NT - 15.10.1985, Qupperneq 5
Þriðjudagur 15. október 1985
Fyrsta sinn sem Kínverjar
fjárfesta á Vesturlöndum
- Rio Tinto Zink volgir með Kísilmálmverksmiðjuna
■ í næsta mánuði má búast við
tíðindum varðandi áframhaldandi
samninga um nýja stóriðju á ís-
landi. Þá mun Rio Tinto Zink
gefa svör um hvort þeir eru tilbún-
ir til samninga um Kísilmálmverk-
■ Formenn nemendafélaga framhaldsskólanna afhenda Davíð Oddssyni
áskorunarbréfíð. F.v. Gunnar Sverrisson frá M.S., Sigsteinn Grétarsson frá
F.B., Gauti Jóhannsson frá F.Á., Gunnar Auðólfsson frá M.R., og Bjarni
Ólafsson frá Kvs.R. Á myndina vantar fulltrúa M.H. og V.í. NT-mynd: Róbert
Framhaldsskólarnir:
Sendu borgar-
stjóra áskorun
- vilja lægri strætisvagna-
fargjöld fyrir nemendur
■ Nemendastjórnir framhaldsskól-
anna í Reykjavík hafa afhent borgar-
stjóra bréf, þar sem skorað er á
borgaryfirvöld að beita sér fyrir því
að nemendum mennta- og fjölbrauta-
skóla í Reykjavík verði gefinn kostur
áódýrarifargjöldumS.V.R. ennúer.
í bréfinu segir einnig: Forsendur
þessarar áskorunar eru þær að
nemendur framhaldsskólanna, einn
stærsti notenda hópur S.V.R. hafa í
fæstum tilfellum nokkrar tekjur yfir
skólaárið, og strætisvagnaferðir vega
því ótrúlega þungt á metunum í
útgjöldum þeirra. Benda má á að
miðað við ferðir í og úr skóla, er
kostnaður vegna ferðanna kr. 11.000
yfir skólaárið. Við minnum á að
einnig er ærinn tilkostnaður við skóla-
bókakaup og greiðslu skólagjalda svo
eitthvað sé nefnt.
Vegna þess hve mál þetta er brýnt
hagsmunamál nemenda, vonumst við
eftir því að það hljóti skjóta og góða
afgreiðslu í borgarstjórn.
Sementsverksmiðjan og Gutenberg:
Hlutafélög
undanþegin
hlutafjárlögum
■ Sverrir Hermannsson, iðn-
aðarráðherra, hefur tilbúin
frumvörp um að Sementsverk-
smiðja ríkisins og Gutenberg-
prentsmiðjan verði gerð að
hlutafélögum og ríkið verði eini
hluthafinn. Sverrir mun ekki ná
að leggja fram þessi frumvörp
áður en hann yfirgefur iðnaðar-
ráðuneytið fyrir menntamála-
ráðuneytið, það mun því koma
í hlut Alberts Guðmundssonar
verðandi iðnaðarráðherra.
Sverrir sagði að í frumvörp-
unum væri engin ákvörðun tek-
in um að selja hlutabréf í fyrir-
tækjunum, en slíka heimild geti
menn alltaf útvegað sér síðar.
Ástæðan fyrir því að hann legg-
ur til að fyrirtækin verði að
hlutafélögum er að þá verði
þeim stjórnað eftir hlutafjárlög-
um, en þau eru að hans mati
fullkomnustu reglur um hvernig
fyrirtækjum skuli stjórnað.
Sverrir sagði að eins og málum
væri háttað nú þyrftu fyrirtækin
aldrei að halda aðalfund og
aldrei að standa skil á neinu.
Sverrir sagði að til væru for-
dæmi um að ríkið ætti allt
hlutaféð í fyrirtækjum. Sagði
harin að í lögum þessara fyrir-
tækja yrðu gerðar undanþágur
frá hinum venjulegu hlutafjár-
lögum um fjölda hlutafjár-
eigenda.
smiðjuna á Reyðarfirði og Kín-
verjar munu að öllum líkindum
setjast að samningsborðinu um
stækkun Álversins í Straumsvík.
Sverrir Hermannsson sagði við
NT að Rio Tinto Zink væri með
eignaraðildina að Kísilmálmverk-
smiðjunni í athugun og sagðist
hann búast við niðurstöðu frá
þeim seinni hlutann í nóvember.
Gerir hann sér miklar vonir um
að niðurstaðan verði jákvæð.
Mun RTZ tilbúið að eiga 60% í
verksmiðjunni, en í lögum urn
hana er gert ráð fyrir að ríkið eigi
meirihluta. Sagðist Sverrir helst
hafa kosið að RTZ ætti hana alla.
„Ef lög eru vitlaus, þá eru þau til
að breyta þeim,“ sagði hann og
bætti við að það yrði gert.
Hvað raforkuverðið varðaði þá
eru menn ekki komnir á neitt fast
í þeim efnum, en hinsvegar vita
RTZ á hvaða róli íslendingar
hafa verið með raforkuna.
Sverrir var spurður að því
hvort hann gerði sér vonir um að
hægt yrði að selja raforkuna á
kostnaðarverði. Svaraði hann því
til að við ættum um 5-600 Gwh, í
kerfinu Öseldar. Sagði hann að
menn skyldu bara velta því fyrir
sér hvaða verð þyrfti að vera á
þeim til að það borgaði sig fyrir
okkur að selja hana. Jafnframt
benti hann á að hagur okkar af
rekstri slíkrar verksmiðju væri
bara að 1/5 í orkunni.
Þá sagði Sverrir að von væri á
Kínverjum hingað til samninga
um miðjan nóvember og er gert
ráð fyrir því að þeir muni sjálfir
eiga þessa 40 þúsund tonna viðbót
í Straumsvík, en síðan munu þeir
kaupa tækniþekkingu og alla að-
stöðu af Alusuisje. Taldi hann
þetta mjög áhugavert því þetta er
í fyrsta sinn sem Kínverjar fara út
í svona fjárfestingar á Vestur-
löndum.
Borgarnes:
Leitað
að dreng
■ Björgunarsveitir frá
Borgarnesi voru kallaðar út
síðastliðinn laugardag, til að
leita 13 ára gamals pilts, sem
var við smalamennsku í Haga
í Skorradal. Hafði pilturinn
ekki skilað sér á réttum tíma,
og var leit hafin í þann mund
sem myrkur var að skella á.
Leitin stóð stutt, því piltur-
inn fannst fljótlega í gil.i
nokkru, en þar hafði reið-
skjótinn hans misst móðinn
og hætt. Pilturinn vildi ekki
yfirgefa hross sitt, þannig að
þeir dvöldu lengur í gilinu en
til stóð. Talið er að hesturinn
liafi verið vankaður eftir að
kerra sú sem notuð var undir
hann valt.
Leikarar:
Rósa Guðný Þórsdóttir.
Kolbrún Erna Pétursdóttir.
Fjalarr Sigurðarson.
Leikstjóri:
Helga Thorberg.
Tónlist:
Dúettinn
André Bachmann
Kristján Óskarsson
Sýningar
þriðjud. og
miðvikud.
kl: 20.30 - 00.30
r i
ifi
Tryggvagötu 26 R.
Borðapantanir S. 26906