NT - 25.06.1985, Side 23
Þriðjudagur 25. júní 1985 23
íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
Enginn meistarabragur
- í fyrsta 0>0 leik sumarsins í 1. deild er Valur og ÍA áttust við
■ Það var enginn meistara-
bragur á liðunum sem flestir
telja líklegust til að berjast um
íslandsmeistaratitilinn í ár
ásamt Fram er þau léku inn-
byrðis á laugardaginn. Er hér
átt við Val og ÍA sem léku að
Hlíðarenda, heimavelli Vals-
manna. Þrátt fyrir góðan völl og
gott veður var leikurinn leiðin-
legur á að horfa. Hvorugt liðið
náði sér nokkurn tíma á strik og
samleikur var undantekning.
Það sem einkenndi ieikinn voru
tilviljunarkennd spörk út um
allan völl og mikil harka. Ekkert
var gefið eftir í návígum og
þegar andstæðingurinn hafði
betur byrjaði sá sem tapaði
boltanum undantekningarlítið
að nöldra í dómaranum.
í fyrri hálfleik voru Valsmenn
mun meira með boltann og það
litla spil sem sást kom frá þeim.
Ekki sköpuðu þeir sér þó nein
afgerandi færi, vörn Skaga-
manna var sterk. Aðeins tvisvar
sá undirritaður ástæðu til að
punkta hjá sér. I annað skiptið
komst Kristinn Björnsson í gegn
um vörn ÍA en hann var að-
þrengdur og náði ekki að skjóta
nógu hnitmiðað, fékk þó horn
upp úr krafsinu. Magni Péturs-
son náði að skalla fyrirgjöfina
en Birkir Kristinsson varði vel.
Seinna færið kom er um 40
mínútur voru liðnar af leiknum.
Þorgrímur Þráinsson lék upp
hægri kantinn og gaf háan bolta
fyrir markið. Birkir kom út og
gómaði boltann með því að
íslandsmótið í 1. deild:
Mjög dýrmæt stig
- hjá FH í Keflavík - Halldór varði víti aftur
Frá Ólafi Þór Jóhannssyni, fréttaritara NT
á Suðurnesjum
■ FH-ingar gerðu góða ferð
til Keflavíkur í 1. deild á Iaugar-
dag og náðu í þrjú dýrmæt stig.
Þar með lyftu þeir sér upp af
botninum og komust upp að
hlið Keflvíkinga með sjö stig.
Keflvíkingar hafa heldur misst
flugið eftir að hafa fengið aðeins
eitt stig af níu í síðustu þremur
leikjum, þar af tveimur heima-
leikjum.
Leikurinn var skemmtilegur
á að horfa og var lítið um
miðjuþóf, heldur skiptust liðin
á um að sækja. FH-ingar spiluðu
ívið árangursríkari bolta og brá
fyrir góðu spili.
Á 19. mínútu áttu þeir eina
góða sókn upp vinstra megin.
Knötturinn var gefinn inn á
miðju inn á Inga Björn Alberts-
son sem á fallega stungusend-
ingu inn á Hörð Magnússon,
sem þakkaði fyrir sig með
marki.
Keflvíkingar taka miðju en
missa boltann strax og Ingi
Bjöm á fast skot sem var vel
varið.
Á 26. mínútu fá FH-ingar
hornspyrnu. Úr því kemur
skalli, sem Ólafur markvörður
átti að geta vippað yfir, en
knötturinn fór í slá og þaðan til
Guðmundar Hilmarssonar,
bakvarðar, sem skoraði.
Keflvíkingar tóku mikinn
kipp eftir þetta mark og fengu
tækifæri til að skora. Á 31.
mínútu fékk Ragnar Margeirs-
son boltann, eftir laglega auka-
spyrnu frá hægri, lagði knöttinn
fyrir sig og skaut í stöng úr
þröngu færi. Og á 38. mínútu
skaut Björgvin Björgvinsson
hátt yfir í góðu færi.
