NT - 06.07.1985, Qupperneq 23
ssas
msmssmii
SE'Hf-f
fSSiSSmsSs*
"í
fiijHi.
w‘*íí,
gfHife
SHíííííílF
■ Lacrosse kallast leikur
þessi. Hann er m.a. talinn
vera þjóðaríþrótt Kanada-
manna. íþróttin byggist á því
að koma litlurn knetti á stærð
við amerískan hornabolta-
bolta í hálfgerð handbolta-
mörk með því að nota löng
prik með neti á endanum.
Eins og sjá má þá er útbún-
aðurinn á leikmönnum dálít-
ið sérkennilegur. Að ofan
eru menn klæddir sem amer-
ískir fótboltamenn með
plasthlífar undir búningnum,
hjálm á höfði og með ís-
hokkí-hanska. Síðan koma
stuttbuxur og skór í anda
knattspyrnunnar sem við
þckkjum.
Þessar myndir eru frá leik
liða frá John Hopkins-há-
skólanum og Syracuse-há-
skólanum er þau áttust við í
úrslitaleik bandaríska há-
skólamótsins í Lacrosse. Til
gamans má geta, að John
Hopkins-skólinn sigraði í
viðureigninni 11-4 en sá skóli
hefur veriö nær ósigrandi í
þessari íþrótt í mörg ár.
■ Kevin Curren sigraði
Jimmy Connors í undanúr-
slitaleik á Wimbledon-mót-
inu í tennis (6-2, 6-2, 6-1)
sem fram fer um þessar
mundir. Curren, sem sigraði
McEnroe um daginn, mun
því spila til úrslita við annað
hvort Andreas Jarryd frá Sví-
þjóð eða V-Þjóðverjann
Boris Becker í einliða leik
karla.
Eins og greint var frá í gær
þá spila þær Chris Evert
Lloyd og Martina Navratil-
ova til úrslita í einliðaleik
kvenna.
Einar stigahæstur
■ Einar Vilhjálmsson
er enn stigahæstur í karla-
keppni Grand-Prix mót-
anna. Hann hefur 40 stig
en næstur honum er
Doug Padilla 5000 m
hlaupari frá Bandaríkj-
unum með 34 stig. Einar
er að sjálfsögðu langefst-
ur í spjótkastkeppninni
með sín 40 stig en Tom
Petranoff frá Bandaríkj-
unum er honum næstur
með 25 stig.
Hjá kvenfólkinu er
Stefka Kostadinova há-
stökkvari frá Búlgaríu
Brugðið á leik
í Miklagarði
jijjjjí j
Laugardagur 6. júlf 1985 23
Stórleikur í 1. deildinni:
Skaginn-Fram
Tvísýnn ieikur á Skaganum
■ „Ef við vinnum þennan lcik
þá verðum við komnir með gott
forskot á Skagamenn. en þetta
verður tvísýnn leikur, því það
er alltaf erfitt að leika uppi á
Skaga," sagði Ómar Torfason í
Fram, en aðalleikur9. umferðar
l. dcildar er einmitt viðureign
ÍA og Fram á Akranesi.
„Leikurinn leggst ágætlega í
okkur, hjá okkur eru allir heilir,
sem léku síðasta leik og enginn
er í leikbanni. Þetta verður
hörkuleikur," sagði Árni
Sveinsson í ÍA.
Fyrir leikinn í dag er Fram
með 22 stig, en Skagamenn
Meistaramót
■ Aðalhluti Meistara-
nióts íslands fer fram í
dag og birtuni við hér
tímaseöil mótsins:
Laugardagur 6. júlí.
14.00 Mótsetning.
14.05 400 m grindahlaup karla,
stangarstökk, spjótkast kvenna.
14.20 400 m grindahlaup kvenna.
14.30 Kúluvarp karla, hástökk
kvenna.
14.45 200 m hlaup karla, lang-
stökk karla.
15.05 200 m hlaup kvenna.
15.25 5000 m hlaup karla, spjót-
kast karla.
15.50 Kúluvarp kvenna. 800 m
hlaup karla.
