NT - 27.06.1985, Blaðsíða 14
Iít
Fimmtudagur 27. júní 1985 14
;jónvarp
mSk' t' V
&
Utvarp kl.15.15:
Gömulognýtíðindi
af Suðurlandi
■ Tíðindi af Suðurlandi
nefnist þáttur seni hefur
göngu sína í útvarpi í dag kl.
15.15. Þátturinn verður hálfs-
mánaðarlega á dagskrá í sum-
ar og umsjónarmaður lians er
Þorlákur Helgason, scm jafn-
framt er fréttaritari útvarps-
ins á Selfossi.
Nafnið á þættinum sagði
Þorlákur hafa orðið fyrir val-
inu. þar scm sér þætti „tíð-
indi" ciga bctur við um það
efni, scm hann ætlar að vcra
mcð í þáttunum en orðið
„fréttii—. Hann ætlar sem sagt
að blanda saman fréttum af
Suðurlandi og alls kyns við-
tölum við fólk þar, auk þess
sem hann skyggnist aftur í
tímann.
í dag á liann t.d. tal við
Ólaf Ketilsson, þann aldna
garp sem allir landsmenn hafa
heyrt um. Hann cr vanur að
tala tæpitungulaust og er ótrú-
legt að hann bregöi af þeirri
venju sinni nú.
Þá vcrður frásögn af Ölfusá
og spjallað við veiöimenn
þar.
Utvarp kl .22.35:
Fimmtudagsumræðan:
Breytingar í utanríkisþjónustunni -
aukin tengsl hennar við atvinnulífið
■ í kvöld kl. 22.35 hefst
Fimmtudagsumræðan í útvarpi
í umsjón Gissurar Péturssonar
fréttamanns. Umræðuefnið er
breytingar í utanríkisþjónust-
unni.
Þær breytingar í utanríkis-
■ Það er Gissur Pétursson
fréttamaður sem stýrir
Fimmtudagsumræðunni að
þessu sinni.
(NT-mynd: Sverrir)
þjónustunni, sem teknar verða
til umræðu í kvöld, eru aukin
tengsl þeirrar þjónustu við ís-
lenskt atvinnulíf, en Gissur
segir okkur að í vetur hafi
verið starfandi nefndir til að
undirbúa „útflutningsár”, sem
á að standa árið 1986. Einnig
eru uppi hugmyndir um stofn-
un Útflutningsráðs, sem myndi
verða sameiginlegur vettvang-
ur allra sem standa að útflutn-
ingi.
„Það sem ég ætla að reyna
að fá fram er hvort og hvernig
utanríkisþjónustan, þá á ég
bæði við viðskiptaráðuneytið
og utanríkisráðuneytið, að-
stoða bæði útflytjendur og inn-
flytjendur t.d. við markaðs-
setningu vara, leit að nýjum
mörkuðum og þess háttar,"
segir Gissur. Islendingar hafa
11 sendiráð erlendis en enn
sem komið er eru ekki við-
skiptafulltrúar við nema 2
þeirra, íLondon ogNew York.
Hjá Gissuri í útvarpssal
verða Sigríður Snævarr, deild-
arstjóri menningardeildar
Mörgum finnst áreiðanlega
fróðlegt að skyggnast með
Þorláki aftur í fortíðina aust-
ur í Skaftafcllssýslu á árunum
1920-1930, en hann hefur
milli handanna bréf þaöan
frá þessum tíma úr fórum afa
síns, sem var hreppsstjóri
þar. Þar er t.d. að finna
skemmtilegt bréf frá Gísla
Sveinssyni sýslumanni, lík-
lega fyrsta bréfið eftir að
fjarskipti komu á Kirkjubæj-
arklaustur. Þar bendir sýslu-
máður mönnum á að cftir-
leiðis skuli þeir senda skila-
boð með fjarskiptum en ckki
hraðboða, ef um skipsströnd
cr að ræða. Þar kemur greini-
lega frant, hversu mikill við-
búnaður var á þessurn slóðum
vcgna skipsstranda í Meðal-
landsfjöru.
