NT - 27.06.1985, Blaðsíða 3

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 3
 Fimmtudagur 27. júní 1985 Loðnukvótanum skipt: Töpumáannað hundrað millj. - nái kröfur Grænlendinga fram að ganga ■ Ljóst er að íslendingar tapa allt að 155 milljónum króna ef gengið verður að kröfum Grænlendinga til ioðnukvótans sem Norðmenn og íslendingar skiptu á milli sín vorið 1980. íslendingar og Norðmenn gerðu með sér svonefnt Jan Mayen samkomulag í maí 1980. Þar var kveðið á um að íslendingar og Norðmenn ákvæðu í sameiningu loðnu- kvóta fyrir hvert ár og í hlut íslendinga kæmi 85% aflans og Norðmenn fengju 15%. Danir hófu síðan loðnuveiðar í nafni Grænlands, og voru þær veiðar fyrir utan það samkomu- lag sem íslendingar og Norð- menn gerðu sín á milli. Þegar Grænlendingar sögðu sig úr Efnahagsbandalagi Evrópu gerðu þeir sjálfir tilkall til veið- anna á þeim forsendum að loðn- an héldi sig innan grænlensku lögsögunnar yfir sumartímann. Grænlendingar hafa engan skipakost til að stunda loðnu- veiðar og langt er fyrir þá að sækja miðin. Með kröfu sinni ætla Grænlendingar sér tvennt. Annarsvegar að tryggja sér loðnuveiðar í framtíðinni og hugsanlega að selja sinn kvóta til annarra ríkja þar til þeir geta sjálfir farið að stunda loðnu- veiðar. Loðnuveiðar Dana hafa verið mjögóverulegar. Sem dæmi má nefna að loðnukvótinn í fyrra. var ákveðinn 920 þúsund tonn. Það ár veiddu Danir hinsvegar 18 þúsund tonn, eða tæp tvö prósent kvótans. Húsnæðisstofnun: F-lánum úthlutað ■ Húsnæðismálastjórn ákvað á fundi sínum í • gærkvöldi að veita 176 milljónir króna í nýbygg- ingarlán í júlí og ágúst. Jafnframt var lögð fyrir fundinn staðfesting félags- málaráðherra, Alexand- ers Stefánssonar, á áður ákveðinni hækkun G-lána í 46,8% en stefnt er að 50% lánshlutfalli í janúar 1986. BSRB og ríkið: Nú er hinsvegar ljóst að Grænlendingar gera kröfu til mun meiri afla en Danir veiddu nokkru sinni, eða allt að 13% loðnukvótans. Norðmenn gera einnig kröfu til 13%. Ef að þessu verður minnkar hluti ís- lendingaum 11%, fellur úr 85% loðnuaflans niður í 74%. Loðnukvótinn í ár hefur verið áætlaður um 700 þúsund tonn og ef áðurnefnd skerðing verður að veruleika dragast loðnuveið- ar íslendinga saman um 77 þús- und tonn. Samkvæmt upplýs- ingum sem Kristján Ragnarsson formaður L.Í.U. gaf NT má ætla að íslendingar tapi 14 milljónum fyrir hvert prósentu- stig sem dregst t'rá Ioðnukvótan- um. Það þýðir að tap íslend- inga getur orðið allt að 154 milljónir. Áðurnefndar kröfur Græn- lendinga voru upphaflega birtar í norskum dagblöðum. Enginn fundarmanna í Borgarnesi vildi staðfesta þær, en í samtali við NT sagði Jón B. Jónasson skrif- stofustjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu, að kröfur Grænlend- inga hafi alltaf hljóðað upp á mun hærra hlutfall en 10% loðnukvótans. Formaður íslensku viðræðu- nefndarinnar er Ólafur Egils- son, skrifstofustjóri í utanríkis- ráðuneytinu. Hann sagði að málin hafi verið mikið rædd og íslenskir, danski og norskir vís- indamenn hafi gert skýrslu um dreifingu og stærð loðnustofns- ins fyrir tveimur árum síðan. Sú skýrsla var endurskoðuð í maí mánuði síðastliðnum. Norð- menn og Grænlendingar fallast ekki á