16.00 800 m hlaup kvenna.
16.10 4x 100 m boðhlaup karla.
16.20 4 x 100 m boðhlaup kven na.
Sunnudagur 7. júlí
14.00 110 m grindahlaup karla,
hástökk karla, kringlukast karla,
langstökk kvenna.
14.20100 m grindahlaup kvenna.
14.45 100 m hlaupkvenna,
undanrásir.
15.00 100 m hlaup karla, undan-
rásir.
15.15 400 m hlaup kvenna.
15.30 Kringlukast kvenna.
15.35 400 m hlaup karla, undan-
rásir. Þristökk.
15.40 1500 m hlaup kvenna.
Sleggjukast karla.
15.55 100 m hlaup karla, úrslit.
16.00100 m hlaup kvenna, úrslit.
16.05 1500 m hlaup karla.
16.20 400 m hlaup karla, úrslit.
Mánudagur 8. júlí.
19.00 Fimmtarþraut, 1. grein.
19.10 3000 m hindrunarhlaup
karla.
19.40 4 x 400 m boðhlaup kvenna.
19.55 4x400 m boðhlaup karla.
Til mótsins hafa verið
gcfnir sjö bikarar sem
keppt verður um í hinuni
ýmsu greinum. Þá verða
vegleg verölaun fyrir
besta afrek mótsins. Það
er frjálsíþróttadeild Ár-
manns sem hefur umsjón
með mótinu að þessu
sinni.
koma næstirmeð 14 stig. Leikur
liðanna hefst kl. 14.15.
Þá leika FH og Þór i Hafnar-
firði og hefst sá leikur kl. 16.
Á morgun, sunnudag, eru
síðan tveir leikir. Þróttur og
Víðir leika á Laugardalsvelli og
■ Norræn fimleikahátíö hefst
í Laugardalshöll á morgun,
sunnudag. Hátíðin verður opn-
uð kl. 15 með sérstakri dagskrá
og hefst hún á því að Davíð
Oddsson, borgarstjóri, flytur
ávarp. Þá munu á annað hundr-
að íslensk börn sýna hópatriði
við tónlist, auk þess sem hinar
Norðurlandaþjóðirnar verða
með sýningar og íslenskir þátt-
takendur sýna valin atriði.
ÍBK og Víkingur í Jkeflavík.
Báðir leikirnir hefjast kl. 20.
Síðasti leikurinn í 9. umferð
er svo á mánudagskvöldið. Þá
keppa KR og Valur í Faxaskjól-
inu og hefst leikur þessara fornu
fjenda kl. 20.
Sýningar verða svo í Laugar-
dalshöll á mánudags- og nrið-
vikudagskvöld og lokasýning á
föstudag kl. 17. Á miðvikudag-
inn verður keppt í gólfæfingum
og dýnustökkum.
Alls munu um 650 keppendur
taka þátt í mótinu og ef veður
leyfir munu sýningar einnig
verða haldnar undir berum
himni.
■ Þeir hafa oft fagnað í sumar Framarar. Hvað gerist á Skaganum
í dag? N l'-iiivnd Sverrir
■ „Létt dansa litlir Ijósálfar", kallar þessi hópur úr Björkunum
sig. Þær sýna á opnunarhátíöinni.
Fimleikahátíð
■ Það gekk mikið á í Miklagarði við Sund í gær er landsliðsmcnnirnir Páll Ólafsson, Einar
Þorvarðarson og Sigurður Gunnarsson komu þangað í heimsókn með heilt handknattlciksmark með
sér. Þeir brugðu á leik með fólkinu sem var að versla í hclgarmatinn og gátu menn reynt að skora hjá
Einari. Margir reyndu en fáum tókst. Á myndum Sverris má m.a. sjá Jón Hjaltalín formann HSÍ reyna
markskot og meðal þeirra er bíða eftir að fá að reyna á þeirri mynd er Skapti Hallgrímsson
íþróttafréttaritari Morgunblaðsins. Stundum snéri Einar baki í þá er reyndu en varði samt. NT-myndSvemr