„Svo langar mig til að hafa
citthvað „lengst, best, stærst,,
í þessum þáttum," segir Þor-
lákur. M.a. hefur hann hugá
því að taka tali elsta borgar-
ann á svæðinu, 103 ára gamla
skaftfellska konu, sem dvelst
á sjúkrahúsinu á Selfossi.
■ Börnin annast sjálf kynningar í Barnaútvarpinu og ferst það vel úr hendi. Þeim til trausts og
halds er stjórnandi þáttarins, Ragnheiöur Gyða Jónsdóttir. NT-mynd: Árni Bjarna
Útvarp kl. 17.05:
BARNAUTVARPIÐ
■ Það hefur væntanlega ekki
farið framhjá neinum hversu
mikið framboð er orðið af
barnaefni í útvarpi.
Strax að loknum 9-fréttum á
morgnana frá mánudegi til
föstudags er lestur framhalds-
sögu fyrir börn. Þessa dagana
er verið að lesa söguna Litli
bróðir og Kalli á þakinu eftir
hina sívinsælu Astrid Lindgren
í þýðingu Sigurðar Gunnars-
sonar.
Þátturinn Inn og út um
gluggann í umsjón Sverris
Guðjónssonar er kl. 13.30
mánudaga, þriðjudaga og mið-
vikudaga og klykkt út með þá
dagskrá undir nafninu Ligga
ligga lá á laugardögum kl. 14.
Á miðvikudögum, fimmtu-
dögunt og föstudögum kl.
I7.05 er svo Barnaútvarpið í
umsjón Ragnheiðar Gyðu
Jónsdóttur og á laugardögum
á santa tíma er Helgarútvarp
barnanna, sem Vernharður
Linnet stjórnar.
Auk þessara sérstöku barna-
tíma er svo auðvitað heilmikið
annað efni á dagskrá útvarps-
ins sem börn hafa ánægju af að
hlýða á.
í Barnaútvarpinu í dag kl.
17.05 verður efnið sent út í
beinni útsendingu. Kennir þar
margra grasa að venju. Haldið
verður áfram að flytja spennu-
söguna. Þá verður fyrirspurn-
um hlutsenda svarað eftir því
sem tími vinnst til.
Stjórnandi er sem fyrr segir
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Minnt skal á að stjórnendur
Barnaútvarpsins hafa síma-
tíma daglega kl. 17-18 og taka
fegnir við uppástungum unt
efni.
utanríkisráðuneytisins, Sveinn
Björnsson, skrifstofustjóri við-
skiptaráðuneytisins, en hann
var fyrstur manna skipaður
verslunarfulltrúi utanríkis- og
viðskiptaráðuneytanna og
hafði aðsetur í París, og Stein-
ar Berg Björnsson, stjórnar-
formaður Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins.
í Kaupmannahöfn verður
Einar Ágústsson sendiherra á
beinni línu og tekur þátt í
umræðunum.
Viðtöl verða við þá Geir
Hallgrímsson utanríkisráð-
herra og Matthías Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra, nýkom-
inn heim frá Sovétríkjunum,
en þar stóðu íslenskir síldar-
seljendur í stímabraki við
kaupendur fyrir nokkrum dög-
um eins og öllum er í fersku
minni. Sú deila leystist þó far-
sællega einmitt á rneðan við-
skiptaráðherra dvaldist í
Moskvu.
Rás2kl. 10-12
Morgun
þáttur
í mótun
■ Þcir Kristján Sigurjónsson
og Ásgeir Tómasson hafa nú
tekið við stjórn morgunþáttar
Rásar 2 á fimnitudögum.
Reyndar er sú breyting svo
nýskeð, að þeir eru ekki enn
búnir að ákveða form þáttarins
til frambúðar, enda er þáttur-
inn í dag aðeins annar í röð-
inni. Hlustendum gefst þannig
kostur á að fylgjast með fram-
vindunni hjá þeim félögum!
„Við spilum náttúrlega mús-
ík við allra hæfi og reynum að
gera íslenskri tónlist hátt undir
höfði á fimmtudagsmorgn-
um,“ segir Kristján í stuttu
samtali. Ekki sagði hann enn
fullákveðið hvort yrði um
gestagang að ræða, en þótti
það þó ekki ólíklegt.