skýrsluna nema hún sé endurnýjuö vegna nýrra upplýs- inga sem komið hafa upp í málinu. Ólafur sagði að þær upplýs- Adalkjarasamning ur ræddur í dag ■ Aðildarfélög BSRB héldu áfram sérkjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins í gær og munu þau gera grein fvrir þeim viðræðum á fundi með 60 manna samninganefnd BSRB í dag. 60 manna samninganefndin hittir samninganefnd ríkisins síðan á fundi kl. 16, þar sem rætt verður um aðalkjarasamn- inginn, m.a. með hliðsjón af sérkjaraviðræðum undanfar- inna daga. Kristján Thorlacius formaður BSRB sagði í gær, að sérkjara- viðræðurnar væru ekki komnar á lokastig, þó svo að ræða ætti um aðalkjarasamninginn í dag. En BSRB og ríkið eru sammála um að Ijúka sérviðræðunum við einstök félög, áður en gengið verður frá aðalkjarasamningi. ingar væru reyndar hlið- hollar íslendingum. Aðspurður sagði Ólafur að æskilegt væri að samkomulag náist í þessu máli sent fyrst, svo ekki komi til ofnýtingar loðnustofnsins. Kristján Ragnarsson formað- ur L.f.U. sagði þessar viðræður mikið hagsmunamál fyrir ís- lendinga, þar sem viö höfum nýtt loðnustofninn aö mestu frá upphafi veiða uppúr 1960. Það var ekki fyrr en 1978 sem Norð- menn hófu loðnuveiðar og Dan- ir enn síðar. Kristján sagði Grænlendinga ekki hafa neinn rétt til loðnuveiðanna þó svo loðnan haldi sig um tíma innan grænlensku lögsögunnar. ■ Frá fundinum í Borgarnesi í gær. Viðræöunefnd íslendinga er skipuð 9 mönnum. Norð- menn eru með 7 menn og Grænlendingar með 3. Tveir fulltrúar frá hverju þessara landa funduðu sérstak- lega í gærkvöldi og að sögn Ólafs Egilssonar hafa engar töl- ur verið nefndar ennþá, en von er á að samkomulag náist síð- degis á morgun. ■ Forsvarsmenn þjóðanna þriggja sem funduðu sérslaklega í gærkvöldi. Frá vinstri Thorben Holm og Einar Lemche frá Grænlandi. Þá koma fulltrúar íslands þeir Árni Kolbeinsson og Ólafur Egilsson. Loks eru fulltrúar Norðmanna, þeir Trond S. Paulsen og Per L. Mietel. N1 -m,miir: Árni Bjurna Byggingarvísitalan: Mesta hækkun í 2 ár ■ Hækkun á vísitölu bygging- arkostnaðar nú á milli maí og júní varð meiri heldur en í nokkrum öðrum mánuði á síð- ustu tveim árum, eða 5,15%, sem jafngilda mundi 82,7% árs- hækkun umreiknað til heils árs. Frá því í júlí 1983 hefur mánað- arlcg hækkun vísitölunnar aðeins þrisvar áður farið yfir 3%, þ.e. mánuðina des.-febrúar s.L, en þó aldrci verið eins mikil og nú. Hækkun þessi er að lang mestu leyti til komin vegna hækkunar á kaupi byggingar- manna, en einungis að litlum hluta vegna verðhækkana á byggingarefni. Samkvæmt útreikningum Hagstofunnar reyndist bygging- arvísitalan nú í júní vera 216 stig (miðað við 100 í des. 1982) og gildir sú vísitala fyrir mánuð- ina júlí til september. Þessi hækkun hefur t.d. í för með sér að hús sem í þessum mánuði reiknast kosta 5 millj. kr. í byggingu kemur til með að hækka um 257.500 kr. um næstu mánaðamót. Af þessari 5,15% hækkún stafa einungis 0,8% af verð- hækkunum á ýmsu byggingar- efni, en 4,3% af hækkun á töxtum útseldrar vinnu. Þar af eru 2,5% vegna hækkana á launatöxtum nú í kjarasamning- unum 15. júní, en 1,8% eru vegna breytinga í launaflokka- röðun iðnaðarmanna á undan- förnum misserum, sem