Á 43. mínútu er Ragnari
Margeirssyni brugðið innan
vítateigs. Hann tók sjálfur
spyrnuna en Halldór Halldórs-
son varði. Skotið var laust, en
auk þess hreyfði Halldór sig
áður. Dómari og línuvörður sá
þó ekki ástæðu til að láta endur-
taka spyrnuna.
Seinni hálfleikur var mjög
fjörugur og mikið um færi á
báða bóga. Keflvíkingar áttu
ívíð fleiri færi en hittu illa
markið og Halldór varði eins og
berserkur með höndum og
fótum.
Á 62. mínútu gerir Gunnar
Oddsson horn að óþörfu, sem
var dýrkeypt því FH-ingar skora
úr því. Var þar að verki Magnús
Pálsson sem náði frákastinu og
skaut jarðarbolta, sem Ólafur
virtist hafa en missti boltann
undir sig. Staðan orðin 0-3 fyrir
FH og tvö markanna má skrifa
á reikning hins unga mark-
manns Keflvíkinga.
Á 72. mínútu skorar Helgi
Bentsson, sem kom inná í leik-
hléi, 1-3. Mínútu síðar voru
FH-ingar nærri búnir að bæta
fjórða markinu við þegar Jón
Erling Ragnarsson komst inn í
sendingu til markvarðar. Hann
gaf á Hörð, sem skaut fyrir í
góðu færi.
Á 75. mínútu hitti Ragnar
Margeirsson ekki knöttinn í
dauðafæri.
Síðasta hættulegasta tækifær-
ið áttu FH-ingar, þegar Ingi
Björn Albertsson tók auka-
spyrnu og Ólafur hélt ekki góðu
skoti hans. Hættunni var hins
vegar bægt frá.
Liðin voru nokkuð jöfn
getu. FH-ingar spiluðu miklu
betur í fyrri hálfleik og Keflvík-
ingar áttu meira í þeim seinni.
Það sem réði ef til vill bagga-
muninn var markvarslan, þar
sem Ólafur var óöruggur, en
Halldór varði mjög vel og stund-
ÍS*
um með tilþrifum.
Eftir að Keflvíkingar skoruðu
fóru FH-ingar að tefja og voru
oft grófir í aðgerðum sínum.
Ólafur Danivalsson var bókað-
ur en Þorvarður dómari hefði
mátt taka strangar á þessu,
þegar þetta var svona augljóst.
Liðin: ÍBK: Olafur Gottskálksson, Einar
Kristjánsson (Jón Kr. Magnússon 65. mín.),
Freyr Sverrisson, Valþór Sigþórsson, Sigur-
jón Sveinsson, Sigurður Björgvinsson, Gunn-
ar Oddsson, Freyr Bragason (Helgi Bentsson
45. mín.), Björgvin Björgvinsson, Ragnar
Margeirsson og Ingvar Guðmundsson. FH:
Halldór Halldórsson, Viðar Halldórsson, Sig-
urþór Þórólfsson, Dýri Guðmundsson, Guð-
mundur Hilmarsson, ólafur Danivaldsson,
Ingi Bjöm Albertsson, Magnús Pálsson,
Kristján Hilmarsson (Henning Henningsson
75. mín.), Jón Erling Ragnarsson og Hörður
Magnússon.
stökkva í loft upp, en hann var
ekki í jafnvægi og missti hann
aftur frá sér. Valsmenn voru
farnir í vörn og sneru baki í
Birki sem gat skutlað sér á
boltann aftur. Ef einhver Vals-
maður hefði fylgt eftir af áhuga
hefði hann ekki getað annað en
skorað.
Seinni hálfleikurinn var ill-
skárri. Valsmenn voru svipaðir
en Skagamennirnir reyndu að
taka sig saman í andlitinu og
sneru dæminu við frá fyrri hálf-
leik, voru meira með boltann.