Sem sagt, enn var allt í lausu
loft um fimmtudagsmorgun-
þátt þegar síðast var vitað og
nú er um að gera að fylgjast
með þróun hans í höndum
þessara tveggja alvönu Rás-
armanna.
Fimmtudagur
27. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Málræktarþáttur. Endurt. þáttur
Einars B. Pálssonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Emil Hjartar-
son, Flateyri, talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróðir og Kalli á þakinu"
eftir Astrid Lindgren. Sigurður
Benedikt Björnsson les þýðingu
Sigurðar Gunnarssonar (8).
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.). Tonleik-
10.45 Málefni aldraðra Þáttur i umsjá
Þóris S. Guðbergssonar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Út um hitt
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens
Björneboe Dagný Kristjánsdóttir
þýddi. Kristján Jónsson les (17).
14.30 Miðdeqistónleikar
15.15 Tíðindi af Suðurlandi Umsjón:
Þorlákur Helgason.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Á frivaktinni Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynning-
ar. Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Blásarakvintett Reykjavikur
leikur f útvarpssal
20.40 Erlend Ijóð frá liðnum tímum
21.10 Frá hjartanu Umsjón: Kristján
R. Kristjánsson. RÚVAK
21.40 Einleikur í útvarpssal
22.00 Bókaspjall Áslaug Ragnars
sér um þáttinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Fimmtudagsumræðan Breyt-
ingar í utanrikisþjónustunni.
Umsjón: Gissur Pétursson.
23.35 Trió í E-dúr
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
RHT
Fimmtudagur
27. júní
10 00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Kristján Sigurjónsson og
Ásgeir Tómasson.
14:00-15:00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leópold
Sveinsson.
15:00-16:00 í gegnum tíðina Stjórn-
andi: Þorgeir Astvaldsson.
16:00-17:00 Bylgjur Framsækin
rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund-
ur Jónsson og Árni Daníel Jú-
líusson.
17:00-18:00 Einu sinni áður var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962 = rokk-
timabilið.
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ
20:00-21:00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21:00-22:00 Gestagangur Gestir
koma i stúdió og velja lög ásamt
léttu spjalli. Stjórnandi: Ragnheið-
ur Davíðsdóttir.
22:00-23:00 Rökkurtónar Stjórn-
andi: Svavar Gests.
23:00-24:00 Orðaleikur Stjórnandi:
Andrea Jónsdóttir.
Föstudagur
28. júní
19.15 Ádöfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
19.25 Krakkarnir i hverfinu Kana
dískur myndaflokkur um hvers-
dagsleg atvik i lifi nokkurra borgar-
barna. Þýöandi Kristrún Þóröar-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Gypsy á þjóðhátið Frá 17.
júní tónleikum i Höllinni á vegum
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Hljómsveitin Gypsy leikur þunga-
rokk. Hana skipa: Jón Ari Ingólfs
son og Ingólfur Ragnarsson, gitar
leikarar, Hallur Ingólfsson
trommuleikari, Heimir Sverrisson,
bassaleikari og Jóhannes Eiðs-
son, söngvari. Upptöku stjórnaði
Rúnar Gunnarsson.
21.15 Úr öskunni í eldinn Bresk-
bandarísk heimildamynd. I mynd-
inni er rætt við fjóra bandaríska
fanga, sem börðust i Víetnam-
stríöinu, og fjallaö um áhrif stríðs-
ins á fyrrverandi hermenn en
margir þeirra bíða aldrei reynslu
sinnar bætur. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
22.05 Með Ijósa lokka (Big Blonde)
Bandarísk sjónvarpsmynd, gerð
eftir kunnri smásögu eftir Dorothy
Parker. Leikstjóri Kirk Browing.
Aðalhlutverk: Sally Kellerman,
John Lithgow, George Coe og Peg
Murray. Söguhetjan er Ijóshærð
fyrirsæta, imynd þeirra kvenna
sem eiga allt sitt undir því að falla
karlmönnum í geð. Á það reynist
þó valt að treysta þegar á móti
blæs. Þýðandi Kristrún Þórðardótt-
ir.
23.25 Fréttir í dagskrárlok