NT - 27.06.1985, Page 22

NT - 27.06.1985, Page 22
* \ % T vö íslensk Fimmtudagur 27. júní 1985 22 l ■1 Handknattleikur: - gegn Hollendingum og Norðmönnum ■ Guðmundur Guömundsson skorar í landslcik gcgn Norömönnum (og Hollendingum) í Fluglciöamólinu. Svíum í desember s.l. Vonandi fer hann ofl eins að gegn frændum vorum NT-mynd: Sverrir ■ Fyrstu leikirnir í Flugleiða- mótinu í handknattleik verða í Digrancsskóla í Kópavogi í kvöld. Þá leika Holland og landslið íslands skipað leik- mönnum 21 árs og yngri og síðan leika landslið íslands og Noregs. Fyrri leikurinn hefst klukkan 20 og sá siðari kl. 21.15 Sem fram hefur komið er mót þetta liður í undirbúningi ís- lensku landsliðanna tveggja fyr- ir HM í handknattleik. Yngra landsliðið tekur þátt í úrslita- keppni HM á Ítalíu seinna á árinu, en liðið vann sér rétt til þátttöku með sigri í riðli sínum í vor. Þar léku, auk íslands, landslið Hollands og Finnlands. A-landsliðið tekur svo þátt í úrslitakeppni HM í Sviss í febrú- ar og mars næsta ár, en liðið ávann sér rétt til þess með hinni frábæru frammistöðu sinni á ÓL í Los Angeles í fyrrasumar. Landsiiðin tvö hafa æft saman átta sinnum í viku nú í júní mánuði og er mótið nú loka- punkturinn á því prógrammi. Síðan tekur við frí hjá landsliðs- mönnunum fram í ágúst, en þá hefjast æfingar hjá félagsliðum þeirra. Þá mun í athugun að fara með landsliðin í æfingabúð- ir til V-Þýskalands. Ekki er fullfrágengið hverjir leika með landsliðinu undir 21 árs í mótinu núna og hverjir með A-landsliðinu, en hópur- inn, sem hefur verið valinn lítur þannig úr. Markverdir: Guðmundur Hraínkelsson, Breiðablik, Einar Þorvarðarson, Tres de Mayo, Kristján Sigmundsson, Víkingi og Brynjar Kvaran, Stjörnunni. Aðrir leik- menn eru: Þorbjörn Jensson, Val, Þorgils Óttar Mathiesen, FH, Geir Sveinsson og Jakob Sigurðsson, Val, Guðmundur Al- bertsson, GUIF Eskiltuna, Guðmundur Guðmundsson, Víking, Valdimar Grímsson, Val, Páll Ólaísson, Dankersen, Sigurður Gunnarsson, Tres de Mayo, Kristján Arason, Hameln, Þorbergur Aðalsteinsson, SAAB, Júlíus Jónasson, Val, Sigurjón Guðmundsson, Stjörnunni, Árni Friðleifsson, Gróttu, Agnar Sigurðs- son, Fram, Sigurjón Sigurðsson og Snorri Leifsson Haukum, og Einar Einarsson, Hermundur Sigmundsson og Gylfi Birgisson, allir í Stjörnunni. Leikdagar í bikarkeppninni 2/7 Sandgcrði Reynir : Þór 2/7 Laugardalur Árvakur : Víðir 2/7 KR-völlur KR : ÍA 3/7 Akureyri KA : Austri/Einhcrji 3/7 Vesímannaeyjar IBV : FH 3/7 Laugardalur Víkingur: Frani 4/7 Njarðvík Njarðvík : ÍBK 4/7 Laugardalur Þróttur : Valur Allir leikirnir hefjast kl. 20:00. Hátíðisdagar í Borgarnesi „Ping-0pen“ golfmótið verður haldið um helgina ■ Hátíðisdagar golfara vcrða í Borgarnesi um næstu helgi en þá verður Ping Open golfmótið haldið, en það er þegar oröið vinsælasta golfmótið í Borgar- nesi. Til marks um það mættu 70 manns á síðasta ári þrátt fyrir brjálað veður. Nú er veðurspáin hinsvegar góð og má því búast við miklum fjölda keppenda. Golfklúbbur Borgarness er staðsettur á mjög