NT - 27.06.1985, Page 5

NT - 27.06.1985, Page 5
Atvinnulífið og konur: Aukin þátttaka kvenna - aðsókn að húsmæðraskólum fer minnkandi ■ Aðeins 19% kvenna í sam- búð vinna nú einungis heimilis- störf en voru 45% fyrir átta árum. Af konum á aldrinum 20-60 ára hafa nú meira en þrisvar sinnum fleiri lokið há- skólanámi en árið 1976, eða 9% í stað 2% fyrir átta árum. Hlut- fall þeirra sem numið hefur í húsmæðraskóla hefur hins veg- ar dottið úr 38% niður í 16% á sama tíma. Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun á stöðu og störfum kvenna sem Jafn- réttisráð stúð fyrir á síðasta ári og samanburði við ámóta könn- um sem gerð var árið 1976. Atvinnuþátttaka kvenna, giftra og í sambúð, hefur aukist mjög á þessum 8 árum, sem fyrr segir. A síðasta ári voru 31% þeirra launþegar í fullu starfi en voru 16% árið 1976. í hiutastarfi voru nú 36% en tæp 30% átta árum áður. Þess má og geta til samanburðar að samkvæmt könnuninni voru 77% mæðra þeirra kvenna sem nú tóku þátt í könnuninni heimavinnandi húsmæður þegar þær voru að alast upp. Athygli vekur að þrátt fyrir aukna menntun og verulega aukið vinnuframlag kvenna og jafnframt styttri vinnutíma maka þeirra hafa þær lítið sem ekkert unnið á karla sína í launum. Meðalvinnutími kvenna í þéttbýli hefur á s.l. átta árum lengst úr 30,6 í 34 klukkustundir á viku, en maka þeirra styst úr 52,9 í 47,4 klukkustundir á viku. Tekjur kvennanna sern hlutfall af tekj- um manna þeirra hafa hins veg- ar aðeins hækkað úr 40-50% árið 1976 upp í 47-63% af meðaltekjum manna þeirra á síðasta ári. Á síðasta ári hafði yfir helmingur kvennanna tekj- ur á bilinu 10-20 þús. krónur á mánuði (á miðju ári) en eigin- mcnn þeirra höfðu flestir yfir 30 þús. kr. tekjur á mánuði. Hæsfu mánaðarlaun konu í könnunni voru 39.600 krónur en tekju- hæsti eiginmaðurinn hafði unt 100 þús. krónur á sama tíma. Þrátt fyrir aukin störf utan heimilis virðast heimilisstörfin enn að mestu hvíla á herðum kvennanna. Sáu þær yfirleitt eða frekar um störf sem tengjast umönnun barna. matargerð, matarinnkaup, uppþvott, fata- þvott, ræstingu og hreingern- ingu íbúðar. Karlarnir sáu hins vegar í flestum tilvikum frekar eða alltaf um smáviðgerðir á húsnæði og umhirðu bílsins. Varðandi bílinn kom það og í Ijós að karlarnir virðast afar Fimmtudagur 27. júní 1985 5 ■ Fríða l’alsdóttir, félagsráðgjafí og Guðríður Þorsteinsdúttir, form. Jafnréttisráðs. tregir að sleppa stýrinu í hendur kvenna sinna - nema þá að konurnar kæri sig síður um að aka. Aðeins innan við 3% kvennanna töldu sig aka oftar en karlar þeirra, um 27% sögðu þau hjónin skiptast á, en um 66% kváðu karlinn mun oftar keyra. Alls voru það 300 konur sem þátt tóku í könnun þessari frá: Reykjavík, Patreksfirði, Húsa- vík, Egilsstöðum og úr sveitum landsins. EBE fær bréf frá EFTA: Saltfisktollurinnihef- ur slæm áhrif á íslandi ■ Norbert Steger,. viðskiptaráðherra Austurríkis og formaður ráðherraráðs EFTA. hefur skrifað bréf til Jacques Delors formanns framkvæmdastjórnar EBE, þar sem athygli er vakin á alvarlegum afleiðing- um saltfisktolls EBE fyrir íslendinga. í