æknirinn segir að Bandaríkjamennirnir eigi að fá amerískan mat“. Á milli slíkra samtala þurfa flugumferðarstjórarnir að af- greiða flugvélar frá líbanska flugfélaginu (MEA) en það eru einu farþegavélarnar sem fljúga um Beirútflugvöll. Flugumferðarstjórarnir hafa enga ratsjá og rykugu og brotnu stjórnborðin eru full af tækjum og tólum sem virka ekki lengur. Stundum verða samskiptin við flugræningjana gáskafull. í gær spurði einn flugræninginn hvort hann mætti ræna lítilli flugvél sem var á flugvellinum til að heimsækja ættingja sína í Aust- ur-Líbanon. En flugumferðar- stjórinn hætti snögglega að hlæja þegar hann hrifsaði til sín símtólið til að tilkynna farþega- vél frá MEA-flugfélaginu líb- anska sem var um það bil að lenda á flugvellinum og hróp- aði: „375, 375 haltu aðfluginu áfram, haltu aðfluginu áfram, það er fólk á brautinni.“ Fólkið hljóp í skjól þegar það sá flugvél- ina nálgast og flugumferðar- stjórinn gat andað léttar og tilkynnt að nú væri brautin auð. Það er erfitt að koma í veg fyrir slíka atburði þar eð Amal- sveitir shíta sem hafa umsjón með flugvellinum hafa haft litlar öryggisráðstafanir í frammi. Yfirmaður öryggissveitarinnar sagði upp störfum fyrir nokkr- um mánuðum og þótt uppsögn ■ hans hafi ekki verið samþykkt situr hann heima. Fólk kemur og fer að vild sinni inn á brautina, og blaða- menn geta klifrað upp í flug- turninn hvenær sem þá lystir. Kvikmyndatökumenn og ljósmyndarar sem standa úti á svölum flugturnsins beygja sig endrum og eins niður á meðan byssukúlur þjóta yfir hötðum þeirra en halda síðan áfram að fylgjast með atburðunum. Atgreiðsluborð erlendra flug- félaga standa auð og langar bið- raðir eru framan við afgreiðslu- borð líbanska MEA flugfélags- ins og fólk safnast saman við komuhliðin til að taka á móti farþegum sem eru að koma utan af landi. Starfsmenn aka öðru hverju að bandarísku farþegaþotunni til að koma með matvæli og fjarlægja rusl sem hent er út úr afturhluta vélarinnar. Flugræningjarnir birtast sjaldan, aðeins þegar þeir taka á móti matvælunum og þegar þeir henda tómum gosdrykkja- dósum út urn glugga flugvélar- innar. Moskva-Reuter Tveir sovéskir geimfarar um borð í sovésku Salyut-7 geim- stöðinni hafa að undanförnu tekið myndir af landbúnaðar - landi með það fyrir augum að auka nákvæmni við upp- skeruspár í Sovétríkjunum. Að sögn Tass-fréttastofunnar tóku geimfararnir ekki aðeins myndir af sovésku landbúnað- arlandi heldur einnig af land- búnaðarlandi í öðrum Austur- Evrópuríkjum og í Víetnam. Myndirnar verða síðan bornar saman við loftmyndir úrflugvél- um og ómönnuðum gervihnött- um. Sovétmenn segja þessar himnesku landbúnaðarrann- sóknir sínar sönnun á því að þeir vilji aðeins nota geimtækni í friðsamlegum tilgangi. Þeir gagnrýna bandarísk stjórnvöld harkalega fyrir að stefna að vígvæðingu úti í geimnum og segja að sovéska geimferðaáætl- unin hafi einungis borgaraleg markmið en tengist ekki hern- aði. Vestrænii hernaðarsér- fræðingar halda því hins vegar fram að Sovétmenn hafi einnig sína eigin vígvæðingaráætlun úti í geimnum. Bandaríska Boing 727 farþegaþotan á Beirútflugvelli. Farangurssprengjan á Tokyoflugvelli: Engin tengsl finnast við indversku vélina sem sprakk við írland wBEBBBBMBr Tokyo-Reutcr ■ Japönsku lögreglunni tókst ekki að upplýsa í gær tildrög farangurssprengjunnar úr kana- dísku flugvélinni sem sprakk á alþjóðlega flugvellinum í Tokyo með þeim afleiðingum að tveir menn Iétust. Innanríkisráðherra ísrael: „Halda skaltu hvíld- ardaginn heilagan“ Létust 22 skólabörn vegna refsingar guðs? Tel Aviv-Reuter ■ Innanríkisráðhcrra ísraels sagði um helgina að dauði 22 skólabarna sem létust þegar járnbrautarlest ók á langferða- bíl sem þau voru í væri ekki slys heldur viðvörun til ísraels- manna að halda hvíldardaginn heilagan. „Þessi harmleikur var ekki tilviljun. Hér var hönd Guðs að verki,“ sagði þessi hreintrúar rabbíi í viðtali