fögrum stað og aðstaða öll eins og best verður á kosið og svo eru þeir Hamarsfélagar þekktir fyrir einstaka gestrisni og smellinn húmor. Golfarar ættu þvi að leggja lykkju á leið sína og heimsækja þá Hamarsfélaga. Völlurinn hefur aldrci verið betri, en það er stöðugt unnið að endurbótum á brautum og grínurn. Þrír efstu í flokki með og án forgjafar verða verðlaunaðir. Glæsilegt golfsett er veitt fyrir holu í höggi. Öll verðlaun eru gefin af (slensk-Ameríska h.f. sem er umboðsaðili fyrir hinar þekktu Ping golfkylfur. ■ Sigurlaunin á „Ping-open“ golfmótinu í Borgarnesi. Puma sparkað ■ Framkvæmdanefnd Reykjavíkurmaraþonsins hyggst sparka PUMA úr sessi sem aðal stuðningsaðila (sponsor) þess að sögn Gunnars Páls Jóakimssonar, framkvæmdastjóra hlaups- ins. PUMA hefur staðið sig illa í samvinnunni og hefur brugðist að mörgu leyti, hef- ur t.d. ekki útvegað galla handa starfsmönnum hlaupsins, eins og ætlað var. Það er PUMA í Þýskalandi sem var stuðningsaðili hlaupsins, en að sögn Gunn- ars Páls mun ætlunin að reyna nú fyrir sér með ís- lenska stuðningsaðila. Leif Mikkelsen með námskeið á íslandi - á vegum handknattleiksdeildar Fram ■ Handknattleiksdeild Fram í samvinnu við Hljómbæ og Sam- vinnuferðir Landsýn, mun halda handknattleiksþjálfaranám- skeið 9.-12. ágúst næstkomandi í Seljaskóla í Breiðholti. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Leif Mikkelsen, lands- liösþjálfari Dana. Honum til aðstoðar verður hinn kunni kennari og línumaður Sigurður Svavarsson. A námskeiðinu hér mun Leif Mikkelsen nýtasérkcnnslugögn á myndböndum og mun Hljómbær lána til þess 50 tommu myndskerm frá Sharp. Önnur kennslugögn verða ókeypis á staðnum. Námskeiðin eru tvö, annað ætlað unglingaþjálfurum og hitt fyrir meistaraflokksþjálfara. Þeir sem áhuga hafa á að skrá sig á námskeiðin hafi samband ■ Leif Mikkelsen við Sigurð Baldursson í síma 34792 milli 9-10 virka daga. „Utlendingarnir" Atli Hilm- arsson, Bjarni Guðmundsson, Alfreð Gíslason og Sigurður Sveinsson, sem allir leika í þýsku Bundeslígunni, verða eicki með landsliðinu að þessu sinni. Þeir hafa þó allir lýst sig fúsa til að taka þátt í undirbún- ingi HM. Bogdan Kowalczyk hefur séð um þjálfun hópsins og Guðjón Guðmundsson og Axel Axels- son verið liðsstjórnar. Axel er nýtekinn við landsliðinu undir 21 árs og kemur jafnvel til greina að hann verði með liðið áfram eftir þetta mót. I úrslit HM? ■ Handknattleikssam- bandi íslands stendur til boða að senda landslið kvenna 21 árs og yngri til þátttöku í heimsmeistara- keppni þessa aldurshóps í Seoul í Suður-Kóreu í október í haust. Ekki hef- ur verið afráðið livort af þátttöku verður, enda ferð sem þessi afar dýr. Mótið er liður í undir- búningi Kóreumanna fyrir Ólympíuleikana 1988, sem haldnir verða þar í landi. ÁS mótinu keppa 16 landslið, þar af 11 frá Evrópu. Ef af verður verður þetta í fyrsta sinn, sem kvennalandsliðið undir 21 árs tekur þátt í úrslita- keppni HM. Mikill hugur í Húnvetningum: „Ætlum í aðra deild“ segir Helgi Þór Helgason framkvæmdastjóri