Nú náðu þeir og nokkrum
skotum að marki en það gerðu
Valsmenn einnig. Árni Sveins-
son, Karl Þórðar, Hörður Jó-
hannesson og Ólafur Þórðarson
áttu allir góð skot en annað-
hvort fóru þau naumlega yfir
eða Stefán Arnarson varði af
öryggi.
Hættulegasta færi Valsmanna
átti Kristinn Björnsson er hann
komst af harðfylgi inn í teiginn
og náði að leggja boltann vel
fyrir sig en Birkir var vel á verði
og varði skot hans.
Á 75. mínútu fengu Skaga-
menn gullið tækifæri til að gera
út unt leikinn. Reyndar hefði
maður haldið að betri færi væru
ekki til en vítaspyrnur. En það
er hægt að misnota þær líka.
Það gerði og Hörður Jóhannes-
son er hann lét Stefán Arnarson
verja frá sér. Hörður fiskaði
vítið sjálfur. Há fyrirgjöf kom
fyrir markið og Hörður stökk
upp til að skalla, en þá ýtti
Valsmaður við honum svo hann
missti jafnvægið. Kjartan Tóm-
asson dómari benti umsvifalaust
á vítapunktinn, hárréttur dóm-
ur að mínu mati. Þetta var
önnur vítaspyrnan sem Skaga-
menn misnota í jafnmörgum
leikjum og lilýtur það að vera
nokkurt áhyggjuefni.
Undir lok leiksins hljóp leik-
mönnum kapp í kinn og reyndu
í örvæntingu að setja mark. Á
84. mínútu fengu Valsmenn
horn sem Hilmar Sighvatsson
tók. Hann gaf háan bolta fyrir
og þar stökk Sævar Jónsson
hæst og skallaði firnafast en rétt
framhjá. Magni Pétursson átti
síðasta færið, skallaði yfir eftir
fyrirgjöf Hilmars.
f heildina áttu Skagamenn
fleiri færi, en þeir voru óhemju-
Valur.ÍA
0*0
daufir í fyrri hálfleik. Leikur
þessi reis aldrei uppúr meðal-
mennskunni og ef Valur og ÍA
ætla sér að halda í við Framara
verða bæði liðin að gera mun
betur. Það geta þau.
Liðin voru þannig skipuð:
Valur: Stefón Arnarson, Þorgrimur Þró-
insson, Grímur Sæmundssen, Guðni
Bergs, Sævar Jónsson, Valur Valsson
(örn Guðmundsson), Ingvar Guðmunds-
son, Magni Pétursson, Hilmar Sighvats-
son, Kristinn Björnsson, Hilmar Harðar-
son (Jón Grétar Jónsson).
ÍA: Birkir Kristinsson, Guðjón Þórðar-
son, Einar Jóhannesson, Lúðvík Berg-
vinsson, Jón Áskelsson, Ólafur Þórðar-
son, Júlíus Ingólfsson, Árni Sveinsson,
Karl Þórðarson, Hörður Jóhannesson og
Sveinbjörn Hókonarson.
-gþ
NT
Boltinn
Valur-ÍA:
■ Hjá ÍA var enginn sem ótti meira
en meðalleik. Valsmennirnir Guðni
Bergs og Stefón Arnarson voru bóðir
góðir. Stefón fær boltann fyrir góða
markvörslu, vítaspyrnan var vita-
skuld hápunkturinn.
I
HNOT-
SKURN
Valur-ÍA
■ Leikið að Hlíðarenda í góðu
veðri og óhorfendur létu sig ekki
vanta. Þeir fengu hinsvegar ekki
mikið fyrir aurana sína, lítið var
um spil en meira um hnoð.
Dæmigerður baráttuleikur. Stef-
án Arnarson markmaður Vals
varði vítaspyrnu fró Herði Jó-
hannessyni á 75. mínútu.
Hörður Jóhannesson og Sævar
Jónsson fengu gult spjald hjó
dómara leiksins, Kjartani Tóm-
assyni fró Akureyri. Hann
dæmdi ekki vel.