bréfinu segir, að álagning tollsins sé andstæð þeirri jákvæðu þróun í átt að auknu viðskiptafrelsi á milli EFTA-ríkjanna og ríkja Efnahagsbandalagsins. „Sérstaklega mun hún valda fslandi miklum erfiðleikum, en útflutningur á umræddum afurðum til Efnahagsbandalags tólf ríkja hefur á undan- förnum árum numið þriðjungi heildarút- flutnings íslands til þessara markaða. Að- gerðir af þessu tagi munu hafa slæm áhrif á efnahagslíf íslands og breyta mjög verulega þeim forsendum sem fríverslunarsamningur Islands hvílir á,“ segir í bréfinu til Jacques Delors. Bréf þetta var skrifað eftir fund Matthías- ar Á. Mathiesen viðskiptaráðherra með fulltrúum Efnahagsbandalagsins í Brússel í maí ntánuði síðastliðnum. Fól ráðherra Hannesi Hafstein sendiherra að athuga á hvern hátt EFTA gæti stutt málstað fslend- inga í saltfiskmálinu. Vestfjarðahátíð 28.-30. júní: Líf ogfjöráNúpi ■ Líf og fjör verður á Núpi dagana 28.-30. júní, en þá verður haldin Vestfjarðahátíð sveitarfélagannaá Vestfjörðum í tilefni af ári æskunnar. Ailir eru velkomnir á hátíðina og móts- gestum verður boðið upp á ýmislegt, t.d. útreiðartúra.ibátsferðir, kvöldvökur, göngu- túra með vönum leiðsögumanni og þrauta- tívolí skáta. Einnig kemur fram hljómsveit- in Grafík. Sundlaug og íþróttahús staðarins verða opin og hægt er að gista í svefnpokaplássi í heimavistinni eða á tjaldstæðunum. Veit- ingasala verður alla daga hátíðarinnar. Selt verður inn á svæðið og kostar kr. 200 fyrir 12 ára og eldri. í dagskrá stendur skemmtum okkur án áfengis og ennfremur er þar vonast til að það muni standast. Upplýsingar um hátíðina gefur Björn Helgason á ísafirði, í síma 3722. 86 áhugaleikfélög í Bandalagi íslenskra leikfélaga ■ Á nýafstöðnum aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga fengu 3 ný leikfélög inngöngu í Bandalagið. Það voru Leikfélag Garðabæjar, leikdeild Ungmennafélags Mýrahrepps og leikhópurinn Veit mamma hvað ég vil. Síðastnefnda félagið er annað tveggja unglingaleikfélaga sem aðild eiga að bandalaginu. hitt unglingaleikfélagið er leikhópurinn Saga á Akureyri. Aðalfundurinn og ráðstefnan voru haldin í Reykjanesskóla við ísafjarðardjúp, með þátttöku 60 manna víðsvegar af landinu. Nýr Alla sem reynslu hafa af bílavið- skiptum langar að eignast nýjan b(l. Hvers vegna? Ekki endilega vegna slæmrar reynslu af notuðum b(lum. Notaðir bílar geta notaður? verið nánast eins góðir og nýir. Þú getur verið mjög heppinn og fengið vel með farinn bíl á verði sem er f litlu samræmi við aldur og útlit. En þú getur l(ka verið óheppinn. Þú veist aldrei fullkomlega hvort bíllinn er í þv( ástandi sem hann líturút fyrirað vera. Þú ert ekki öruggur. Og það er kjarni málsins. Þú tekur áhættu. % Með nýjum bíl kaupirðu öryggi. Auk þess fylgir því sérstök án^egja að setjast undir stýri í b(l sem kemur „beint úr kassanum". Bíl sem þú kynnist betur en nokkur annar. Við bjóðum greiðslukjör sem jafnast fyllilega á við það besta sem gerist á markaði notaðra bíla - og tökum notaða bílinn þinn upp í. Láttu okkur um að taka áhættuna! BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.