NT - 27.06.1985, Page 23

NT - 27.06.1985, Page 23
Fimmtudagur 27. júní 1985 23 - eftir 0-0 jafntefli gegn heimamönnum Frá Sigfúsi Guömyndssyni í Kvjum: ■ Isfiröingar voru heppnir að sleppa frá Eyjum með eitt stig. Heimamenn voru sterkari aðil- inn og liefði Tómas Pálsson getað skorað tvívegis með smá heppni og Sigbjörn einu sinni. Pað voru ísfirðingarsem byrj- uðu leikinn betur en smá saman komust heimamenn inní leikinn og síðari hálfleikur var ein stanslaus sókn af þeirra hálfu. Tómas Pálsson fékk gott færi á 28. ntín. er hann klikkaði á markteig eftir fasta fyrirgjöf Bergs. Tomrni var aftur á ferð- inni á 61. mín. og þá með hörkuskot í stöng. Þaðan barst boltinn til Sigbjörns sem kom honum yfir af stuttu færi. Tómas var síðan á ferðinni rétt fyrir leikslok en þá tókst ísfirðingum að bjarga á línu. Eins og fyrr segir þá voru heimamenn ölu sterkari en ís- firðingar spiluðu uppá að verjast. Þeir áttu engin færi svo talandi sé um í leiknum. íslandsmótið 2. deild: KAvannLeiftur NT-mynd: Sverrir ■ Willum Þórsson KR-ingur sem gerði tvö mörk berst hér við Halldór Áskelsson Þórsara sem átti ekki ýkja góðan dag. íslandsmótið í knattspyrnu 1. deiid: Ekki tapar KR í Vesturbænum - unnu Þórsara 3*2 eftir að hafa verið undir - Hafa ekki tapað á KR-vellinum ■ Það fer að verða sigur fyrir lið að ná jafntefli í Vesturbæn- um gegn KR-ingum. Þeir hafa nefnilega ekki tapað leik þar til þessa nema á kæru - og það tel ég ekki með. í gærkvöldi komu Verðlaun ■ Bestu varnar-, sókn- ar- og markmenn verða valdir á Flugleiðamótinu í handknattleik af sér- stakri dómnefnd og verða þeir verðlaunaðir sér- staklega. Auk þess fær markahæsti leikmaður- inn viðurkenningu. Þá fær sigurliöið veglegan bikar að launum. Fjögur dómarapör dæma leikina. Tvö eru íslensk, Óli Olsen og Gunnlaugur Hjálmars- son, og Gunnar Kjartans- son og Rögnvaldur Er- lingsson. Colling og Be- fort koma frá Luxemborg og Daems og Helwgen frá Hollandi. arsms ■ Búlgarska stúlkan Stefka Kostadinova náði besta árangri ársins í há- stökki kvenna í gær er hún stökk 2,01 metra á búlgarska meistaramót- inu sem haidið var í Sofíu. Hún sigraði heimsmet- hafann Ludmiilu Ando- novu sem stökk 1,95 metra. Heimsmet Ando- novu er 2,07 m. Þórsarar frá Akureyri í heim- sókn og sáu á eftir öllum stigun- um í vasa heimamanna. Leikur- inn endaði 3-2 fyrir KR. Það voru tvær hornspyrnur undir lok leiksins sem gerðu út um hann en þá sváfu Þórsarar illa á verðinum og voru vaktir upp við ansi Ijóta drauma. Þessi sigur KR-inga var sanngjarn. Liðið var mun frískara og þá sérstaklega í fyrri hálfleik en þá hefðu KR-ingar getað gert út um leikinn með eins og tveimur til þremur mörkum. Það tókst þó ekki. Þórsarar voru mjög slakir í fyrri hálfleik en hresstust til muna í þeim síðari og náðu þá undir- tökunum um tíma. Eins og fyrr sagði þá voru það KR-ingar sem byrjuðu leikinn af krafti og áttu fyrstu og einu tækifærin í fyrri hálfleik. Eftir um 15 mínútna leik þá klikkaði rangstöðutaktík Þórsara og Sæ- björn slapp einn í gegn. Hann náði góðu skoti en Þórsarar sluppu því knötturinn small í