NT-lið sjöttu umferðar
Halldór Halldórsson, FH (3)
Guðjón Þórðarson, ÍA (2) Guðni Bergsson, Val (2) Gunnar Gíslason, KR (2)
óskar Gunnarsson, Þór
ómar Torfason, Fram (4)
Siguróli Kristjánsson, Þór (5) Guðmundur Torfason, Fram (4)
Guðmundur Steinsson, Fram (2) Sigurjón Kristjánsson, Þrótti
Ragnar Margeirsson, ÍBK (5)
I
HNOT-
SKURN
■ Stillt og gott veður var en sólarlaust meðan opinn
og skemmtilegur leikur liðanna fór fram. Fyrir FH
skoruðu Hörður Magnússon 0-1 ó 19. mínútu, Guð-
mundur Hilmarsson 0-2 á 26. minútu og Magnús
Pálsson 0-3 ó 62. mínútu. Helgi Bentsson skoraði 1-3
á 72. mínútu. Ólafur Danivalsson fékk gult spjald hjá
Þorvarði Bjömssyni dómara.
NT
Boltinn
■ Hjá ÍBK voru Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirs-
son góðir og Hörður Magnússon hjá FH. Bestur og
maður leiksins var Halldór Halldórsson markmaður FH.
r Staðan
■ Úrslit í leikjum í 6. umferð 1. deildar urðu þessi:
BB Fram-KR 4-1
Víkingur-Þróttur 1-3
Þór-Víðir 1-1
Valur-ÍA 0-0
■ ÍBK-FH 1-3
Staðan í 1. deild er þannig:
Fram . 6 5 1 0 18-8 16
Þróttur . 6 4 0 2 9-4 12
ÍA . 6 3 2 1 12-3 11
Þór . 6 3 1 2 9-8 10
Valur . 6 2 2 2 9-7 8
ÍBK . 6 2 1 3 8-10 7
FH . 6 2 1 3 5-9 7
KR . 6 1 3 2 6-10 6
■ Víðir . 6 1 1 4 6-15 4
H Víkingur . 6 1 0 5 5-12 3
Þrír Framarar eru markahæstir í 1. deild karla á
íslandsmótinu í knattspyrnu að loknum sex umferð-
um. Þess má geta að þeir hafa gert öll mörk Fram
nema eitt.
Guðmundur Torfason, Fram .. . 6 mörk
Ómar Torfason, Fram . 6 mörk
Guðmundur Steinsson, Fram .. . 5 mörk
Ragnar Margeirsson, ÍBK . 4 mörk
Bjarni Sveinbjörnsson, Þór.... . 4 mörk
Páll ólafsson, Þrótti . 4 mörk
Guðmundur Þorbjörnsson, Val . 4 mörk
Sveinbjörn Hákonarson, íA ... . 4 mörk
TOYOTA, ,
24. - 30. júní
ÞRIÐjUDAGUR 25.
REYÐARFjÖRÐUR
Sýningartími: 15:30-16:30
Sýningarstaður: Við Véla og bílaverkstæði J.P.H.
ESKIFJÖRÐUR
Sýningartími: 17:00-18:00
Sýningarstaður: Við Bílaverkstæðí Ásbjörns
HÚSAVÍK
Sýningartími: 15:00-18:00
Sýningarstaður: Við Bílaleigu Húsavíkur.
FIMMTUDAGUR 27.
MIÐVIKUDAGUR 26.
EGILSSTAÐIR
Sýningartímí: 09:00-11:30
Sýningarstaður: Við Ásinn hf.
SIGLUFJÖRÐUR
Sýningartími: 11:30-13:00
Sýningarstaður: Við Bifreiðaverkstæði
Ragnars Guðmundssonar
AKUREYRI
Sýningartími: 16:30-20:00
Sýningarstaður: Við Bláfell sf.
TOYOTA
ÞJONUSTA