við ríkissjónvarp- ið. 22 börn, 12 og 13 ára gömul létu lífið 11. júní síðastliðinn þegar lest ók á langferðabíl sem börnin voru í. Varsla á mótum járnbrautarteina og þjóðvegar- ins brást en börnin voru í skemmtiferö og var ferðinni heitið niður á strönd. Opinber rannsóknarnefnd hefur úrskurðað að hér hafi verið um mannleg mistök að ræða en Peretz innanríkisráð- herra og leiðtogi flokks hreintrú- armanna sagði að það væri trú- arleg skylda sín að tjá sig um máiið. „Við höfum lögmál Mósebókanna þar sem sagt er skýrum orðum að ef hvíldardag- urinn er ekki haldinn heilagur í Ísraelsríki þá munu ófarir dynja yfir. Þetta verður að koma fram opinberlega svo að þeir sem móta stefnuna hverju sinni muni hugsa sig tvisvar um áður en þeir setja áætlanir um vanvirð- ingu hvíldardagsins í framkvæmd,“ sagði hann. Yfirlýsingar innanríkisráð- herrans komu í kjölfaropnunar- athafnar í Þjóðleikhúsinu í ísra- el á laugardaginn var en laugar- dagar eru hvíldardagar gyðinga. Fjöldi heittrúaðra gyðinga mót- mælti fyrir utan leikhúsið. Talsmaður lögreglunnar sagði að rannsókn 40 lögreglu- manna á tjóninu sem varð í farangursdeildinni hefði verið árangurslítil og ekkert hefði fundist sem tengt gæti þessa sprengingu við sprenginguna sem varð í indversku flugvélinni yfir írlandi þar sem 329 manns fórust. Grunsemdir höfðu vaknað um að sprengingarnar væru í sambandi hvor við aðra þar eð flugvélarnar komu báðar frá Kanada. Kanadíska farþega- flugvélin lenti á Tokyoflugvelli eftir 9 klukkustunda flug frá Vancouver. 374 farþegar og 16 manna áhöfn voru með vélinni. Aðeins 40 mínútum eftir að flugvélin lenti sprakk farangur úr vélinni í loft upp. Ef sprengj- an hefði sprungið fáeinum mín- útum síðar á farangursfæri- bandinu í flugstöðinni hefði sprengingin getað valdið dauða fjölda manns. Talsmaður lögreglunnar sagði að flugvélin hefði komið frá Vancouver en ekki Toronto eins og talið var. Flugvélin hefði flogið aftur til Vancouver sex klukkustundum eftir að hún lenti í Tokyo. Hann sagði ennfremur að aðeins tveir Indverjar hefðu verið um borð í vélinni og að þeir hefðu ekki verið yfirheyrð- ir. Hringt hafði verið í dagblaðið New York Times og sagt að 10 deild stúdentasamtaka shíta bæru ábyrgð á sprengjunni. Annar lögreglumaður sagði að verið væri að athuga hugsan- leg tengsl sprengjanna tveggja og að japanskir lögreglumenn hefur beðið Interpol um aðstoð. Flestir farþeganna í kana- dísku flugvélinni voru Japanar. Thailand-íran: Kambódískar orustuþotur? ■ Asíutímaritið Far Eastern Economic Review segir að margt bendi til þess að stjórn Heng Sanrins í Kambódíu, sem Víetnamar styðja, fái bráðum sínar fyrstu orustuþotur. Vestrænir leyniþjónustumenn og thailenska leyniþjónustan telja sig hafa heimildir fyrir því að átján Kambódíumenn fái nú þjálfun I Víetnam til að fljúga sovéskum MiG21 orustuþotum. Flugmennirnir átján eru sagðir hafa verið I hópi 200 Kambódíu- manna sem fóru til Sovétríkj- anna 1981 til að læra um hlut- verk og alhliða uppbyggingu flughers. Sovéskar orustuþotur og her- þyrlur I flugher Víetnama hafa oft flogið yfir Kambódíu til að gera árásir á kambódíska skæru- liða. Ekki er vitað til þess að kambódískar áhafnir hafi nokk- urn tímann verið notaðar heldur hafa áhafnirnar verið víetn- amskar. Grjón fyrir olíu ■ Thailendingar gerðu nýlega samning við írani um að fá olíu frá íran í skiptum fyrir hrísgrjón og önnur matvæli. Viðræður milli thailenskra og íranskra aðila um þessi viðskipti hófust snemma á seinasta ári. Þá buðust Thailendingar til að taka við og flytja 10.000 til 20.000 tunnur af olíu að meðaltali á dag frá íran og láta þá fá 500.000 tonn af annars flokks hrísgrjónum, 300.000 tonn af maís og 200.000 tonn af tapíóka- mjöli í staðinn á 12 mánuðum. Japönsk olíufyrirtæki áttu upp- haflega einnig aðild að samningnum sem kaupendur olíunnar fyrir milli- göngu Thailendinga. íranir hafa nú farið fram á það