stöng. Tveimur mínútum seinna þá klikkaði rangstöðutaktíkinn aftur og nú sendi Stefán Péturs- son góða sendingu inná Willum sem var á auðum sjó og skoraði undir Baldvin í markinu, 1-0. Strax á eftir þá komst Sæbjörn aftur í gott færi en nú sá Baldvin við honum. Jósteinn átti svo skalla yfir á 20. mín. og síðasta færið fékk Ásbjörn en hann skaut yfir. Þar með lauk fyrri hálfleik. Strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks þá komst Bjarni Svein- björnsson á undan Stefáni í fyrirgjöf frá Kristjáni og hann skoraði, 1-1. Nú færðist nokkur harka í leikinn og voru tveir Þórsarar bókaðir. Á 65. mínútu fá svo Þórsarar víti. Bjarni komst þá í gegn og brunaði eftir endalínunni í átt að marki. Gunnar Gíslason felldi hann síðan rétt innan vítateigs og Jónas Róbertsson skoraði af öryggi úr vítinu. Sendi Stefán í vitlaust horn, 1-2. Fljótlega eftir þetta þá fara KR-ingar að sækja nokkuð stfft og Jóni G. Bjarna- syni er skipt inná fyrir Julíus. Jlann tekur hornspyrnu á 78. mín. sem Ágúst Már flikkar til Willums sem skorar aftur og jafnar 2-2. Eftir þetta þá gerðist lítið nema að liðin hættu að spila fótbolta heldur spörkuðu uppí loft í massavís. Það var svo á 85. mín. sem Björn Rafnsson brýst upp að endamörkum og ætlar að gefa fyrir. Óskar kemst inní sendinguna þá skellur hann á Birni sem meiddist og varð að fara af velli. Jón G. tekur hornið eftir að gert var að Birni í nokkurn tíma og sendir vel fyrir markið. Þar er Jósteinn Einars- son fyrstur að átta sig og sendir boltann í netið 3-2 og leiknum lokið. Liðin KR: Stefán Jóhannsson, Gunnar Gíslason, Hálfdán örlugsson, Willum Þórsson, Jósteinn Einarsson, Ágúst Már Jónsson, Ásbjörn Björnsson, Björn Rafns- son (Jakob Pétursson) Sæbjörn Guö- mundsson, Júlíus Þorfinnsson (Jón G. Bjarnason) og Stefán Pétursson. Þór: Baldvin Guðmundsson, Sigur- björn Viðarsson, Siguróli Kristjánsson, óskar Gunnarsson, Júlíus Tryggvason, Jónas Róbertsson, Nói Björnsson, Krist- ján Kristjánsson, Halldór Áskelsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Sigurður Pálsson (Hlynur Birgisson). þb NT Boltinn ■ Hjá Þór voru þeir þokkalegir Óskar Gunnarsson og Bjarni Sveinbjörnsson en hjá KR fá Willum Þórsson og Ásbjörn Björm&on punkt. Sá sem fær boltann er þó Hálfdán örlygsson sem er að verða hörku varnar- maður. - á Akureyri í rigningu og óþverra 2*0 Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri: ■ KA sigraði Leiftur frá Ólafsfirði á rennblautum gras- vellinum á Akureyri í gær- kvöldi með tveimur mörkum gegn engu. Leikurinn var harð- ur og slakur. Tveir leikmenn urðu að fara í aðgerð á sjúkra- húsi og oft var heitt í kolunum. Haraldur Haraldsson skoraði fyrsta ntarkið fyrir KA með skalla á 29. mínútu. Logi mark- vörður sló þá boltann í slá og inn. Síðara mark KA kom eftir hornspyrnu Þorvaldar Örlygs- sonar en hann gaf á Steingrím Birgisson sem skallaði inn, 2-0. Ekkert merkilegt gerðist ann- að í leiknum. Mjög erfitt var að spila á rennblautum vellinum íslandsmótið 2. deild: Engin mörk en rautt spjald - erFylkirogVölsungurléku ■ Fylkir og Völsungur gerðu markalaust jafntefli