komiö hafa frani við endurskoðun Hagstofunnar á grunni bygging- arvísitölunnar. Sé þessi hækkun frátalin hefði vísitalan aðeins hækkað um 3,3% nú, sem svar- kr%Tm ársgrundvein ar til 48% árshækkunar í stað um 83% hækkunar sem fyrr er getið. Frá því byggingarvísitalan var síðast reiknuð lögformlega í mars s.l. hefur hún hækkað um 8,16%, sem jafngildir 36,9% árshækkun. Frá júní 1984 til sama tíma í ár hefur hækkunin hins vegar orðið um 32%. Sumartónleikarnir i Skálholti 10 ára: Efnisskráin tileinkuð Bach, Hándel og Scarlatti ■ Sumartónleikamir j Skálholtskirkju halda upp á tvö merkisafmæli í sumar, þeirra eigið 10 ára afmæli og 300 ára „Týndi Belginn“ kominn í leitirnar: „Hafði ekki hugmynd um að leitað væri að mér“ -sagði hann í samtali frá Skútustöðum í gærkvöldi ■ „Ég hafði ekki minnstu hugmynd um, að það væri verið að leita að mér. Ef ég hefði vitað það, hefði ég látið vita að ég væri kominn í leitirnar.“ Þetta sagði Mathieu Chable, „týndi Belginn", þegar NT náði tali af honum á Skútustöðum í Mývatns- sveit í gærkvöldi. Þangað kom hann um kvöldmatar- leytið í gær. Það var Freydís Anna Arngrímsdóttir á Skútustöð- um, sem áttaði sig á því, að maðurinn, sem hafði skrifað í gestabókina, gæti verið „týndi Belginn“. Lýsingin á honurn passaði og nafn hans byrjaði á M, eins og hún hafði fengið upplýsingar um. Og það stóð heima. Mathieu Chable ferðaðist fótgangandi um hálendið og sagðist hann hafa farið fyrir fjölda áa á leiðinni. Einu sinni var hann að því kominn að detta. í fyrrinótt gisti hann í tjaldi sínu fyrir norðan Borgarnes og fór á puttanum þaðan norður í land. Að- spurður sagði hann, að bíl- stjórarnir, sem liann ferðað- ist með hefðu ekki sett hann í samband við manninn, sent leitað var að. Belgíumaðurinn ætlar að vera á Skútustöðum í tvo daga, en þá er ferðinni heitið á Hornstrandir, þar sem hann ætlar að vera tvær vikur. Mathieu er einn á verð og sagði hann, að það væri stundum einmanalegt, en engu að síður lét hann mjög vel af ferðalagi sínu. Hann hefur verið hér í einn mánuð og heim heldur hann eftir hálfan annað mánuð. fæöingarafmæli tónskaldanna Bachs, Hándels og Scarlattis. Af því tilefni verður cfnisskrá tónleikanna í sumar helguö þessum þreniur stórmennum tónlistarinnar. Að þessu sinni verða haldnir alls 15 tónleikar með þátttöku listamanna frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð, auk íslenskra tónlistarmanna. Tvennir tónleikar verða haldnir á laugardögum, kl. 15 og 17, sem er nýmæli, og á sunnudög- um verða tónleikar kl. 15 og 17 er messa. Tónlistarhátíðin í Skálholti hefst laugardaginn 6. júlí. Sumartónleikarnir voru fyrst haldnir sumarið 1975 og frá upphafi hefur verið lögð áhersla á flutning íslenskrar tónlistar og verka frá 17.-18. öld. Á tónleik- um þessum hafa verið frumflutt 20 íslensk verk eftir 10 tónskáld. Tónleikarnir njóta ýmissa styrkja hins opinbera og einka- aðila, og sem fyrr verður að- gangur ókeypis. í tengslum við tónleikaröðina verður sýning í Lýðháskólanum um ævi Bachs, Hándels og Schutz, og kemur hún frá Goethe-stofnuninni. Áætlunarferðir verða frá um- ferðarmiðstöðinni alla tónleika- dagana.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.