við Thailendinga að Rúmenar fái frekar olíuna en Japanir þar sem Japanir hafi minnk- að mjög olíuflutninga frá íran að undanförnu. Þriðjudagur 25. júní 1985 13 Utlönd Sprengjurnar í indversku vélinni og á Tokyoflugvelli: Sökudólgarnir fundnir? - indverskir embættismenn gruna tvo shikka Toronto-Reuter ■ Indverskir embættismenn gruna shikkana tvo sem eftir- lýstir eru í Bandaríkjunum fyrir áætlanir um að myrða Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indiands, um að vera viðriðnir sprengingarnar tvær í fyrradag. Annar shikkanna var um borð I kanadískri flugvél á leið til Vancouver og hafði á sér farmiða með kanadísku vélinni sem fór til Tokyo en skömmu eftir að hún lenti þar sprakk farangur úr vélinni í Íoft upp, að því er embættismaður ind- versku stjórnarinnar sagði í við- tali við dagblað I Toronto. Hinn shikkinn kom til Tor- onto á laugardag áður en ind- verska flugvélin sem sprakk við írland fór í loftið. í dagblaðinu sagði að talið væri að báðir mennirnir hefðu sloppið til Kanada frá Banda- ríkjunum. Þeir voru grunaðir um að hafa tekið þátt í samsæri um að myrða Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands í op- inberri heimsókn hans til Bandaríkjanna fyrr í þessum mánuði. í Nýju Delhi sagði talsmaður indverska utanríkisráðuneytis- ins að fullyrðingar indversku embættismannanna væru í rann- sókn og hann hefði ekkert frek- ar um málið að segja. . Interpollögreglan rannsakar nú ferðirshikkannatveggjameð tilliti til sprengingarinnar sem varð I indversku flugvélinni við írland. Nepal: Sprengjur rjúfa kyrrð fjallaríkis Umsjón: Ragnar Baldursson og Margrét Run Gu&mundsdóttir Kathmandu-Reuter ■ Að minnsta kosti sjö manns hafa látið lífíð undanfarna daga í sprengjuherferð í fjallaríkinu Nepal syðst í Himalaya. Þannig bættist þetta friðsæla og fátæka konungsríki í hóp þeirra ríkja sem hafa orðið fyrir barðinu á nútíma borgarskæruliðum. Nepal er eitt af tíu fátækustu löndum veraldar og meðaltekj- ur á íbúa þar eru aðeins um 5.600 ísl. kr. á ári. Birendra konungur hefur hingað til verið því sem næst einvaldur í þessu 16,5 milljón manna landi þótt þar sé einnig þing og ríkisstjórn sem fer að nafninu til með stjórn ríkisins. Sprengjurnar hafa m.a. sprungið við konungshöllina, þinghúsið og lielsta ferða- mannahótelið I Kathmandu. Einn þeirra sjö manna, sem létu lífið í sprengingununt, var þing- maður á þingi Nepals. Lögregl- an segir að í öllum tilvikum hafi sprengjurnar verið heimatilbún- ar. Ekki er vitað með fullri vissu liverjir standa á bak við sprengju- herferðina en tveir hópar hafa þegar lýst ábyrgð á hendur sér vegna hennar. Annar þessara hópa er Alþýðufylkingin undir forystu fyrrverandi þingmanns, Ram Raja Prasád Singh, sem nú er í útlegð á Indlandi. Hamj^ segir að samtökin hafi komið um fimmtíu sprengjum fyrir. Sprengjuherferðin væri skref í byltingarbaráttu Alþýðufylk- ingarinnar gegn Birendra kon- ungi sem nú er 39 ára gamall. Hinn hópurinn, sem hefur lýst sig ábyrgan fyrir sprengjuár- ásunum, kallar sig Sameinuðu kyndlabera frelsisins. Þessi hóp- ur var óþekktur. Mikil ólga er nú I Nepal vegna banns stjórnarinnar á stjórnmálaflokka og ýmiss kon- ar stjórnmálastarfsemi. Frá því í maí hafa um fimm þúsund manns verið handtekiin þar ■ Birendra konungur Nepals. Hryðjuverkamenn vilja hann feigan. fyrir þátttöku í mótmælaað- gerðum og fyrir að krefjast þess að banninu við stjórnmálaflokk- um verði aflétt. Áð sögn stjórn- arandstæðinga eru urn eitt þús- und enn í haldi. Margir hinna handteknu til- heyra Kongressflokknum í Nepal en hann er bannaður eins og aðrir flokkar. Forystumenn Kongressflokksins hafa samt fordæmt sprengjuherferðina. í yfirlýsingu frá flokknum segir m.a. að flokkurinn aflýsi bar- áttu sinni gegn stjórninni tíma- bundið vegna sprengjuher- ferðarinnar enda hafi barátta flokksins verið friðsamleg.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.