í leik liðanna á Árbæjarvelli í 2. deild í gær- kvöldi. Leikurinn var heldur í slakara lagi. Fylkismenn sóttu meira en Völsungar beittu skyndisóknum. Einn leikmanna Völsungs, Birgir Skúlason fékk að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik og eftir það voru Fylkis- menn hættulegri. og liáði það báðum liðum tölu- vert. KÁ menn voru þó betri allan tímann. Blikasigur ■ Blikarnir halda enn efsta sætinu í 2. deild cftir góðan sigur á Siglufirði í gærkvöldi. Leikurinn lauk 2-0 fyrir Blikana og voru þetta afar dýrmæt þrjú stig. Mörk Blikanna í leiknum voru afar falleg bæði tvö. Annað var skorað með þrumuskoti og hitt eftir skemmtilega tekna aukaspyrnu. Eftir þennan sigur þá eru Blikarnir búnir að hreiðra vel um sig í efsta sæti deildarinnar. „Þeir eru með besta liðið,“ sagði formaður knattspyrnudeildar KS. „Sigur þeirra var sanngjarn.“ Skallasigur ■ Skallagrímur úr Borg- arnesi vann sigur á sínum heimavelli gegn Njarðvík- ingum í gærkvöld. Sigurinn var sanngjarn. Ómar Sig- urðsson skoraði markið eina í síðari hálfleik. Skallagrím- ur sótti mun meira í leiknum og uppskáru þrjú stig í sam- ræmi við það. Flugleiðamótið í handknattleik: HNOT- SKURN ■ Leikur í meðallagi. Baráttan í fyrirrúmi og kom það niður á knattspyrnunni sérstaklega i se- inni hálfleik. Sigur KR-inga var sanngjarn þeir áttu fleiri færi. Þórsarar geta þó nagað sig í handarbökin fyrir að missa niður forskotið. Mörkin: KR: Willum Þórsson á 17. og 78. mín. og Jósteinn Einarsson á 85. mín. Þór: Bjarni Sveinbjörnsson á 47. mín. og Jónas Róbertsson úr víti á 65.mín. Dómari var Eyjólfur Ólafsson og var sæmilegur. Áhorfendur voru nokkuð margir en það var skítkalt. Leikið á sex stöðum ■ Leikirnir í Flugleiðamótinu í handknattleik verða í Reykja- vík, Kópavogi, Keflavík, Hafn- arfirði, Varmá, Akranesi og Selfossi, en á þessum stöðum eru alls staðar löglegir keppnis- vellir. Annars eru löglegir vellir syndsamlcga fáir á íslandi, fyrir utan þessa eru aðeins vellir á Akureyri, Vestmannaeyjum og Húsavík og e.t.v. einn eða tveir í viðbót. Flest íþróttahús sem reist hafa verið á undanförnum árum eru hins vegar aðeins of lítil til að geta talist lögleg. En dagskrá mótsins lítur ann- ars svona út: Á morgun leika í Keflavík kl. 19 Noregur og ísland undir 21 árs liðið. í Hafnarfirði leika kl. 20 Holland og ísland. Á laugardag verður svo heil uniferð á Selfossi. Kl. 15 keppa íslensku liðin tvö og kl. 16.30 leika Holland og Noregur. Þar með lýkur fyrri umferð, en sú síðari hefst á sunnudag. Þá leika íslensku liðin öðru sinni og nú á Varmá kl. 10.30. Á Akranesi leika á eftir Noreg- ur og Holland. Á sama stað leika svo Island undir 21 árs og Noregur kl. 17 og ísland og Holland kl. 18.30. Mótinu lýkur svo í Laugar- dalshöllinni á mánudag. Hol- land keppir við undir 21 árs liðið kl. 20 og Noregur og ísland kl. 21.30. HSÍ þarf hvergi að greiða vallargjöld nema í Reykjavík, á öllum öðrum stöðum voru þau gefin eftir. íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: ísfirðingar með stig úr Eyjum

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.