og þjálfari hjá USAH ■ „Það er mikiö líf í starfí USAH í sumar, enda hófuin við að ákveðnu marki að stcfna. Bikarkeppni FRÍ 3. deild, verð- ur haldin á Blönduósi þann 27. júlí og við stefnum ótrauð að því að sigra og komast í 2. deild. Þar ætlum við að vera í framtíð- inni. Ég tel þetta raunhæft markmið því við eiguin mikið af mjög efnilegu ungu frjálsíþrótta- fólki,“ sagði Helgi Þór Helga- son í samtali við NT. Helgi starfar í sumar sem fram- kvæmdastjóri sambandsins og einnig þjálfar hann alla kastara. Hjá USÁH eru nú fjórir þjálfar- ar, Helgi, Þórhalla Guðbjörns- dóttir, Karen Erlingsdóttir og Indriði Jósafatsson. „Æfingar eru fimm sinnum í viku og fjöldinn allur sækir þær. Kjarn- inn úr liðinu er frá Blönduósi og Skagaströnd en einnig úr sveit- unum. Þess má geta að þrír keppendur í ferð UMFÍ til Dan- merkur eru frá USAH, ég, Sól- veig Stefánsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir. Guðbjörg hefur bætt sig mjög í kúluvarpi, kast- aði 12,51 metra á móti 17. júní. Það er annar besti árangurinn í ár svo hún á framtíð fyrir sér," sagði Helgi. Liðin sem keppa í Bikar- keppni 3. deildar eru auk USAH: HSS, HSH, UND, HSÞ, UNÞ, USVS, HVÍ, HHF og ÚSÚ. Héraðsmót USAH fór fram á Skagaströnd 22.-23. júní. Ágætt veður var á mótinu, sérstaklega seinni daginn, glampandi sól og hiti. Mótið tókst með ágætum eins og vera ber. Kaupfélag Húnvetninga, Saumastofan Ví- óla og útgerðarfyrirtækin Vík sf. og Björg sf. gáfu verðlaun á mótið. Úrslit urðu sem hér segir: Konur 100 m Steinunn Snorradóttir, Hvöt, 14,3 sek. 200 m Hrönn Sigurðardóttir, Hvöt, 30,6 sek. 400 m Steinunn Snorradóttir, Hvöt, 71,2 sek. 800 m Steinunn Snorradóttir Hvöt, 2.51,7 min 1500 m Steinunn Snorradóttir, Hvöt, 6.23,3 min. 100 grind Hrönn Sigurdardóttir, Hvöt, 19,6 sek. 4x100 A-sveit Hvatar 62,7 sek. 1000 boð A-sveit Hvatar 2.51,4 min. Langst. Anna Sveinsdóttir, Hvöt, 4,24 m. Hást. Anna Sveinsdóttir, Hvöt, 1,40 m. Kúla Guðbjörg Gylfadóttir, Fram, 12.34 m. Kringla Sigríður Gestsdóttir, Fram, 30,90 m. Spjót Marín Jónasdóttir, Hvöt, 32,36 m. Karlar 100 m Indriði Jósaíatsson, Hvöt, 11,7 sek. 200 m Indriði Jósafatsson, Hvöt, 25,0 sek. 400 m Angar B. Guðmundsson, Hvöt, 56,6 sek. 1500 m Daniel Guðmundsson, Umf.B. 4.26,4 min. 3000 m Sigfús Jónsson, Fram, 10.03,6 min. 110 gr. Agnar B. Guðmundsson, Hvöt, 18,8 sek. 4x100 A-sveit Hvatar 50,0 sek. 1000 boð. A-sveit Hvatar 2.23,3 mín. Langst. Jóhann Sigurðsson, Hvöt, 5,97 m. Hást. Sigurbjörn Kristjánsson, Fram, 1.75 m. Þrist. Guðmundur Ragnarsson, Hvöt, 12,41 m. Stöng ómar Jakobsson, Fram, 2.90 m. Kúla Helgi Þór Helgason, Geislar, 15.77 m. Kringla Helgi Þór Helgason, Geislar, 48,88 m. Spjót Helgi Þór Helgason, Geislar 51,08 m. Stigah. einst. Steinunn Snorradóttir, Hvöt, 33 stig. Agnar B. Guðmundsson Hvöt 31 stig. Bestu afrek Guðbjörg Gylfadóttir, Fram, kúluv. 740 stig. Helgi Þór Helgason Geislar kringla 852. Stig félaga: Hvöt 305, Fram 157,5, Vorboðinn 33,5, UMFB" 26 og Geislar 18.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.