NT


NT - 15.10.1985, Síða 23

NT - 15.10.1985, Síða 23
+ i'% ÍT1Í7 Þriðjudagur 15. október 1985 23 LlIÍ Útvarp — sjónvarp Rás 2, kl. 10. ■ Ragnar Sær Ragnarsson, stjórnandi þáttar fyrir yngsta fólkið, „Kátra krakka". Útvarp kl. 11.10: Anuga matvæla- r • • Viðtöl, þula, og ævintýri - í Kátum krökkum ■ Kátir krakkar er dagskrá fyrir yngstu hlustendurna frá barna- og unglingadeild út- varpsins, flutt mánudags- og þriðjudagsmorgna á Rás 2. Stjórnandi er Ragnar Sær Ragnarssson og í þættinum í dag ætlar hann að spjalla við tvo níu ára krakka af skóladag- heimili, þau Ástríði Elínu Ás- geirsdóttur og Sólmund Smára Sólmundsson. Spjallið mun snúast um hvernig síðasta sum- ar var hjá þeim og' hvernig þeim líkar í skólanum. Ragnar mun svo fara með þulu sem byrjar á „Þumalfing- ur er mamma" og endar á . „ósköp væri gaman í þessum heimi ef öllum kæmi sarhan jafn vel og þeirn," og ættu því flestir að vita um hvað þulan sú fjallar. Loks mun Viðar Eggertsson lesa ævintýrið um grísina þrjá og stóra ljóta úlfinn. Sjónvarp kl. 20.55: ■ Fylgst verður með lifnaðarháttum Kyrrahafsrostunga í þættinum í kvöld. gv i Orkustofnun erlendis hf. Framkvæmdastjóri Orkustofnun erlendis hf., hlutafélag sem stofnað er með lögum nr. 53/1985 til að markaðsfæra erlendis þá þekkingu, sem Orkustofnun ræður yfir á sviði rannsókna, vinnslu og notkunar jarðhita, vatnsorkurann- sókna og áætlanagerðar í orkumálum, aug- lýsir starf framkvæmdastjóra laust til um- sóknar. Umsónarfrestur er til 1. des 1985. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf í verkfræði, eða sambærilega menntun, og reyslu í erlendum samskiptum er varða markaðsfærslu erlendis á þeim sviðum sem að ofan eru tilgreind. Hlutastarf kemur til greina fyrst um sinn. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu stílaðar á stjórn Orkustofn- unar erlendis hf., en sendar starfsmanna- stjóra Orkustofnunar, Grensásvegi 9, Reykjavík. Með umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. VÉLSLEÐAÞJÓNUSTAN Viðgerðaþjónusta fyrir vélsleða og minni háttar snjóruðningstæki FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N - 200 Kópavogur Simi 6410 55 symngin - á Iðnaðarrásinni ■ Úr atvinnulífinu - Iðnaö- arrásin. er á dagskrá útvarps í dag. Stjórnendur eru Gunnar B. Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll Kr. Pálsson. Þátturinn verður að þessu sinni helgaður hinni heims- þekktu matvælasýningu, An- uga í Köln, sem stendur ein- mitt yfir þessa dagana. Sýning þessi er haldin annað hvert ár og taka þátt í henni matvæla- framleiðendur frá öllum heimshornum, eða 5200 fyrir- tæki frá 86 löndum. í fyrsta skipti taka nú íslendingar þátt í sýningunni, þarna sýna Sól hf. ogSölustofnun lagmetisins. Tveir stjórnendur þáttarins, þeir Gunnar og Páll, eru stadd- ir í Köln, og fá hlustendur að heyra viðtöl sem þeir tóku við Davíð Scheving Thorsteinsson hjá Sól hf. og Theodór Hall- dórsson hjá Sölustofnun Lag- metisins þarna úti. Þess má geta að á þessari sýningu eru nú staddir um 250 íslendingar, þar af 40-50 iðn- rekendurogum 100—150 heild- salar, þar sem þeir eru að kynna sér nýjungar og nýjustu tækni í matvælaframleiðslu. Rostungur í ríki sínu - um Kyrrahafsrostunginn ■ Sjónvarpið sýnir í kvöld bresku dýralífsmyndina Rost- ungur í ríki sínu. I myndinni er fylgst með lifnaðarháttum rost- unga austur í Beringshafi, einnig á eyju út af Alaska, Round Island, en eyjan sú er ein af fáum griðastöðum sem rostungurinn á enn. Rostungum er yfirleitt skipt í tvær greinar, Kyrrahafsrost- ungurinn, sem við fylgjumst með í kvöld, og Atlantshafs- rostunginn sem lifir t.d. nálægt íslandi, og í norðanverðu Atlantshafinu. Þótt rostungur- inn sé ekki beinlínis í útrým- ingarhættu enn sem komið er, er mikið farið að ganga á báða þessa stofna, og mikið er nú lagt í að vernda þá fáu staði þar sem hann heldur sig í dag. Þýðandi og þulur er Óskar Ingimarsson. Þriðjudagur 15. október 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktln. 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Veöurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Sætukoppur" eftlr Judy Blume Bryndis Víglundsdóttir les þýöingu sína (14). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál Endurtekinn þátt- ur Guðvarðar Más Gunnlaugsson- ar frá kvöldinu áöur. 10.10 Veðurfregnir. 10.40 „Ég man þá tið“ Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.10 Úr atvinnulífinu - lönaðarrás- in Umsjón: Gunnar B. Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll Kr. Pálsson. 11.30 Úr söguskjóðunni - Hreinlæti í aldamótabænum Reykjavík Þór- unn Valdimarsdóttir cand. mag. stjórnar þætti sagnfræðínema. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.301 dagsins önn - Heilsuvernd Umsjón: Jónína Benediktsdóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Á strönd- inni“ eftir Nevil Shute Njörður P. Njarðvík les þýðingu sína (17). 14.30 Miðdegistónlelkar Sinfónía nr. 6 í F-dúr op. 68 („Pastorale") eftir Ludwig van Beethoven. Franz Liszt raddsetti fyrir pianó. Cyprien Katsaris leikur. 15.15 BariðaðdyrumUmsjón:Einar Georg Einarsson. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Hlustaðu með mér - Edvard Fredriksen. (Frá Akureyri) 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín Helgadóttir. 17.40Tónleikar. 17.50 Síðdegisútvarp - Sverrir Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál Sigurður G. Tóm- asson fiytur þáttinn. 19.50 Tónleikar. 20.00 Úr heimi þjóðsagnanna - „Stúlkurnar ganga sunnan með sjó" Anna Einarsdóttir og Sólveig Halldórsdóttir sjá um þáttinn. Les- ari með þeim: Arnar Jónsson. Val og blöndun tónlistar: Knútur R. Magnússon og Sigurður Einars- son. 20.30 „Saga úr stríðinu", smásaga eftir Jónas Guðmundsson Baldvin Halldórsson les. 20.50 „Dagskrá kvöldsins" Kristján Kristjánsson les úr óprentuðum Ijóðum sinum. 21.05 íslensk tónlist Tríó fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Hallgrím Helga- son. Þorvaldur Steingrímsson, Pétur Þorvaldsson og höfundur leika. 21.30 Útvarpssagan: „Saga Borg- arættarinnar" eftir Gunnar Gunnarsson Helga Þ. Stephen- sen les (4). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags- ins. 22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. 22.25 Nemendatónleikar f út- varpssal Framhald á efni sem var útvarpað á alþjóðlegum tónlistar- degi æskufólks 1. október. Kynnir: Ýrr Bertelsdóttir. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 15. október 10:00-10:30 Kátir krakkar Dagskrá fyrir yngstu hlustendurna frá barna- og unglingadeild útvarps- ins. Stjórnandi: Ragnar Sær Ragn- arsson. 10:30-12:00 Morgunþáttur Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson. 14:00-16:00 Blöndun á staðnum Stjórnandi: Sigurður Þór Salvars- son 16:00-17:00 Frístund Unglingaþátt- ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson. 17:00-18:00 Sögur af sviðinu Stjórnandi: Þorsteinn G. Gunnars- son. Þriggja minútna fréttir sagðar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Þriðjudagur 15. október 19.00 Ævintýri Olivers bangsa Átt- undi þáttur. Franskur brúðu- og teiknimyndaflokkur í þrettán þátt- um um víðförlan bangsa og vini hans. Þýðandi Guðni Kolbeinsson, lesari með honum Bergdis Björt Guðnadóttir. 19.25 Aftanstund Endursýning þáttarins 9. október. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kvikmyndahátið Listahátfð- ar kvenna. Kynningarþáttur. Umsjón: Margrét Rún Guðmunds- dóttir og Oddný Sen. Stjórn upp- töku: Kristín Pálsdóttir. 20.55 Rostungur f rfki sínu Bresk dýralifsmynd. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 21.30 Vargur í véum (Shroud for a Nightingale) Annar þáttur. Breskur sakamálamyndaflokkur í fimm þáttum gerður eftir sögu eftir P.D. James. Aðalhlutverk: Roy Marsden, Joss Ackland og Sheila Allen. Adam Dalgliesh lögreglu- maður rannsakar morð sem framin eru á sjúkrahúsi einu og hjúkrunar- skóla. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 22.20 Stjórnmálaástandið við upp- háf nýs þings Umræða i beinni útsendingu með þátttöku for- manna eða fulltrúa allra stjórn- málaflokka á Alþingi. Umsjón Páll Magnússon. 23.20 Fréttir í dagskrárlok. Continental Betri barðar undir bílinn allt árið hjá Hjólbarða- verslun Vesturbæjar að Ægissíðu 104 í Reykja- vík. Sími 23470. FRAMTÆKNIs/f Vélsmiðja Skemmuveg 34 N 200 Kópavogur Járnsmíði- Viðgerðir lceland Vélaviðgerðir - Nýsmíði Tel. 91-641055 t Móöir mín Sólveig Júlíusdóttir fyrrum húsmóðir að Grindum Skagafirði sfðast til heimilis að Grundarstfg 5B, Reykjavik lést að Borgarspítalanum þann 13. október. Slgurlína Hermannsdóttir. t Móöir okkar, Valgerður Guðmundsdóttir hjúkrunarkona lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 12. október. Jakob Tryggvason Bjarney Tryggvadótir Jónína Tryggvadóttir Faöir okkar, tengdafaöir, fósturfaöir, afi og langafi Eyjólfur Þórarinn Jakobsson er lést laugardaginn 12. október verður jarösunginn frá Fossvogskirkjugaröi mánudaginn 21. þ.m. kl. 13.30. Guðbjörg Eyjólfsdóttir Magnús Eyjólfsson Ólöf Eyjólfsdóttir Rúna Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Axel Eiríksson Alda Þ. Jónsdóttir ElíasEinarsson Jón ÞórRagnarsson

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.